Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994 Útlönd JimmyCarter: Holstvareinn mesti hugsuður Vesturlanda „Framganga Holsts varð t;il þess að ein erf- iðasta milli- ríkjadeila ald- arinar lcyst- ist,“ sagði Jimmy Carter, fyrrum forseti Bandaríkjanna, í gær þegar hann frétti lát Johans Jörgens Holsts, utanríkisráðherra Noregs. Carter og fleiri áhrifamenn í Bandaríkjunum sögðu í gær aö með Holst væri faliinn einn fremstí hugsuður Vesturlanda i alþjóðamálum. Holst átti marga vini í Bandaríkjunum enda var hann þar við nám um tíma. Veslra hafa menn einum rómi borið lof á Holst og lýst sorg sinni vegna skyndilegs fráfaUs hans. YasserArafat: Einlægur vimir Palestímu- mannaerfallinn „Einlægur vinur Palest- ínumanna er failinn," sagöi Yasser Arafat, leiðtogi PLO, í gær um dauða Johans Jörg- ens Holsts. Hann sagði að Palestíumenn ættu Holst mikið að þakka fyrir hlut hans í að koma á sáttum milli þeirra og ísraelsmanna. Fánar voru í hálfa stöng í höfuðstöðvum PLO í Túnis i gær til að minnast Holsts. Ytzhak Rabin: Maðurinn sem komáfriðiíMið- Austurlöndum „ísraelsmenn munu minnast Holsts sem mannsins sem kom á friði í Mið-Austur- löndum eftir áratuga illdeil- ur," sagði Ytz- hak Rabin, forsætisráðherra ísr- els í gær um Johan Jörgen Holst. Símon Peres, utanrikisráðherra ísraels, sagðist minnast Holsts sem manns sem vann dag og nótt að því að koma á friöi. Bæði Rabin og Peres báru mikið lof á Holst og sögðu að gáfur hans og þekking heföi verið óviðjafn- anleg og að án hans hefði ekki náöst samkomulag milh ísraels- manna og Palestínumanna. GroHarlem: Mikiðáfall fyrir norsku þjóðina „Þetta er mikið áfall fyr- ir norsku þjóð- ina. Sorg okkar er mikil, sagði Gro Harlem Brundtland, forsætisráö- herra Noregs. Holst var einn af nánustu sam- verkamönnum hennar bæði í rík- isstjórinni og flokki jafnaðar- manna. Holst hafði frjálsar hendur í utanríkismálum innan stjómar- innar en þóttí stundum of dulur í samskiptum við félaga sína. í Noregi er honum lýst sem einfara i stjórnmálunum. NTB Óvænt andlát Johans Jörgens Holsts, utanríkisráðherra Noregs: Fékk heilablóðfall í svefni á sjúkrahúsi - var fluttur daginn áður af taugadeild og átti að byrja í endurhæfmgu Féttín um dauða Johns Jörgens Holst kom sem reiðarslag yfir norsku þjóðina í gær. Holst fékk heilablóð- fall í svefni á Sunnaas-sjúkrahúsinu fyrir utan Ósló. Þangaö var hann fluttur daginn áður og átti að byija í endurhæfingu. Læknar voru vongóðir um að hann næði sér að fullu eftír erfiö veikindi síðustu mánuði. Hann fékk m.a. vægt heilablóðfall 16. desember eftir að hafa verið meira og minna frá vinnu í haust vegna oiþreytu í kjölfar tíðra ferðalaga og milligöngu í friðar- samningum ísraelsmanna og Palest- ínumanna. í fyrradag spáðu læknar því að Holst kæmi til vinnu að nýju með vorinu. Félagar hans í ríkisstjórn- inni höfðu ákveðið að skipa ekki nýjan utanríkisráðherra vegna þess að batahorfurnar þóttu góðar. Holst tók við embætti utanríkisráð- herra 2. apríl í vor og var því aðeins við störf í ráðuneytinu í fáa mánuði. Afrek hans á þessum stutta tíma nægðu þó til þess að ráðamenn um allan heim hafa minnst hans sem eins mikilhæfasta stjórnmálaskör- ungs á síðari tímum. Þar ber hæst framgöngu hans í að sætta menn í Mið-Austurlöndum eftir áratuga deilur. Holst þótti með aíhrigöum vinnu- samur og er sagt að hann hafi alla sína starfsævi lagt nótt við dag. Þekkingu hans á alþjóðamálum var við brugðið og hann þótti hpur samn- ingamaður. Vinnusemin og ósér- hlífnin varð honum hins vegar að falli því álagiö í embætti utanríkis- ráðherra reyndist of mikið og kostaði hann heilsuna. Holst var fæddur 29. nóvember árið 1937. Hann var tvíkvæntur. Með fyrri konu sinni átti hann fjögur börn en soninn Edward með síðari konunni, Marianne Heiberg. Edward var löng- um á ferðalögum með foöur sínum þrátt fyrir ungan aldur og vakti hvarvetna athygli. „Ég verð að hafa hann með mér svo við getum einhvern tímann verið saman," sagði Holst í haust um ferða- lögsínogsonarinsunga. ntb Johan Jörgen Holst ávann sér virðingu manna um víða veröld þann stutta tima sem hann var utanrikisráðherra Noregs. Á tíðum ferðalögum hafði hann jafnan soninn Edward, fjögurra ára, með sér og sagði að það væri eini möguleikinn fyrir þá feðga til að vera saman. Hér eru þeir að koma til fundar utanrikisráðherra Noröurlandanna í Reykjavík i sumar. Holst lést í svefni eftir heilablóðfall í gær. Reykjavík »Washington T„, lúnis ,0H Lokasprettur Johans Jörgens Holsts Erfið ferðalög Johans Jörgens Holsts utanríkisráðherra á liðnu hausti: Vinnuharkan leiddi til of þreytu - fór heimsalfanna á milli í haust milh friðarfunda og kosningabaráttu ir kosningamar en í kosningabarátt- unni var hamrað á því að ekki væri sæmandi að fella úr embætti fræg- asta son landsins. Fljótlega eftir kosningamar fór aö gæta ofþreytu hjá Holst og hann varð að leggjast inn á taugadeild ríkis- sjúkrahússins í Ósló þegar leið á haustið. Þá var upplýst að hann hefði fengið taugaáfall vegna álagsins vik- umar á undan. Holst komst þó fljótt til heilsu á ný. Ekki var fyrr búið að útskrifa hann af sjúkrahúsinu en hann var lagður upp í ferðalög á nýjan leik og dró ekki af sér frekar en fyrri daginn. Þar kom þó að hann veiktist alvar- lega þann 16. desember. Þá blæddi inn á litla heilann og Holst missti mál og jafnvægisskyn. Viö þessi veikindi barðist Holst í tæpan mánuð áður en hann fékk heilablóöfall öðru sinni og lést í svefni á sjúkrahúsi í gærmorgun. ntb Johan Jörgen Holst lagðist í mikil og erfið ferðalög þegar leið á síðasta sumar. Hann flaug heimsálfa á milli á skömmum tíma um leiö og hann stóð fyrir fjölda leynifunda með full- trúum ísraelsmanna og Palestínu- manna heima í Ósló. Hann kom til íslands í sumar og fór síðan á ráðherrafund í Visby á Got- landi 31. ágúst. Eftir það tók við mik- il törn þar sem Holst fór bæði til Japans og Bandaríkjanna auk heim- sókna til Evrópuríkja og þann 9. sept- ember fór hann til Túnis á fund leið- toga PLO vegna friðarsamninganna við ísraelsstjórn. Við þetta bættist kosningabarátta í Noregi fyrir þingkosningarnar þann 13. september. Holst gat þó að- eins verið fáa daga heima en hélt ijölda funda á þeim tíma og honum var m.a. þakkað að jafnaðarmenn héldu velli í kosningunum. Þá var orðið opinbert hvað Holst haíöi haft fyrir stafni um haustið og hann var þegar heimsfrægur maður. Jafnaðarmenn stóðu höllum fæti fyr-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.