Alþýðublaðið - 21.03.1967, Blaðsíða 10
Jósef Stalín leiknr Éír við dóttur sína, Svetlönu. Þrjátíu árum síðar stígur Svetlana Stalín út úr
ítalskri fiug vél í Genf.
EE
STLJÓS
Dóttir Jósefs Stalins
- rlýr hún sjálfa sig'i
?
í LIST 4SAFNINU í Moskvu
hangir ardlitsmynd eftir einn
kunnas'ta listamálara Rússa.
Myndin e • af ungri konu, sem
fbrosir tví- æðu brosi. ,,Svetlana“
Ikallast þe ;si mynd, og Svetlana
er algengí. stúlkunafn í Sovétríkj
unum. En stúlkan á myndinni er
engin önnur en dóttir Stalíns. Á
■arunum fyrir heimsstyrjöldina
síðari voru þúsundir telpna í Sov
étríkjunum skírðar í höfuðið á
henni.
í síðustu viku steig einmana,
miðaldra kona út úr ítalskri flug
vél á flugvellinum í Genf .Hún
var berhöfðuð, með stuttklippt
hár og þreytuleg. Hún var klædd
dökkri regnkápu og með röndótt
an trefil um hálsinn.
Þetta var dóttir Stalíns, sem
nú er 42 ára að aldri. Hún vill
ekki snúa aftur til Sovétríkjanna
að því er hún hefur tjáð forsæt
isráðherra Indlands, frú Indiru
Gandhi, cg bandaríska sendiherr
anum í Nýju Delhi, Chester Bow
les. En stjórnir beggja landanna
hafa gert aUt sem í þeirra valdi
stendur ti' að koma í veg fyrir að
dóttir Stalíns setjist að í löndun
um.
★ ÞUMGLYND.
Fulltrúar svissneskra yfir-
valda, sem hafa veitt henni land
vist til braðabirgða, segja að hún
sé þunglynd og niðurdregin og
þarfnist umfram allt næðis til
að hvíla sig.
Góðar heimildir í Sovétríkjun
um herma að Svetlana hafi ekki
fluið land vegna stjórnmálaskoð
ana, og ei það ekki ósennilegt
enda hefur Svetlana Stalín aldrei
gegnt opinberu embætti í Sovét
ríkjunum né haft afskipti af
stjómmáluin.
Margt bendir til þess að á-
kvörðun Svetlönu um að snúa
ekki aftur til Sovétríkjanna sé
persónuleg.; eðlis. Vinur síðasta
eiginmanns Svetlönu, sem lézt í
desember í. fyrra, dr. Zafar Im
am, en hann er kennari við Brist
olháskóla í Bretlandi, heimsótti
'hjónin oft í Moskvu.
Hann lýsir Svetlönu þannig, að
hún sé rótlaus, óhamingjusöm og
telur hana skorta andlegt jafn
vægi. Hún sé dæmigerð sovét
kona, sem sé gersneydd áhuga á
•stjórnmálum, aðeins í meðaUagi
greind, dálítið feimin, mjög hlé
dræg og eigi við mörg persónu
leg vandamál að stríða.
íbúð þeirra var búin nýtízku
húsgö'gnum, sovézkum og skandi
naviskum. Engar myndir voru á
veggjunum. Þar var enginn hlut
ur sem minnti 'á fortíðina. Hjón
in bjuggu í fimm herbergja íbúð
við bakka árinnar sem rennur
skammt frá Kreml. Hjá þeim
bjuggu tvö börn Svetlönu er hún
átti með fyrrverandi eiginmönn
um sínum, 22 ára gamall sonur og
16 ára dóttir.
Dr. Imam komst að þeirri nið
urstöðu eftir að hafa rætt við
hjónin, að Svetlönu hefði að vísu
þótt vænt um föður sinn en óttazt
‘hann. Hún sá um allar persónu
le'gar þarfir Stalíns, vissi ná-
kvæmlega hvað 'hann vildi helzt
borða og drekka og hvað hann
kærði si)g ekki um. Hún þekkti
duttlunga hans betur en nokkur
annar. En Svetlana vildi helzt
ekkert um föður sinn tala og svar
aði jafnvel ekki spurningum dr.
Imams um smáatriði, sem engu
máli skipta, í sambandi við lífið
í Kreml. Þegar talið barst að föð
ur hennar varð hún skyndilega
taueaóstyrk, segir hann.
Svetlana Stalín hefur reynt
margt, sem hún á erfitt með að
'ffleyma. Leysir hún frá skjóðunni
þegar hún er komin til Vestur
landa og segir 'hún frá minning
um sínum frá skuggalegasta tím
anum í sögu Sovétríkjanna?.
★ HVERNIG DÓU FOR-
DRARNIR?
Hún var tæplega 'átta ára göm
ul þegar móðir hennar Nadets
jka Alilujeva (önnur kona Stal
íns) lézt 1932. Opinberlega hef
ur aldrei verið skýrt frá dánar
orsökinni. Sumir halda því fram
að hún hafi framið sjálfsmorð
eftir að hafa lent í harðri orða
sennu við Stalín um neyð þá er
fylgdi i kjölfar hinnar hrottalegu
framkvæmdar á áætlunum um að
breyta landbúnaði Sovétríkjanna
í samyrkjubúskap. Aðrir segja
að Stalín sjálfur hafi myrt hana.
Og hvernig bar dauða harð
stjórans föður hennar, að hönd
um. Er eitthvað hæft í því, að
einhverjir hafi „hjálpað til“.
Svetlana stóð við dánarbeð
föður síns. Getur hún og vill hún
svipta hulunni af hinum mörgu
leyndardómum Stalínstímans?
Svetlana Stalín hefur lifað við
burðaríku lífi. Hún hefur verið
tignuð sem dóttir Stalíns hins
mikla — og síðan liann lézt hef
ur hún fengið að kenna á hatrinu
í garð harðstjórans. Henni var ek
ið í skólann í lúxusbíl á hverj
um degi. Hún var fallega, rauð
hærða stúljcan, sem stjanaði í
kringum föður sinn af lotningu
eins og Winston Churehill hefur
ritað.
Hún var einnig duttlungafull
og vildi ráða sér sjálf, en þann
eiginleika hefur hún tekið í arf
frá föður sínum. Hún var aðeins
17 ára gömul þegar hún giftist
í fyrsta sinn, Grigory Morozov,
samstúdent sínum í Moskvuhá
skóla. Stalín var andvígur ráða
hagnum, þar sem Morozov var
Gyðingur. Sonur Svetlönu, Jós
ef (sem heitir eftir Stalín), er
frá þessu hjónabandi, en það fór
út um þúfur þremur árum síðar.
Hún giftist ekki aftur fyrr en
1949 og þá Juri Zhadanov, syni
Andrei Zhadanov, eins voldug
asta manns Sovétríkjanna, sem
var menningarmálafulltrúi" Stal
ins og almennt talinn erfðaprins
Framhald á 15. siðu.
1907
1967
60 ára afmælisháfíð
verður. í Lidó föstudaginn 7. apríl og hefst með borðhaldi
kl. 19.30.
SKEMMTIATRIÐI — DANS.
Miðapantanir og nánari upplýsingar hjá Magnúsi E. BaUl
vinssyni, Laugávegi 12.
D ö k k f ö t .
STJÓRNIN.
AÐAL FU NDU R
IÐNAÐARBANKA
ISLANDS H.F.
verður haldinn í veitingahúsinu Lido í
Reykjavík laugardaginn 1. apríl n.k., kl. 2 eh.
D a g s k r á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum þeirra í bank-
anum dagana 28. marz til 31. marz að báð-
um dögum meðtöldum.
Reykjavík, 21. marz 1967.
SVEINN B. VALFELLS
form. bankaráðs.
Spilakvöld i Kópavogi
Alþýðuflokksfélag Kópavogs heldur spila-
kvöld miðvikudaginn 22. marz kl. 8.30 s.d. í
Félagsheimilinu, Auðbrekku 50.
DAGSKRÁ:
Félagsvist
Kvikmyndasýning:
Frá Brasilíu o. fl.
Kaffiveitingar.
SKEMMTINEFNDIN.
Góðar fermingagjafir
Skíði m/stálk.
Bakpokar
Teppasvefnpokar
Ú tivistar töskur
Ljósmyndavélar
Veiðistangasett
Ferða gas-prímusar
Sjónaukar
Vindsængur
— PÖSTSENDUM
Laugavegi 13. — Sími 13508
S 21. marz 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ