Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1993, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1993, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 1. OKTÖBER 1993. Fangaennleitað: Tveir f undust í fataskáp vestur í bæ Einn þriggja fanga, sem struku úr Hegningarhúsinu viö Skólavörðustíg í gærkvöld, var enn ófundinn í morg- un. Hann er 22 ára og afþlánar dóm fyrir þjófnaö og minni afbrot. Hinir tveir náðust um klukkan tvö í nótt í húsi viö Kaplaskjólsveg hjá kunn- ingja sínum. Þeir eru 20 og 23 ára og sitja inni fyrir fíkniefnaneyslu og fíkniefnasölu. Þaö var klukkan 23.20 í gærkvöld, í þann mund sem fangar áttu að fara til klefa sinna, sem þeir struku. Þeir söguðu tommu gilda rimla úr haö- herbergisglugga og smeygðu sér út um hann. Inni á baðherbergi var garðslanga sem þeir tóku til handar- gagns. Prá baðherberginu lá leiðin út í fangelsisgarð. Garðslönguna bundu þeir utan mn myndavélarfót undir eftirlitsmyndavél og klifruðu þannig yfir vegginn sem umlykur garðinn. Fangaverðir áttu í erfiðleik- um með að komast út úr hegningar- húsinu inn í garðinn því fangarnir höfðu troðið aðskotahlut inn í læs- ingu hurðar sem þeir þurftu að kom- ast um. Strokið var strax tilkynnt til lög- reglu sem finkembdi svæðið án ár- angurs. Fíkniefnadeild lögreglunnar var einnig kölluð út til leitar og bank- aði hún uppá hjá viðskiptavinum sínum í nótt. Einn viðskiptavinanna býr í hús við Kaplaskjólsveg og þar sáu menn í fíkniefnalögreglunni einn fanganna standa við glugga. Beðið var um liðsauka og var allra út- gönguleiða úr húsinu gætt þegar ráð- ist var til inngöngu. Við leit í húsinu fundust tveir fanganna inni í fata- skáp. „Eg tek að sjálfsögðu á mig alla ábyrgð af strokinu. Þaö verður að koma í ljós hvort fangaverðir hafi unnið sín störf nógu vel. Hins vegar hefur öryggisbúnaður og eftirlit ver- ið aukið hér undanfarið," sagði Guð- mundur Gíslason, forstöðumaður hegningarhússins. -pp Heimdallur: Sonur Davíðsvar kjörinnformaður LOKI Já, það er auðvitað best að hafa þetta í fjölskyldunni! mm m m m w EiQQcn ðiiðin 9 f ullum launum „Ég óskaði strax eftir því aö Egg- ert yrði áfram við störf í Ti-ygginga- stofnun næstu mánuði til að for- stjóraskiptin gætu orðið með þeim hætti að fyrrum starfsmaöur yrði nýjum forsfjóra til ráðuneytis. Samhliða því hef ég óskað eftir að hann taki aö sér ýmis sérverkefni. Eggert tók umleitan minni mjög vel,“ sagði Guðmundur Árni Stef- ánsson, heilbrigðis- og trygginga- ráðherra, í samtali við DV. Karl Steinar Guðnason tekur við starfi forstjóra Tryggingastofnun- ar ríkisins í dag af Eggerti G. Þor- steinssyni sem setið hefur í for- stjórastólnum í 14 ár. Eggert, sem nú er 68 ára gamall, hverfur þó ekki úr Tryggingastofiiun heldur mun hann starfa þar til 1. febrúar. Hann heldur óbreyttum launum þessa fjóra mánuði sem munu, eftir því sem DV kemst næst, vera rúm- ar 200.000 krónur á mánuði auk launa fyrir nefndasetur og bílafríð- indi. Að sögn heilbrigðisráðherra mun ekki vera „forsenda til ann- ars“ en að Eggert haldi óbreyttum launum. Þá hefur veriö innréttuð sérstök skrifstofa fyrir Eggert á 3. hæð í húsi Tryggingastofnunar en skrifstofa forstjóra er á 4. hæð. „Mér finnst eðlilegt, í jafn stórum rekstri sem þarna um ræðir, að forstjóraskiptin fari ekki fram í einum hvelli. Mér firuist það skyn- samleg vinnubrögð að hafa þetta svona,“ sagði Guðmundur Árni. Fjórir viðbótarmánuðir fyrrum forstjóra í starfi þýða tæplega eina milljón króna í aukalaunagreiöslur af hálfu Tryggingastofnunar. Eftir 1. febrúar taka lífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna við. Eggert hefur þá gegnt starfi for- stjóra Tryggingastofnunar í 15 ár og fær því 30 prósent núverandí launa sinna í lífeyri eöa um 67 þús- undkrónur. Þar við bætast lífeyris- greiðslur úr lifeyrissjóði þing- manna og lífeyrissjóði ráðherra. Eggert var þingmaður í 25 ár og fær því 70 prósent þingfararkaups greidd eða 124.600 krónur. Hann var ráðherra í 7 ár og ber þvi 42 prósent af ráðherralaunum eða 48.600 krónur. Við þetta bætast síð- an greiðslur úr lífeyrissjóði múrara en þær munu vera óveru- legar í samanburði við þessar töl- ur. Saratals gerir þetta um 250 þús- und krónur á mánuði. - Nú ert þú í niðurskurðaraðgerð- um sem mörgum fnmst harkalegar en á sama tíma fær forstjóri á þokkalegum launum og með rífieg- an lifeyri fjóra aukamánuði í starfi. Það kann mörgum að finnast 'sér- kennilegt. „Þarna er ég að reyna að hagræöa í stofnun sem veltir tugum milljóna króna. Ég vænti þess að fyrrum forstjóri Trygginga- stofnunar skili þeirri vinnu sem til er ætlast af honum,“ sagði Guð- mundur Árni. -hlh Á annað hundrað foreldra bama á leikskólum Ríkisspítalánna mót- mæltu harölega í gær uppsögnum á leikskólaplássum barna starfs- manna Ríkisspítala. Foreldrarnir ræddu uppsagnirnar á fundi í Landspítalanum og ákváðu fundar- menn að krefjast þess að heilbrigðis- ráðherra afturkaliaði nú þegar upp- sagnir á leikskólaplássunum þar sem um brot á ráðningarsamningum og öryggi bamanna væri aö ræða. „Leikskólapláss er hluti af ráön- ingarsamningi okkar. Ekki er hægt að segja ráðningarsamningi upp að hluta og lítum við á að okkur hafi verið sagt upp störfum frá 1. október að telja og ráðningarsamningur okk- ar falli úr gildi 1. janúar 1994,“ segir íályktunfundarins. -GHS Þorsteinn Davíðsson laganemi, sonur Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra, var í gærkvöldi kjörinn formaður Heimdallar, Félags ungra sjálfstæðismanna, á aðalfundi félags- ins. Fráfarandi formaður, Kjartan Magnússon laganemi, gaf ekki kost á sér aftur. Þorsteinn var einn í fram- boði og var hann því sjálfkjörinn. -IBS Össur Skarphéðinsson: Hallærislegt Brynjar Eiriksson, drengurinn sem var hætt kominn í Kópavogslaug fyrir viku, var hrókur alls fagnaðar þegar hann tók á móti bekkjarsystkinum sínum á Landspítalanum i gær. Brynjar er óðum að hressast og i gær var fyrsti dagurinn sem hann fékk að fara í föt en engu að síður var hann dálítið eftir sig. Hann var óspar á kræsing- arnar sem hlaðist höfðu upp á sjúkrabeðinum. Bekkjarsystkinin þáðu molana með þökkum og voru hin ánægð- ustu enda ekki á hverjum degi sem þau heimta skólabróður sinn úr helju. pp/DV-mynd ÞJU „Það vakti deilur þegar Khasbúla- tov var boðið síðast á þing Norður- landaráðs. í því ljósi er skrýtið að honum skuli vera boðið aftur. í ljósi atburða síðustu daga er þetta afskap- lega neyðarlegt og hallærislegt," seg- ir Össur Skarphéðinsson, starfandi utanríkisráðherra. Khasbúlatov hef- ur verið boðið að sitja fund Norður- landaráðs á Álandseyjum sem full- trúirússneskaþingsins. -kaa Veðriðámorgun: Víðast skýjað A morgun verður hæg austlæg átt, víðast skýjað og dálítil súld við suðaustur- og austurströnd- ina. Hiti 5-11 stig. Veðrið í dag er á bls. 36 I ANDSSA.MBAND ÍS!.. RAF\ KRK I AKA t t t t t t t t t t t t t í t i t i i i i i TVOFALDUR1. vinningur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.