Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Síða 28
40
MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1993
RAFGEYMAR
618401
LAGERVERÐÁ
VERKFÆRUM
FJÖLBREYTT
ÚRVAL
%R0T
Kaplahrauni 5,220 Hafnarfjórður
simi 653090 - fax 650140
Alternatorar & startarar
í bila, báta, vörubíla og vinnuvélar.
f
Mjög hagstætt verð. Póstsendum.
BÍLARAF
Borgartúni 19, sími 24700
rKh
KOIHPASS
KOMPASS vísar
nýjum viðskiptaaðila
áþig.
Sími 91-654690
Fax 91-654692
Bæjarhrauni 10 - 200 Hafnarfirði
TILBOÐ Á CASIO
REIKNITÖLVUM
SO& ESSII
Kr. 1.990
FX-
82LB
raátarai
ÉiÉiéSie
x--.
lEStól
Kr. 1.360
Póstsendum
Regnbogaframköllun
Síðumúla 34
Sími 682820
Smáauglýsingar
■ Fasteignir
110, 121, 137 og 150 mJ íbúðarhús.
Húsin eru íslensk smíði en byggð úr
sérþurrkuðum norskum smíðaviði.
Þau eru byggð eftir ströngustu kröfum
Rannsóknastofnunar byggingar-
iðnaðarins. Húsin kosta uppsett frá
kr. 5,1 millj., með eldhúsinnréttingu
og hreinlætistækjum (plata, undirst.,
vatns- og raflögn ekki innreiknuð).
Húsin eru fáanleg á ýmsum bygging-
arstigum. Húsin standast kröfur hús-
næðislánakerfisins. Teikningar
sendar að kostnaðarlausu.
fslensk-skandinavíska hf., s. 670470.
■ Vörubílar
Scanla 140, árg. 76, til sölu, öflugur
grjótpallur með loftvör og neftjakk.
Odýr, mjög þokkalegur bíll en þarfn-
ast aðhlynningar, m.a. fyrir skoðun.
S. 91-682190 og 91-679350 á kvöldin.
■ Bílar til sölu
Subaru 1,8 GL station, árg. '87, til sölu,
sjálfskiptur, samlæsingar, rafdrifnir
speglar, vökva- og veltistýri, ekinn 97
þús. km, skoðaður ’94. Upplýsingar í
síma 91-666398.
■ Jeppar
Jeep Comanche, árg. 1988, til sölu,
mikið breyttur, góður bíll. Upplýsing-
ar hjá Bílabankanum, síma 91-611010.
■ Ýmislegt
Hárgreiöslustofan
Leirubakka 36 0 72053
20% afsláttur af permanenti og strípum.
■ Líkamsrækt
Þær tala sinu máli! Ótrúlegt en satt.
Heilsustúdíó Maríu býður upp á cellu-
lite meðferð, 10 t., kr. 18.500,
Trim-Form, 101., kr. 5.900, háræðaslit-
meðferð, vöðvabólgumeðferð, gervi-
neglur o.fl. Tímapant. í s. 36677.
Merming_________________________________________________dv
Yfirlitssýning á verkum Gunnlaugs Blöndals að Kjarvalsstöðum:
Þokkinn
og þjamngin
Fátt er erfiðara í sambúðinni við lífið en sannleikur-
inn. Mannskepnan hefur búið sér fleiri blekkingarvefi
utan um hann en nokkuð annaö. Til að forðast hann.
Því að hann meiðir, ristir sálina, kremur og mer og
grætir. Hann er í einu orði sagt óþolandi. Samt er
ekki hægt að vera án hans. Þetta er undirstöðuþver-
sögn í lífinu og óumbreytanleg. Auk alls er hann einn-
ig hverfull og óínáanlegur í stöðugri og uppáþrengi-
andi nálægð sinni.
Góð list birtir mönnum sannleikann í mismunandi
formi og á mismunandi hátt, oft fyrirvaralaust og úr
launsátri. Þessi uppátæki óvissunnar geta gert manni
kleift að gleyma hörmungum gærdagsins og færa
manni þá spennu forvitninnar sem framkallar löngun
til að gægjast fyrir hornið eða skoða fjöllin hinum
megin frá.
Á laugardaginn var opnuð yfirlitssýning á verkum
Gunnlaugs Blöndals að Kjarvalsstöðum í tilefni af
hundrað ára árstíð hans. Sýningin hefst í París. Þaðan
Myndlist
Úlfar Þormóðsson
eru ljóðrænar og þokkafullar myndir frá Signubökk-
um málaðar með pastel og olíulitum. Verk hins þrótt-
mikla og æskuglaða manns. Þaöan eru einnig margar
konumyndir, kannski leyndardómsfyllstu konumynd-
ir sem málaðar hafa verið með íslenskum höndum.
Þarna er stúlka með blóm í hári, óspillt og ögrandi í
roða eftirvæntingarinnar; sofandi kona sem hefur
höndlað frið þeirrar fullnægju sem ein veitir þá hvíld
sem endumærir; hin þokkafulla kona reynslunnar
(Módel frá 1936) sem tekist hefur að snúa þannig á líf-
ið sjálft að duttlungar óvissunnar ná aldrei að hrella
hana eða hrekkja og hin glaðværa stúlka með greiðu
sem býr yfir því leyndarmáli sem frá verður sagt í
heitu rökkri. Þarna era einnig litríkar og vasklegar
stúlkur síldarævintýrisins, vinnandi nokkrar og hugs-
andi aðrar með óvissu óþekktar sektarkenndar í aug-
unum. Síðan gerast þær bitrari og þvo sér með lokuð
augu, leggjast fölar á hrennandi flöt reynslunnar með
strekktan líkama, konur sem vita of mikið til að skilja,
og loks hin herpta kona sem lífið hefur sogið merginn
úr og fært þjáningu að launum og þá hrottafengnu
spumingu: hvað gerði ég af mér? Og fyrir þér lýkur
sýningunni frammi fyrir tómlátum augum og rúnum
ristu andliti listamannsins sem málar sig á léreftið við
Arkitektúr og standljóð
Eitt verka Gunnlaugs Blöndals á sýningunni.
ferðalok á dánarári.
Ekkert fer eins illa með manninn og lífið sem hann
ræður svo sem engu um því það er jafnóumflýjanlegt
og sannleikurinn, jafn fagurt og þokkafullt. Jafn þján-
ingarfullt í vægðarleysi sínu og jafn andstyggilega
óáþreifanlegt lengstum stundum. Ef. Ef þaö er án feg-
urðarinnar, gleðinnar og ástarinnar.
Rétt eins og góð list birtir mönnum sanleikann felst
einnig í henni leiðsögn, jafnvel boðun: það er dagurinn
og stundin, hin eilífa nútíð sem ein býr yfir hinu höndl-
anlega. Þarna er mikil list og þakkarverð sýning.
Örlítil ábending
Enginn skyldi halda að á sýningu Blöndals væru
eingöngu konumyndir. Þaraa eru portret og uppstill-
ingar, landið og miðin, fjöllin, vötnin, lækirnir og
meira af því lífi sem í kringum okkur er. Það er hins
vegar undir duttlungum óvissunar komið hver meðvit-
undin vakir þegar komið er á sýningu. Því er þessi
umsögn með þessum hætti og engum öðrum.
Uppröðun mynda og skipulag sýningarinnar er með
því besta sem ég hef lengi séð á Kjarvalsstöðum. Fyr-
ir það má þakka.
Það eru hins vegar vandræði með sýningarskrána.
Hún er hvorki bók né sýningarskrá. Bæklingur innan
harðra spjalda. Gagnlegar upplýsingar og ljúfar kveðj-
ur til listamannsins. Eilítil minning þegar heim er
komið. Einhvern veginn er ég ekki alveg sáttur við
þetta; það hefði þurft svo lítið til aö gera úr bæklingn-
um sýningarskrá. Meira að segja veglega. Sem er frem-
ur sjaldgæft.
Á laugardaginn var opnuð sýning fimm norrænna
arkitekta á Kjarvalsstöðum, farandsýning frá Norður-
löndum sem lagði af stað í Finnlandi. Kynning á verk-
um þeirra er hið rétta.
Allan liðlangan daginn er maður inni í arkitektúr
eða á rjátli umhverfis hann. Og nóttina líka. Samt
kann maður ósköp lítið um arkitektúr. Manni þykir
hann fallegur og eða ljótur eftir atvikum og sá arkitekt-
úr sem maður hýr í eða lifir í finnst manni annað
hvort óhentugur eða hið gagnstæða. Oftast finnst
manni kannski ekkert. Vegna þess að manneskjan fær
enga undirstöðufræðslu um þennan grunnþátt hins
daglega lífs síns.
Og ekki ég heldur.
Þess vegna spurði ég arkitekt: Hvernig er sýningin?
Jú, sagði hann, jújú.
Ég spurði annan, konu: Svolítið samþjöppuð, gagnsæ
og opinogtaktfóstogþyngslalegspennaásvæðinu...
Ég varð svolitlu nær. En fór að horfa í kringum
mig. Sem sýning fannst mér fara vel á hlutunum sem
þama voru. Mér fannst líka gagnlegt að sjá skissur
að uppdráttum og uppdrætti að módelum. Margt fall-
egt og vel gert. En ég þurfti lengri tíma, leiðsögn,
hjálp. Samt vaknaði nú forvitnin og ég ætla aftur ann-
an dag.
Standljóð
Kjarvalsstaðir hafa sýnt á veggjum sínum ljóð nokk-
ur undangengin misseri. Þetta gæti verið gagnlegt fyr-
ir ljóðið, skáldið og þjóðina. En ég efast um að svo sé.
Eins og að þessum sýningum er staðið. Núna eru þama
ljóð eftir Hannes Pétursson sem er afbragðs skáld og
alls góðs maklegur sem hægt er að finna til handa lif-
andi skáldum. En ljóð, jafnvel eftir Hannes, með svörtu
letri á hvítan flöt eða hvítu letri á svartan flöt hang-
andi á vegg eru ekki lengur ljóð. Ekki nema þá stand-
ljóð, sem enginn veit hvað er annað en texti sem þú
lest standandi upp á endann með verk í kálfunum eða
mjóhryggnum. Ljóð eru ferðalög, hugarflug og sýn,
stundum einkamál höfundarins, of oft lesandans,
stundum þeirra tveggja tal í næði.
Ég settist í kaffistofuna og horfði á þjóðina ganga
Myndlist
Úlfar Þormóðsson
um sýningarsal ljóðanna. Ég taldi 29 á 7 mínútum.
Tveir stoppuöu og lásu. Ég tók tímann og skenkti mér
þann sama til að lesa standljóð. Ég las fimm línur af
átta á þessum skammtaða tíma, er að vísu seinlæs.
Ljóð mættu fara víðar. En þau halda áfram að vera
einkamál. Það mættu samt vera til standljóð. En það
þarf þá að gera eitthvað meira fyrir þau en prenta þau
með stóru letri svört á hvítt eða hvít á svart. Standljóð-
um þarf að fylgja einhver ögrun til eintals á almanna-
færi. Tæknin leyfir að þeim sé ljáð rödd eða mynd.
Geriði þetta nú næst, ef þið meinið eitthvað með ljóða-
sýningunum annað en viðra ykkur upp við skáld.
Kassa-Kjarval
Á sóðabúllum heimsins eru myndir af frönskum
kartöflum, hamborgurum, lasönjum, sjeik ogjertum
í ógeðslegum htum. Tahð hstaukandi og söluhvetj-
andi.
- Listfræðingarnir á Kjarvalsstöðum hafa sett Kjarval
í kassa fyrir ofan tertumar og kaffið. Baklýstar litfilm-
ur í búllukassa.
Ég er orðlaus. Og hætti.