Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1993, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1993
íþróttir____________________________________________
Það færist í vöxt að heimaleikurinn sé seldur úr landi vegna flárhagsáhættu:
Samkeppnin um áhorfendur
er orðin gíf urlega hörð
- þátttaka íslensku liðanna á E vrópumótunum 1 handknattleik stendur á krossgötum
Hér á árum áður þótti það teljast
til stórviðburða þegar íslensku fé-
lagsliðin í handknattleik tóku þátt í
Evrópukeppninni. Mörgum dögum
fyrir leikina ríkti mikil eftirvænting
meðal fólks og forsala á aðgöngumiö-
um hófst nokkrum dögum fyrir leik-
ina. í flestum tilfellum var húsfyllir
og stemningin á leikjum ólýsanleg. í
dag er sýnin allt önnur. Núna telst
það gott ef áhorfendur ná að vera
eitt þúsund og getur hver maður séð
að með þannig innkomu getur þátt-
taka í Evrópukeppni reynst þrautin
þyngri.
Engin áhætta tekin -
heimaleikur seldur úr landi
Vegna lélegrar aðsóknar aö leikjun-
um hefur færst í aukana að liö selji
heimaleiki sína út úr landinu þannig
að liðin koma slétt út úr ævintýrinu.
í framhaldi af þessu hlýtur sú spurn-
ing að vakna hvort grundvöllur sé
almennt fyrir áframhaldandi þátt-
töku íslensku liðanna á Evrópumót-
unum í handknattleik í framtíðinni.
Þess má geta að Knattspyrnusam-
band Evrópu tók þá ákvörðum fyrir
20 árum að banna liðum að selja hei-
maleikinn úr landi.
Hjá þeirri staðreynd verður ekki
litið að mikil breyting hefur orðið á
mótunum og hefur einni keppninni
verið bætt við, getur kannski verið
að framboðið sé orðiö meira en eftir-
spurnin. Fólk er ef til vil búið að fá
upp í háls, situr frekar heima og læt-
ur sér nægja að lesa frásagnir frá
leikjunum daginn eftir.
í haust hófu fjögur lið þátttöku á
Evrópumótunum en aðeins lið Sel-
foss riáði að tryggja sér sæti í 8-liða
úrslitum. Valur og ÍR völdu þann
kostinn að leika báða leikina erlend-
is í 2. umferð, þrátt fyrir það voru
Valsmenn hársbreidd frá að komast
áfram en möguleikar ÍR-inga voru
taldir litlir eins og kom á daginn.
Aldrei er að vita nema Valsmenn
hefðu komist áfram ef þeir hefðu
leikið heima og heiman en ákvörðun
var tekin að selja heimaleikinn út,
engin íjárhagsáhætta var tekin enda
fóru Valsmenn illa vegna leikjanna
í 1. umferð hvað innkomu snerti.
Aðeins FH og Selfoss léku úti og
heima og herma fréttir að félögin
hafi komið illa út úr því dæmi. Að
vísu horfir dæmið öðruvísi fyrir FH
en liðið víxlaði á heimaleiknum við
þýska liðið Essen, sem bauð síðan
FH-ingum að ferðakostnaðurinn til
Þýskalands yrði greiddur. Kunnung-
ir segja að til að sleppa á sléttu frá
Evrópuleik megi áhorfendafjöldi
ekki fara niður fyrir 1500 manns.
Handboltanum á íslandi
varla til framdráttar
Hver þróunin verður í þessu máli á
næstu árum skal ekki fullyrt um en
þróunin er engu að síður óskemmti-
leg. Það telst varla handboltanum til
framdráttar á íslandi ef þróunin
verður áfram með þessum hætti að
liðin selji heimaleikinn úr landi.
Handknattleiksforystan í Evrópu
verður með einhverjum hætti að
grípa hér inn í og greiða félögunum
ákveðna upphæð vegna þátttöku
sinnar. Knattspyrnusamband Evr-
að greiða félögum ákveðna upphæð
fyrir þátttökuna og hefur það hik-
laust létt undir hjá félögum sem
koma frá smáríkjum eins og íslandi.
Til að skyggnast enn meira inn í
þetta mál lá beinast við að spyrja
forsvarsmenn félaganna sem áttu lið
í Evrópukeppninni í vetur. Hvernig
komust þau frá dæminu fjárhagslega
og hvað þarf að gera til að rífa þessa
keppni upp á þann stall sem hún var
fyrir rúmlega áratug.
„Það verður aö taka tillit þess aö
Evrópumótin byrja á öfugum enda
tímabilsins. Við erum að byrja tíma-
bilið þegar mótin hefjast, en þegar
við mættum Lettunum í fyrstu um-
ferð var um ræöa fyrsta leikinn á
svoleiðis leik, þó að um Evrópuleik
sé að ræða, var hræðilega lítil. Ef
þetta væri eins og í knattspyrnunni,
þegar liðin enda tímabihð með svona
keppni, liti dæmið allt öðruvísi út.
Útkoman var þó mun betri í leiknum
við Umag en þó engan veginn nógu
góð,“ sagði Sölvi B. Hilmarsson,
formaður handknattleiksdeildar Sel-
foss.
Dæmið gengur ekki upp
á 700 áhorfendum
Sölvi nefndi dæmi því til staðfesting-
ar hve þátttaka fyrir þá væri sérstök.
Sölvi sagði að kostnaður við einn
heimaleik eins og við Umag um síð-
húsfyllir var á leiknum, alls 700
manns.
„Bara kostnaðurinn við að fá liðið,
dómara og eftirlitsmann losaði um
300 þúsund krónur. Á þessu sést að
við þurfum mun fleiri áhorfendur en
við fengum gegn Umag til að endar
nái saman. Það kemur sterklega til
greina frá okkar hendi að leika fyrri
leikinn í 8-liða úrslitunum á höfuð-
borgarsvæðinu. Við erum eina liðið
sem eftir er í keppninni og það ætti
að auka möguleikana á að fá fólk til
koma og styðja við bakið á okkur.
Það kemur alls ekki til greina að selja
heimaleikinn út. Það er kominn upp
metnaður að standa okkur vel úr því
að við erum komnir þetta langt,“
ópu tók það ypp fyrir tveimur árum
heimavelli í vetur. Stemning fyrir
ustu helgi brúaði ekki dæmið en
sagði Sölvi.
Sölvi taldi ýmsar ástæður fyrir
fækkun áhorfenda á Evrópuleikjun-
um. Fólk hefur mun fleiri áhugamál
en fyrir áratug.
Samkeppnin um áhorfendur
er orðin gríðarleg
„Þú þarft ekki annað en líta í kring-
um þig og sjá að annar hver maður
er kominn á kaf í golf svo einhver
dæmi eru tekin. Samkeppnin um
áhorfendur er orðin gríðarlega hörð.
Fyrir áratug var sjálfsagt að líta á
fóboltann á sumrin og handboltann
á veturna en í dag eru bara fleiri
íþróttagreinar sem rutt hafa sér til
rúms. Við getum bara nefnt körfu-
boltann í því sambandi."
Sölvi sagði að eftir þessa tvo heima-
leiki í Evrópukeppninni væri staðan
sú að handknattieiksdeildin stæði
uppi með tveggja milljóna króna
skuldahala. Ferðin í fyrri leikinn
gegn Umag hefði verið ansi kostnað-
arsöm.
Spurning að senda aðeins
tvö lið I Evrópukeppni
„Ég sé fyrir mér á næstunni að að-
eins tvö liö verði send á Evrópumót-
in, meistarakeppnina og keppni bik-
arhafa. Annað er bara tóm steypa og
gengur ekki eins og málið lítur út í
dag. Á meðan enginn stuöningur
kemur frá Evrópusambandinu er
þetta dæmi mjög erfitt viðureignar.
Ef hins vegar liðin fara að fá eitthvað
fyrir sinn snúð frá Evrópusamband-
inu fer að koma allt annað hljóð í
strokkinn. Mér fyndist í lagi að liðin
sæju um kostnaðinn í 32-liða úrslit-
um en þegar komið væri í 16-liða
úrslit kæmi til einhver styrkur frá
Evrópusambandinu," sagði Sölvi B.
Hilmarsson.
-JKS
ísland
Irun
Spánn
.'^Sandefjord
Króatía
Umag
Valur
ÍR
FH
Selfoss
Dýr ferðakostnaður
hjá handboltaliðum
ov
PLÚS
Selfyssingar í handboltanum
eiga ekki annað skilið en rós
í hnappagatið. Liðið komst
áfram í Evrópukeppninni eft-
ir ótrúlegan sigur á Umag.
Menn hafa ekki setið auðum
höndum á Selfossi, það sann-
ur uppgangurinn í handbolt-
anum svo ekki verður um
. villst.
Það hlýtur að vera áhyggju-
efni hve fáir áhorfendur koma
á leiki landsliðsins í hand-
bolta en 300 manns komu á
fyrri leikinn gegn Búlgaríu.
Ekki dugar að sitja heima og
gera alltaf sömu kröfurnar til
landshðsins. Snúum blaðinu
við og fjölmennum á leikina.
íþróttamaður vikunnar
Sigurður Sveínsson
- fór á kostum gegn Umag 1 Evrópukeppninni á dögunum
Sigurður Sveinsson verður betri
með árunum.
Það ætti að koma fáum á óvart
að Sigurður Sveinsson handknatt-
leiksmaður er íþróttamaður vik-
unnar hjá DV að þessu sinni. Sig-
uröur lék á als oddi þegar Selfoss
sigraði króatíska liðið Umag í 16-
liða úrslitum Evrópukeppni bikar-
hafa á Selfossi á sunnudaginn var.
Segja má með sanni að fram-
ganga hans í leiknum hafi komið
Selfyssingum í 8-liða úrslitin en það
var meira en að segja það því liðið
hafði tapað fyrri leiknum í Krótaíu
með átta marka mun. Selfyssingum
tókst með miklu harðfylgi að vinna
upp muninn og marki betur og
tryggði Sigurður liði sínu sigurinn
þegar hann skoraöi úr vítakasti
þremur sekúndum fyrir leikslok.
Tæpara gat það ekki staðiö og ár-
angur Selfyssinga sannarlega
glæsilegur. Sigurður bar Selfosslið-
ið uppi í leiknum, skoraði níu mörk
og átti að auki margar gullfallegar
sendingar á línuna sem gáfu mörk.
Þrátt fyrir árin 34 er engan bilbug
að finna á Sigurði Sveinssyni.
Hann verður bara betri eftir því
sem árin verða fleiri. Sigurður hef-
ur víða farið sem handknattleiks-
maöur. Hann hefur gert garðinn
frægan í Þýskalandi og Spáni auk
þess aö ylja áhorfendum hér á landi
með leikni sinni. Léttieikinn hefur
ávallt fylgt Sigurði, bæði með sín-
um liðum og íslenska landsliðinu
hefur hann verið hrókur alls fagn-
aðar.
Sigurður á að baki 211 A-lands-
leiki og hefur skorað í þeim 624
mörk. Landsliðið á örugglega eftir
að njóta krafta hans áfram og má
telja líklegt að Þorbergur kalli í
hann í fórina til Króatíu í Evrópu-
leikinn gegn heimamönnum 1. des-
ember. Sigurður hafði fyrir leikinn
um síðustu helgi átt við meiðsli að
stríða en virðist óðum vera að ná
fullum bata. Þegar Sigurður leikur
eins og hann best getur hefur ekk-
ert lið efni á að vera án hans.
-JKS