Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Síða 9
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994
9
Stuttar fréttir
SpfengjuráSarajevo
Serbar létu sprengjum rigna á
Sarajevo í gær til að fagna nýju
ári rétttrúnaðarmanna.
Vopnahléframlengt
Króatísk yfmvöld og Serbar
hafa ákveðið að framlengja
vopnahlé í Króatíu.
Major í meiri klemmu
John Major
varð fyrir enn
einu áfallinu í
gær þegar bæj-
arstjómíhalds-
manna • i
^ésjhiinstérjjíjjíi
hverfi Lund- ;
;:uha;:ya|jspyúði;
um kosningasvindl.
ísraelsmenn forvitnir
ísraelar eru forvitnir um fram-
gang viðræðna Bandaríkjanna og
erkióvinarins, Sýrlendinga.
Nýrforsefa'íBúrúndí
Þing Búrúndi hefur kosið nýjan
borgaralegan forseta.
Hubbleskýr
Hubble geimsjónaukinn hefur
sent mjög skýrar myndir til jarð-
ar.
Styðjahvalveiðar
Bandarískm vísindamenn
styðja hvalveiðistefnu norskra
stjórnvalda.
Glæsirútaeyóilögð
Þrjátiu og sjö fórust þegar
glæsirúta og flutningabíll rákust
saman i Taílandi.
Ciampi villfara
Carlo Azeglio
Ciampi, forsa.t-
isráðherraítal-
iu. bauðst dl að
segja af sér í
gær þar sem of
ntikill klofn-
ingur væri á
þingi landsins
til að það gæti starfað eðlilega.
Smokka í þingið
Breskur stjórnarandstöðuþing-
maður krafðist smokkavélar i
þinghúsið íhaldsmönnum til háð-
ungar.
Uppsagnir hjá Siemens
Þýska fyrirtækið Siemens segir
upp 10.000 manns vegna minni
gróða.
Rætt við bændur
Sáttasemjari Mexíkóstjórnar
ræddi við uppreisnarbændur.
Nýnasistummótmælt
Um 15 þúsund manns mót-
mæltu ofbeldi nýnasista i Halle.
Morðingi tekinn
Franska lögreglan hefur hand-
tekið raðmorðingja í París.
Aspinmeðkonum
Les Aspin,
fráfarandi
varnarmála-
ráðherra
Bandaríkj-
anna, hefur
fyrirskipað
landher og
landgönguliði
flota að taka konur inn í bardaga-
sveitir sínar.
Dauðarefsing gagnrýnd
Samtökin Amnesty Internati-
onal hafa gagnrýnt Bandaríkin
fyrir dauðarefsingar. ; V; V
Ekkert lát á eyðni
Fræðsla og dreifing smokka
hefur ekki megnað að stöðva út-
breiöslu eyðni í sveitum Úganda.
' Reuter, N'TB
Útlönd
Vel (ór á með þeim Clinton og Jeltsín í kvöldverðarboðinu í gær.
Simamynd Reuter
Þrír forsetar undirrita samkomulag í Moskvu:
Kjarnavopn
dauðadæmd
Forsetar Bandaríkjanna, Rúss-
lands og Úkraínu settust á fund í
Kreml í morgun til að undirrita tvo
sögulega samninga um kjarnorku-
vopn.
Þeir Bill Chnton, Borís Jeltsín og
Leoníd Kravtsjúk ræddu um kjarn-
orkuvopnabúr Úkraínu, hið þriðja
stærsta í heiminum, sem landið fékk
í arf frá Sovétríkjunum sálugu. For-
setarnir undirrituðu samning um
eyðileggingu þess og er það talinn
mikill sigur fyrir þá Clinton og Jelts-
ín sem höfðu lýst því yfir að tregða
Úkraínumanna til að losa sig við
vopnin raskaði kjarnorkujafnvæg-
inu í heiminum.
Ekki er tryggt að úkraínska þingiö
fallist á samkomulagið en Kravtsjúk
er þó bjartsýnn á að það verði gert.
Þá undirrituðu Clinton og Jeltsín
samkomulag um að Bandaríkin og
Rússland beindu langdrægum
kjarnaflaugum sínum hvort frá öðru
og á skotmörk í höfunum.
Borís Jeltsín fullvissaði Clinton í
gær um að hann ætlaði að halda
umbótum sínum í átt til markaðs-
hagkerfis til streitu en Clinton gerði
starfsbróður sínum ljóst að það væru
takmörk fyrir því hvað Bandaríkin
gætu gert til aðstoðar.
Clinton lofaði Jeltsín þó umtals-
verðri og skjótri fjárhagsaðstoð Vest-
urlanda til að halda umbótunum
áfram og til að draga úr neikvæðum
áhrifum þeirra á almenning.
Jeltsín hélt CUnton kvöldverðar-
boð á sveitasetri utan Moskvu í gær-
kvöldi þar sem bornir voru fram 24
réttir, meöal annars elgsvarir. Clin-
ton þakkaði fyrir sig með því að
draga upp saxófóninn og leika tvö
lög, My Funny Valentine og Summ-
ertime, þau sömu og hann blés á
djassbúllu í Prag á dögunum.
Til merkis um hve hlýtt er á milli
leiðtoganna tveggja hefur Jeltsín
boðið Chnton og fjölskyldu hans að
gista í Kreml í nótt. Það hefur banda-
rískur forseti ekki gert frá 1972 þegar
NixonheimsóttiMoskvu. Reuter
Fyrrmn ástkona bresks ráöherra:
Siðvæðingarstefn-
an er bara hræsni
Sarah Keays, fyrrum ástkona
breska ráðherrans Cecils Parkin-
sons, veittist að siðvæðingarstefnu
bresku ríkisstjómarinnar í gær og
sagði að afstaða hins opinbera til ein-
stæðra mæðra væri ekkert nema
hræsni. Þær væru gerðar að blóra-
bögglum fyrir misheppnaða stjóm-
arstefnu. Sarah átti barn með Park-
inson og sagði hann af sér í kjölfarið
árið 1983.
„Mér býður við hræsninni og tvö-
feldninni í okkar garð. Ég tala af tíu
ára reynslu. Það er hræsni að segja
að stríðsekkja sé heiðvirð móðir en
að einstæðar mæður séu utan marka
alls velsæmis," sagði Sarah Keays á
ráðstefnu um fjölskyldugildi í Lund-
únum í gær.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, hefur átt í mesta baksi
með ráðherra sína og ástarævintýri
þeirra og siðbótarstefna hans hefur
beðið mikinn hnekki vegna þessa.
Tim Yeo aðstoðarumhverfisráð-
herra sagði af sér með semingi í síð-
ustu viku eftir að hann viðurkenndi
að hafa eignast barn í lausaleik með
flokkssystur sinni.
Þótt Sarah Keays sé bitur yfir
reynslu sinni er aðra sögu að segja
af Christine Keeler, fyrmm vændis-
Sarah Keays er ekki ánægð með
siðbót Johns Majors.
Símamynd Reuter
konu, sem var miðpunktur Prof-
umo-hneykslisins árið 1963 sem varð
stjórn íhaldsmanna að falli. Hún
sagðist hafa samúð með stjórnmála-
mönnum sem létu taka sig í bólinu.
„Fólk þjáist hræðilega vegna kyn-
lífshneyksla í dagblöðunum," sagði
Keeler. Reuter
Tilboö óskast í stangveiði í
Flókadalsá fremri í Fljótum
veiöitímabiliö ’94 og ’95. Tilboð-
um skal skila fyrir 20. febrúar nk.
til Lúðvíks Ásmundssonar, Sig-
ríðarstöðum, 570 Fljót., merkt:
Veiðifélagið Flóki.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða til-
boði sem er eða hafna öllum.
SÁ GLÆSILEGASTI TIL SÖLU
BMW 325 i, árg. 1992, M-Teckinkútgáfa,
ekinn 28.000 km, 192 hö. Leðurinnrétting, ABS-
hemlar, aksturstölva, rafdr. rúður, centrallæsingar,
læst drif, rafdr. topplúga, þjófavörn, BMW-hljóm-
kerfi með CD, litað gler o.fl. o.fl. Verð kr. 3.400.000,-
(kostar nýr ca 4.330.000,- stgr.).
Él„ bÍlASAU
>^lt£yKJAVIKUIt
Skeifunni 11,
s. 67 88 88.
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokkl 1992
2. flokki 1992
Innlausnardagur 15. janúar 1994.
1. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.341.046 kr.
100.000 kr. 134.105 kr.
10.000 kr. 13.410 kr.
3. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.193.273 kr.
500.000 kr. 596.636 kr.
100.000 kr. 119.327 kr.
<•y 10.000 kr. 11.933 kr.
1. flokkur 1992 Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.876.400 kr.
1.000.000 kr. 1.175.280. kr.
100.000 kr. 117.528 kr.
10.000 kr. 11.753 kr.
2. flokkur 1992 Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 5.784.178 kr.
1-.000.000 kr. 1.156.836 kr.
100,000 kr. 115.684 kr.
10.000 kr. 11.568 kr. í
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
rSn HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
[J HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • l08 Rl íyÍuAVÍK • SÍMI 69 69 00
tálandi dæmi um þjónustu