Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994
5
Fréttir
Gler féll niður í íþróttahúsi Fellaskóla:
■ ■
Oryggisnet
undir rúður
- sama gert við rúður í 2-3 öðrum húsum
„Það komu hér sérfræðingar og
þeir gerðu sína skýrslu sem var send
samdægurs áfram til Skólaskrif-
stofu. Eg geri ráð fyrir að gengið
verði í þetta á næstu dögum. Vinnu-
eftirlitinu þótti eðlilegt að koma upp
öryggisnetum. Annað veit ég ekki
um málið en að það er í fullri vinnslu
eins og eðlilega á að vera ef einhver
ábending kemur,“ segir Örlygur
Richter, skólastjóri í Fellaskóla.
Eins og greint var frá í DV síðástliö-
inn mánudag hafa svokölluö skúffu-
gler í íþróttahúsi Fellaskóla átt til að
falla niður á gólf og brotna þar.
„Það hefur ekki verið kannað sér-
staklega með gler í íþróttahúsum
annarra skóla. Við höfum gert yfir-
gripsmikla úttekt á skólum undan-
farið og það hafa verið unnar tals-
verðar endurbætur í kjölfar þeirrar
úttektar, m.a. í Fellaskóla.," segir
Gylfi Már Guðjónsson, tæknifulltrúi
hjá Vinnueftirliti ríkisins.
Viktor Guðlaugsson hjá Skóla-
skrifstofu Reykjavíkurborgar segir
að nú sé unnið að því að hanna og
finna út hvernig best verði að úrbót-
um staðið. Hann býst við að það taki
ekki nema nokkra daga og þá verði
gengið í verkið. Hann segir að jafn-
framt verði svipaðar úrbætur unnar
á tveimur til þremur öðrum íþrótta-
húsum sem heyri undir Skólaskrif-
stofuna.
-PP
Sigurður Óli Kristinsson ásamt keppnishestinum Verðandi sem taglklipptur
var í skjóli nætur. DV-mynd Kristján Einarsson
Illa farið með keppnishest á Selfossi:
Taglið klippt í
skjóli nætur
Kristján Einarsson, DV, Selfossi:
„Einn morguninn þegar ég kom í
hesthúsið var búið að kiippa af tagl-
inu af hestinum og hirða það sem
klippt var af. Það sáust engin hár!í
hesthúsinu. Ég held að það sé engin
tilviljun aö taglið skyldi klippt ein-
mitt af þessum hesti. Það er eins og
einhver vilji eyðileggja fyrir mér svo
ég komist ekki með hestinn á keppn-
ismót,“ sagði Sigurður Óh Kristins-
son, nemi í Fjölbrautaskóla Suður-
lands og eigandi hestsins Verðandi.
Verðandi þykir efnilegur keppnis-
hestur og hefur uniúð til verölaima
á þeim mótum sem hann hefur tekið
þátt í til þessa. Sigurður er gáttaður
á þessu háttalagi en svo virðist sem
einhver hafi gert sér ferð í hesthúsið
aö næturlagi til til þess eins að khppa
taghð af hestinum. Hefur verknaður-
inn vakið óhug meðal hestamanna
og honum líkt við níðingsverk.
„Svona taglkhpping gengur vænt-
anlega ekki vel í hestadómara en ef
til vill get ég lagað þetta með þvi að
skeyta gervihárum við íaglið eða þá
afleggjara frá öðrum hesti sem ekki
feríkeppnir,“segirSigurður. -hlh
Dalvík:
Framsókn vill bjóða fram sér
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyri;
Framsóknarflokkurinn á Dalvik
hefur dregið sig út úr viðræðum
vinstri manna í bænum um sameig-
inlegt framboð við bæjarstjómar-
kosningamar í vor.
Viðræður Framsóknarflokks,
Þjóðarflokks, Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og F-hsta hafa staðið yfir
að undanfómu. Þær vom komnar
vel á veg að sögn viömælanda DV en
Framsóknarflokkurinn ákvað að
draga sig út úr viðræðunum og bjóða
fram sér.
Dalvíkingar hafa ekki farið hefð-
bundnar leiðir í framboðsmálum og
sem dæmi um það má nefna að við
síðustu bæjarstjórnarkosningar
komu fram fjögur framboð. Sjálf-
stæðismenn og óháðir fengu 3 bæjar-
fuhtrúa kjörna, Framsóknarflokkur-
in og vinstri menn tvo bæjarfuhtrúa,
Félag jafnaðarmanna einn bæjarfuh-
trúa og sérframboö kom einum
manni að.
FLUGLEIDIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldtnn fimmtudaginn 17. mars
1994 í efri þingsölum-Hótels Loftleiða og hefst kl 14.00.
Dagskra:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins.
2. Onnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins, Reykjavíkurflugvelli, hlutabréfadeild á 2. hœð frá og meS 10. mars kl.
14:00. Dagana 14. til 16. mars verða gögn afgreidd frá kl 09:00 til 17:00 og
fundardag til kl. 12:00.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja fundargagna sinna fyrir kl. 12:00 á
fundardegi.
Stjórn Flugleiða hf.
30 InísiiihI hver.
63 27 00
Ódýrar og gagnlegar fermingargjafir:
Dagana 18. til 26. febrúar
er útsala á öllum vörum
í verslun Seglagerðarinnar.
Seglagerðin Ægir er í
fremstu röð verslana,
sem býður úrvals ferðaútbúnað
fyrir alla fjölskylduna.
^ends
Fatnaður, svefnpokar, tjöld,
skór, sólhúsgögn, o.fl.
írm
er tækifærið!
.þar sem ferðalagið byrjar!
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLOÐ 7 101 REYKJAVIK S. 91-621780