Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Blaðsíða 10
26 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994 Tækni-Tölvur Stóra spumingin þegar kaupa á nýja tölvu: Hvaða tölva er best? Við val á tölvu verður að taka tillit til fjölmargra atriða. Mörgum veitist erfitt að fóta sig i frumskógi tæknilegra atriöa og tilboða frá seljendum sem mörg eru hliðstæð. Hvaða tölva er best, hver á tiftiðnin að vera, hvað á minni tölvunnar að vera stórt og hvaða diskastærð hentar? Við val á tölvu verður að taka tillit til fjölmargra atriða. Mörgum veitist erfitt að fóta sig í frumskógi tækni- legra atriða og tilboða frá seljendum sem mörg eru hliðstæð. Hvaða tölva er best, hver á tiftíðnin að vera, hvað á minni tölvunnar að vera stórt og hvaða diskastærð hentar? Þessar og margar aðrar spurningar koma upp í hugann þegar valin er tölva. Til að leiðbeina lesendum um þau atriði sem vert er að hafa í huga við tölvukaup leituðum viö til Halldórs Kristjánssonar verkfræðings. Hall- dór rekur Verkfræðistofu Halldórs Kristjánssoar og Tölvuskóla Tölvu- og verkfræðiþjónustunnar. Hann hefur áralanga reynslu af kennslu á tölvur auk þess sem hann hefur veitt íjölda fyrirtækja og einstaklinga ráðgjöf um tölvukaup og stefnumót- un í tölvumálum. Örgjörvinn Fyrsta atriðið sem hafa ber í huga er örgjörvinn en hann stjómar allir vinnslu tölvunnar. „Við val á PC-tölvu er sjálfsagt að miða við tölvu með örgjörva af gerð- inni Intel 486 þar sem verð þeirra er mjög hagstætt um þessar mundir. Arftaki þessara örgjörva, kallaður Pentium (586), verður varla orðinn samkeppnisfær í verði fyrr en árið 1995. Fæstir hafa þörf fyrir tölvur með afli slíks örgjörva," segir Hall- dór Krisfjánsson. Eldri kynslóðir Intel örgjörva kall- ast 286 eða 386. Halldór segir ekki borga sig að kaupa slíkar tölvur nýj- ar en oft megi gera góð kaup í not- aðri tölvu með 386-örgjörva (30-50 þúsund krónur, eftir því hvað fylgir þeim). Hann segir að 286 tölvur komi að sínu mati ekki lengur til greina. „Þegar valinn er örgjörvi verður að hafa í huga að 486 er til í tveimur aðalútgáfum, SX og DX. Sá fyrr- nefndi hefur ekki innbyggðan reikni- örgjörva eins og sá síðamefndi. Reikniörgjörvar flýta vinnslu, t.d. í töflureiknum og mörgum teiknifor- ritum, þannig að þeir sem nota slík forrit mikið ættu að velja sér tölvu með DX örgjörva. Sé sérstakur sökk- ull fyrir hendi í tölvunni er síðar hægt að bæta reikniörgjörva við tölv- ur með SX örgjörva.“ Tiftíðni Tiftíðni er mæld í fjölda klukkku- slátta á sekúndu (Hz) og er 25-33 MHz (milljón Hz) í algengustu tölvum. Margar þeirra geta tvöfaldað hrað- ann með tíðnitvöfaldara (Clock Do- ubler) en það er háð því að í tölvunni sé sökkull fyrir slíkan búnað. Al- menna reglan er sú að því hærri sem tiftíðnin er því meiri afkasta sé að vænta. Vinnsluminni „Vinnuminni tölvunnar geymir forrit og gögn meðan unnið er með þau. Flest Windows forrit komast vel af með 4 MB minni (Megabæti = 1.048.000 tákna ígildi) þó nýjustu út- gáfur forrita séu sprækari ef minnið er tvisvar sinnum stærra (8 MB).“ Allar tölvur hafa eitt eða fleiri drif fyrir disklinga og nær undntekn- ingalaust 3,5 tomma drif (sama og þvermál disklings) sem vistað geta allt að 1,4 MB af gögnum á einum diskhngi. Oft eru eldri gögn og forrit til á 5,25 tomma disklingum en fæstar nýjar tölvur hafa slík drif. Halldór segir að gera verði ráð fyrir slíku drifi ef lesa þarf gögn af 5,25 tomma disklingum. Harður diskur „Gögn og forrit eru ýmist geymd á disklingum eða innbyggðum hörðum diski. Ef tölva er ekki hluti af staðar- neti þá verður hún að hafa harðan disk og sé ætlunin að nota Windows og algeng notendaforrit dugir ekki minna en 80-100 MB diskur," segir Halldór og bætir við: „Flestar tölvur eru með svokallaöri IDE diskstýr- ingu sem er ágætlega spræk. Sé hins vegar þörf á meiri harða verður að kaupa disk með SCSI diskstýringu. Allar Macintosh-tölvur hafa slíka stýringu innbyggða.“ Skjárinn Skjárinn er sá hluti tölvunnar sem oftast er fyrir augunum á okkur. Því þarf að vanda sig við val á honum. „Mikilvægt er að skjámyndin sé stöðug, litaendurgjöf góð og að hann sé hæfilega stór (14-15 tonna horna- lína lágmark). Þá þarf að íhuga skerpu skjámyndarinnar, ekki síst í homum skjásins. „Gæði myndarinnar ráðast einnig af því skjákorti sem er í tölvuni. Þau em ýmist í spjaldrauf eða hluti af móðurborði tölvunnar. Öll PC-skjá- kort styðja svokallaðan VGA-staðal en hann birtir 640 sinnum 480 punkta á skjá. Flest skjákort geta einnig sýnt 800 sinnum 600 (eða meira) punkta á skjá (Super VGA) en því miður fer myndin stundum að flökta við það ef skjákortið er ekki gott. Því er æski- legt að skoða skjáinn einnig 1 þeim ham áður en valin er tölva. Loks er þess að geta að mörg skjákort hafa skjáhraðal sem flýtir allri vinnslu í Windows," segir Halldór. Viðbætur og tengingar Auk tengiraufa fyrir viðbótar- spjöld eins og hljóðkort og fleira þarf tölva að hafa tengingu fyrir mús, hnappaborð, mótald (raðtengi) og prentara (hliðtengi). Halldór segir að allt það sem á undan er sagt eigi einnig við um Macintosh-tölvur þó að því undan- skildu að notaður er annar örgjörvi í slíkum tölvum, svo og önnur tegund af skjástýringum. „Macintosh-umhverfið er mun heilsteyptara en Windows/PC- umhverfið sem kemur fyrst og fremst fram í því að öll notkun for- rita er samstilltari og minni þekk- ingu þarf til þess að setja inn forrit og tengja tæki og búnað. Þá er skrár- kerfi tölvunnar mun aðgengilegra en skráarkerfi Windows. Að því slepptu finnur notandinn ekki mikinn mun.“ Allar Macintosh-tölvur eru meö SCSI diskstýringu og sjálfvirkri að- lögun að þeim skjá sem tengdur er við hana. Þá er hljóðkort innbyggt í þær allar og hljóðnemi fylgir. Einnig hefur nettengi verið hluti allra Mac- intosh-tölva nær því frá upphafi. „Örgjörvi Macintoshtölva er oftast nær af gerðinni 68030 eða 68040. Sá síðarnefndi er mun öfiugri og sé verðið viðráðanlegt er mælt með því að hann sé vahnn þegar tölva er keypt. Með vorinu kemur ný kynslóð örgjörva, PowerPC, í Macintostölv- ur. Hann getur keyrt bæði Windows- og Macintoshforrit sem hlýtur að teljast mikill kostur auk þess sem hann er mun öflugri en sú fjölskylda örgjörva sem nú er notuð.“ Macintosh-tölvur geta lesið gögn af PC-disklingum með viðeigandi for- riti (fylgir með tölvunni). Mörg for- rit, eins og t.d. Word, laga sjálfkrafa mismun á íslenskun tákna í Windows og Macintosh þannig að hægt er að nota sömu skjölin á báð- um gerðum. Ella þarf sérstök breyti- forrit til. Nokkurholl ráð við tölvukaup Halldór segir valið á milli Macin- tosh og PC oft ráðast af því sem vin- ir og kunningjar ráðleggja, svo og hvað kaupandinn þekkir. Hann gerir ekki upp á milli þessara megingerða en bendir lesandanum á að kynna sér hvort tveggja og gera síðan upp hug sinn. Að lokum gefur Halldór lesendum nokkur holl ráð áður en þeir fara í tölvukaupaleiðangur, að því gefnu að tæknileg atriöi og verö séu innan þeirra marka sem kaupandinn sæk- ist eftir. - Skoðið skjáinn vel og prófið nokk- ur forrit á meðan. Þið finnið strax hvort ykkur líður vel við skjáinn. - Prófið hnappaborðið og músina. - Hlerið hvort kælivifta og diskur eru hávær. Það er fátt sem veldur meiri streitu en hávaði frá tölvu. - Fáið að prófa helstu forrit í tölv- unni og sjáið hversu lengi þau eru að koma fram á skjáinn, svo og hvort vinnsla þeirra er hæg. - Kynnið ykkur hvemig þjónustan er, hvað viðgerðir kosta og spyijið aðra um reynslu þeirra af þeim aðila •sem þiö eruð að eiga viðskipti við. -hlh Hvað er Local Bus? Grafíkin er mun fljótari á skjáinn Þeir sem huga að tölvukaupum þessa dagana rekast ekki einungis á hærri tölugildi varðandi vinnslugetu og vinnsluhraða tölva heldur einnig nýtt hugtak sem tölvusalar eru þegar famir að flagga í auglýsingum. Þetta hugtak er Local Bus. Hugtakið er nýtt fyrir flestum og þýðing þess hulin enn fleirum. Til að útskýra hvað Local Bus ger- ir án þess að notast við of mikið af tölum og sérhæfðum tækniorðum er best að taka dæmi af grafískri vinnslu í tölvu. Segjum að tölvunot- andi sé að vinna við teikningu í graf- ískari vinnslu á tölvunni sinni. Hann gefur tölvunni skipun um að ná í teikinguna. Gerum ráð fyrir að hann noti tölvu með 486 örgjörva og 33 megariða (MHz) sveiflutíðni. Tölvan sjálf, örgjörvinn, er tiltölulega fljót að ná í skjahð og skila því frá sér. Hins vegar virðist skjárinn ekki vinna í sama takti og líður því smá- tími frá því tölvan hefur lokið sér af og þar til teikningin er öll komin á skjáinn. Það kannast til dæmis marg- ir við þaö þegar teikningar em að birtast í smáskömmtum á skjánum. Ástæða þessa er sú að gagnabraut- in í tölvunni, baeði milli haröa disks- ins og örgjörva og örgjörva og skjás- ins, er ekki nógu öflug. Á gagna- brautinni myndast því eins konar flöskuháls í flæði upplýsinga. Við- komandi getur til dæmis verið með svokallaða ISA-tengirauf fyrir gagnaflutninga. Tiftíðnin er 12 mega- rið (MHz) og flutningsgetan aðeins 16 bita. Með Local Bus verða tengibraut- imar hins vegar öflugri. Tiftíðnin er sú sama í tölvunni (33, 40, 50 eða 66 MHz) og flutningsgetan 32 bita. Þá er grafiskur hraðall í skjákortinu. Flöskuhálsinn, sem tafði fyrir birt- ingu mynda á skjánum minnkar verulega eða hverfur alveg þar sem flutningsgeta og flutningshraði gagna hefur stóraukist. Meö tilkomu tölva með Pentium örgjörva kemur svokallaður PCI-Bus sem tryggir enn öflugri gagnaflutn- inga og enn hraðari birtingu mynda á skjáum. Local Bus er ekki einungis eitt- hvert sölutrix tölvusala heldur fyrir- bæri sem skiptir máli í tölvuvinnu, sérstaklega þegar um gafíska vinnslu eraðræða. -hlh örgjörvar snar Pentium örgjörvinn frá Intel er nýjasti og öflugasti örgjörvi fyrir tölvur á markaönum í dag. Hann er mun öflugri en 486 örgjörvar sem eru í nær öllum nýjum tölvum sem seldar eru og þóttu meiriháttar öflugir fyrir aðeins ári. En hlutim- ir gerast hratt i tölvuheiminum. Þannig er ekki lengra síðan en í haust að sett var samasemmerki á milh Pentíum örgjörva og svim- andi ; hárra peningaupphæða. Þurfti að gefa hátt í bílverð fyrir tölvu með slíkum munaði. En síðan hefur verðið á tölvum með Pentium örgjörva hrapað verulega, mun hraðar en menn áttu von á. Þannig heyrðust upp- hæðir eins og 800 þúsund þegar Pentium-tölvur bar á góma í haust. En 1 dag hefur hefur 500 þúsund króna gólfið þegar verið sprengt. Sem dæmi má nefna að fá má LEO-tölvu (frá ACO) meö 64 bita Pentium örgjörva á 490 þúsund krónur staðgreitt. Tölvan sú heitir LEO Predator. Klukkuhraöinn er 60 Mhz og vinnsluminnið 16 MB (stækkanlegt í 96MB). Þá eru í tölv- unni þijár 16 bita ISA tengiraufar og þrjár 32 bita PCI tengiraufar (öflugri en Local Bus) og eins giga- bæta (1GB) haröur diskur svo eitt- hvaö sé nefnf. í danska tímaritinu HI-FI & elektronik í janúar mátti eínnig lesa að Cornpaq Deskpro XE 560 með Pentium örgjörva, 8 MB vinnsluminni, 270 MB harðdisk og innbyggðu hljóðkorti mátti fá á tæpar 35 þúsund danskar krónur eða um 350 þúsund íslenskar. Ef fram heldur sem horfh' má búast við enn frekari verðlækkun- um á Pentium örgjörvanum á næstumisserum. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.