Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993
Stuttar fréttir Iþróttir
Þjátfarí rekinn
Eftir 5-1 tap Atalanta gegn
botnliði Lecce í ítölsku 1. deild-
inni í knattspyrnu um síðustu
helgi ákvað stjórn félagsins að
losa sig viö þjálfarann, Francesco
Guidolin. Tveir menn hafa verið
ráðnir í staðinn, þeir Cesare
Prandelli og Andrea Valdinoci.
Unekerenn meiddur
Gary Lineker leikur ekki meira
með japanska félaginu Grampus
Eight á þessu tímabili. Láneker
hefur átt við þrálát meiðsli að
striða á feeti og ætlar hann aö
leita til lækna í Bandaríkjunum
til að r eyna aö fá bót meina sinna.
Afall hjá Beigunt
Belgíski landsliösfyrírliöinn
Georges Grun, sem leíkur með
Parma á Ítalíu, missir af hinum
þýðingarmikla leik gegn Tékkum
i HM sem fram fer 17. nóvember.
Grun meiddíst á hné í leik gegn
Inter á sunnudag og verður aö
gangast undir aögerð.
SchrempftilSeattle
Detlef Schrempf, þýski körfu-
boltamaðurinn sem leikið hefur
meö Indiana Pacers í NBA-deild-
irrni undanfarin ár, er kominn til
Seattle Supersonics og mun leika
með liðinu í vetur. Schrempf hef-
ur verið lykilmaður hjá Indiana
og skorað 17 stig að meðaltali í
leik.
Tveírtillndiana
Indiana fékk í staðinn tvo leik-
menn frá Seattle Supersonics, þá
Derrick McKay og Gerald
Pardue. Ástæður þessara skipta
eru fjárhagsvandræði hjá Indi-
Bæjarstjóri f ékk kross
Á 38. sambandsþingi Ung-
mennafélags íslands, sem haldið
var á dögunum, var Siguröur
Geirdal, bæjarstjóti í Kópavogi,
sæmdur heiðursfélagakrossi
UMFÍ. Sigurður var fram-
kvæmdastjóri UMFÍ í 16 ár á
miklum uppgangstíma samtak-
anna.
Reynirfékkgullið
Á þingi Ungmennafélags ís-
lands var Reynir Karlsson,
íþróttafulltrúi ríkisins, sæmdur
gullmerki UMFÍ. Viðurkenning-
una fékk Reynir fyrir vel unnin
störf í þágu samtakanna.
Sverrir til Leifturs
Sverrir Sverrisson knatt-
spyrnumaöur hefur ákveðið aö
ieika með Leiftri frá Olafsfirði í
2. deildinni á næsta leiktímabili.
Sverrir lék sl. sumar með liði
Tindastóls frá Sauðárkróki og
var markahæsti leikmaður liðs-
ins i 2. deild.
Ómar áfram með Hött
Ómar Jóhannsson hefur verið
endurráðinn þjálfarí knatt-
spymuliðs Hattar á Egilsstöðum
en undir hans stjóm unnu Hatt-
armenn 4. deildina í knattspyrnu
i sumar og leika í fyrsta sinn í 3.
deild á næsta ári.
Stórsigur Þórsara
Þórsarar unnu auöveldan sigur
á Völsungi, 43-109, í 2. umferð
bikarkeppninnar í körfuknatt-
Ieik á Húsavík í gærkvöldi. Þetta
var fyrsti opinberi leikur Völs-
unga í íþrótthuú.
-GH/SK/MJ/VS
E vrópukeppni landsliða 1 handknattleik komin vel á veg:
Spánn í úrslitin
en tvísýn barátta 1 öðrum riðlum um sæti í lokakeppninni
Evrópukeppni landsliöa í hand-
knattleik, sem hleypt var af stokkun-
um fyrr á þessu ári, er nú vel á veg
komin. Úrslitakeppnin fer fram í
Portúgal 1.-15. júní á næsta ári og
þar leika 12 landslið um Evrópu-
meistaratitilinn.
Spánverjar eru eina þjóðin sem
tryggt hefur sér sæti í þessari úrslita-
keppni auk gestgjafanna en efsta lið-
ið í hverjum riðli fer beint í úrslit.
Liðin sem hafna í öðru sæti í riðlun-
um leika svo um hin fjögur sætin.
Staðan í riðlunum sjö, sem leikið er
í, er þannig:
Rúmenía....
Danmörk...
Úkraína....
Slóvakía..
Moldavía...
1. riðill
...5 4 0 1 114-93
...5
...5
...5
1 1 152-84
1 1 108-87
0 3 100-101
...6 0 0 6 80-189 0
2. riðill
Ungverjal.......6 4 0 2 140-111 8
Litháen.........5 3 0 2 117-103 6
Noregur.........3 2 0 1 71-59 4
Slóvenía 2 2 0 0 46-39 4
Georgía 6 0 0 6 100-162 0
3. riðill
Sviþjóð 3 3 0 0 76-51 6
Tyrkland 4 2 2 0 89-73 6
Eistland 4 1 0 3 77-105 2
Austurríki.... 2 0 1 1 35-37 1
Belgía 3 0 1 2 53-64 1
4. riðill
H-Rússland... 4 3 1 0 134-84 7
Króatía 5 3 1 1 131-109 7
ísland 2 1 1 0 47-45 3
Finnland 3 0 1 2 74-91 1
Búlgaría 4 0 0 4 72-129 0
5. riðill
Þýskaland 4 4 0 0 99-59 8
Holland 6 3 1 2 117-118 7
Frakkland.... 3 2 1 0 72-57 5
Grikkland 6 1 1 4 131-161 3
ísrael 5 0 1 4 93-117 1
6. riðill
Spánn 8 7 1 0 235-141 15
Sviss 6 3 0 3 168-120 6
Pólland 4 2 1 1 111-98 5
Lettland 6 2 0 4 141-174 4
Kýpur 6 0 0 6 91-213 0
7. riðill
Rússland 4 4 0 0 131-68 8
Tékkland 3 2 0 1 78-54 4
Ítalía 3 1 0 2 55-58 2
Lúxemborg... 4 0 0 4 56-140 0
Tveir leikirgegn
Búlgörum í næstu viku
Það er hörð keppni í riðli íslendinga.
Hvít-Rússar standa vel að vígi en
staða íslenska landsliðsins vænkað-
ist mjög eftir sigur liðsins á Króötun-
um á dögunum. Næstu leikir íslend-
inga eru á móti Búlgörum 11. og 12.
nóvember og verða þeir báðir spilað-
ir á íslandi. 1. desember sækir ís-
lenska liðið Króata heim og 7. og 9.
janúar leika ísland og Hvíta-Rúss-
land í Laugardalshöll. íslendingar
ljúka svo keppni þann 16. janúar
þegar þeir taka á móti Finnum.
-GH
Charlton lá
gegn Derby
Charlton, topplið ensku 1. deildar-
innar í knattspyrnu, beið lægri hlut
á heimavelli fyrir Derby County, 1-2,
í gærkvöldi en heldur þó tveggja
stiga forskoti á næstu lið. Urslit urðu
ana. Bolton - Peterboro l-l
Herrakvöld Fram Bristol City - Birmingham... Charlton - Derby 3-0 1-2
Crystal Palace - Luton 3-2
Herrakvöld Fram verður 12. Grimsby - Leicester 0-0
nóvember í félagsheimili Fram í Oxford - Bamsley 1-1
Safamýri. Ræðumaður kvöldsins verður Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra og veislu- stjóri Sigurður Tómasson. Portsmouth - Middlesbroug 2-0
Tranmere - W.B.A Wolves - Notts County 3-0 3-0
Charlton er með 29 stig, Crystal
Leicester 26 og Middlesboro 23 stig.
-VS
Tútsjkin frá
Að sögn þýskra blaða í gær verður
handboltasnillingurinn Alexandr
Tútsjkin frá í þrjá mánuði vegna
meiðslanna sem hann varð fyrir í
leik Essen við FH um helgina. Hann
veröur því ekki með í síðari leiknum
á sunnudag og heldur ekki með
Hvít-Rússum gegn íslendingum í
Evrópukeppninni í janúar.
-ÞS/VS
Mótarööinni i golfi í Evrópu að ljúka:
Tekst Faldo að
halda efsta sæti?
* * • /
Breski kylfmgurinn Nick Faido er í góðri stöðu fyrir síðasta golfmót
atvinnumanna í Evrópu, Volvo Masters, sem hefst i dag í Svíþjóð. Faldo
hefur nokkra forystu á listanum yfir bestu kylfinga Evrópu 1993 en þó
eru nokkrir kylftngar semenn geta náð honum að stígum. Skæðastikeppi-
nautur Faldo er Þjóðverjinn Bernhard Langer sem verður einnig á með-
al þátttakenda í Svíþjóð.
Spánverjinn Severiano Ballesteros ætlaði að vera með en varð að hætta
við i gær vegna bakmeiðsla. „Ég get nánast ekki hreyft mig, ekki beygt
mig eða slegið kúluna,“ sagði Ballesteros i gær. Þar með missti hann af
möguleika á að sigra á móti í Evrópu í ár en hann hefur alltaf unnið í
það minnsta eitt mót síðustu 17 árin.
Bernhard Langer á mesta möguleikana á að ná Faldo að stígum: „Mér
sýnist að ef ég hafna í 1. eða 2. sæti og Faldo þremur sætum neðar þá
verði efsta sætið mitt,“ sagði Langer í gær. Hann á von á mjög erfiöum
aðstæðum á Volvo Masters vegna mikilla rigninga undanfarið.
Tólf og hálf milljón verður I boði fyrir fyrsta sætið
Nick Faldo er ekki á flæðiskeri staddur fjárhagsiega. Hann er efstur á
peningalistanum í Evrópu á þessu ári og hefur halað inn 42,5 milljónir
króna. Langer kemur næstur honum með 37,4 miDjónir króna. Sigurveg-
arinn á Volvo Masters fær 12,5 milljónir í verðlaun og aö auki tryggja
15 efstu menn á Evrópulistanum sér 3,4 milljónir króna þar sem þeir
skipta með sér aukagreiöslum upp á 51 milljón króna eftir tímabilið. Meö
sigri gæti Faldo því fengið 16,1 milljón króna með aukagreiðslunni fyrir
sigur á Volvo Masters og heildartekjurnar fýrir Evrópumótin í ár yrðu
þá tæpar 60 milljónir. -SK
DV kynnir NBA-liðin í körf uknattleik 9
Utah
Nafn: Utah Jazz.
Stofnað: 1974.
Miðvesturriðill, vesturdeild.
Meistarar: Aldrei.
Árangur í fyrra: 47-35,16-liða úrslit.
Þjálfari: Jerry Sloan.
Liðið sem staðið hefur sig svo vel
undanfarin ár er fariö að eldast.
Allir leikmennirnir í byrjunarhð-
inu hafa náð 30 ára aldri og liðið
sýndi merki þess í fyrra að menn
væru farnir að hægja á sér.
Til viðbótar í ár er kominn gam-
all jaxl sem passar vel inn í þessa
mynd. Það er Tom Chambers frá
Phoenix. Liðið festi einnig kaup á
miðherjunum Felton Spencer frá
Minnesota og Luther Wright, ný-
liða frá Seton Hall háskóla. Mike
Brown er farinn til Minnesota og
Larry Krystokowiak til Orlando.
John Stockton stjórnar leik liðs-
ins en hinn bakvörður byijunar-
liðsins er Jeff Malone. Framherjar
eru Karl Malone og Tyrone Corbin
en miðherji er Mark Eaton, 2,23 m
og 36 ára gamall. Meiðsl hafa gert
hann enn seinni í svifum en nokkru
sinni fyrr. Af bekknum koma þeir
David Benoit framheiji og Jay
Hauphries bakvörður/framheiji en
þeir ollu báðir miklum vonbrigðum
í fyrra.
I ár er liðinu spáð þriðja sætinu
í riölinum en lakari árangur gæti
hæglega oröið hlutskiptið ef lykil-
menn verða fyrir meiðslum. Ef allt
gengur upp er þetta örugglega síö-
asta árið sem þetta Utah-lið getur
gert sér vonir um titilinn. Utah-
liðið er farið að minna á gamla
Boston-liðið Johnson, Ainge, Bird,
McHale og Parish, aldursins vegna.
Jetf Malone, bakvörðurinn reyndi
hjá Utah Jazz.
Annar
-ílifleg
KR-ingar unnu sinn annan sig-
ur í röð í Visadeildinni í körfu-
knattleik í gærkvöldi er þeir
mættu Snæfelli á Seltjarnarnesi.
Lokatölur voru 92-85. Sigur KR
var öruggur í lokin, en liðið leiddi
nær allan tímann. Gestirnir, sem
börðust af alkunnum krafti, voru
þó sjaldan langt undan.
„Ég er mjög ánægður með
þennan sigur sem við þurftum
að hafa mikið fyrir. Þetta er í
fyrsta sinn sem ég sé Snæfellslið-
ið og ég verð að segja að það er
gott. Þeir eiga góða einstaklinga
og leika skemmtilegan körfu-
bolta. Ég er bjartsýnn á fram-
haldið en KR-liðið er ungt og
reynslulítið. Strákamir leggja
Staðan
Staðan er nú þannig í úrvals-
deildinni í körfuknattleik:
A-riðill:
Snæfell.....6 4 2 512-509 8
Skallagr....5 3 2 408-396 6
Keflavík........5 3 2 493-407 6
Akranes.....5 1 4 401-492 2
Valur.......6 1 5 525-576 2
B-riðill:
Njarðvík....5 4 1 462-411 8
Grindavík...5 3 2 427^13 6
Haukar......5 3 2 416-394 6
KR...........6 3 3 537-537 6
Tindastóll...6 2 4 445-491 4
Besta meðalskorið:
Franc Booker, Val............29,7
Rondey Robinson, Njarðvík....28,8
Jonathan Bow, Keflavík.......25,2
Robert Buntic, Tindastóli....24,5
Wayne Casey, Grindavík.......24,2
Chip Entwistle, Snæfelli.....24,2
Davíö Grissom, KR............21,7
Mirko Nikolic, KR............20,2
KristinnFriðrikss., Keflavík....20,2
Teitur Örlygsson, Njarðvík...20,0
Si
0-
25-:
534
81-
Sl
mai
16,
Gu<
son
Sl
Kri
þór
7, i
Sigi
2.
Fi
T.
D
Ber
þok
legí
Á
M
Sns