Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1993 3 Fréttir ÓDÝRI SKÓMARKAÐURINN Starfsmenn Hrafnistu og Skjóls: Fæði tekið af launum karia en ekki kvenna Opið mánud.-föstud. 12-18 Frábært verð - Góðir skór SKÓMARKAÐUR Iðnaöarmenn dvalar- og hjúkrun- arheimilanna á Hrafnistu í Reykja- vík og Hafnarfirði og Skjóh, sem all- ir eru karlmenn, eru á sérsamningi hvað matarmál varðar. Þeir eru yfir- leitt í fullu fæði og það síðan tekið af laununum. Öðruvísi er farið með kohur á þessum stofnunum. Þær kaupa matarmiða í hvert sinn sem þær fá sér að borða. Um er að ræða starfsstúlkur, sjúkraliða og hjúkrun- arfræðinga. „Hér er konuríki og frekar fáir karlar, bara forstjórar, kokkar, læknar og iðnaðarmenn. Iðnaðar- mennimir gerðu launasaming við okkur um fullt fæði, sem er frekar sjaldgæft. Aðrir starfsmenn, ýmist í heilu eða hálfu starfi, hafa kosið að kaupa matarmiða," sagði Rafn Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Hrafn- istu í Reykjavík, í samtali við DV. DV hafði spurnir af því að óánægja ríkti meðal kvenna með þetta fyrir- komulag en Rafn sagðist ekki hafa heyrt af slíkri óánægju og að hún hlyti að vera byggð á misskilningi. „Við skylduðum einu sinni fólk hér í ódýrt fæöi. Fæðiskostnaðurinn var niðri á þeim mörkum sem skatturinn setur okkur. Síðan kom hópur starfs- manna sem vildi velja og hafna. Þá breyttum við þessu yfir í matarmiða þar sem fólk hafði meira val, líkt og er á sjúkrahúsunum. Ég veit ekki betur en ánægja ríki með þetta fyrir- komulag. Þegar upp er staðið borga Mosfellsbær: Sjálfstæðis- flokknum Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Mosfellsbæ hefur ákveðið að hafa opið prófkjör 13. nóvember til að velja frambjóðendur á lista Sjálf- stæðisflokksins í bæjarstjómarkosn- ingunum næsta vor. Frambjóðendur hafa frest til 10. október til að tilkynna kjömefnd framboð sitt. Framboðið þarf að vera stutt af 20 flokksbundnum sjálfstæð- ismönnum í bænum. Gengið verður frá endanlegum prófkjörslista 17. október og efnt til funda með frám- bjóðendumíframhaldiafþví. -GHS Garðabær: Sjálfstæðis- menn vilja prófkjör Sjálfstæðismenn í Garðabæ eru mjög ósáttir við þá þögn sem ríkir um uppstillingarmálin í Sjálfstæðis- flokknum í Garðabæ. Ungir sjálf- stæðismenn hvetja til þess að efnt verði til opins prófkjörs í bænum fyrir lok nóvember þar sem nauðsyn- legt sé að hrista upp í þvi hvernig stillt sé á lista flokksins í kosningum til bæjarstjórnar. Ekki hefur verið haldið prófkjör hjá Sjálfstæðis- flokknum í Garðabæ frá því fyrir kosningar 1978. „Maður getur ímyndað sér að með því að geyma umræður um prófkjör sé verið að draga þetta þar til menn telja of seint að fara í prófkjör. Okkur þykir ófært hjá stjómmálaflokki að vera að standa fyrir prófkjöri eftir áramót þegar stutt er í kosningar og því samþykktum við tillögu um að hvetja til prófkjörs sem fyrst," segir Már Másson, formælandi Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garöabæ. -GHS allir jafnt, bara með mismunandi von á að samkomulag næðist við hætti,“ sagði Rafn. konurnar um sams konar matar- Aðspurður sagðist Rafn ekki eiga samningogkarlarnirerumeð. -bjb Skemmuvegi 32 - s. 75777 trygging fyrír ungt fóllt á leið út t lifið VÁTRYGGINGAFÉLAG í S L A ND S H F. S í MI 6 0 5 0 6 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.