Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1993, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1993 23 Vetrartilboð á sturtuklefum. Verð frá kr. 10.900 á stökum klefum, 24.500 á klefa m/botni og blöndunartækjum. A & B, Skeifunni 11B, sími 681570. ■ Verslun 20-50 % afsláttur af hreinlætistækjum, baðinnréttingum og sturtuklefum. A & B, Skeifunni llb, sími 681570. Gott tilboð. Útvíðar barnabuxur 950. Mikið úrval af göllum frá 1.250, jogg- ingbuxur á börn og fullorðna, vesti á fullorðna 1.680, úrval af bolum. Send- um í póstk., fríar sendingar miðað við 5.000. Ceres, Nýbýlavegi 12, s. 44433. Stærðir 44-58. Tískufatnaður. Stóri listinn, Baldursgötu 32, s. 622335. Einnig póstverslun. Komdu þægilega á óvart. Full búð af nýjum vörum: stökum titrurum, sett- um, kremum, olíum, nuddoh'um, bragðolíum, blöð o.m.fl. f. dömur og herra. Sjón er sögu ríkari. AUar póst- kröfur duln. R&J, Grundarstíg 2, s. 14448. Opið 10-18 v.d., laugard. 10-14. Útsala, útsala á nokkrum hesta- og jeppakerrum. Hreint ótrúlegt verð. Allir hlutir í kerru og vagna. Islensku dráttarbeislin, gerið verðsamanburð. Póstsendum. Víkur-Vagnar, Síðumúla 19, s. 684911. Alvöru þjófavarnabúnaður. Slagbrand- ar, öryggislæsingar, öryggiskeðjur, öryggishespur, öryggisgrindur o.fl. Uppsetning ef óskað er. Varist inn- brotin, kynningarverð. Vikurvagnar, Síðumúla 19, sími 91-684911. Smáauglýsingar ■ Bílar tn sölu Toyota LandCruiser GX, árg. ’88, turbo, upphækkaður, 38" dekk, 12" felgur, driflæsingar framan + aftan, ekinn 152 þús., skipti möguleg. Bílasala Keflavíkur, sími 92-14444 eða eftir kl. 20 í símum 92-12247 og 92-14266. Toyota LandCruiser STV/GX, disil, árg. ’88, ekinn aðeins 90 þús. km, 33" dekk, 10" krómfelgur, einn eigandi, skipti möguleg. Bílasala Keflavikur, sími 92-14444 eða eftir kl. 20 í símum 92-12247 og 92-14266. Kjúklingurinn KFC ’91 til sölu með öllu eða vélar- og skiptingarlaus. Skipti athugandi. Uppl. í síma 92-13507. BMW 520i, árg. ’89, til sölu, svartur, 5 gira, ek. 71 þús., fallegur bíll, verð 1680 þús. Skipti á ódýrari. Uppl. í s. 91-44300 til kl. 17 og 91-656437 á kvöldin. Honda Prelude 2000 EXi, árg. '91, til sölu, ekin 69 þús., blágræn, sjálfskipt. „Einn með öllu”. Uppl. á Bílasölunni Höldur, s. 96-24119 og 96-24022 á kv. ■ Jeppar Blazer Thao '85, innfl. '87, til sölu, 6 cyl., sjálfsk., rafdrifnar rúður, samlæs- ing, hraðastillir, loftkæling, topplúga, nýtt lakk, álfelgur, mjög fallegur bíll á góðu verði. Á sama stað til sölu 31" dekk á krómfelgum (passa t.d. á Paj- ero). Uppl. í síma 91-42390. ■ Ymislegt V & Hópferðabílar Bus Service Kristján Willatzen Þjónusta vió allra hæfl. Hópferðabílar Kristjáns Willatzen, Breiðási 1, 210 Garðabæ, símar 91-658507 og 658505, fax 650330. STÖÐVUM BÍLINN eff viö þurffum aö tala í farsímann! ^ tfffl!gERÐAH Menning Góð kvöldstund með Frank Lacy Básúnuleikarinn Frank Lacy er kominn í hóp þeirra manna sem við viljum gjarnan kaUa íslandsvini - hann hefur nú komið fjórum sinnum til íslands á þess- um áratug. Að þessu sinni hélt hann aðeins eina tón- leika, á Sóloni íslandusi síðastliðið laugardagskvöld. Með honum léku góðkunningjar hans, Tómas R. Ein- arsson og Eyþór Gunnarsson, en upphaflega var það Tómas sem fékk Frank til þess að koma hingað og leika inn á disk sinn, Íslandsfor, en leiðir þeirra lágu fyrst saman úti í Danmörku. Pétur Grétarsson og Ósk- ar Guðjónsson léku með þeim félögum. Rétt er að geta þess fyrir þá sem ekki þekkja Óskar að hann er rétt um tvítugt, leikur á tenórsaxófón og gerir þaö vel. John Coltrane hefur verið undir smásjánni hjá honum og ekki þykir mér ólíklegt að það haii átt sinn þátt í því að hann var með þetta kvöld þvi uppistaðan í efnis- skránni var tónsmíðar Coltranes auk laga eftir Lacy. Þeir hófu tónleikana meö lagi eftir Coltrane, ein- faldri laglínu þar sem fimmund grunnhljómsins leikur stórt hlutverk. Lacy var í fararbroddi en hrynsveitin kynti undir rúbatóið, Tómas með bogann og Pétur Djass Ársæll Másson meö pákukjuða. Dramatiskt upphaf að góðri kvöld- stund sem því miður allt of margir misstu af. Lacy spilar mjög hreint á básúnuna og hefur mikinn og sterkan tón. Snarstefjun hans var oft mjög einfóld, honum tekst að byggja langa kafla eingöngu á skala- nótum. Hann sýndi tónleikagestúm að það er ekki að ástæðulausu að í gagnrýnendakosningum djasstíma- ritsins Downbeat var hann kosinn efnilegasti djassbás- únuleikarinn, salurinn hlustaði andaktugur aÚan tím- ann sem hann spilaði. Ekki skemmir heldur að maöur- inn er mjög líflegur á sviði. Það kom mér á óvart að hann lék aðeins eitt lag á flygilhomið, en mig minnir að hann hafi notað það töluvert á öörum tónleikum sem hann hefur haldið hér. Lög hans sem flutt voru þetta kvöld voru flest ef ekki öll í óreglulegum (sam- settum) takttegundum og féllu undirrituðum vel í geð. Framlag okkar manna þetta kvöld var nokkuð sem hægt er að vera hreykinn af. Útilokað er að mikill tími Frank Lacy spilar á Sólon íslandus. DV-mynd: HMR. hafi gefist til að fara yfir efnisskrána en á henni voru lög sem ekki er auðvelt að spila á metnaðarfullan hátt undirbúningslítið. Þessir tónleikar voru enn ein sönnun þess aö við eigum orðið stokk af mönnum sem eru gjaldgengir í djassleik hvar sem er í heiminum. Framlag „gömlu” mannanna kemur minna á óvart en Óskar sýndi að í honum býr mikiö; hann spilaði af hugmyndaauðgi og fraseraöi oft skemmtilega (þó var það einu sinni sem ég fékk á tilfinninguna að hann væri að bíða eftir að „kórusinn” kláraöist). Við vorum margir sem vorum dolfalinir yfir frammistöðu hans þetta kvöld. Samsýning í Listhúsinu í Laugardal hafa fiórir piltar, sextán til nítján ára gamhr, komið fyrir verkum sínum. Hver piltanna sýnir u.þ.b. tíu myndir sem bera ungum aldri þeirra glöggt vitni. í sýningarskrá, sem er óvenju vönd- uð, kemur fram að ungmenni sem stunda myndlist hafi harla fá tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri. Helst hafi það verið á skólasýningum, óháð- um hstahátíðum og á hinni árlegu UngUst, sem nú er nýlokið. Á slíkum hátíðum sé þó ekki hægt að vera með nema takmarkaðan fiölda verka og eigi Ustamenn og verk þeirra til að hverfa þar í fiöldann. Súrrealismi og popp Svo mörg voru þau orð. Þegar Utið er yfir verk fiór- menninganna flýgur manni þó frekar í hug að þá vanti aðgangsharðari lærimeistara en að sýningarrými sé á þrotum. Skólarnir ættu þó tvímælalaust aö gefa nem- Myndlist Ólafur J. Engilbertsson endum sínum færi á að halda einkasýningar innan sinna veggja. Það sem helst kemur á óvart á þessari samsýningu eru hin greinilegu áhrif frá súrreaUsma og poppUst. Salvador DaU gengur ljósum logum í verk- um Baldurs Helgasonar, hjá Birgi Erni Thoroddsen er það Roy Lichtenstein, hjá Hafsteini Michael Guð- mundssyni má sjá talsverð áhrif frá Alfreð Flóka og hjá Magnúsi Unnari Jónssyni er Andy Warhol eins og stiginn aftur fram á sjónarsviðið. Glæstar fyrirmyndir Því er þó ekki að heUsa aö um frambærilegar eftirlík- ingar eða kitsch-stælingar sé að ræða, heldur virðist miklu fremur um að ræða áhuga ungu mannanna fyr- ir helstu vitundarsprengingum aldarinnar. Taki þeir þær byltingarkenndu hugmyndir hins vegar alvar- lega, sem á sírnun tíma fólust í súrreaUsma og poppi, þá ættu þeir jafnframt aö gera sér fljótlega ljóst að í Listhúsinu Sýnishorn af verkum fjögurra ungra myndlistarmanna sem sýna í Listhúsinu. frumskyldumar eru þær aö vinna út frá eigin sjáUi og eigin forsendum. Áfuröir snillinganna ættu að vera fyrir hinum ungu mönnum sem úrgangur en ekki glæstar fyrirmyndir. Þeir ættu að Uta sér nær og sjá súrreaUsmann og svartan poppUstarhúmorinn á sorp- haugum íslenskrar ofneyslu og í þvi landslagi sem við höfum alla daga fyrir augunum og hefur upp á miklu fleira að bjóða en hæðimar upp af Cadaqués. En fram- tak þeirra er djarft og er vonandi til marks um að þeir fiórmenningar láti afvegaleiðandi forskriftir lönd og leið í framtíðinni. Samsýning fiórmenninganna í Listhúsinu í Laugar- dal stendur til 13. nóvember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.