Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 11 Fréttir Tilraunaútsendingar Stöðvar 2 á örbylgjusjónvarpi hafnar: 50 þúsund nýir mynd- lyklar verða f luttir inn - ríkissjónvarpiðverðurmeðáeinnirás íslenska útvarpsfélagið, Stöð 2, hefur hafið tilraunaútsendingar á örbylgjusviði með sendi sem stað- settur er á Veðurstofuhæð og Öskju- hlíð í Reykjavík. Þeir sem hafa réttan múttökubúnað, sérstakt örbylgju- loftnet, og sjónvarpstæki sem eru 5 ára og yngri eiga að ná útsendingun- um endurgjaldslaust. Nást útsend- ingar á mestöllu Faxaflóasvæðinu, á stöðum í beinni sjónlínu frá sendin- um. Er fyrirhugað að hefja ruglað end- urvarp 8 gervihnattastöðva og dag- skrár Stöðvar 2 í kring um 1. desemb- er. Til að ná rugluðum örbylgjusend- ingum þarf, auk móttökubúnaðarins, nýjan myndlykU. Fyrstu gámarnir með nýjum hol- lenskum afruglurum eru að koma tíl landsins þessa dagana en alls er áætl- að að flytja inn allt að 50 þúsund nýja myndlykla. Þessir myndlyklar verða lánaðir notendum, eins og tíðkast víðast erlendis. Er margt óljóst varðandi markaðssetningu þeirra en óvíst er hvort eigendur eldri myndlykla fá eitthvað fyrir gömlu lyklana geri þeir lánssamning um nýjan myndlykU. Hjá fyrirtækinu Elverk fengust þær uplýsingar að sérstakt örbylgju- loftnet með uppsetningu muni kosta 25-30 þúsund krónur. Órbylgjusend- ingarnar verða fyrst um sinn bundn- ar við Faxaflóasvæðið. Með nýjum myndlykli eiga notend- ur að sjá tvær fréttastöðvar BBC, CNN, Sky news, Discovery, Country Music Television, TT/Cartoons channel, MTV og Eurosport. Auk þess munu notendur myndlyklanna sjá útsendingar Stöðvar 2, Sýnar og ríkissjónvarpsins, en ríkissjónvarpið fékk úthlutað einni rás á örbylgju- sviði. Gert er ráð fyrir að aðgangur að öllum stöðvunum á vegum ís- lenska útvarpsfélagsins verði seldur í einum pakka. íslenska útvarpsfélagið fékk út- hlutað 5 rásum á örbylgjusviði í sum- ar og síðan þremur rásum til bráða- birgða í september. Þá fékk Frjáls fjölmiðlun úthlutað einni rás og leyfi til reka innlenda sjónvarpsstöö. Er undirbúningur hennar í gangi. Um- sækjendum um leyfi til endurvarps erlends sjónvarpsefnis, sem ekki höfðu fyrirliggjandi samninga við upphafsstöðvar í sumar, var gefið vilyrði fyrir útvarpsleyfi og 6 mán- aða frestur til að gera samninga við upphafsstöðvar í útlöndum. Háskólinn hefur stofnað sjálfseign- arfyrirtæki, Sendi, í þeim tilgangi að reka kennslusjónvarp. Að sögn Kjartans Gunnarssonar, formanns útvarpsréttamefndar, vissi hann ekki til að umsókn hefði borist frá þessu fyrirtæki. Háskólinn hafði áður fengið úthlut- aö bráðabirgöaleyfi til tilraunaút- sendinga en samkvæmt lögum má skólinn ekki vera með atvinnurekst- ur á sínum snærum. -hlh R0DE0 VERKFÆRI A LAGERVERÐI RODEO Kjarabót í kreppunni: Berðu saman verð og gæði. Opið daglega kl. 10-18.30, laugardaga kl. 10-16.30. %R0T Kaplahrauni 5, Hafnarfirði, sími 653090 „Rjúpnaveiðin hefur gengið vel það sem af er veiðitímanum og það er mikið af rjúpu,“ sagði Agnar G. Guðjónsson byssusmiður að lokinni þriggja tíma veiðiferð. Á myndinni hampar hann fengnum. DV-mynd G.Bender Hátt verð á sels- hreif um í Japan - tilraimasending á leiöinni frá Hvammstanga Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkröki; „Vegna aðgerða grænfriðunga og af ýmsum öðrum ástæðum er mikill skortur á selshreifum. Japanar borga gott verð fyrir þá og vonandi verður það til þess að veiðimenn fara að sinna selveiðum meira en þeir hafa gert,“ segir Harpa Vilbertsdótt- ir, framkvæmdastjóri íguls á Hvammstanga, sem einkum verkar hrogn úr ígulkerum. Auk þess að flytja hrognin til Japans hefur Harpa aflað markaðar fyrir selshreifa í Jap- an. Hún segir að 7 veiðimenn á Strönd- um og í Flatey á Breiðafirði séu nú að afla 250 kg af selshreifum í til- raunasendingu til Japans. Sú stærð pakkningar þykir heppileg upp á fragt. „Viö bjóðum veiðimönnunum 500 krónur fyrir kílóið til að byrja með og ef Japönunum líkar varan vel gæti veröið hækkað," segir Harpa. Hreifarnir þykja góður matur í Jap- an eins og þeir reyndar þykja súrsað- ir á þorrablótum hér á landi. Harpa segist hafa áhuga á að nýta þau hlunnindi sem selurinn sé víða og einnig það sem til fellur úr ígulker- um. Skelin mulin er notuð sem ýmiss konar áburöur og úrgangur úr ígul-, kerunum er nýttur í refafóður. TOPP 40 I HVERRI VIKU íslenski listinn er birtur í DV á hverjum fimmtudegi og á fimmtudagskvöldum á milli kl. 20 og 23 kynnir Jón Axel Ólafsson stööu laganna á Bylgjunni og greinir frá sög- um á bakviö athyglisveröa flytjendur og lög þeirra. Á Bylgjunni, iaugardaga milli fír %. kl. 16 og 19 er staöa laganna 40 svo kynnt á ný og þau endurflutt. GOTT UTVARP! ISLENSKI USTINN er unninn I samvinnu DV. Byfgjunnar og CocæCola 6 Islandi. Mikill IJöldi fólks tekur þátt I að velja ISLENSKA USTANNI hverri vlku. Yfirumsjón og handrit eru f höndum Ágústs Héöinssonar, framkvæmd 1 höndum starfsfólks DV en tæknivinnsla fyrír útvarp er unnin af Þorsteini Asgelrssynl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.