Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1993, Blaðsíða 28
40
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1993
Fréttir
Opinber reglugerð gerir ráð fyrir fiillvimislu 1 frystitogurum:
Kostar marga milljarða
að breyta togurunum
- mjög óhagkvæmt og leiðir til stórtaps á frystitogurum, segir 1 nýrri hagkvæmniúttekt
„Innan greinarinnar eru menn
gapandi hissa á þeirri ákvöröun
stjómvalda að fara fram á full-
vinnslu afla um borð í frystitogur-
um. Mönnum er hreinlega stillt
upp við vegg og þvingaðir í gríðar-
legar íjárfestingar sem engan veg-
inn geta staðið undir sér,“ segir
Sveinn Hj. Hjartarson, hagfræðing-
ur LÍÚ.
Samkvæmt reglugerð, sem sett
var síðastliðið sumar, er gert ráð
fyrir að frystitogarar fullnýti afla
um borð. Breytingin er fyrirhuguð
í áföngum næstu árin. Útgerðar-
menn hafa andmælt þessu og segja
breytingu á skipunum ekki borga
sig.
Samkvæmt nýrri skýrslu, sem
VSÓ-iðntækni hefur unnið fyrir
LÍÚ og frystitogaraútgerðir, er full-
vinnsla ekki vænlegur kostur. Hag-
kvæmniathugun, sem náði til 30
frystiskipa, leiðir í ljós að stofn-
kostnaðurinn við fullvinnslu yrði á
bilinu 2,8 til 4,1 milljarður. Rekstr-
arafkoma skipanna myndi versna
um 670 til 940 milljónir króna á ári
næstu 5 árin.
-kaa
„Landbúhaðarsamnlngamir
eru ekki í hættu né viðræður um
endurbætur en ef Frakkar vilja
beita neitunarvaldi, sem er þeirra
ótvíræði réttur, mundi það hafa
mjög alvarlegar afleiöingar fyrir
Evrópubandalagiö í heild sinni.
Annars virðast væntanlegir
stjórnarherrar eiga í vandræðum
sem tengjast bæði kosningafyrir-
komulaginu og þeim loforðum
sem gefin voru í kosningabarátt-
unni. Það er þó alveg ijóst að ekk-
ert aðildarríkjanna getur staðið
eitt og sér né ákveðiö hlutina út
af fyrir sig. Þannig efast ég stór-
lega um að hægt verði að hverfa
aftur til skipulags tollmúra og
styrkja," sagöi Gerald Bruderer,
yfirmaður samskipta EB og
EFTA í landbúnaðarmálum, viö
DV, en hann er hér á landi.
Hann var spurður um yfirlýs-
ingar sigurvegara frönsku þing-
kosninganna, Giscards d’Estaing
og Jaeques Chirac, um að Frakk-
ar ættu aö beita neitunarvaldi
sínu innan EB gegn samningi EB
og Bandaríkjanna um landbún-
aðarmál innan GATT-viðrajðn-
anna og semja ætti upp á nýtt um
breytingar á sameiginlegri land-
búnaðarstefnuEB. -hlh
Snorrastaðatj amir:
Sumarbústaður
„Við erum mótfallm öllum
mannvirkjum á þessu svæði þvi
að hraunið er gljúpt þama og
mengun dreifist hratt út frá
mengunarstað. Ef hægt er að
ganga frá skólpi þannig að engin
mengun hljótist af má athuga
máliö,“ segir Magnús Guðjóns-
son, Heilbrigðiseftirliti Suður-
nesía.
Skátafélagiö Heiðarbúi í Kefla-
vík flutti nýlega sumarbústað að
Snorrastaöatjömum fyrir ofan
Vogastapa í Vatnsleysustrandar-
hreppi með leyfl sveitarstjórans
en án lögboðinnar umsagnar
Náttúruvemdarráðs, Skipulags
ríkisins og Heilbrigðiseftirlitsíns.
Snorrastaðatjamir eru aö hluta
til á náttúruminjaskrá.
„Þaö er búið að benda hreppn-
um á að sækja um tilskilin leyfi
fyrir byggingunni. Nátlúru-
vemdarráð eða náttúmvemdar-
nefnd hreppsins fær sjálfsagt er-
indið í næstu viku. Það er sjaldan
gert mikið úr svona málum. Bú-
staðurinn fær aö standa ef erind-
ið fær jákvætt svar en verður ■
fluttur ef það fær neitun,“ segir
Rapiar Kristjánsson, landslags-
arkitekt hjá Náttúruvemdarráði.
Mávar i þúsundatali hafa plagað Eskfirðinga í vetur en nú hefur verið fund-
in snjöll lausn á málinu - hátiðnifælur sem gefa frá sér hljóð sem manns-
eyrað greinir ekki en fælir mávinn frá. Haukur Jónsson, staðgengill verk-
smiðjustjóra Hraðfrystihúss Eskifjarðar, er hér við hátíðnihögnann og þar
hefur ekki sést mávur frá því hann var settur upp.
DV-mynd Emil Thorarensen, Eskifirði
Fullnýtmg afla í frystitogurum:
Berum þetta
saman við okk-
ar athugun
- segiraöstoöarmaðursjávarútvegsráðherra
„Ráðherra hvatti útvegsmenn til
að framkvæma eigin könnun á hag-
kvæmni þess að fullnýta afla um
borð í frystiskipum. Niðurstaða
þeirrar köimunar er hins vegar það
ný af nálinni að við höfum ekki náð
að mynda okkur skoðun á henni.
Næsta skrefið hlýtur að vera að bera
þessar niðurstöður saman við athug-
un sem ráöuneytið lét fara fram,“
segir Halldór Ámason, aðstoðarmað-
ur sjávarútvegsráðherra.
Samkvæmt reglugerð, sem sett var
í ágúst í fyrra, ber frystitogurum að
auka nýtingu afla á næstu áram.
Reglugerðin byggist á tillögum
Rannsóknarráðs fiskiðnaðarins.
Ráðið lagði meðal annars til að nýt-
ing afla yrði bætt með fullkomnari
vinnsluvélum og að úrgangur yrði
nýttur til meltuvinnslu.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra er nú staddur erlendis.
Hans bíður hins vegar með að taka
ákvörðun um hvort reglugerðinni
frá því síðastliðið sumar verði breytt
eins og útgerðarmenn frystitogar-
annahafakrafist. -kaa
Alþýðubandalagið:
Allir fái atvinnuleysisbætur
Allir þingmenn Alþýðubandalags-
ins, undir forystu Svavars Gestsson-
ar, hafa lagt fram á Alþingi viðamik-
ið framvarp til laga um breytingar á
lögum um atvirmuleysistrygginga-
sjóð. Frumvarpið gerir ráð fyrir
fimm breytingum.
Sú viðamesta er á þá leið að alhr
þeir sem ekki hafi atvinnu fái at-
vinnuleysisbætur, hvort sem þeir
era í stéttarfélagi eða ekki. Svavar
Gestsson segir að þúsundir maima
fái engar atvinnuleysisbætur vegna
þess að þeir era ekki í verkalýðsfé-
lögum. Þar sé um að ræða menn sem
hafi verið einyrkjar áður en þeir
urðu atvinnulausir og hafi því að
engu að hverfa.
Þá er gert ráð fyrir að þjónusta við
atvinnulausa geti verið á einum stað
í hverju umdæmi. Nú eru dæmi þess
að hún sé á þremur stöðum. Gert er
ráð fyrir landssamstarfi vinnumiðl-
unarskrifstofa. Þá er gert ráð fyrir
að bætur með hverju barni atvinnu-
lausra hækki úr 85 krónum í 250
krónur og biðtími falli niður. Loks
er gert ráð fyrir að opna frekar en
nú er rétt atvinnulausra til að stunda
reglulegt nám á atvinnuleysisbótum
uns Lánasjóður íslenskra náms-
mannatekurvið. -S.dór
Bækur og tæki úr þrotabúi flugfélags Helga Jónssonar týndust:
Log-bækurnar fundnar
- voru í svörtum plastpoka fyrir utan Odin Air sem nú sækir um flugrekstrarleyfi
Týndu log-bækumar og tækin,
sem hurfu úr flugvélum Helga Jóns-
sonar og konu hans, Jytte, þegar
eignarhaldsfélag þeirra, J.M. Avia-
tion, varð gjaldþrota í haust, hafa nú
komið í leitimar.
Starfsfólk Odin Air, sem fjölskylda
Helga rekur, fann bækumar ásamt
tækjunum í svörtum plastpoka fyrir
utan skrifstofu flugfélagsins á
Reykjavíkiuílugvelli. Ekki er vitað
hver var með bækurnar eða hvernig
þær komust á þennan stað en RLR
er með máhð th rannsóknar.
Bækurnar era úr þeim fjóram vél-
um sem Odin Air leigði af J.M.
Aviation. J.M. Aviation var skráð í
Danmörku og skuldaði danska fjár-
mögnunarfyrirtækinu Bikuben um
140 mhljónir þegar það var tekið th
gjaldþrotaskipta. Félagið hafði í raun
engan annan rekstur en eignarhald
á flugvélunum sem Odin Air leigði
en Helgi og kona hans, Jytte, áttu
bæði fyrirtækin.
Tvær flugvélaima era nú í Dan-
mörku og hafa log-bækumar verið
sendar þangaö. Önnur véhn var í
Danmörku þegar gjaldþrotið varð en
hinni var flogið þangað skömmu síð-
ar þrátt fyrir að log-bækumar séu
nauðsynlegar tíl að fljúga megi vél-
unum.
Hinar flugvélamar tvær eru í
geymslu á Reykjavíkurflugvehi en
Othar Öm Petersen, lögmaður
danska fjármögnunarfyrirtækisins
Bikuben og þrotabús J.M. Aviation,
hefur haft vélarnar í sirnii vörslu síð-
an í haust.
Odin Air, sem mun vera rekið af
fjölskyldu Helga, hefur nú sótt um
flugrekstrarleyfi til handa félaginu
en engin starfsemi hefur verið á veg-
um félagsins síðan flugvélamar vora
teknar. Fyrra flugrekstrarleyfi fé-
lagsins var veitt Helga Jónssyni per-
sónulega og féh það niður þegar hann
var úrskurðaöur gjaldþrota.
Flugráð tók máhð fyrir í gær en
frestaði afgreiðslu flugrekstrarleyf-
isins í viku. í milhtíðinni mun flug-
málastjóri efna th fundar með fuh-
trúum Odin Air til að fara yfir atriði
sem tahð er að þurfi frekari skýringa
við, svo sem fjármál félagsins. -ból