Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiösla. áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Styðja ekki eigið álit Forseti bæjarstjómar Seltjarnamess stendur að nefnd- aráliti um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu, þar á meðal Reykjavíkur og Seltjamamess, en getur ekki svarað fjölmiðlum, þannig að skiljanlegt sé, hvort hún sé með eða móti einmitt þessu sama nefndaráliti. Svipuð viðhorf hafa víðar komið í ljós. Einn nefndar- manna afsakaði sig með því, að nefndin hefði verið skyld- ug til að standa að einhverju áliti. Milh línanna má lesa, að nefndarmenn hafi ekki tekið hlutverk sitt alvarlega og tahð sér heimilt að skrifa undir hvaða plagg sem er. Það er engan veginn gott veganesti í almennri at- kvæðagreiðslu, sem verður 20. nóvember í sveitarfélög- unum, ef einmitt þeir, sem semja tihögur um samein- ingu, treysta sér ekki til að mæla með tihögum sínum, heldur fara undan í flæmingi og tala út og suður. Thlögur, sem ekki eru studdar hehs hugar af eigin höfundum, verða auðvitað fehdar, því að ekki er hægt að ætlast th, að kjósendur botni meira í þeim en höfund- amir, sjái skýrar yfir kosti þeirra og gaha eða geti spáð rökréttar í niðurstöður þeirra og ýmsar afleiðingar. Ljóst er orðið, að undirbúningur að sameiningu er í molum í flestum thvikum. Hver sveitarstjórnarmaður á fætur öðrum lýsir efasemdum sínum, þekkingarskorti og hræðslu við hið ókunna. Hvemig er þá hægt að ætl- ast til að kjósendur styðji þessar róttæku breytingar? Það er ábyrgðarhluti að efna th mikhs kostnaðar við að smíða tihögur og efna til kosninga, sem ekki leiða th neinna breytinga, af því að máhn faha í hverju sveitarfé- laginu á fætur öðru. Það eru slæm vinnubrögð, sem eiga eftir að vera th skammar málsaðhum sameiningar. Sameining sveitarfélaga er mál, sem þarf að undirbúa svo vel, að höfundamir skilji það og styðji sjálfir og að töluverður hluti sveitarstjómarmanna sé reiðubúinn að leggja hönd á plóginn. Þær forsendur em því miður ekki th í flestum thvikum, sem hafa verið th umræðu. Ef markmið sameiningarinnar er að spara peninga í rekstri sveitarfélaga og gera þau hæfari th að mæta kröf- um, sem meðal annars stafa af breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, þá hlýtur að vera hægt að und- irbúa máhð svo vel, að það verði fólki skhjanlegt. Ef hins vegar enn er óljóst, hver verkaskiptingin verð- ur, hverjar verða kröfur til sveitarfélaga í náinni framtíð og hver verður raunverulegur spamaður af sameiningu, er farsælast að bíða með atkvæðagreiðslur, unz þokunni hefur létt og útkoma fengizt úr reikningsdæmum. í félagsmálaráðuneytinu halda menn því fram, að lín- ur hafi einmitt skýrzt í verkaskiptingunni og að vitað sé, hver verði verkefni sveitarfélaga. Þar á ofan sé ljóst, að lítil sveitarfélög muni ekki ráða við þessi verkefni. Efa- semdir sveitarstjómarmanna séu bara fyrirsláttur. Ef þetta er rétt, verður átakanlegra en eha það ábyrgð- arleysi sveitarstjómarmanna að skipa í sameiningar- nefndir, sem framleiða sameiningartillögur, er hvorki nefndarmenn né aðrir sveitarstjómarmenn hyggjast styðja, þegar á hólminn er komið 20. nóvember. í þessari stöðu er bezt, að sameiningamefndir hundsk- ist th baka með thlögur sínar og að frestað verði kosning- um um þær, þangað th unnt reynist að sýna kjósendum kosti thlagnanna. Bezt væri að fá nýja nefndarmenn, sem em líklegri til að skilja og styðja eigin thlögur. Við höfurn horft á margan skrípaleikinn í pólitíkinni, en undirbúningurinn að almennri atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaga tekur flestu fram á því sviði. Jónas Kristjánsson „Enginn vafi er á þvi að talsverður hluti kreditkortaviðskiptanna mun færast yfir á debetkortin. Margir, e.t.v. 20-25% þeirra sem að staðaldri greiða með kreditkortum, gera það ekki síst vegna þess að þeir nenna ekki að bera með sér peninga eða skrifa ávisanir, auk þess sem kreditkortin eru að mörgu leyti hagkvæm.“ Debetkortin Kaupmannasamtök íslands og samstarfsaðilar gegn gjaldtöku af notkun debetkorta hafa birt heil- síðu auglýsingu í Morgunblaöinu þar sem fram koma ýmsar upplýs- ingar um máhð. Nýrgreiðslumiðill Tölur erlendis frá sýna verulega aukningu 1 notkun debetkorta. í Bretlandi hafði notkun slíkra korta þrefaldast árið 1992 frá því sem var 1991 og í Bandaríkjunum varö yfir 20% aukning í notkun á einum árs- fjórðungi 1992. Líklegt er að á 2^1 árum gæti notkun debetkorta veriö orðin veruleg á íslandi með þeirri já- kvæðu þróun sem slík viðskipti munu hafa í viöskiptalífi þjóðar- innar. í fljótu bragði sé ég þrjú megin- atriði sem öll skipta miklu máli. Debetkortin munu: 1 Draga stórlega úr notkun ávís- ana og auka þannig hagkvæmni í bankakerfinu og öryggi í við- skiptalífinu. 2 Draga úr notkun kreditkorta og lækka þannig hlutdeild lánsfjár og þjónustukostnaðar í vöru- veröi. 3 Beina viðskiptum aftur meira í staðgreiðsluform með því aö hafa „uppeldisleg“ áhrif og færa þannig almenn viðskipti meira í átt til þess sem gerist meðal ann- arra þjóða. Allir virðast sammála»um ávinn- ing þess aö færa viðskipti frá ávís- anagreiðslum yfir til debetkorta- greiðslna. Enginn vafi er á því að talsverður hluti kreditkortaviðskiptanna mun færast yfir á debetkortin. Margir, e.t.v. 20-25% þeirra sem að stað- aldri greiða með kreditkortum, gera það ekki síst vegna þess að þeir nenna ekki að bera með sér peninga eöa skrifa ávísanir, auk þess sem kreditkortin eru að Kjallariiin Guðmundur G. Þórarinsson formaður Verkfræðingafélags íslands mörgu leyti hagkvæm. Ljóst er að þjónustugjöld debet- kortanna verða miklu lægri en kreditkortanna þótt enn standi um þau deila. Færist veruleg viðskipti frá kreditkortum yfir á debetkort munu því heildarþjónustugjöld verslunar- og þjónustuaðila lækka og vöruverð væntanlega þar meö. Á síðustu árum hafa viðskipta- hættir hérlendis færst mjög í fijáls- ræðisátt og til samræmis við það sem tíðkast í löndunum í kringum okkur. Sú viðskiptavenja landans að taka helst öll þau lán sem í boði eru hefur þó ekki breyst nægjan- lega. Margt bendir til þess að breyt- ing sé að verða á þessu. Með tilkomu kreditkortanna hef- ur hin almenna neysla heimilanna mjög um of færst yfir í lánsvið- skipti. Margt veldur þessu. En til- koma debetkortanna - með áhrif- um markaðarins á að framkalla raunverulegan kostnað lánsvið- skiptanna og hagkvæmni stað- greiðslu - gæti verið skjótasta leið- in til úrbóta. Misvísandi upplýsingar í áðurnefndri auglýsingu segja Kaupmannasamtökin o.fl. undir fyrirsögninni „Vissir þú“, að ávís- anaheftin hækki úr 250 kr. í 2000 kr. En fulltrúi RÁS-nefndarinnar segist eiga von á að verðið verði áfram 250 kr. en við bætist hins vegar 20 kr. færslukostnaöur þann- ig að verðið verði 750 kr. Auglýs- ingin telur þjónustugjöld debet- korta verða 0,7-1,7% en í gögnum VISA er talað um 0,5-1,5%. Auglýs- ingin telur vöruverð munu hækka um 1 milljarö kr. vegna tilkomu debetkortanna - sem er um 1% allra smásöluviðskipta og vandséö að geti verið rétt. Færist hins vegar verulegur hluti kreditkortaviðskiptanna yfir á debetkortin verður af þeim sökum um vöruverðslækkun að ræða. Ná þarf ásættanlegum samning- um í þessu mikilsverða máli. Eng- inn vafi er á því að það er þjóðfélag- inu til góðs. Guðmundur G. Þórarinsson „Færist hins vegar verulegur hluti kreditkortaviöskiptanna yfir á debet- kortin veröur af þeim sökum um vöru- verðslækkun að ræöa.“ Skoðanir aimarra Sami færslukostnaður Færslukostrfaöur vegna debetkorta er bersýni- lega sá sami hver sem upphæð viðskiptanna er. Það skiptir engu máli hvort viöskiptin nema eitt þúsund krónum eða eitt hundraö þúsund krónum, færslu- kostnaður er hinn sami. Þess vegna er erfitt að sjá hvaða rök mæla með því aö prósentugjald sé tekið vegna notkunar debetkortanna. Úr forystugrein Mbl. 17. sept. Umskiptingurinn Hvers konar umskiptingur er nú sá flokkur orð- inn sem einu sinni taldi sig málsvara erfiðismanna á íslandi en hefur á þessu sumri haft uppi það bar- áttumál í fjölmiðlum að maður sem tilheyrir þeim hópi sem Alþýðubandalagið kallaði forðum aldrei annað en gróðapunga verði yfirmaður íslenskra al- mannatrygginga? Úr forystugrein Alþbl. 17. sept. Skammtímavottorð Möguleikinn á vottorðum þarf að vera fyrir hendi. Það tryggir ekkert fyrir alla vinnustaði þótt einn siðferðilega sterkur aðstoðarbankastjóri lofi mannúð. Er þá skemmst að minnast þrefsins út af McDonald’s-mannaráðningunum. Máh mínu til stuðnings bendi ég á að félagsfræðilegar rannsóknir í Noregi sýna að hástéttamenntafólk og fólk í leið- andi störfum hjá fyrirtækjum þarf htla grein að gera fyrir veikindum sínum, því er trúað, meðan verr launaö menntafólk og ómenntaðir eru undir smásjá ef þeir lasnast. Elísabet Berta Bjarnadóttir félagsráðgjafi í Mbl. 17. sept.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.