Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1993, Page 28
40
MÁNUDAGÚR 21. JÚNÍ 1993
Sviðsljós
Hótel ísland:
Velheppnuð diskóhátíð
Það voru glimmergallamir og dis-
kóplötumar sem giltu á Hótel íslandi
á miðvikudagskvöld. Þar var fullt
hús af fólki sem hélt upp á 15 ára
afmæh diskótímans. Sumir riíjuöu
upp gömlu og góðu dagana en þeir
sem yngri vom upplifðu þá stemn-
ingu sem ríkti í Hollywodd og
Klúbbnum á sínum tíma.
Reyndar féll þetta kvöld í svo góðan
jarðveg að ákveðið var á staðnum að
stofna Hollywoodklúbbinn og mun
hann halda uppi þessari stemningu
sem var á miðvikudagskvöld í allt
sumar. Fjölmargir skemmtikraftar
og plötusnúðar munu koma fram á
Hótel íslandi í allt sumar. Einnig
veröur nýju lífi blásið í ýmsar af
þeim keppnum sem haldnar vom á
sínum tíma, svo sem blautbolskeppn-
ina og ungfrú Hollywood. Diskóunn-
endur geta því dansað í allt sumar á
Hótel íslandi. -HMR
Þau voru mörg óskalögin þetta kvöld og mörg komust ekki að, hér er það
Guðrún Möller sem biöur um eitt.
Dagur, Simbi og Jana ásamt Hödda sem var piparsveinn kvöldsins.
Kolbrún Aðalsteins og Berglind Bjarnadóttir voru sammála um að kvöldið
hefði verið frábært.
Gunnar Gislason og Hinrik Þráins misstu sjaldan úr kvöld í Holly og létu
sig ekki vanta á Hótel ísland.
RYMINGARSALA
VERSLDNIN
FLYTIIR
Góður staðgreiðsluafsláttur
HUSGOGN
FAXAFENI5
SÍMAR 674080 / 686675