Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Blaðsíða 28
36
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994
Greenpeace lýgur.
Helvít-
issvik
„Þeir sviku okkur, helvítin á
þeim,“ segir Jónas Haraldsson,
skrifstofustjóri LÍÚ, í Tímanum í
gær um ástæöur þess aö upp úr
viöræðum slitnaði. Hann segir aö
á sameiginlegum fundi deiluöaila
með sjávarútvegsráðherra sl.
helgi hafl menn orðið sammála
um að fara aftur til fundar í Karp-
húsinu til að taka á því vanda-
máli sem snýr að meintum kvóta-
kaupum sjómanna en ekki til að
búa til nýtt verðlagsráð.
Ummæli dagsins
Lygi grænfriðunga
„Eg get fullyrt að níutíu prósent
af því sem Greenpeace er að
skrifa um myndina Maðurinn í
regnboganum og mig persónu-
lega og Ron Arnold er hreint bull
og þvættingur. Það er óhætt aö
snúa hverri fullyrðingu þeirra í
Alþýðublaðinu í dag upp í and-
hverfu sína. Og það hefur til
dæmis danska sjónvarpiö gert
fyrir sitt leyti og vísað öllu til foð-
urhúsanna,“ segir Magnús Guð-
mundsson í Alþýðublaðinu í gær.
Basla á eigin vegum
„Aö öðru leyti hafa samskipti
mín við stjÓHimálaöfl verið afar
takmörkuö, ég er óflokksbundinn
og skipti mér eKki mikið af stjórn-
málum. Ég vinn á eigin vegum
og basla áfram á eigin vegum.
Greenpeace skilur væntanlega
ekki slíkt,“ segir Magnús enn-
fremur.
Á enga samleið
„Mitt nafn bar á góma á ein-
hverju stigi en það var ekki af
mínum hvötum og ég hef ekkert
með það að gera. Það er gjörsam-
lega út úr kortinu að ég eigi
nokkra pólitíska samleið með
þessum bræðingi," segir Jón
Magnússon lögmaður í DV í gær
er hann hafnar samstarfi við
framboð minnihlutaflokkanna.
Félag áhuga-
manna um
heimspeki á
Akureyri
Hvemig verður mannheimur
til? heitir fyrirlestur Páls Skúla-
sonai’ i Deiglunni, sal Gilfélagsins
i Grófargili, 14. janúar kl. 20.30.1
fyrirlestrinum verður fjallað um
reynslu okkar af veröldinni og
Fundir
leítast við aö skýra hvemig hugs-
un, trú og tjáning skapa forsend-
ur mannlífs og menningar.
Félag fráskilinna
Félag fráskilinn heldur fund í
kvöld kl. 20.30 í Risinu, Hverfis-
götu 105.
Heldur kólnandi veður
Það verður norðaustanátt, víðast
gola eða kaldi og dálítil él um landið
norðanvert, einkum þó út við sjóinn.
Veðrið í dag
Á Suður- og Suðvesturlandi verður
hins vegar lengst af nokkuð bjart
veður. Hægt kólnandi og í kvöld
verður komið talsvert frost um mest-
allt land.
Á höfuðborgarsvæðinu verður au-
stangola eða kaldi og léttskýjað.
Fljótlega frystir og næstu nótt má
reikna með meira en fimm stiga
frosti.
Sólarlag í Reykjavík: 16.17
Sólarupprás á morgun: 10.55
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.16
Árdegisflóð á morgun: 08.35
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað -2
EgUsstaðir skýjað -2
Galtarviti léttskýjað -1
KeílavíkurílugvöUur léttskýjað 0
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 0
Raufarhöfn snjóél 0
Reykjavik léttskýjað -1
Vestmannaeyjar léttskýjað 3
Bergen rign/súld 2
Helsinki rigning 2
Kaupmannahöfn alskýjað 5
Ósló skúr 2
Stokkhólmur skýjað 4
Þórshöfn skúr 2
Amsterdam skýjað 8
Barcelona léttskýjað 8
Berlín léttskýjað 6
Chicago heiðskírt -17
Feneyjar þoka 5
Frankfurt skýjað 7
Glasgow skúr 4
Hamborg skýjað 7
London léttskýjað 6
Madrid þokumóða 4
Malaga heiðskirt 9
Mallorca þoka 9
Montreal alskýjað -10
New York þokumóða 2
Nuuk alskýjað -4
Orlando rigning 14
París léttskýjað 6
Valencia heiðskírt 6
Vín skýjað 5
Winnipeg heiðskírt -29
Kári Gunnarsson:
Langar aó spila í
1. deild í fótbolta
„Ég varð ekkert hræddur þegar
mamma datt og vissi ekki aö hún
var handarbrotin. Ég hljóp bara að
ná í hjálp og sýndi þeím svo hvar
hún lá,“ segir Kári Gunnarsson en
frá fcrðum þeirra mæðgina, ásamt
himilishundinum Skoppu, er nán-
ar sagt í DV í dag. „Skoppa vildi
Maóirr dagsins
heldur bíða hjá mömmu en í'ara
með mér. Það var alveg eins og hún
vissi að matnma væri slösuð. Ilún
er voðalega góður hundur.“
Kári er ellefu ára gamall og vinn- Kári Gunnarsson fær sér hress- kannski að verða atvinnumaöur
ur sér inn vasapeninga með því að ingu eftir að hafa hlaupið tvisvar þegar ég verð eldri.“
bera út DV. Hann fer norður í land upp og niður Stöðina. -JJ
i sveit á sumrin og segist miög
ánægður með það. Á vetuma
stundar hann skíðin af kappi og
innahússfótboltann.
„Við erum að reyna að styrkja
okkar lið og fórum í íslandsmótið
í innanhúsfótbolta um helgina. Við
eígum að keppa við nokkur liö en
tvö af þeim eru mjög sterk. Þetta
er í fyrsta sinn sem ég kem með
hði til Reykjavíkur og er svolítið
spenntur."
Kári er vinstri bakvörður og við-
urkennir aö hann langi til að kom-
ast áfram i fótboltanum. „Mig lang-
ar að spila í 1. deild í fótbolta og
SlÚður Myndgátan hér að ofan lýsir sagnorði.
Blak og
handbolti
íslandsmeistaramótinu í blaki
veröur fram haldið í kvöld og
verða 3 leikir, þar af tveir í Nes-
kaupstað. Karlalið Þróttar, Nes.,
og HK munu keppa kl. 20.00 og
þar á eftir eða kl. 21.15 munu
kvennalið þessara félaga mætast.
Klukkán 20.00 verður í Víkinni
leikur í kvennablakinu kl. 20.00
milli Víkings og Sindra. í 2. deild
karla í handbolta verður leikur
milh ÍBK og Gróttu i Keflavík og
hefst hann kl. 20.00. Að lokum
má minna á að íslandsmótið í
innanhússknattspyrnu heldur
áfram í Austurbergi kl. 18.00 og
verða leiknir 12 leikír.
Skák
Þessi sjötíu ára gamla þraut er eftir
Þjóðverjann Wolfgang Pauly - samin
1924. Hvitur leikur og mátar í 5. leik.
Þetta dæmi er ekki auðleyst. Lausnin
byggist á tilfærslu biskupsins með 1.
Bc8! Kd5 2. Bb7 og nú rekur þetta sig
sjálft. Eftir 2. - Ke5 3. Hg6 Kf5 4. Be4 +
Ke5 5. f4 er svartur mát.
Jón L. Árnason
Bridge
Spilin í Reykjavikurmótinu í sveita-
keppni eru forgeftn og er því jafnan mik-
il umræða um spilin i spilalok þegar spi-
lagjöfmni er dreift til spilaranna. Eftir-
farandi spil, sem kom fyrir í fimmtu
umferð mótsins, átti sér fróðlega sögu i
leik sveita VÍB gegn S. Ármanni Magnús-
syni. Sagnir gengu þannig, suður gjafari
og NS á hættu:
♦ G762
V KG642
♦ --
+ K875
* K94
V Á953
♦ KG104
+ 109
* ÁD103
V 7
♦ ÁD75
+ ÁD62
Suður Vestur Norður Austur
1+ Pass 1? Pass
1 G Pass 2é Dobl
Redobl p/h
í NS sátu Guðlaugur R. Jóhannsson og
Öm Amþórson, en kerfi þeirra er sterkt
laufakerfi. Eitt hjarta lofaði 6 eða fleiri
punktum og rninna en þremur kontrólum
(Á=2, K=1). Þar sem kerfi Guðlaugs og
Amar inniheldur ekki opnun með sterk-
um þriggja lita höndum, valdi Örn að
segja eitt grand á suðurspilin tii að lýsa
jafnskiptri 17-18 punkta hendi. Tveir tigl-
ar Guölaugs vom yfirfærsla í hjarta og
þá ákvað austur að dobla til að sýna tígul-
lit. Örn redoblaði og bauð þannig upp á
að spila samninginn. Guðlaugur ákvað
að freista gæfunnar, taldi líklegt að Öm
væri með fimmlit eða'sterkan fjórlit í
tígh. Útspil austurs var lauftía sem Guð-
laugur drap á ás í blindum. Hann spilaði
næst hjarta á gosa og austur drap á ás.
Enn var laufi spilaö sem Guðlaugur átti
heima á kóng. Hann svínaði nú spaða-
drottningu og spilaði síðan laufdrottn-
ingu sem austur trompaði og spilaði
spaðakóng. Guðlaugur drap á ás og spil-
aði lágum spaða. Vestur henti hjarta og
gosi fékk óvænt að eiga þann slag. Þá var
hjartakóngur tekinn og hjarta trompað í
blindum en vestur yfirtrompaði. AD í
tigh í blindum nægðu síðan til að landa
heim samningnum.
ísak Örn Sigurðsson
f öö
V D108
♦ 98632
-i. n,io