Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1993, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 1993
Fréttir
Öryggiskerfi hafa verið sett upp í skólum í Kópavogi:
Stórlega dregið úr innbrot
og skemmdarverkum
- kveikt var í einum skóla og hótauir bárust um fleiri íkveikjur
í byrjun þessa mánaðar voru milli 10 og 20 rúður brotnar i Snælandsskóla
í Kópavogi. Á myndinnl sjóst lögreglumenn vinna að mælingum fyrir
skýrslugerð. Sennilega verður minna um sjón sem þessa í framtíðinn.
DV-mynd Sveinn
„Það hefur stórlega dregið úr inn-
brotum og skemmdarverkum á
grunnskólunum á þessu ári. Það er
án efa því að þakka að viö erum að
leggja lokahönd á aö koma upp öflug-
um þjófavamarkerfum í öllum skól-
unum. Síðan er á það að benda líka
að forráðamenn skólanna hafa beitt
sér mjög í áróðri við foreldra og böm
og það virðist hafa skilað talsverðu,"
segir Siguröur Hafsteinsson, tækni-
fræðingur hjá tæknideild Kópavogs-
baejar.
A seinasta ári var brotist inn í 26
skóla, skóladagheimib, íþróttahús og
leikskóla í hænum en stórlega hefur
dregið úr þeim eins og Sigurður seg-
ir. Að auki vom einnig unnin
skemmdarverk á flestum stöðunum
og tjón af þess völdum hleypur á
mflljónum króna.
„Eg held að það sé nú ekki rétt að
ég sé að upplýsa nákvæmlega hvem-
ig kerfin, sem sett hafa verið upp, em
upp byggð, en þetta era mjög öflug
kerfi og þau era nú þegar búin að
sanna gildi sitt á fleiri en einum stað.
Til dæmis er þama um hreyfiskynj-
ara og eldvamabúnað að ræða, því
að í fyrra var kveikt í Kársnesskóla
og hótað var að kveikja í öðrum skóla
og á þetta er litið mjög alvarlegum
augum og ég tala nú ekki um ef þetta
kemur upp á þeim tíma sem skólam-
ir era starfandi og í þeim em böm
og starfsfólk,“ segir Siguröur. -pp
Mikil ásókn í kennarastöður
Nokkuð hefur borið á ásókn kenn-
ara í lausar stöður í framhaldsskól-
mn á höfuðborgarsvæðinu og má
sem dæmi nefna að 60 manns sóttu
um fjögur stöðugildi í Kvennaskól-
anum. Sama mun vera uppi á ten-
ingnum í öðrum framhaldsskólum í
Reykjavík. „Þetta kemur til vegna
erfiðs atvinnuástands hjá kennur-
um,“ sagði Eggert Lámsson, formað-
ur HÍK. „Nú er meira atvinnuleysi
þjá kennurum en verið hefur í ára-
raðir og upp á síðkastið eru réttinda-
kennarar frá Reykjavík farnir aö
sækjast eftir vinnu úti á landi í meira
mæh en gerst hefur áður,“ sagði
Eggert.
Skólamenn segja aö minna sé nú
auglýst af lausmn kennarastöðum en
áður. Bæði sé verið að skera niöur
kostnað vegna samdráttar og rétt-
indalausir kennarar, svokallaðir
leiöbeinendur, hafi í auknum mæh
náð sér í réttindi til þess að auka
atvinnuöryggi sitt.
____ -bm
Byssumálið:
Gæsluvarðhald
til 5. júlí
Piltamir þrír sem réðust inn í
byssuverslun í Kópavogi og ógnuðu
eiganda með óhlaðinni haglabyssu
vom úrskurðaðir í gæsluvarðhald,
að kröfu RLR, tíl 5. júU.
Eigandi verslunarinnar notaði
táragas tU að yfirbuga pUtana og
náði aö halda einum þeirra eftir átök
þar til lögregla kom á vettvang. Ekki
er vitað hvort þeir vom ölvaðir en
blóðsýni vom tekin úr þeim og em
þaunútílrannsóknar. -pp
á íslandi
Bandarikjaforseti hefur nú
skipað nýjan sendiherra á íslandi
en eins og DV greindi frá fyrir
skömmu em tíu mánuðir síðan
Sig Rogich fór héðan tíl að sinna
kosingabaráttu George Bush. Nýi
sendiherrann heitir Parker Borg.
Hann hefur starfaö í bandarísku
utanríkisþjónustunni síðan 1965
og hefur m.a. starfað í Vietnam
ogMalasíu. bm/reuter
í dag mælir Dagfari_'____________
Heiðurshjólastólar
MerkUeg staða hefur komið upp í
Malaví. Þar hefiir Hastings Banda
stjómað í þijátíu ár með þeim ár-
angri að þjóðir heimsins hafa bann-
fært hann fyrir einræði og ofríki.
Banda er bæði þjóðarleiðtogi og
æðsti stjómandi. Þaö þýðir í raun
að orö hans em lög og öU mótstaöa
hefur verið brotin á bak aftur.
Andstæðingar em drepnir eöa í
besta faUni látnir dúsa í fangelsi
svo lengi sem Banda hentar og það
teljast ættjarðarsvik ef menn
hyggjast bjóða sig fram gegn hon-
um eða flokki hans.
Nú hefur það gerst að Banda hef-
ur efnt til kosninga að kröfu er-
lendra þjóða, enda fengi hann ekki
framlög til þróunarverkefna eða
aðra Uðveislu utan úr heimi nema
hann slakaði á klónni. Banda, sem
hefur sett það í stjómarskrá aö
hann sé lífstíðarforseti þar tU hann
veröur hundraö ára, lét þess vegna
tiUeiöast. Hann varð hins vegar
fyrir því óláni að mikUl meirihluti
þjóðarinnar hafnaði flokki hans og
vildi lýðræðislegar kosningar.
Banda situr hins vegar sem fastast
og vísar til eilifðartignar sinnar.
Banda þessi er sami maöurinn
og utanríkisráðherra íslands, Jón
Baldvin Hannibalsson, heimsótti í
vetur og gaf góða einkunn. Jón
Baldvin taldi Banda djúpvitran
mann og gat enginn mótmælt þeirri
fuUyrðingu af þeirri einföldu
ástæðu að Jón Baldvin er eini utan-
ríkisráðherra umheimsins sem
hefur sótt Banda heim og gert sér
far um að kynnast gáfnafari hans.
Því verður heldur ekki neitað að
Hastings Banda í Malavi hefur sýnt
fram á að það getur verið kostur
að hafa stjóm á þjóð sinni. Sljóm-
málamenn geta þar af leiðandi
margt lært af Banda hinum djúp-
vitra og ekki síst það aö ástæðu-
laust er að taka of mikið mark á
kosningum. Enda þótt kosningaúr-
sUt séu óhagstæð er enginn kominn
tU með að segja að þau beri vott
um aö þjóðarleiðtogar þurfi að
vikja. Það finnst Banda ekki og
lætur því ekkert á sig fá enda þótt
kjósendur hafni honum og flokki
hians.
Andstæðingar hans hafa stungið
upp á að Banda fái aö vera þjóðar-
leiðtogi fram að næstu áramótum
í nokkurs konar heiðurshjólastól.
Þetta er góð hugmynd og kemur
víöar til greina heldur en í Malaví.
VandamáUð hér heima hefur ekki
síst verið óvissan sem fylgir kosn-
ingum. Þeir menn sem hafa náð
völdum vita aldrei hvort þeir fái
aö ráöa áfram. Þeir þurfa að víkja
ef þeir tapa í kosningum. Þetta
ástand skapar glundroða og festu-
leysi í stjómmálum og landstjóm-
inni. Almenningur veit heldur
aldrei hvort þvi megi treysta að
flokkurinn sem kjósendur styðja
muni ráöa fram út þeirra málum,
þegar kem'ur að stöðuveitingum,
peningafyrirgreiöslu eða friðind-
um. Það er engu að treysta í óróa
lýðræðisins.
Jón Baldvin hefur áreiðanlega
áttað sig á þessum mun, sem ann-
arsvegar er á lifstíðarstjórn Banda
og skammvinnum ráðherravöldum
hér heima. Þess vegna Uggur Jóni
tíl aö mynda svona á þegar hann
þarf aö koma krötunum í bitling-
ana og þess vegna gat Daviö ekki
beöiö með að skipa Hrafn í fram-
kvæmdastjórastöðuna í Sjónvarp-
inu. Slíkum nauðsynjaverkum
verður að koma í verk áður en aðr-
ir taka við.
Ef fyrirkomulag Banda væri tek-
ið upp hér á landi mættu aflóga
póUtíkusar og úr sér gengnir ráð-
herrar eiga von á heiðurshjólastól-
um þegar þeir verða hundrað ára
eða hafa stjómað í hundrað ár,
hvort sem það verður hjólastóU í
sendiráði eða ríkisbanka.
Enda hefur hugmyndin faUið í
góðan jarðveg. Friðrik Sophusson
sagði á dögunum, þegar hann var
spurður um umdeUdar stöðuráðn-
ingar, að menn ættu ekki að gjalda
fyrir það að vera í póUtík og honum
fannst það ósanngjamt eins og
Banda hinum djúpvitra að þjóðin
fengi ekki notíð starfskrafta og
reynslu stjómmálamanna þótt þeir
þyrftu að hætta eftir að hafa tapað
kosningum.
Viðbrögð Banda við tapinu í
kosningunum í Malaví era sömu
tegundar enda djúpvitur maður
annars vegar, eins og þeir em allir
þessir ágætu stjómmálamenn hér
heima, sem afneita því almenning-
sáUti sem hefur á móti því að menn
séu settir í heiðurshjólastóla þegar
kjósendur vflja losna við þá.
Dagfari