Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 Spumingin Ertu bjartsýnismanneskja? Jón Hólm: Alveg meö eindæmum. Ólöf Gestsdóttir: Já. Jón Bergmann: Já, ég er mjög bjart- sýnn. Þórarinn Guðjónsson: Nei. Jóna Sigþórsdóttir: Ég vona það. Ágústa Árnadóttir: Já. Lesendur Vaxtalækkunin: Þáttaskil eða endalok? Kristján Þorsteinsson skrifar: Margir telja yfirlýsingu ríkis- stjómarinnar um aðgerðir til að flýta fyrir vaxtalækkun hér marka þátta- skil í efnahagslííinu og ganga svo langt að segja að senn fari hér allt á fulla ferð á ný. Ekki síst framkvæmd- ir af öOu tagi og bankar lækki vexti sína svo að skuldurum veitist auð- veldara að standa í skilum. Vonandi gengur þetta eftir. Er þá svo komið að allar aðgeröir hér á landi skuli miðast við skuldir og vaxtabyrði. Emm við ekkert annað en skuldsett- ir landsetar þegar aUt kemur til alls? Við skulum samt vona að skulda- heimili landsins og skuldakóngar komist betur af eftir þessar aðgerðir. En ef vaxtalækkunin gengur nú eft- ir, munu kaupmenn þá ekki lækka vöruverð til samræmis þannig að neytendum komi það til góða á þeim vettvangi? Hvað hefði t.d. gerst ef vextir hefðu hækkað, segjum um 2%? Hefði þaö ekki bitnað á vöru- verðinu? - Áð sjálfsögðu. Nú er nýbúið að gera sérstakar ráðstafanir, einmitt fyrir atvinnulíf- ið, með því að afnema aðstöðugjald Leiðir vaxtalækkunin til lægra verðs á neysluvörum? og með gengislækkunum, sérstak- lega fyrir útflytjendur. Ekki dugði það hvort tveggja til verulegs af- komubata. Breytir vaxtalækkunin einhverju? Margir spyrja sig einmitt að því í dag hvort hún muni í raun skapa þáttaskil í atvinnurekstri eða hvort hún tákni einfaldlega endalok hjá okkur í efnahags- og atvinnumál- um. Velja færeysku leiðina sem við höfum sálflr gagnrýnt svo ákaft. - Er ekki verið að hvetja til þess að taka erlend lán allt hvað af tekur, vextir lágir og hagstæð skilyrði er- lendis þessa dagana? Sagði ekki for- sætisráðherra fyrir nokkrum vikum að erlend lántaka væri nú stöðvuð? Dettur nokkrum manni í hug að ef af vaxtalækkun verður muni heimili og fyrirtæki taka til við að lækka skuldir sínar? Nei, vaxtalækk- unin verður einmitt til þess að þessir aðilar sækja enn frekar á lánamark- aðinn Það þarf enginn að halda að almenn vaxtalækkun leiði til minni spennu í athafnalífinu. Þvert á móti. Spennan og uppsveiflan verður ein- mitt tíl þess að eyða í fleiri og meiri framkvæmdir. Það var ekki þaö sem við þurftum. Við þurftum á sparnaði að halda, ekki eyöslu og frekari lán- tökum. Og neytendur þurfa ekki að búast við neinni verðlækkun á nauð- synjavörum, svo sem matvælum, tryggingum, rafmagni og hita o.s.frv. - Færeyska leiðin er enn í áætlunar- kerfi íslendinga og hún er því miður enn eftirsótt, bæði af stjórnvöldum og almenningi. Aðstoðin við Bosníu Sigríður Benediktsdóttir skrifar: I DV var frétt hinn 27. okt. sl. þar sem greint var frá því að ríkisstjórn- in hefði samþykkt að senda sveit ís- lensks hjúkrunarfólks til hjálpar- starfa í Bosníu. Samþykkt var aö veita 7,5 milljónir króna til þessa hjálparstarfs. Ég á ekki til nógu stór orð til að lýsa hneykslun minni. Þetta er í raun alveg ótrúlegt. Hvernig væri nú að nota þetta fjármagn í eitthvað gagn- legra? Auðvitað veit ég að fólk þjáist mikið þarna ytra en eiga þessar 7,5 milljónir króna að breyta því eða geta þær yfirleitt komið aö gagni á einhvern hátt? Ég held ekki. Þessir peningar gætu hins vegar komið aö gagni og breytt miklu hér heima, væru þeir t.d. notaðir í að koma upp aðstöðu fyrir unghngana okkar um helgar, svo að þau berji ekki hvert annað til að drepa tímann. - Leyfum Bandaríkjamönnum og öðrum þjóðum að vera hetjur og ger- ast siðapostular þarna úti og höldum okkur hér heima og leysum okkar mál áður en viö sendum okkar eigið fólk út til að láta skjóta það í spað. Bílageymsla við Vitatorg: Óhentug innkeyrsla Bilageymsluhúsið við Vitatorg. - Á myndinni sést glöggt hvað bréfritari á við Hallgrímur skrifar: Ég fagna hverju skrefi í endurnýj- un í borginni okkar, hvort sem um er að ræða í húsagerð, gatnagerð eða fegrun umhverfisins. Og vissulega hefur meira verið unnið í þessum málum á síðustu tveimur árum en oft áður. BOageymsluhús hafa t.d. verið reist eða opin svæöi endur- hönnuð til að koma fyrir hluta hins mikla bílaflota sem við notum. Fólk hefur samt einhvern veginn ekki komist upp á lag með að nýta þessi mannvirki sem skyldi, og langt frá því að öll þessi stæði og bílageymslu- húsin séu fullnýtt. Menn virðast heldur vilja halda gamla laginu og leggja rétt við verslunina, eða stofn- unina sem þeir þurfa í. Svo verða þeir æstir og móðgaðir sé búið að sekta þá eða jafnvel draga bO þeirra á brott. Ég nota mikið þessi vemduðu bíla- stæði og þar á meðal bílageymslu- húsin, sem mér finnst langbest, ekki síst á vetuma. - Eitt nýtt hús er kom- ið þar sem áður var Vitatorg. Það er aOt hið besta um það aö segja nema Hringið í síma milli ld. 14 og 16 - eða skriftð Nafn oft símanx. veróur aó fylgja bréfum eitt - miðatökukassinn er alveg hræðilega Ola staðsettur. Hann er vinstra megin á götunni, þar sem maður verður svo að beygja til vinstri eftir að miðinn hefur náðst úr kassanum. Beygjan er hins vegar svo kröpp (eins og því miður verður oft hér við bílastæðin sjáO) að maður verður að bakka eða hafa aðrar tO- færingar til að aka beint inn. Auðvitað á miöakassinn að vera vinstra megin og þá í beinni innakst- urslínu en ekki í annarri aksturs- línu, nema auðvelt sé aö beygja. Á stómm bílum næst þessi beygja a.m.k. ekki auðveldlega. Þetta er auð- vitað illt að útskýra nema sýna af- stöðumynd af innkeyrslunni. - Kannski getur DV myndað hana til skýringar. Björn Björnsson hringdi: Þá á Þjóðhagsstofnun hefur greinOega grunað að ríkisstjórn- in myndi stíga á stokk og gefa yfirlýsingar um vaxtamálin sem eiga að marka þáttaskO í efna- hagsmálunum. Þjóöhagsstofnun spáði nefnilega að við myndum ná botninum í efhahagslægðinni á næsta ári og síðan yrði mjög hægfara hagvöxtur, hklega um 1-2%. Eftir vaxtalækkun á ríkis- skuldabréfum verður efnahags- batinn mun hraðari en nokkru sinni, sérstaklega þar sem við höldum nú áfram að taka erlendu lánin. Það er kannski okkar mesta happ, það hlýtur hver mað- ur að sjá. Gestiroggjörn- ingaríSjónvarpi Sigurlaug skrifar: Eftir að hafa horft á þáttinn Gesti og gjörninga í Sjónvarpinu sl. sunnudag fæ ég betur skOið hvað mér líkar betur og hvað verr. Ég dáist að þessum Osta- mönnum! Að hafa það sjáOs- traust tO aö bera að sýna sig og koma fram í ríkissjónvarpinu. Og svo er veriö að bera okkur islendingum á brýn að vera feinmir og til baka! í þættinum mátti glögglega sjá að íslendingar eiga menn sem þora að sýna hvað í þeim býr. Allt menn sem segja sex! Fær þetta fólk greitt fyrir af skattpeningum okkar? Farþegaísóttkví Steinunn hringdi: Óhugnanlegar fréttir berast hingað til lands um aö berkla- bakterían leggi undir sig viss svæði i Bandaríkjunum, einroitt þar sem íslenskir flugfarþegar eru tíöir gestir. Á Miami á Flórida og á Manhattaneyju í New York. fslensk heilbrigðisyfirvöld óttast að bakterían geti fljótlega borist hingað og mjög erfitt sé að lækna sjúklinga sem smitist af henni. Eg legg tO að farþegar, sem koma frá þessum sýktu svæðum, séu settir í sóttkvi samstundis og þeir koma hingaö til lands. Þaö hefur verið gert af minna tilefhi. HótelBorg- breyttogbætt Fjóla Guðmundsdóttir hringdi: Ég fór á Hótel Borg nýlega, i fyrsta skipti eftir breytingamar. Mér finnst þær hafa tekist ein- staklega vel, án þess að útfloka hið gamla andrúmsloft og ýmsa muni sem bjargað var og húsinu tilheyra. Þarna var matur hreint afbragð á skreyttum diskum, listamaðurinn Bergþór Pálsson skemmti matargestum og ég átti þarna yndislegt kvöld. Tómas veitingamaður á heiður skilinn fyrir að koma þessu öllu svona smekklega fyrir, bjarga verð- mætum og endurreisa þetta góða, klassíska hótel. Sjónvarpsdag- skráinábotninn Sigurður Gislason hringdi: Eg og mitt heimafólk vorum að horfa á Sjónvarpið sl. sunnudags- kvöld (31. okt.). Þaö verður að segja eins og er aö ekki áttum viö von á öðrum eins ömurlegheitum og birtust í þættinum Gestir og gjömingar. Hvað var verið að bjóða okkur upp á? Jú, garg og eins konar viOidýrsöskur, fram- leitt á svokölluðum skemmtistað í borginni. Þessi þáttur, ásamt Dagsljósi, hefur komið dagskrá Sjónvarpsins alveg niður á botn- inn og var þó ekki úr háum söðh að detta. Og svo er maður skyld- aður til aö greiöa fyrir afnot af þessu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.