Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994 15 Nordisk Forum - takið þátt Nú er runnið upp árið 1994 og ekki nema sjö mánuðir þar til Norræna kvennaþingið - Nordisk Forum - hefst í Ábo í Finnlandi. Það verður haldið 1.-6. ágúst og búist er við geysilegri þátttöku, ekki minni en var á síðasta Nordisk Forum í Osló 1988 eða um tíu þús- und manns. Frestur til að tilkynna um fram- lag á Nordisk Forum rennur út þ. 1. febrúar nk. Það er því mikilvægt að þeir íjölmörgu sem hafa áform- að að vera með framlag tilkynni það í tíma. Framlög geta verið mjög margvísleg, t.d. fræðsluerindi, smiðjur, menningaratriði eða list- sýningar, svo að eitthvað sé nefnt. Þau þurfa aðeins að falla að efni og tilgangi þingsins sem ber yfir- skriftina: líf og störf kvenna, gleði og frelsi. Bráðabirgðaprógramm Geíiö hefur verið út bráðabirgða- prógramm með þeim efnisatriðum sem tilkynnt haföi verið um fyrir 1, nóv. sl. Þar eru um 900 mismun- andi og mjög fjölbreytileg atriði frá u.þ.b. 500 samtökum, félögum, og einstaklingum. Þessi þátttcika er jafnvel meiri en okkar björtustu vonir leyfðu og sýnir svo að ekki verður um villst að áhugi er mikill á þinginu. Framlag okkar íslend- inga er glæsilegt, á fjórða tug efnis- KjáUaiinn Valgerður Gunnarsdóttir formaður íslensku undirbún- ingsnefndarinnar fyrir Nordisk Forum ’94 atriða er þegar kominn frá íslandi. Ég vil hvetja alla sem áhuga hafa á kvennaþinginu að útvega sér pró- gramm og skoða hvað þar er að flnna. Það getur orðið þeim sem vilja leggja sitt til málanna hug- myndabanki og hvatning en einnig stuðningur því að oft er um hkar hugmyndir að ræða í löndunum og gæti verið gott að íhuga samvinnu við aðra. Prógrammið hefur þegar verið sent til allra þeirra sem hafa til- kynnt sig og bið ég þá að skoða það vel og senda inn leiðréttingar ef þarf á þar til gerðu eyðublaði. Bíðið ekki of lengi Ég ítreka að mikilvægt er að koma þátttökutilkynningum um framlag inn á réttum tíma og bíða ekki of lengi, munið að fresturinn er til 1. febrúar 1994. Frestur til að skila þátttökutil- kynningu fyrir einstaklinga er til 1. maí en þar er einnig gott aö vera snemma á ferðinni, m.a. til að tryggja sér góða gistingu. Prógrammiö ásamt þátttöku- eyðublöðum og öllum upplýsingum má fá á skrifstofu Nordisk Forum sem er til húsa á skrifstofu jafnrétt- ismála, Laugavegi 13 í Reykjavík, síminn er 91-27420 og 91-27065. Ég vil einnig minna á að undir- búningsnefnd Nordisk Forum hef- ur mánaðarlega opið hús á laugar- dagsmorgnum frá kl. 10.30 til 12 þar sem hægt er að koma og fá nýjustu upplýsingar og fréttir. Næsta laug- ardagskaffi verður í BSRB húsinu við Grettisgötu þ. 15. janúar nk. og alhr sem áhuga hafa á Nordisk Forum 1994 eru hjartanlega vel- komnir. Valgerður Gunnarsdóttir „Þessi þátttaka er jafnvel meiri en okk- ar björtustu vonir leyföu og sýnir svo ekki verður um villst að áhugi er mik- ill á þinginu. Framlag okkar Islendinga er glæsilegt, á fjórða tug efnisatriða er þegar kominn frá íslandi.“ „Þar eru um 900 mismunandi og mjög fjölbreytt atriði frá u.þ.b. 500 samtökum." Mörg eru vítin að varast Það er þeim mætavel ljóst, sem vélar daglega um málefni öryrkja og kynnist með þeim hætti aÚnáið kjörum þeirra, að þar má ekkert út af bera svo verulega þrengi að hinu daglega, lífsnauðsynlega lifi- brauði þessa hóps. Eingreiðsla til skerðingar Ýmsar aögerðir sl. árs hafa verið þann veg aö til verulegrar íþyng- ingar verður að telja og svo valtur er grunnur þeirra sem eiga bæt- urnar einar að kjaralegu athvarfi sínu að þar munar í raun um hveija útgjaldakrónu ef endar eiga að ná saman. Það setur og ugg að öryrkjum þegar það er ótæpt boðað að fyrir- komulag eingreiðslna skuh endur- skoðað til skerðingar því allir eiga Kjallarinn Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ vita ættu hka aö hafa nokkra hug- mynd um það tvennt: að eingreiðsl- urnar hafa aldrei að fuhu skilað sér tii öryrkja og eins það að þær hafa dreifst með þeim hætti á bótaflokka að í engu verður til réttlætis talið. Það að skerða þessar greiðslur um allt að þriðjung á þessu ári hefur mjög alvarlegar afleiðingar og verður ekki betur séð en að með því sé verið að vísa öryrkjum í enn ríkara mæli á vit félagsmálastofn- ana sveitarfélaga sem hafa þó margar hverjar nóg með sig á þess- ari þrengingatíð svo alltof margra. Og vel á minnst, aðstoð félags- málastofnana getur í ýmsum tilvik- um komið öryrkjanum alvarlega í koll, jafnvel þó aðeins sé um sér- tæka neyöaraðstoð að ræða sem brýna nauösyn beri til að veita sak- ir áfaha eða annarra aðstæðna, sem upp kunna að koma, og eru alvarlegar og ófyrirséðar í senn. Málið er það að öll aðstoð félags- málastofnana án skilgreiningar er gefin upp sem laun á launamiðum til skattayfirvalda svo sem skylt er. í vitahring Nú fær viðkomandi öryrki sér- tæka aðstoð upp á einhverja tugi þúsunda, máski af mjög brýnni þörf einhverra óviðráðanlegra að- stæðna vegna. Þegar Trygginga- stofnun ríkisins fær og fer yfir tekj- ur hðins árs hjá öryrkjanum er henni skylt að meta þetta sem hreinar launatekjur og afleiðingin er óhjákvæmilega sú að 'sé þetta öryrki sem nýtur sérstakrar heim- ilisuppbótar, og oftast er nú svo, þá skerðist hún um sem nemur sömu upphæð og aðstoðin nam. Þá er fólk komið í ákveðinn vítahring, endar ná ekki saman. Mál þetta er nú í athugun og hefur m.a. verið kynnt fjármálaráöherra sem vhl gjaman láta fara ofan í máliö og finna leið út úr þvi með sanngjörn- um og réttlátum hætti. Fulltrúar öryrkja munu koma að því máli ásamt fulltrúum lífeyrisdeildar Tryggingastofnunar ríkisins og vonandi að vel takist til um úrlausn alla, svo óviðunandi sem þetta er með öhu. Auövitað er alveg makalaust að svona hluti skuli gerast, veröi að gerast vegna lagaákvæða sem ekk- ert tillit taka th þeirra aðstæðna sem að baki búa. Þetta er auðvitað þeim mun makalausara sem menn eru svo feimnir og ragir við annars konar aðgerðir svo sem fjármagns- tekjuskatt og raunvemlegan há- tekjuskatt. Helgi Seljan „Þaö setur og ugg aö öryrkjum þegar það er ótæpt boöað að fyrirkomulag eingreiðslna skuli endurskoðað til skerðingar því allir eiga að vita að ein- greiðslurnar eru ekki annað en eðlileg- ur hluti kjara... “ að vita að eingreiðslurnar eru ekki stað taxtahækkana launa koma annað en eðlilegur hluti kjara, í þessar eingreiðslur. Þeir sem best llAl mgo og Lögtil lausnar sjómannadeilunni Missumfisk- markaðiúr höndunum Sæunn Axelsdóttir, flskverkandl á Ól- afstírði. „Þó að for- ráðamenn geri sér grein fyrir því að beinn skaði af sjómanna- verkfaili sé tugmihjónir króna á dag eða jafhvel enn hærri upphæðir þá er margt annað sem tengist verk- fallinu sem er sýnu alvarlegra. Það er mjög alvarlegt mál gagn- vart saltfiskmörkuðum okkar ef verkfah dregst á langinn. Páskafastan er að byrja nú í febrúar á ítahu, Spáni og öðrum kaþólskum viðskiptalöndum okkar, Norðmenn ryðjast inn á markaðinn i þessurn löndum núna ef við höfum ekki handbær- an fisk. Th þess að koma i veg fyrir að í óefhi stefni með mark- aði okkar erlendis yrði því óhjá- kvæmilegt að setja lög til lausnar sjómannadeilunni, ekki bara til þess að fá fisk heldur til að bjarga þjóðarskútunni. Þeir sem eiga th hehbrigða skynsemi hljóta að sjá að það er nauðsynlegt Ef samkeppnisaöilar okkar komast inn á okkar markaði núna á þeim forsendum að viö getum ekki útvegað fisk gæti tek- ið mörg ár að vinna þá markaði aftur, Islenskur fiskur er orðinn nokkurs konar hefð á fóstunni í þessum löndum. Mér finnst vera aht of mikih eiginhagsmunaþefur af þessum deilumálum og hún er komin út fyrir öll velsæmis- mörk.“ Þrek til þess að leysa deil- una „Ég sé ckki að það sé tímabært, eins og staðan er núna, að vera aö hóta því að setja íög.hvortsem það væru Björn Grélar bráöabirgða- Svelnsson, formad- lög eða Al- ur Verkamanna- þingi yrði sambandsms. kallað saman. Samningar leysast ekki með þannig hótunum. Mér sýnist að í þessu tilfelli sé þaö raunverulega LÍÚ sem er að reyna að kalla fram lagasetningu. Ef menn hafa fylgst með skrifum og ummælum LÍÚ-fuhtrúa frá upphafi síðasta árs voru þeir í raun og veru að hóta verkfallsað- gerðum í sínum yfirlýsingum. Þannig að menn mega ekki vera hissa á því þótt sjómenn þrýsti fast á að þessi mál verði leyst. Það er nauðsynlegt að leysa þessi kvótabraskmál í eitt skipti fyrir öh. Þetta er að verða ólíð- andi hvernig kvótamálin eru lát- in viðgangast og þau faha engan veginn að launakerfinu sem sjó- menn hafa búið við. Ég ætla ekki að draga úr hagsmunum þjóðfé- lagsins í þessu máli. En menn verða aö hafa þrek til þess að leysa þessa dehu. Það verður að ganga þannig frá málum að mönnum sé refsað fyrir kvóta- braskið og stjórnvöld sjái th þess. Það eru þannig 5ög sem stjóm- völd mættu setj a.“ -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.