Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1993, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 25. MARS1993 Fréttir Seðlabankinn hjálpar bönkunum til að lækka vexti Vextir geta lækkað um 1 til 2 prósent „Sú þróun til vaxtalækkunar, sem viö höfum séð undanfarið, er mjög háð því að verölag haidist stöðugt og ekki verði breytingar á launum og gengi svo ekki raskist það jafnvægi sem aftur er komið í verðlagsmálum. Það má segja að þetta sé yfirlýsing af okkar hálfu um að stööugleiki sé grundvöllur batnandi ástands á markaðinum og hann einn verði til þess að vextir geti lækkað," segir Jóhannes Nordal seðlabankastjóri. Seðlabankinn hefur ákveðið að lækka útlánsvexti sem bankamir greiða af fyrirgreiðslu í Seðlabank- anum um 1 til 3% en hækka um leið innstæðuvexti, er innlánsstofnanir fá bæði af lausum innstæðum og húsbréfakerfið hefur haldið vöxtum uppi bundnu fé. Þetta á að vera umtals- verð búbót fyrir viðskiptabankana og gera þeim kleift að lækka vexti. Jafnframt þessu mun Seðlabankinn lækka vexti í tilboöum sínum á ríkis- víxla og ríkisbréfamarkaði, þannig að vextir þar lækki um allt að 1,5%. Vextir af ríkisvíxlum verða þá ná- lægt 8,5%. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri sagði í gær að þessar aðgerðir ættu að geta gert það að verkum að vext- ir, sérstaklega á óverðtryggðum lán- um, gætu lækkað um 1 til 2%. Ný veröbólguspá Seðlabankans gerir ráð fyrir innan við 1,5% árs- hraða verðbólgunnar á næsta árs- fjórðungi og því horfur á að verðlags- Jóhannes Nordal i gær. DV-mynd BG þróun stefni til jafnvægis á ný. Seðlabankastjórar segja að fram- boö húsbréfa hafi mestu ráöið um vaxtastig undanfarin tvö ár. „Við teljum að þetta mikla framboð húsbréfa síðustu tvö til þijú ár hafi haft veruleg áhrif á vaxtastigið og mjög mikilvægt að það fari ekki úr böndunum. Nú eru að vísu merki um það að eftirspum eftir húsbréfum sé að minnka. Ef það heldur áfram get- ur verið að ekki þurfi að takmarka framboð af húsbréfum. Við beinum því til ríkisstj órnarinnar að kanna þessi mál vel,“ sagði Jóhannes. -Ari Unnið við að flytja blálönguna úr Örfirisey í gær. DV-mynd GVA Örfirisey komin af blálöngumiðum: Náðum 40 tonnum í kasti og sprengdum tvisvar - segir Trausti Egilsson skipstjóri á milli fulltrúa Ernu Eyjólfsdótt- ur og Bandaríkjamannsins Brians Grayson um bráðabirgöa- umgengni foöurins við 5 ára dótt- ur þeirra. Málið er til meðferðar hjá fúlltrúa sýslutnannsins í Reykjavík. Svokallað forsjármál verður hins vegar þingfest í Hér- aðsdómi Reykjavíkur i dag. Þá verður ákveðið hvenær réttar- höld hefjast: þar sem tekiö verður fyrir hvort foreldranna skuli hafa varanlega forsjá samkvæmt ís- lenskum lögum. Faðirinn hefur farið fram á aö fá að sjá dóttur sina þrisvar sinn- um í viku. Móðirin sagði i sam- tali við DVígær aðhún vildileyfa fóðumura að sjá dóttur sína en þó aðeins eínu sinni í viku á heimili móöur sinnar, hluta úr degi og undir eftirJiti fulltrúa barnaverndamefndar. Ástæðuna kvað Ema. vera þá aö faöirinn heföi látiö ýmis ummæli fálla um sig í nærveru barnsins sem hún telur óviðeigandi. Sýslumanns- embættiö hefur nú þessar tillögur foreldrannatilathugunar. ~ÓTT Guðlaugsstaðabóndinn: Handsamarnú nágrannahrúta Magnúa ÓlsÉBson, DV, Húnaþmgi: Graðpeningur hefur gert Sig- urði bónda á Guðlaugsstöðum í Blöndudal gramt í geði í vetur en í fréttum DV hefur verið sagt frá því að hann hafi handsamað graöhesta nágranna sinna og fært yílrvöldum. í fyrradag tók hann síðan full- orðinn hrút sem ekki var í Ör- uggri vörslu og færði til hrepps- stjóra Svínavatnshrepps. Hrútur- inn reyndist vera í eigu Bjöms Björnssonar á Löngumýri og hef- ur Björa nú fengið hrút sinn. Heimildir fréttaritara segja að menn velti því fyrirsérhvort Sig- urður stofhi sjóð til þess aö byggja hrútákofa á Löngumýri en hann hefur þegar stofnaö sjóð til þess aö byggja graðhestahús á HöUustöðum, „Eina ráðið var að koma aö hóln- um okkar megin, kasta og draga upp hóhnn því að svæðið er ekki nema tæpar tvær sjómílur að stærð, mikið af togurum og erfitt að athafna sig á allan hátt,“ segir Trausti Egilsson, skipstjóri á togaranum Örfirisey sem kom inn af blálöngumiðunum á Reykjanesskaga í gærmorgun. Ör- firisey var með aflaverðmæti upp á 39 milljónir króna: 370 tonn af blá- löngu, karfa, þorski og ýsu. Tæpur helmingur af aflanum var blálanga. „Hóllinn er illvígur og erfitt að komast að honum. Frakkamir em með léttari veiðarfæri og lengri tog- víra en við og ekki hjálpaði það.“ Trausti segir að samskiptaörðugleik- ar hafi verið talsverðir því að Frakk- amir létu loftskeytamennina sjá um samskiptin við íslendingana. Tungu- málakunnáttan var ekki upp á marga fiska. íslensku sjómennimir töluðu ekki frönsku og Fransmennirnir ekki ensku. Ekki bætti það úr skák. „Við náðum upp undir 40 tonnum í kasti og sprengdum tvisvar þannig að það virtist vera nógur fiskur þama. Hann kemur í göngum, karl- fiskurinn sér og kvenfiskurinn sér. Ég býst við að hrygningartíminn vari í mánuö og þetta verði búið um miðjan apríl.“ Örfirisey hélt heim í vikubyrjun eða um sama levti og varðskipið Óðinn kom að landhelgislínunni. „Frakkamir vom búnir að vera fyrir innan landhelgina aha þá viku sem við vorum þarna en um leið og varð- skipið kom fóm þeir út fyrir og héldu sig þar. Þeim þykir ömgglega súrt í broti að komast ekki almennilega að hólnum því að einn skipstjórinn sagðist vera búinn að veiða þama í tvö ár.“ Frönsku togaramir fengu styrk frá Efnahagsbandalaginu fyrir tveimur áram til að leita að nýjum fiskimið- um. „Togarinn Sjóh frá Hafnarfirði leitaði víða en fann ekkert. Það er dýrt fyrir okkur að leita aö nýjum miðum því að við fáum engan styrk til þess frá Efnahagsbandalaginu eins og Frakkamir. Svæðið er svo stórt að það þarf að kemba það vel. Manni getur hæglega yfirsést einn hóll,“ segir Trausti. Örfirisey fer aftur út á sunnudag- inn og segist Trausti búast við aö Reykjanesskagi verði fyrir vahnu þá. Gert er ráð fyrir að Sjóh komi inn í vikulokin. -GHS Stuttar fréttir RwnK iffiKKðr steypu Friðrik Sophusson fiármála- ráðheiTa leggur til að 9% vöru- gjald á ýmsum byggingavörum verði feht niður. Steypa myndi lækka um 4% vegna þessa. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins þrýstir Landsbankinn mjög á róttækar breytingar á rekstri Miklagarðs en greiöslu- staða fyrirtækisins þykir mjög erfið. Jafnvel er rætt um að Hof, eignarhaldsfélag Hagkaups og IKEA, setji upp IKEA-verslun i Holtagörðum. Flugleiðabréfhrapa Markaðsverð hlutabréfa í Flug- leiðum hefur lækkað úr um 4.719 mihjónum króna í 2.653 milhónir á tveimur áram eða um rúmlega 2 milljaröa, segir Morgunblaðið. Bolviskarfá vinnu Sex konur írá Bolungarvík, sem misstu starf sitt þegar EG varð gjaldþrota, hafa fengið vinnu hjá Norðurtanganum á ísafirði. Þær keyraámilh. Hagnaöur Esso var tæplega 200 milljónir í fyrra. Fokdýrirtónlistarskólar Á síöasta ári greiddi Reykjavík- urborg um 214 milljónir í kenn- aralaun i níu einkatónhstarskól- um í borginni. Nemendur munu vera um 2000 og þvi greiddar 100 þúsund krónur meö hverjum nemenda, að sögn Tímans. Stóra samninganefnd ASÍ hefur veriö köhuð saman á Fóstudag. Fyrir þann tíma þarf að liggja fýrir hvort grandvöhur er fyrir kjarasamningum milh aöila vinnumarkaðarins. Sveitarfélaganefnd leggur til að greidd verði atkvæöi í haust um sameiningu sveitarfélaga. Meiri hluta þurfi í hverju félagi. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að stofna byggingarlistasafn og hefur keypt vinnustofur fyrir listamenn. Það era innan við helmingslík- ur á því aö EES samningurinn taki ghdi 1. júrii, segir sendiherra EB á íslandi og Noregi. Áætlaö er að á fimmta þúsund börn fermist í ár. Skinnatap Sérstök úttekt verður gerð á rekstri íslensks skiimaiönaðar á Akureyri vegna mikils taprekstr- ar í fyrra en tapið var um 100 mílljónir. Hlákan kostar Akureyrarbær verður að greiða níu húseigendum 30 mihjónir í skaöabætur vegna vatns sem flæddi inn í asahláku. SLgræðr Hagnaður af rekstri Samvinnu- ferða-Lándsýfi var 22 mhfiónir í fyrra en tapið var 37 milljónir 1991. Þormódurtapar Þormóður rammi tapaði 45 mihjónum á rekstrinum í fyrra samanborið ýið 85 mihjóna hagn- að áriö áður. Tapið má rekja tíl gengisfelhngarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.