Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1993, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 1993
17
Sviðsljós
Halldór Blöndal veitir verðlaunin fyrir skil á örmerkjum til Veiðimála-
stofnunar þeim Þórði Erni Arnarsyni, Árna Guðbjörnssyni og Árna Krist-
inssyni.
Verölaun veitt fyrir
skil á merkjum
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra afhenti nýlega verðlaun
fyrir innsend örmerki á laxi til
Veiðimálastofnunar. Þetta afhenti
Halldór á verkefnakynningu Veiði-
málastofnunar sem þótti hin fróð-
legasta. Það voru þeir Þórður Öm
Amarson, Árni Guöbjörnsson og
Ámi Kristinsson sem lentu í þrem-
ur efstu sætunum. Þetta var í fyrsta
skipti sem verðlaun vom veitt og
verður gert árlega hér eftir.
-G.Bender
Ráðstefna Veiðimálastofnunar þótti hin fróðlegasta og var vel sótt.
DV-myndir G.Bender
Feguröardrottningar í Ingólfscafé
Stúlkurnar, sem keppa til úrslita í Fegurðarsamkeppni íslands síðar í mánuðinum, eru í ströngum æfingum þessa
dagana. Þær gáfu sér samt tíma til að líta aðeins inn í Ingóifscafé sl. miðvikudagskvöld og þar var létt yfir stelpun-
um eins og sjá má. DV-mynd JAK
Réttinda-
námskeið
fyrir skipstjóm-
armenn
Á Hólmavík er nýlokið 30 tonna
réttindanámskeiði fyrir skipstjóm-
armenn en þetta er annað námskeið-
ið sem er haldið hér með stuttu milli-
bih. Að sögn aðalleiðbeinandans,
Jóns Ólafssonar, hefur nú náðst til
flestra sem bátsstjóm hafa haft á
hendi hér í byggð en á því var knýj-
andi þörf.
DV-mynd Guðfinnur Finnbogason, Hólmavik
Meiming
Sálumessa
Verdis
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands og Kór íslensku óperunnar
í byrjun apríl vom einsöngvarar Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Elsa Waage,
Ólafur Á. Bjamason og Guðjón Grétar Óskarsson. Yoav Talmi frá ísrael
stjómaði en æfmgastjóri kórsins fyrir þessa tónleika var Peter Locke. Á
efnisskránni var Sálumessa eftir Giuseppe Verdi.
Kirkjunnar menn gerðu sér þegar í öndverðu glögga grein fyrir mikil-
vægi og áhrifamætti tónlistarinnar. Komu snemma upp tvö andstæð við-
horf um hlutverk tónlistar innan kirkjunnar. Sumir töldu að tónlistin
ætti að vera sem einfóldust og þjóna fyrst og fremst því markmiði að
koma textanum, orði Guðs, á framfæri. Aðrir litu á tónhstina sem dýr-
lega Guðs gjöf sem mætti njóta sín til fuhs í þjónustu kirkju og kristni.
Lengst af fóra höfundar kirkjutónhstar nokkum veginn bil beggja þess-
ara sjónarmiða. Slík tónhst hefur þess vegna oftast á sér yfirbragð alvöra
og hófsemdar. Menn forðast íburð og ýkjur í tjáningarmáta en reyna þess
í stað að ná áhrifum í yfirvegun, göfgi og dýpt.
Þessi leið átti ekki við Verdi. Hann var óperatónskáld fyrst og fremst
og sálumessa hans ber þess greinileg merki. Skrautleg útsetning, drama-
tískar andstæður, tilfinningaþrangnar aríur og glæsheg kóratriði era hér
síst minna áberandi en í óperum hans og ef ekki væri hinn trúarlegi texti
mundi fátt í verkinu minna á trú. Hvort verkið telst af þessu verri kirkju-
Tóiúist
Finnur Torfi Stefánsson
tónhst er annað mál. Skraut hjá Verdi er aldrei innantómt. Jafnan er
ríkuleg innstæða andríkis og hugmynda sem ber glæsibraginn uppi. Ekki
verður heldur annað sagt en að tónhstin falli vel að textanum þótt ef til
vil megi segja að hún beri hann ofurhði á stöku stað. Mat manna á ágæti
verksins sem trúarlegs verks fer því eftir skoðun manna á hinu foma
áhtaefni um tónhst og trú. Skoðað sem hstaverk þarf ekki að efast, þar
er það í fremsu röð.
Það er mikið fyrirtæki aö ílytja þetta mikla verk og ekki við því að
búast að aht verði þar fullkomið. Kór íslensku óperunnar komst mjög
vel frá viðfangsefninu og verður þar lítið að fundið. Hljómsveitin stóð sig
hins vegar nokkuð misjafnlega. Sumir frægir staðir fóra nokkuð í handa-
skolum en annað hljómaði vel. Einsöngvaramir áttu allir góð tilþrif, eink-
um í aríum sínum. Olöf Kolbrún söng t.d. lokaaríuna sérlega vel. Samsöng-
ur þeirra var hins vegar misjafn og stundum beinhnis vandræðalegur.
Stjómandinn sýndi öryggi og góða þekkingu á verkinu og í heild voru
þetta einkar ánægjulegir tónleikar;
Laugarásbíó- Hörkutól: ★ lA
Skugginn fer í feluleik
Margir kvikmyndahandritshöfundar ala með sér
þann draum að koma hugarfóstri sínu sjálfir aha leið
á tjaldið og leikstýra. Mörgum hefur farnast vel við
þá iðju. Öðrum ekki.
Hörkutól er fyrsta kvikmyndin sem Larry Ferguson
leikstýrir. Hann er hins vegar þekktur fyrir handrit
að myndum á borð viö Leitina að rauða október, Be-
verly Hihs Cop II og The Presidio. Ekki verður sagt
að Ferguson hafi tekist ýkja vel upp í frumraun sinni
á leikstjóraferhnum. Það vantar aUa spennu og átök.
En enginn verður óbarinn biskup.
Öllu verra er að handritið er einn veikasti hlekkur
myndarinnar og bætir ekki upp kunnáttuleysið við
stjómunina. Þar er aUt samkvæmt formúlimni, meira
að segja oft í klénna lagi. Þar kemur ekkert á óvart.
Hörkutól segir frá lögregluþjóninum Dan Saxon
(Sheen) sem strax í upphafi myndar er rekinn úr starfi.
Válegir atburðir í æsku hvha þungt á honum, atburð-
ir sem hann verður að særa fram úr svartholum hug-
Kvikmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
ans eigi hann aftur að verða heiU.
Saxon sem er hálfur indíáni fær nefnUega að vita
það hjá gömlum indíána í myndarbyijun að hann
hafi engan skugga. Og samkvæmt gamalli þjóðsögu
indíána getur hann aðeins endurheimt skuggann sinn
meö því að fara niöur í svarthohð og hitta dauðann.
En indíáninn varar hann viö að ekki komist allir lif-
andi frá þeirri leit.
Ramminn utan um þetta ferðalag Saxons eru við-
skipti hans við mótorhjólagengið Sjakalana og harðsv-
íraðan leiðtoga þess sem gengur undir nafninu Blood
(Madsen). Lögreglan hefur fengið Saxon tíl að ganga
í lið með genginu og koma upp um eiturlyfjasölu þess.
Ástarsagan er á sínum stað og stúlkan sem Saxon
fellur fyrir og sem fehur fyrir honum er ljósmyndari
og blaðakona (Fiorentino) sem ætlar að skrifa um töff-
arana.
Charhe Sheen sannaði það í Wah Street Ohvers Stone
að hann getur alveg leikið, að minnsta kosti þegar
Dan Saxon (Charlie Sheen) og vinur hans, Virgil (Leon
Rippy), eru skuggalegir á vélfákum sinum.
efniviðurinn er góður. Hann virðist hins vegar hafa
skihð nánast aht eftir heima fyrir þessa mynd. Eini
leikarinn, sem eitthvað sýnir, er Michael Madsen í
hlutverki mótorhjólaforingjans. Hann er þeim sem sáu
til hans í Reservoir Dogs fyrir stuttu sjálfsagt enn í
fersku minni. Hér leikur hann enn einn vitfirringinn
og gerir vel.
í myndarlok fá áhorfendur að vita að það sem þeir
vora að horfa á sé byggt á raunverulegum atburðum
og að hinn raunverulegi Saxon hafi leikið aukahlut-
verk í myndinni. Myndin verður þó ekkert betri fyrir
það. Hér hefðu menn átt að gefa sér betri tíma, því á
stundum gefur myndin fyrirheit sem hún stendur svo
alls ekki við.
HÖRKUTÓL (FIXING THE SHADOW).
Handrlt og leikstjórn: Larry Ferguson.
Kvlkmyndataka: Robert Stevens.
Leikendur: Charlie Sheen, Linda Fiorentino, Michael Madsen,
Rip Torn, Leon Rippy.