Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994 Fréttir l Borgarstjóri um hið lága endurmatshlutfall á fasteignum 1 Reykjavik: Við höf um ítrekað leitað eftir endurmati - hjá Fasteignamati ríkisins - verið að vinna að endurmati í miðborginni „Mergurinn málsins er aö við höf- um ítrekað leitað eftir því frá Fast- eignamati ríkisins, sem á að fara með þessi endurmatsmál að fá endurmat á fasteignum í Reykjavíkurborg eins og varðandi miðbæinn en við höfum ekki fengið það. Það eru búnar að vera ályktanir hér frá hagsmunaaðil- um í miðbænum, þróunarfélagi og öðrum, og við höfum haft fullt sam- starf um að skrifa bréf til Fasteigna- Ávöxtunarmáliö: Skaðabætur vegna van- rækslu banka- Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Seölabanka íslands til aö greiða fyrrum viðskiptamanni hjá Rekstr- arsjóði Ávöxtunar hf. skaðabætur vegna vanrækslu bankaeftirlitsins á eftirliti með starfsemi sjóðsins skömmu áður en starfsemi hans var stöðvuð árið 1988. Hér var um próf- mál að ræða og var fjölskipaöur dóm- ur sem kvað upp dóminn í gær. Af niðurstöðu héraðsdóms að dæma eiga þeir aðilar sem áttu við- skipti við sjóðinn 1-2 mánuðum áður en starfsemi hans var stöðvuð nú möguleika á að krefjast bóta frá Seðlabankanum af sömu ástæöum og framangreindur maöur gerði. Heildarviðskipti hans við sjóðinn námu á aðra milljón króna en dóm- urinn dæmdi Seðlabankann til að greiða honum 99 þúsund krónur með vöxtum frá 20. júlí 1988 - eða frá þeim degi sem síðustu viðskipti hans áttu sér stað við sjóðinn. Starfsemin var stöövuð í september 1988. Þann 12. júlí 1988 var haldinn fund- ur á skrifstofu bankaeftirlitsins með forsvarsmönnum Ávöxtunar. Dóm- urinn taldi að þá hafi bankaeftirlit- inu átt að hafa verið ljóst að verð- mæti sjóða Ávöxtunar væri ekki nema brot af því sem uppgefið hafði verið - augljóst hefði verið að til hruns myndi koma. Bankaeftirlitið lét ekki gera ná- kvæma úttekt á stöðunni strax og taldi dómurinn að þær aögerðir sem gripið var til á fundinum hefðu ekki verið nægilegar. Því bæri Seðlabank- inn bótaskyldu til mannsins sem stefndi bankanum í máhnu. Dómurinn taldi aö sú framganga eftirlitsins að hefja raunverulega skoðun ekki fyrr en meira en mán- uði síðar hafa verið frullnægjándi framkvæmd með hliðsjón af skyld- um þess sem lög kveða á um eftiriitiö. -Ótt Akranes: Miklirsinueldar Miklir sinueldar loguðu á Akranesi í nótt. Slökkviliðiö var kallað út á þriðja tímanum í nótt en þá loguðu sinueldar á fimm stöðum í bæjaijaðr- inum. Slökkvistarfi var ekki lokið fyrr en klukkan var langt gengin í fimm í morgun. Skógræktarreitur er í nágrenni brunastaðanna og að sögn lögreglu var hann í hættu ef eldurinn hefði logað aðeins lengur. Einnig er steypustöð þar sem sinan brann og ersömusöguaðsegjaafhenni. -pp matsins með áskorun um þetta,“ sagði Markús Öm Antonsson borg- arstjóri aðspurður um þær stað- reyndir aö tæplega þriðjungur fast- eigna í Reykjavík hefur ekki verið endurmetinn á síðustu 17 ánun. Eins og fram kom í DV í gær kem- ur höfuðborgin illa út í úttekt sem Fasteignamat ríkisins gerði og sendi öllum sveitarfélögum landsins. - Hefur þú einhverja skýringu á því hvers vegna endurmatshlutfall í Reykjavík er verulega lægra en í öll- um hinum stóru bæjarfélögunum? „Ég hef það ekki. Það er aðiU hjá ríkisvaldinu sem sér um þessi mál. Þetta er ekki mat sem við fram- kvæmum. Ég hef ekki fengið neinar skýringar frá Fasteignamatinu á þessu," sagði borgarstjóri. Jón G. Tómasson borgarritari sagði að Fasteignamat ríkisins væri um þessar mundir að vinna að því aö endurmeta fasteignir í miðborg Reykjavíkur. „Sú skýring sem ég hef fengið á því hvers vegna hlutfalUð er lægra í Reykjavík en víöa annars staðar er meðal annars sú að frummöt frá 1972-1976 hafi almennt verið mun betur unnin og því ekki sama þörf á endurmati og víða annars staðar,“ sagði Jón. - Er það samt ekki hátt hlutfaU að tæpur þriðjungur fasteigna hafi ekki verið endurmetinn? „Ég get alveg tekið undir það. í reglugerð sem Fasteignamat ríkisins vinnur eftir er gert ráð fyrir að end- urmatið sé framkvæmt á 8-10 ára fresti,“ sagöi Jón G. Tómasson. -Ótt Stuttar fréttir GjaU á f er ðaskrif stof um Flugleiöir og ferðaskrifstofum- ar hafa tekiö upp sérstök af- greiðslugjöld vegna sérþjónustu viðferðamenn. Viðskiptavinirnir þurfa nú að borga 1.000 tU 3.000 krónur sé pantað fyrir þá hótel eða hópferö skipulögð fyrir þá, Morgunblaðið skýrði frá þessu. Alfriðun rjúpunnar Össur Skarphéðinsson um- hverfisráðherra íhugar að alfriða rjúpuna. Þetta kemur fram í við- tali við Sportveiðiblaðið. Syngur í Carnegie Hall Ólafi Bjarnasyni tenór hefur verið boðiö að syngja í Camegie Hall í New York. Skv. írétt i Morgunblaðinu hefur Ólafur ekki áður sungið opinberlega í Bandaríkjunum. SafnfluítfilDjúpavogs Til stendur aö flytja safn Rík- harðs Jónssonar til Djúpavogs, feðingarstaðar listamannsins. Skv. Tímanum verður safninu komið fyrir í Löngubúð, verslun- arhúsi sem reist var 1790. Danlribrennivinið Danir eru byrjaðir aö framleiða og selja íslenska brennivínið. Samkvæmt Alþýðublaðinu neíh- ist brennivínið Geysir þegar það er komið upp í hillur í dönskum stórmörkuðum. Kýmar látnar éta meira Samtök afurðastöðva í mjólkur- iðnaði hafa beðiö kúabændur um að framleiöa meiri mjólk. Sam- kvæmt Tímanum hagnast bænd- ur á því aö auka nytina í kúnum með aukinni fóðurgjöf. Einbýlishús iækka í verði Raunverð einbýlishúsa á Akur- eyri lækkaði á fyrri hluta síðasta árs um 2 til 3%. Raunverð íbúða i íjölbýlishúsum stóð hins vegar því sem næst í stað. Fserrí alkóhóllitrar Sala á áfengi hjá ÁTVR jókst í lítrum en dróst saman í alkóhól- litrum á síöasta ári. Samkvæmt frétt-Mbl. dróst sala á sterkum drykkjum saman um tæplega 11%. Bjórsala jókst hins vegar um 4% en sala á reyktóbaki minnkaði um 5%. -kaa Sjómenn víðs vegar af landinu fjölmenntu á baráttufund i Reykjavtk í gær til að lýsa yfir stuðningi við verkfallið. Um þúsund manns mættu á fundinn og var samþykkt með lófataki að standa fast að baki forystumönnum sjómanna í samningaviðræðunum við utgerðarmenn. í ályktun fundarins segir að hvergi skuli hvikað frá frá kröfunni um að útloka þátttöku sjómanna í kaupum á aflaheimildum og jafnframt eru stjórnvöld vöruð við því að rýra kjör sjómanna með lagasetningu. Mikil samstaða ríkti á fundinum og mátti skilja á fundarmönnum að sjómenn myndu yfirgefa skipspláss sín verði endir bundinn á verkfallið með lagasetningu. Sú krafa virtist falla í góðan jarðveg að allur fiskur veröi í framtíðinni seldur á mörkuðum. -kaa/DV-mynd BG Forstjóri Fasteignamats ríkisins um slæma stööu í endurmatsmálum: Við þurf um að hafa fleiri starfsmenn - úrbætur mögulegar á skömmum tíma með því að fá verktaka í vinnu „Viö þyrftum að hafa fleiri starfs- menn til að komast yfir þetta. Málið er auðvitað að það er búið að byggja svo mikið á síðustu tveimur áratug- um. Rúmmál eigna samkvæmt fast- eignaskrá hefur aukist um 75 prósent frá 1977,“ sagði Magnús Ólafsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins, í samtali við DV í gær. Magnús segist hafa vakiö athygli á því við fjárlagagerð að Fasteignamat- ið þurfi á meiri mannskap að halda til að meta eignir en ástand í þeim málum er mjög slæmt í mörgum tug- um sveitarfélaga. Innheimta á fast- eignagjöldum er því í miklu lama- sessi. - Núhefurinnan viðhelmingurfast- eigna í 80 sveitarfélögum á landinu ekki verið endurmetinn og frummöt vantar í mörgum þeirra, hvaða úr- ræði eru fyrir hendi í þessum efnum? „Hver- hreppur þarf að láta mæla upp öll húsin og senda okkur gögn. í framhaldi af því getum við tekið við og metið. En ef það á að ná þessu á skömmum tíma þurfum við meiri mannskap, bæði í höfuðstöðvar okk- ar og úti á landi. Það er hægt að fá verkfræðinga eða iðnaðarmenn í þetta sem geta gert þaö með því að vinna sem verktakar. - Með hvaða hætti er unnið aö því að fá þessa hluti í lag? „Ég vek athygli á þessum málum við hverja fjárlagagerð. Það er sá vettvangur sem ég get komið mínum sjónarmiðum að. Síðan hefur það verið mat stjórnmálamannanna hvað gengur fyrir." Magnús sagðist telja að félagsmála- ráðuneytinu bæri skylda til að hvetja sveitarfélög til að standa skil á upp- lýsingum varðandi fasteignir til Fasteignamats ríkisins. Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofu- stjóri félagsmálaráðuneytisins, kvaðst ekki vilja tjá sig um málið að sinni og ekki náðist í félagsmálaráð- herra. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.