Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Síða 25
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994 33 Svidsljós Flestir myndu veðja á að Kim Basinger nefndi síðasta ár sem sitt versta ár, með tilliti til réttarhald- anna vegna Boxing Helena og úr- skurðarins, en í nýlegu viðtali segir hún þvert á móti að síðasta ár hafi verið það besta sem hún muni eftir og þá er hún að vitna til brúðkaups þeirra Alecs Baldwins sem haldið var í sumar. Það má segja að allir í Hollywood hafi fylgst með réttarhöldunum yf- ir „samningsbroti Kim vegna myndar Jennifer Lynch, Boxing Helena. Aldrei fyrr hafði leikari verið dreginn fyrir rétt fyrir að brjóta munnlegan samning og voru blendnar tilfinningar vegna úr- skurðarins, bæði meðal framleið- anda og leikara. Framleiðendur óttast að nú sé erfiðara að fá leik- ara til að leggja nafn sitt við fram- leiðslu þeirra, af ótta við málsókn, og leikarar forðast að gefa nokkur vilyrði um samstarf fyrr en allt er í höfn. Kim segir að réttarhöldin hafi verið sín versta lífsreynsla, hún sé afskaplega feimin að eðlisfari og sér hafi ekki fundist gaman að sitja fyrir framan kviðdóminn og fullan sal af áheyrendum. En þar sem hún hafi ekki haft efni á að greiða það sem framleiöendur fóru fram á hafi hún ákveðið að láta hart mæta hörðu. Kim segir að úrskurðurinn hafi ekki komið sér á óvart. Hún hafi gert sér grein fyrir því um leið og lögfræðingur sækjandans flutti opnunarorð sín: „Góðan dag, döm- ur mínar og herrar. Við munum öll frá því viö vorum í skóla hvem- ig þaö er þegar sæta stelpan fær allt sem hún vfil,“ að málið snerist um hana en ekki samningsbrot. Eftir að dómurinn féll henni í óhag lýsti Kim sig gjaldþrota. Þrátt fyrir það er engin uppgjöf í henni. Hún segist skulda lögfræðingum Kim Basinger er gjaldþrota peningalega en hún er nýgift og hamingju- söm og er ekki búin að gefast upp. stjarnfræðilega upphæð vegna hún að halda áfram og hefur áfrýj- þessara málaferla en samt ætlar að úrskurðinum. Tilkyimiiigar Barðstrendingafélagið og Djúpmannafélagið halda sameiginlega félagsvist að Hall- veigarstöðum laugardagimi 15. janúar kl. 14. Góð verðlaun og veitingar. Fræg Tsjekhov-kvik- mynd íbíósal MÍR Önnur kvikmyndin af fjórum, sem sýnd- ar verða nú í janúar í bíósalnum, Vatns- stíg 10 undir samheitinu „Nikita Mik- halkov - leikarinn og leikstjórinn," verð- ur sýnd nk. sunnudag, 16. janúar, kl. 16. Þetta er myndin „Ófullgert verk fyrir sjálfspilandi píanó“. Skýringatextar á ensku. Aðgangur ókeypis og öllum heim- ill. Happdrætti knatt- spyrnufélags ÍA Dregið var í happdrætti knattspyrnufé- lags ÍA 5. janúar 1994. Ferðavinningar komu á númer: 12718,10099,13496,12225, 12890, 11147, 10079, 11490, 10817, 12673. Aðrir vinningar komu á númer: 13953, 10682, 11936, 12948, 12847, 13514, 11878, 11098, 10183, 12638, 13565, 10685. Upplýs- ingar eru gefnar á skrifstofu knatt- spymufélagsins mánudaga til fóstudaga kl. 10-12. Fréttir Skynjaravandræði á Landspítalanum Eldur kom upp í straumspenni á hjartaþræðingardeild Landspítalans í gærmorgun. Töluverður reykur hlaust af þó eldurinn væri lítill og var slökkviliðið um 50 mínútur að reykræsta salarkynnin. Engin eldboð bárust á slökkvistöð og mun því vera um að kenna að engir optískir reykskynjarar eru þar sem eldurinn kviknaði heldur ein- ungis jónískir. Optískir skynjarar nema mun betur rafmagns- og glóð- areld og verður unnið að því á næst- unni að bæta úr þessu og setja upp optíska skynjara. Er hér um svipað mál að ræða og kom upp á Þjóðminjasafninu á dög- unum þegar jónískir skynjarar námu ekki reyk af glóðareldi sem kviknaði í klæðningu þegar unnið var að viðgerðum á þaki safnsins. -PP Enginn íslendingur íSmugunni Togarinn Óttar Birting, sem gerð- ur er út frá Fáskrúðsfirði, kom til hafnar á Fáskrúðsfirði í gær með 150 til 160 tonn af fiski. Ekki fengust upplýsingar um það í morgun hvort farið yrði aftur til veiða en að sögn skipverja er Smugan „draumasvæði til veiða á þessum árstíma. Miklu betra heldur en íslensk fiskimið", eins og einn skipverjinn orðaði það. Þrír til fimm færeyskir togarar voru á veiðum í Smugunni með Ottar Birting, sem fór til veiða í byrjun desember. Engin íslenskur togari er nú í Smugunni. -pp Húnvetningafélagið Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúö, Skeifunrú 17. Keppni hefst. Allir vel- komnir. Félag eldri borgara Félagsvist kl. 14 í dag í Risinu. Dans- kennslan hefst á morgun, laugardag, kl. 12.30 til 14 fyrir byrjendur og kl. 14 til 15.30 fyrir lengra komna. Ath. breyttan tíma. Göngu-Hrólfar fara frá Risinu kl. 10 laugardagsmorgun. Margrét Thor- oddsen er til viðtals á þriöjudag, panta þarf tíma i síma 28812. Félag eldri borg- ara í Kópavogi Félagsvist og dans verður í kvöld kl. 20.30 í félagsheimili Kópavogs, annarri hæð. Húsið öllum opið. Sigtryggur dyravörður á Selfossi Hljómsveitin Sigtryggur dyravörður leikur á Hótel Selfossi laugardaginn 15. janúar. Kvikmyndasýning í Norræna húsinu Sunnudaginn 16. janúar kl. 14 hefjast að nýju kvikmyndasýningar fyrir börn í Norræna húsinu. Að þessu sinni verður sýnd sænska myndin Elvis Elvis. Myndin er með sænsku tali. Allir velkomnir og aögangur ókeypis. Skaftfellingafélagið í Reykjavík Félagsvist sunnudag 16. janúar kl. 14 í Skaftfellingabúö, Laugavegi 178. Leikhús ÞJÓÐLEIKHÚSID Sími 11200 Smíðaverkstæðið kl. 20.30. BLÓÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca Frumsýning fös. 21. jan., fáein sæti laus, miö. 26. jan.,fim. 27. jan. Sýning er ekki viö hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir aö sýning er hafin. Litla sviðið kl. 20. SEIÐUR SKUGGANNA eftir Lars Norén Frumsýning á morgun lau. 15. jan., upp- selt, sud. 16. jan., föd. 21. jan. Ath. Ekki er unnt að hieypa gestum i salinn eftir að sýning er hafin. Stóra sviðið kl. 20.00 MÁVURINN eftir Anton Tsjékhof 7. sýn. á morgun lau., fáein sæti laus, 8. sýn. sun. 23 jan., sun. 30. jan. ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller í kvöld, fáein sæti laus., fim. 20. jan., fös. 21. jan., fim. 27. jan. KJAFTAGANGUR eftir Neil Simon Lau. 22. jan., fös. 28. jan., næstsíðasta sýning, lau. 29. jan., siðasta sýning. SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra sviðið EVA LUNA Eva Luna eftir Kjartan Ragnarsson og Oskar Jónasson 5. sýn. sund. 16. jan., gul kort gilda, uppselt. 6. sýn. fimd. 20. jan., græn kort gilda, fáein sæti laus. 7. sýn. föd. 21. jan., hvít kort gilda, uppselt. 8. sýn. sund. 23. jan., brún kort gilda, upp- selt. Fim. 27. jan., fös. 28. jan., uppselt, sun. 30. jan. Stóra svið kl. 20.00. SPANSKFLUGAN eftir Arnold og Bach 35. sýn. föstud. 14. jan., laugard. 15. jan. Fáarsýningareftir. Stóra sviðið kl. 14.00 RONJA RÆNINGJADÓTTIR Sunnud. 16. jan. sunnud. 23. jan., næstsið- asta sýning. 60. sýn. sunnud. 30. jan. sið- asta sýning. Litla sviðið kl. 20.00. ELÍN HELENA eftir Árna Ibsen Föstud. 14. jan., laugard. 15. jan. Ath.t Ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn eftlr að sýning er hafin. Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 ajla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum í sima 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. Greiðslukortaþjónusta. Leikfélag Reykjavikur- Borgarleikhús. Ævintýri með söngvum Lau. 15. jan. kl. 14.00, fáein sætl laus, sun. 16. jan. kl. 14.00, fáeln sæti laus, sud. 23. jan., fáein sætl laus, lau. 29. jan. kl. 13.00, sun. 30. jan. kl. 14.00. Miðasala Þjóðleikhússins er opln alla daga nema mánudagafrá 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti simapöntunum virka daga frá kl. 10. Græna Iínan99 61 60. Leikfélag Akureyrar LEIKFÉLAG MOSFELLSS VEITAR „ÞETTA REDDASTÍ i Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ Kjötfarsi með einum sálmi eftir Jón St. Kristjánsson. 3. sýn. í kvöld, uppselt., 4. sýn. sunnud. 16. lan.kl, 20.30. Miðapantanir í sima 867788 allan sölarhrlnglnn. ÍSLENSKA ÓPERAN __inil UlH/ .....UaKaSAG^... Höfundur leikrita, laga og söngtexta: Ármann Guömundsson, Sævar Slgur- gelrsson og Þorgeir Tryggvason Leikstjórn: Hlin Agnarsdóttir Lelkmynd og búnlngar: Stigur Stelnþórs- son Lýsing: Ingvar Björnsson Leikendur: Saga Jónsdóttlr, Aðaisteinn Bergdal, Rósa Guðný Þórsdóttir, Sigur- þór Albert Heimlsson, Inglbjörg Gréta Gisladóttlr, Skúli Gautason, Slgurvelg JónsdóHir, Sigurður Hallmarsson, Dofri Hermannsson og Oddur Bjarni Þorkels- son. Undirleikari: Reynir Schiöth Föstud. 14. jan.kl. 20.30. Laugard. 15. jan. kl. 20.30. Miðasalan er opin alla virka kl. 14-18 og fram aö sýn. sýningardaga. Sunnud. kl. 13-15. Simsvari tekur viö pöntunum utan af- greiðslutima. Simi 24073. Greiöslukortaþjónusta. É VGENÍ ÓNEGÍN ettir Pjotr I. Tsjajkovski Texti eftir Púshkin í þýðingu Þorsteins Gylfasonar. Sýning laugardaginn 15. janúar kl. 20. Laugardaginn 22. janúar kl. 20. Miðasalan er opin frá kl. 15.00-19.00 daglega. Sýningardaga til kl. 20. SÍM111475- GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA. Nýtt kortatimabil! Munið gjafakortin okkar Gildran er spennt ef ökumaður rennir einum snafsi inn fyrir varir sinar Eftir einn - ei aki neinn! UMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.