Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994 27 Tækrii - Tölvur Bridge-sýningarkerfi: Erlendir aðilar hafa sýnt kerfinu mikinn áhuga - segir Kristján Hauksson tæknifræðingur íslenskt ' i)ridge-sýningarkerfi hefur vakið mikla athygli víða um heim og líklegt þykir að kerfið verði notað á opna heimsbikarmót- inu sem haldið verður í Albakirke í Bandaríkjunum hæsta haust. „Kerflð var notað á heimsmeist- aramóti imghnga sem haldið var í Árósum í Danmörku í ágúst sl. og á mótinu lýsti Ib Lundby, fram- kvæmdastjóri mótsins, því yfir að í kerfinu væri langbesta grafíska framsetning sem hann hefði séð,“ sagði Kristján Haukson, tækni- fræðingur og einn af hönnuðum kerfisins. „Jafnframt voru starfs- menn mótsins mjög ánægðir með kerfið og má nefna að ritstjórar mótsblaðsins gátu fylgst með leikj- um á sinni tölvu um leið og þeir skrifuðu í mótsblaðið. í kjölfar þessa keyptu svo bridgesambönd Danmerkur og Noregs kerfið.“ Að sögn Kristjáns er kerfið, sem er sérstaklega sniðið sem sýningar- kerfi fyrir bridgemót, notað til að Kristján Hauksson tæknifræðingur með bridgekerfið sem hefur vakið mikla athygli víða um heim. DV-mynd Brynjar Gauti. sýna útspil í einstökum spilum um leið og þau eru spiluð. Einnig er í því gagnagrunnur sem geymir öll spil mótsins og jafnframt heildar- stööu á mótinu og skor í einstökum leikjum. Á þennan hátt geta áhorf- endur fylgst mun betur með fram- gangi mótsins. Kerfið er keyrt á netkerfi og hægt er að hafa tölvu við hvert borð þar sem slegnar eru inn sagnir og úr- spil jafnóðum. í sýningarsal er hægt að sýna þá leiki eöa þau spil sem áhugaverðust þykja hverju sinni. Útlit skjámynda er mynd- rænt og er þeim varpað á sýningar- tjald. Ekki eru takmörk fyrir því hversu stór mót kerfið ræður við og mögulegt er að sýna í mörgum sýningarsölum samtímis. Hönnuðir kerfisins auk Kristjáns eru þeir Þorsteinn Sverrisson hjá Verk- og kerfisfræðistofunni og Valgarður Guðjónsson. -KMH Hrað- virkur leysi- prentari Nú býöur ACO hf. upp á hrað- virka leysiprentara frá Compaq sem prenta í tvenns konar stærð- um, A3 og A4, með 800 x 400 punkta upplausn. PaqeMarq prentararnir hafa fengið góða dóma hjá BYTE og PC-Magazine sem völdu þá bestu teikni- og umbrotsprcntara á markaönum. Prentararnir prenta annars veg- ar 15 síður á mínútu og hins veg- ar 20 síður á mínútu. Innbyggt i þá er PostScript Level 2, PCL 5, 43 Outline letur, 4 MB í minni, 500 síðna pappírsbakkar og margt fleira, -KMH Tengir allt að 6 prentara við lótölvur Meðal nýjunga frá fyrirtækinu urinn er einnig tengibox sem tengist Primax er svokallaður PrinterNet á samhliðatengi (parallel centronics) sem gerir mönnum kleift að tengja prentarans. allt að 6 prentara við 16 tölvur. Þessi Kosturinn við þennan búnað er að búnaöur hefur mikið verið notaður ekki þarf að nettengja vélamar til þegar samnýta á t.d. einn geisla- þess eins að samnýta prentara, ekki prentara og nálaprentara við nokkr- þarf flókin skiptiborð, hægt er að ar tölvur. Sendibúnaðurinn er lítið bæta við tölvur og prentara hvenær tengibox sem er sett á samhliðatengi sem er og ekki er nein 7m takmörkun (parallel) tölvunnar. Tengiboxin eru á að tengja prentara við samhliða- síðan raðtengd með venjulegum íjög- tengi. urra víra símakapli. Móttökubúnað- -KMH MICROSOFT WINDOWS ADVANCED SERVER 3.1 Fullkomib netstýrikerfi B Ótakmarkaöur fjöldi notenda 2 32 bita fjölvinnslukerfi 3 Fjarvinnsluþjónusta (RAS-64) t: Macintoshþjónusta (255 vélar) 5 Umdæmisstjórnun (Domain Control) 6 RAID-5 diskastýring Á sérstöku tilboösverði til 31. mars 1994 aöeins kr. 159.906 með vsk. EINAR J. SKÚLASON HF Grensásvegi 10, Sími 63 3000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.