Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
Stuttar fréttir
Snurðaáþráðinn
Snurða hefur hlaupið á þráöinn
i viðræðum PLO og ísraela um
brotthvarf hersveita frá Gaza.
FlýjaánáðirSÞ
Óttaslegnir íbúar í Bosiúu flýja
undan bardögum á náðir SÞ.
Olmert vann í Jerúsalem
Hægri-
sinninn Ehud
Olmert sigraöi
Teddy Kollek í
borgarstjórn-
arkosningum í
Jerúsalem og
sagði að borgin
yrðí undir yfir-
ráðum gyðinga en ekki hluti af
ríki Palestínumanna.
Clintonbýðurheim
Bill Clinton Bandaríkkjaforseti
hefur boðiö Yitzhak Rabin, for-
sætisráðherra ísraels, í Hvíta
húsið 12. nóvember.
Hótarefsiaðgerðum
Bandarískur embættismaður
hefur varað Kínveija viö við-
skiptalegum refsiaðgerðum opni
þeir ekki markaði sina fyrir er-
lenda vöru fyrir árslok.
Kveðjum ofbeldið
Stjórnvöld á Bretlandi og ír-
landí ætla aö hvetja til aö bund-
inn verði endi á oíbeldi á Norður-
írlandi á fundi i dag.
Jeltsín ræðir málin
Borís Jeltsín
Rússlandsfor-
seti hittir hér-
aðsstjóra tii að
ræða drög aö
nýrri stjómar-
skrá þar sem
miðstjórnar-
vald er aukiö.
Búist er við hitafundi.
Vígbúastáný
Embættismaður SÞ sagði að
leiötogar ættflokka í Sómaiíu
myndu vígbúast á ný ef ekki tekst
að halda uppi lögum og reglu þeg-
ar bandarískar hersveitir fara.
Aftökurleyfðar
Shevardnadze Georgiuleiðtogi
leyfir aftökur án dórns og laga í
baráttu gegn bófaflokkum.
Thatchertalar
Margaret Thatcher segir aö
hryðjuverkamenn sigri aldrei á
Norður-írlandi.
De Benedetti frjáls
De Benedetti, forstjóri Olivetti,
fékk aö fara frjáls ferða sinna eft-
ir yfirheyrslur um spillingarmál.
Hagenskalvikja
Átta af nítján
fylkísfoi-mönn-
um norska
Framfara-
flokksins vilja
að Carl I. Hag-
en formaður
víki úr emb-
ætti. Tveir
styöja hann eindregið.
Flóð í Hondúras
Sjötíu og sjö hafa farist og
hundraöa er saknað í flóðum í
Hondúras.
Tölvukubbum stolið
Grimuklæddir og vopnaðir
ræningjar stálu tölvukubbum
fyrir 140 milljónir króna í Banda-
ríkjunum.
Súfeitaímegrun
Feitasta kona Brasilíu hóf
tveggja ára megrunarkúr í gær.
Húnvegur400kíló. Rcuter, NTB
UtLönd
Skógareldarnir blossa upp af auknum krafti í Kalifomíu eftir stutt hlé:
Ný glæsivilla brann
of an af Bruce Willis
- íslendingar ekki í hættu en lítið ræðst við eldinn sem stefnir að þéttri byggð
Bruce Willis.
Hlédís Sveinsdóttir, DV, Los Angeles:
Kvikmyndastjarnan Bruce Willis
er meðal þeirra sem misst hafa hús
sín í Malibu nú síðustu klukkustund-
irnar eftir að skógareldarnir bloss-
uðu upp hér í sunnanverðri Kalifor-
níu að nýju í gær.
Eldarnir nú eru verri en þeir voru
í fyrri hrinunni og nú eru fleiri hús
í dýrum hverfum ýmist brunnin eða
í stórhættu.
Margar fleiri
stjömur en
Willis hafa
misst heimili
sín og er tjónið
gífurlegt því í
Malibu er fjöld-
inn allur af nýj-
um og gömlum
glæsivillum
eins og þeirri sem Willis átti. Óttast
er að eldarnir geisi á þessum slóðum
í dag og næstu daga því slökkviliðið
ræður ekkert við bállð.
íslendingar, sem hér búa, eru ekki
í hættu. Þó er aldrei að vita hvað
gerist ef ekki tekst að slökkva eldana
á næstunni. Sem stendur er hús Sig-
urjóns Sighvatssonar kvikmynda-
framleiðanda næst eldinum en það
er ekki í hættu.
Bálið blossaði upp nú öllum að
óvörum. Kaldara er í veðri en áður
var og því áttu menn ekki von á að
eldurinn magnaðist svona mikið.
Hvasst er hér í Los Angeles og mjög
misvindasamt. Það gerir allt björg-
unarstarf erfiðara og fólk er í hættu
því menn vita aldrei hvaöan vindur-
inn blæs næst. Sjónvarpsmenn vom
m.a. hætt komnir af þessum sökum
í gærkvöldi.
Baráttan við eldana í KalHömíu
Slökkviliðsmenn leggja mesta áherslu á að koma í veg fyrir
manntjón. Eigur manna verða að sitja á hakanum.
Björgunarsveitir
Slökkvibílar
Hús eru varin með því aö dæla
á þau vatni. Bæöi jörö og hús
eru mjög þurr og fuörar allt upp
á augabragði.
Björgunarsveitir eru skipaðar 1'5 til 16
mönnum. Þeir nota keöjusagir og önnur
handverkfæri til að ryöja runnum og trjám úr
vegi. Vindurinn gerir starf þessara manna
mjög hættulegt. Vélskóflur eru notaöar við
meirihát^r ruðningsverk.
Ú,
Flugvéiar og þyrlur
Úr þyrlum slökkviliösins er hægt að varpa
um einu tonni af vatni í einu. Ffjótlegt er
að fylla geymana aö nýju. Slökkvifroöu er
úöaö úr flugvélum yfir eldinn áður en
þyrlurnar koma á vettvang.
’ v L':
Hitastrókar
Heitir hvirfilbyljir geta valdið miklu
tjóni:
Heitt loftiö stígur
upp og sogar upp
ferskt loft. C
0
0
Vindurinn
getur
myndað
súlur af heitu
lofti.
Hlífðarföt
Slökkviliðsmenn eru í búningum úr eldtraustu
efni. Einnig eru óbrennanleg tjöld höfö fyrir skýli
ef koma þarf slösuðum undir læknishendur
strax.
Eldarnir
Eldurinn sækir yfirleitt á móti brekku
en getur dreifst víöa ef vindur er
óhagstæöur. Hann kemst yfir 8
akreina hraöbrautir.
Því hraðar sem
eldurinn
brennur,
því heitari
verður
hann og
loftstreymi
meira.
Vindurinn þyrlar upp glóð og ber
hana hundruð metra í loft upp.
Vindurinn nærir eldinn
Heitur og þurr Santa Ana staövindurinn hefur
magnaö eldana að nýju:
OVindurinn berst
frá hæð yfir
Colorado aö
lægð yfir
Kaliforníu.
©
Vindhraðinn magnast
á leið sinni um
fjallaskörð.
■ Vindhraðinn nær allt
aö 90 hnútum þegar
komið er að
ströndinni.
Raki er þá
aöeins 5 til 10%.
0 Mestallur rakinn fer
úr loftinu á leiöinni
yfir fjöllin.
Heimitd:USA TODAY
Skógareldamir miklu í Kalifomíu bitna á fræga fólkinu:
Leikstjóra vart hugað líf eftir bruna
Bandaríski leikstjórinn og hand-
ritshöfundurinn Duncan Gibbins
hlaut alvarleg brunasár þegar hann
reyndi aö bjarga verðmætum úr húsi
sínu í Malibu í gærkvöldi.
Skógareldarnir geisa nú um hverf-
ið og tjón er gífurlegt. Að sögn lækna
hlaut leikstjórinn brunasár á um
80% af líkama sínum og er honum
vart hugað líf.
Meðal þeirra, sem nú óttast um
heimili sín, eru Johnny Carson, Bar-
bra Steisand, Ali McGraw, Carroll
O’Connor, Steven Spielberg, Dustin
Hoffman og Sylvester Stallone. Sumt
af þessu fólki hefur áður misst hús
sín í skógareldum í Kaliforníu.
Sjónvarps-
stöðvar í Los
Angeles hafa
sent beint frá
hættusvæðun-
um og situr
mikill íjöldi
fólks við skjá-
ina víða um
Bandaríkin og
fylgist með Sylvester Stallone.
framvindunni.
Nú þegar eru þúsundir manna
flúnar að heiman og enginn veit meö
vissu hve mörg hús hafa orðið eldin-
um að bráð. Þau skipta þó hundruð-
um ef ekki þúsundum.
„Það nístir mig inn að hjartarótum
að sjá húsin brenna,” sagði Pete Wil-
son, ríkisstjóri í Kaliforníu, í sjón-
varpsviðtali í gærkveldi. Hann kom
þá með þyrlu til Malibu til að fylgj-
ast með björgunarstarfinu.
Slökkviliðið ræður þó ekkert við
eldinn og er jafnvel búist við að hann
kulni ekki næstu daga ef vind lægir
ekki.
Reynt er að ausa vatni og sjó á eld-
inn úr lofti en jörð er það þurr að
vatnsgusurnar draga lítið úr bálinu.
Flugvellir eru lokaðir við hættu-
svæðið enda er skyggni lítið og
hættulegt að vera á lofti í reykjar-
mekkinum. Reuter
Aöeins einn
maður hef ur
farist í bálinu
Einn maður lét lífið í Los Ange-
les i gærkvöldi þegar hann reyndi
að bjarga eigum sinum skömmu
eftir að skógareldarnir blossuðu
upp að nýju.
Það þykir raunar undrum sæta
að ekki skuli fleiri hafa farist því
fjöldi húsa er nú rústir einar og
fólk hefur-bjargað sér á hiaupum
undan eldínum.
Nokkrir liafa hlotið brunasár,
sumir alvarleg en í morgun var
aðeins vitað um þetta eina dauðs-
fall. Vitaö eru tvo menn i lífs-
hættu. Reuter
„Mér verður illt af aö tala um
þetta. Það munaði engu að ég missti
húsið mitt,“ segir Osmond Justin-
ussen, útgerðarmaður frá Færey-
um, eftír nær tveggja ára samstarf
við Namibiumenn í útgerð.
Hann og fjórir aðrir Færeyingar,
þar á meðal Óli Breckmann, annar
þingmanna Færeyinga á danska
þinginu, stofnuðu árið 1991 útgerð-
arfélag með Namlbíumönnum. Fé-
lagiö fékk nafnið Ferina og var
sameígnarfélag þar sem lieima-
menn áttu 51% en Færeyingamir
49%. Tilgangurinn var að nýta
fiskimiðin við
strönd Namib-
íu. Færeyingar
tóku lán hjá
Færeyjabanka
fyrir sfnura
hlut og lögðu
auk þess til
fjóra gamla en
endurbyggða
togara. Þeir
fengu nöfnin
Ferina Star, Ferina Sun, Ferina
Sudurhavid og Ferina Midhavid.
Færeyingarnir segja að Namibíu-
Oli Breckmann.
menn hafi ekki lagt krónu í fyrir-
tækið en þeir hétu Færeyingum
2000 tonna veiðikvóta í landhelgi
sinni. Síðar kom upp deila um
hvernig nýta ætti kvótann og vildu
heimamenn að hann yrði veiddur
af togurum sameignarfyrirLækis-
ins sem framlag þeirra í samstarf-
inu. Færeysku útgerðarmennirnir
vildu að önnur skip þeirra nýttu
kvótann.
Samheldnin hjá Ferina var því
líttl frá upphafi og nú er svo komið
aö Namibíumenn hafa knúið fram
gjaldþrot fyrirtækisins og er búið
að seija togarana fióra á nauðung-
aruppboöi. Færeyingarnir segja að
Namibíumenn hafi beitt þessu
bragði til að komast yfir skipin og
hyggist nú gera þau út.
í beinum peningum nam framlag
Færeyinga um 100 milljónum ís-
ienskra króna. Þá eru ótaldir togar-
arnir fiórir sem kostuðu 250 til 300
milljónir ti samans. Skaðinn nem-
ur því allt að 400 milijónum ís-
lenskra króna og mátti útgerð i
Færeyjum síst við slíku tjóni.