Alþýðublaðið - 21.03.1967, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 21.03.1967, Blaðsíða 6
'-si 4 - | "'tl Jósef Stalín leikur *!tr við dóttur sína, Svetlönu. Þrjátíu árum síðar stígur Svetiana Stalín /út úr ítalskri flugvél í Genf. Döttir Jósefs Stalins r hún sjálfa sig? I LIST VSAFNINU í Moskvu hangir ai dlitsmynd eftir einn kunnasta listamálara Rússa. ~Myndin er af ungri konu, sem hrosir tvíræðu hrosi. ,,Svetlana“ kallast þe si mynd, og Svetlana er algengt stúlkunafn í Sovétríkj unum. En stúlkan á myndinni er engin önnur en dóttir Stalíns. Á árunum fyrir heimsstyrjöldina síðari voru þúsundir telpna i Sov étríkjunum skírðar í höfuðið á henni. í síðustu viku steiíg einmana, miðaldra kona út úr ítalskri flug vél á flugvellinum í Genf .Hún var berhöfðuð, með stuttklippt hár og þreytuleg. Hún var klædd dökkri regnkápu og með röndótt an trefil um hálsinn. Þetta vnr dóttir Stalíns, sem nú er 42 iára að aldri. Hún vill ekki snúa aftur til Sovétríkjanna að því er hún hefur tjáð forsæt isráðherra Indlands, frú Indiru Gandhi, og bandaríska sendiherr anum í Nýju Delhi, Chester Bow les. En stjórnir beggja landanna hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur ti! að koma í veg fyrir að dóttir Stalíns setjist að í löndun um. ★ ÞUNGLYND. Fulltrúar svissneskra yfir- valda, sem hafa veitt henni land vist til bráðabirgða, segja að hún isé þunglynd og niðurdregin og þarfnist umfram allt næðis til að hvíla sig. Góðar heimildir í Sovétríkjun um herma að Svetlana hafi ekki flúið land vegna stjórnmálaskoð ana, og er það ekki ósennilegt enda hefur Svetlana Stalín aldrei gegnt opinberu embætti í Sovét ríkjunum né haft afskipti af stjómmálum. Margt bendir til þess að á- kvörðun Svetlönu um að snúa ekki aftur ti! Sovétríkjanna sé persónulegó eðlis. Vinur síðasta eiginmanns Svetlönu, sem lézt í desember í fyrra, dr. Zafar Im am, en hann er kennari við Brist olháskóla í Bretlandi, heimsótti hjónin oft í Moskvu. Hann lýsir Svetlönu þannig, að hún sé rótlaus, óhamingjusöm og telur hana skorta andlegt jafn vægi. Hún sé dæmigerð sovét íkona, sem sé gersneydd áhuga á stjórnmálum, aðeins í meðallagi greind, dálítíð feimin, mjög hlé dræg og eigi við mörg persónu leg vandamál að stríða. íbúð þeirra var búin nýtízku húsgögnum, sovézkum og skandi naviskum. Engar myndir voru á veggjunum. Þar var enginn hlut ur sem minnti á fortíðina. Hjón in bjuggu í fimm herbergja íbúð við bakka árinnar sem rennur skammt frá Kreml. Hjá þeim bjuggu tvö börn Svetlönu er hún átti méð fyrrverandi eiginmönn um sínum, 22 ára gamall sonur og 16 ára dóttir. Dr. Imam komst að þeirri nið urstöðu eftir að hafa rætt við hjónin, að Svetlönu hefði að vísu þótt vænt um föður sinn en óttazt Ihann. Hún sá um allar persónu leigar þarfir Stalíns, vissi ná- kvæmlega hvað hann vildi helzt borða og drekka og hvað hann kærði sitg ekki um. Hún þekkti duttlunga hans betur en nokkur annar. En Svetlana vildi helzt ekkert um föður sinn tala og svar aði jafnvel ekki spumingum dr. Imams um smáatriði, sem engu máii skipta, í sambandi við lífið í Kreml. Þegar talið barst að föð ur hennar varð hún skyndilega taugaóstyrk, segir hann. Svetlana Stalín hefur reynt margt, sem hún á erfitt með að íde.vma. Leysir hún frá skjóðunni þegar hún er komin til Vestur landa og segir hún frá minning um sínum frá skuggalegasta tím anum í sögu Sovétríkjanna?. ★ HVERNIG DÓU FOR- ^RARNIR? Hún var tæplega átta ára göm ul þegar móðir hennar Nadets jka Alilujeva (önnur kona Stal íns) lézt 1932. Opinberlega hef ur aldrei verið skýrt frá dánar orsökinni. Sumir halda þvi fram að hún hafi framið sjálfsmorð eftir að hafa lent í harðri orða sennu við Stalín um neyð þá er fyigdi í kjölfar hinnar hrottalegu framkvæmdar á áætlunum um að breyta landbúnaði Sovétríkjanna í samyrkjubúskap. Aðrir segja að Stalín sjálfur hafi myrt hana. Og hvernig bar dauða harð stjórans föður hennar, að hönd um. Er eitthvað hæft í því, að einhverjir hafi „hjálpað til“. Svetlana atóð við dánarbeð föður síns. Getur hún og vili hún svipta hulunni af hinum mörgu leyndardómum Stalínstímans? Svetlana Stalín hefur lifað við burðaríku lífi. Hún hefur verið tignuð sem dóttir Stalíns hins mikla — O0 síðan hann lézt hef ur hún fengið að kenna á hatrinu í garð harðstjórans. Henni var ek ið í skólann í lúxusbíl á hverj um degi. Hún var fallega, rauð hærða stújkan, sem stjanaði í kringum foður sinn af lotningu eins og Winston Churchill hefur ritað. Hún var einnig duttlungafull og vildi ráða sér sjálf, en þann eiginleika hefur hún tekið í arf frá föður sínum. Hún var aðeins 17 ára gömul þegar hún giftist í fyrsta sinn, Grigory Morozov, samstúdent sínum í Moskvuhá skóla. Stalín var andvígur ráða hagnum, þar sem Morozov var Gyðingur. Sonur Svetlönu, Jós ef (sem heitir eftir Stalín), er frá þessu hjónabandi, en það fór út um þúfur þremur árum síðar. Hún giftist ekki aftur fyrr en 1949 og þá Juri Zhadanov, syni Andrei Zhadanov, eins voldug asta manns Sovétríkjanna, sem var menningarmálafulltrúi" Stal ins og almennt talinn erfðaprins Framhald á 15. siðu. 1907 1967 60 ára afmælisháfíö verður í Lidó föstudaginn 7. apríl og hefst með borðhaldi kl. 19.30. SKEMMTIATRIÐI — DANS. Miðapantanir og nánari upplýsingar hjá Magnúsi E. Bald vinssyni, Laugavegi 12. D ö k k f ö t . STJÓRNIN. AÐALFUND UR IÐNAÐARBANKA ISLANDS H.F. verður haldinn í veitihgaEíismu Lido í Reykjavík laugardaginn 1. apríl n.k., kl. 2 eh. D a g s k r á : 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum þeirra í bank- anum dagana 28. marz til 31. marz að báð- um dögum meðtöldum. Reykjavík, 21. marz 1967. SVEINN B. VALFELLS form. bankaráðs. Spilakvöld i Kópavogi Alþýðuflokksfélag Kópavogs heldur spila- kvöld miðvikudaginn 22. marz kl. 8.30 s.d. í Félagsheimilinu, Auðbrekku 50. DAGSKRÁ: Félagsvist Kvikmyndasýning: Frá Brasilíu o. fl. Kaffiveitingar. SKEMMTINEFNDIN. Góðar fermingagjafir Skíði m/stálk. Bakpokar Teppasvefnpokar Útivistartöskur L j ósrayndavélar Veiðistangasett Ferða gas-prímusar Sjónaukar Vindsængur — PÓSTSENDUM — Laugavegi 13. — Sími 13508 £ 21. marz 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.