Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994 Spumingin Borðar þú þorramat? Arinbjörn Sigurðsson: Já, já, hann er ágætur Rögnvaldur Jónsson: Já, ég borða þorramat, þó ekki nema hluta af hon- um. Haraldur Árnason: Já, já. Sigurbjörg Ólafsdóttir: Já. Skúli Konráðsson: Já, já. Sigríður Helgadóttir: Já, ég borða þorramat. Lesendur Semur ríkisstjórn- in við sjómenn? Árni Guðmundsson skrifar: Þótt svo eigi að heita að hér sé frjáls vinnumarkaður vill það vefjast fyrir aðilum þessa sama vinnumarkaðar að semja sjálfir um launakjör sín. Engin starfsgrein í landinu hefur upp á annað að bjóða en „status quo“. Það er því ekki efnt til neinna samningaviðræðna í raun nema fyrir tilstuðlan ríkisins. Undangengnar viðræður flokkast því einungis undir almennt fundasnakk eða kaffispjall. Og svona hefur þetta gengið árum og áratugum saman. Það er þjarkað um allt og ekkert og íjölmiðlar þykj- ast fylgjast með svokölluðum „þreif- ingum“ sem eiga að vera undanfari alvöru viðræðna. En það er ríkis- valdið sem ræður úrshtum. Og ríkis- valdið tekur í raun að sér samnings- gerðina og ábyrgist alla þá pakka sem það telur sig þora að efna. Síðan er fiktað við gengisskráninguna og krónan stýfð um ákveðinn hundr- aðshluta. Að þessu loknu er slegið erlent lán fyrir kaupaukanum. Ekki er þetta nú flóknara. - En æ örlaga- ríkara með hverjum kjarasamning- unum sem gerðir eru. Nýlega hefur ríkið stuðlað að tvennum samningum. Annars vegar með afskiptédeysi sínu um sjálftöku dómara á launahækkun og síðan um lúkningu prestadeilu. Auðvitað var þama ekki um neina samninga að ræða, aðeins skyndilausnir með samþykki ríkisstjórnar. Sama er uppi á teningnum nú varð- andi sjómannadeiluna. Þar er ekki um raunverulegar viðræður að ræða milli sjómanna og útgerðarmanna, heldur það hve mikið ríkið treystir sér til að leggja af mörkum í trausti þess að því megi ná aftur af hinum þögla meirihluta, einkum launafólki á mánaðarlaunum, sem skilar sínu silfri regiulega, líkt og æðurin til dúntekjunnar árlega. Við þetta sætt- ir þjóðin sig prýðilega, a.m.k. æmtir hún hvorki né skræmtir. Sjómenn í hafi, ailt frá grunnmiðum við strönd- ina til sjóræningjaveiða í Smugunni heimta sinn sinn hlut. - Það eru þó þeir sem sækja gjaldeyrinn, segja menn. Þeir afla þjóðarverðmætanna, ekki hinir. Nei, aUs ekki hinir! Síðustu daga hefur hver laus hijóö- nemi ljósvakamiðlanna veriö upp- tekinn við munn forsprakka samn- ingsaðilanna í Karphúsinu. Kaffi- bollamir em fylltir að nýju, buxum- ar hysjaðar og sest viö spil eða á kjaftatöm. Það gerist lítiö annað en að bíða eftir ríkisstjóminni eða ígildi hennar í einhverri mannsmynd sem send er á vettvang. Og ríkisstjómin hefur tekiö við eins og fyrri daginn. Hún mun á endanum semja við báða aðila, sjómenn og útgerðarmenn. Gengið verður fellt eina ferðina enn og ný lán slegin ; útlöndum. En úti himir almúginn. Ríkið gengur ekki erinda almennings. - Það er nú einu sinni atvinnuleysi, ekki satt? Beðið eftir ríkisstjórninni. - Frá sjómannasamningum 1987. Um framburð íslenskra orða Gestur Sturluson skrifar: Nýlega rakst ég á grein í DV eftir Kristinu Halldórsdóttur, fyrrv. alþm. Kvennalistans. Fjallar hún þar um framburð móðurmálsins. Þar telur hún vá fyrir dyrum þar sem linmæli fari vaxandi, sérstaklega meðal yngra fólks, og telur íbúa höfuöborg- arsvæðisins og Sunnlendinga yfir- leitt aðalsökudólgana (tekið skal fram þessu máli til skýringar að Kristín er Norðlendingur, já meira að segja Þingeyingur). - Ekkert skal ég dæma um hvort þessi fullyrðing Kristínar er rétt. En hvað mig varðar finn ég ekki svo mikinn mun á fram- burði ungs fólks frá því ég var ungur og er ég þó tekinn nokkuð að eldast (er 71 árs). Að mínu viti getur það verið áhta- mál hvað telst norðlenska og hvað sunnlenska því þar eru ekki alltaf svo skýr mörk. í mínum huga er þó hin eiginlega norðlenska aðeins þar sem raddaður framburður er talaður og mér finnst ákaflega erfitt að dæma hvað er réttur framburður og hvað rangur. Þar hefur enginn endanlegur dómur verið kveðinn upp. Ég held að engin tunga finnist þar sem fram- burður og stafsetning falla alveg saman. En út í þá sálma fer ég ekki hér. Kristín sagði hins vegar nokkuð í grein sinni sem stakk mig illa og ég er ósáttur við. Hún segir: „ „Það er bleydu væda á gödum Reygjavígur," sögðu norðlensku börnin þegar þau gerðu grín að sunnlenskunni". - Þótt ég sé að hálfu Þingeyingur finnst mér þetta vond þingeyska og bera vott um hroka og yfirlæti. Þarna er börn- um sunnan heiða (þar sem yfirgnæf- andi meirihluti þjóðarinnar býr) sýnd nokkur fyrirlitning. - Það mun- ar ekki um það! Þarna er bókstaflega gefið í skyn, að mínu mati, aö mikill meirihluti þjóðarinnar sé varla tal- andi. Skrípaleikurinn um Seðlabankann: Þrír bankastjórar áfram! Gunnar Magnússon skrifar: Honum ætlar seint að linna skrípa- leiknum um Seölabankann. Allt frá byrjun hefur þessi stofnun verið bit- bein í íslenskum efnahagsmálum og fjölmiðlar hafa sótt ómældar fréttir í þetta höfuvígi íslenskra fjármála. Nú er enn komiö að því að ákveða hvaða bankástjóra á að ráða úr hin- um póhtísku herbúðum. Spurningin er: kemur hann úr röðum þing- manna eða úr röðum uppgjafa hðs- foringja í fótgönguliði opinberra embættismanna sem stöðugt leita nýrrar vígstöðu fyrir sig og sína? Nú var kominn upp sú staða að Veröur allaballi settur i Seðlabank ann? fært þótti aö halda úti einum banka- stjóra í Seðlabankanum og þótti eng- um mikið. - En Adam dvelur aldrei lengi í henni Paradís. Viðskiptaráð- herra hefur nú ráögast við fuhtrúa þingflokkanna og þeir segja einum rómi: Þrír bankastjórar áfram! Þann- ig hefur viöskiptaráðherra orðið að lúffa fyrir stærsta þrýstihópi þjóðar- innar sem situr á sjáifu Alþingi. Viðskiptaráðherra hefur lýst því yfir að enginn framsóknarmaður hafi orðað að þeim beri staða fráfar- andi bankastjóra sem var framsókn- armaður. Er þá ahabahi sá sem koma skal, eða eigum við vænta annars? I>V Námslánog Séknarkonur Gísh skrifar: Stundum les maður greinar í blööum og oft eftir hátt launaöa háskólamenn þar sem mikil eftir- sjá kemur fram yfir bótum til at- vmnuleysingja. Nýlega hlustaði ég í morgunútvarpi rásar 2 á prest, sem einnig er líffræðíngur, en nú í nokkurra ára námi í jarð- fræði í Bandaríkjunum. Mér er nær að halda að ekki geti verið ódýrt að stunda nám og búa í eig- in íbúö, í Boston. En námslána- kerfi okkar er e.t.v. rýmilegra en það sem gildir um atvinnulausa Sóknarkonu sem missir vikubæt- umar komist hún ekki að í bið- röðinni th að stimpla sig. Ég veit að tvær þjóðir búa í þessu landi en er þetta nú ekki komið út í öfgar? Afísingartækiá Sikorskyþyrlu Margrét skrifan Ég man ekki betur en þegar deilt var sem haröast um kaup á björgunarþyrlu fyrir íslendinga, að einn þingmaður sem mikið hefur haft sig í framrni um þessi kaup, hafi staðhæft að ekki væru afísingartæki til staðar á þyrlum þeim sem varnarhðið hefur á að skipa. Nú hefur komið i ljós að þyrlur þær sem hotaðar voru við björgunina fræknu nýlega eru meö þessi tæki. Því tel ég okkur Islendinga vel setta með þessi mögnuðu björgunartæki þeirra varnarhðsmanna. Nýbúar hæfir frambjóðendur? Jón Gunnarsson skrifar: Ég er meira en htið undrandi á hinum póhtísku flokkum ef þeir ætla nýbúum er hér hafa dvalið í nokkur ár að vera komnir það vel inn í íslenskt þjóðfélags- mynstur að þeir séu jafnvígir inn- fæddum hvað varðar póhtísk bæjar- og sveitarstjómarmál, aö ekki sé nú talað um þjóðmálin í hehd. Hér er fráleitt um andúö á að- fluttum íslendingum að ræöa, hvað þá kynþáttamisrétti af minni hálfu. Það á við um hverr- ar þjóðar fólk sem væri, svo sem Finna, Dani, Breta o.s.frv. að af- skipti af stjómmálum hér krefj- ast meiri aðlögunartíma en rétt 5-7 ára. Hér er e.t.v. mál fyrir Alþingi tíl umfjöhunar. Toppþátturhjá Hrafni R.A. skrifar: Sjónvarpsþátturinn í gærkvöldi (11. jan.) undir stjórn Hrafhs Gunnlaugssonar, þar sem rætt var um heimsmálin svo og inn- lend mál vítt og breitt með thhti th umræðu um sama efni fyrir nokkrum árum, var alveg frá- bær. Þarna var rætt af skynsemi að mínu mati og þátttakendur voru vel valdir að þessu sinni. Stefha ætti að því að hafa svona umræðuþætti vikulega. - Þetta var toppþáttur hjá Hrafni. ÞakkirtilPálma áBylgjunni Guðrún hringdi: Ég er áskrifandi að Stöð 2 og svo vhdi til að ég var ekki búin að fá nýtt lykhnúmer hinn 10. þ.m. og þótti það bagalegt því ég var búin að greiða gjaldið. Ég tók því það ráð að hingja í útvarpsstöðina Bylgjuna og var mér vísað á Pálma Guðmundsson tækni- raann. Hann brást einstaklega vel við og gaf mér upp lykhnúmerið símleiðis, rétt svona eixm, tveir og þrír. Fyrir þetta vil ég senda mitt besta þakklæti fyrir veitta þjónustu og snögg viðbrögð..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.