Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Blaðsíða 24
40 MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994 Sviðsljós í hringiðu helgarinnar íslandsmeistarakeppnin í gömlu dönsunum og rokkdönsum var haldin í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ á sunnudag. Þar mátti sjá unga jafnt sem þá eldri dansa gömlu dansana og rokka af mikilli innlifun. Sigrún 0. Björgvinsdóttir og Jóhann G. Arnarson voru gesta- dansarar'a keppninni og glöddu augað með glæsUegum tilþrifum. Steinn Gunnarsson og Eyþór Stef- ánsson ræða hér um sýningu þess síðamefnda sem opnuð var í Lista- safni ASÍ á laugardag. Lesendur DV þekkja Eyþór líklega best af myndagátunum sem birtast á hverjum degi á síðum blaðsins. íslenska kvenþjóðin byijaði að halda upp á konudaginn strax á föstudagskvöld í Casablanca. Þar voru á meðal gesta þær stöllur Anna Mjöll Ólafsdóttir og Guðrún Elísabet Arnardóttir sem ætluðu að nota alla helgina til að halda upp á þennan ágæta dag. Það var margt um manninn á free- stylekeppninni í Tónabæ á föstu- dagskvöldið, þar á meðal voru hin- ir hressu drengir Stebbi og Steini og mátti vel sjá að þeir skemmtu sér hið besta. Á Kjarvalsstöðum voru opnaðar þijár nýjar myndlistarsýningar á laugardag. Þar eru til sýnis verk eftir þær Ragnheiði Jónsdóttur í vestursal og Sólveigu Aðalsteins- dóttur í miðsal en í austursal, þar sem gefur að líta verk eftir meist- ara Kjarval, voru þeir Guðmundur Karl Ásbjörnsson myndlistarmað- ur og Alfreð Guðmundsson, fyrrv. forstöðumaður Kjarvalsstaða. Þeir voru saddir og sælir í Leikhúskjallaranum á laug- ardag þeir Þórarinn Sigurðsson, Árni Johnsen alþing- ismaður, Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor við Há- skóla íslands, Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum, og Omar Garðarsson, fréttaritari DV í Vestmannaeyjum, þegar boðið var upp á kúttmagahá- degi með hausastöppu og öllu tilheyrandi. Agústa Ragnarsdóttir, Björg Har- aldsdóttir og Fríða Eyjólfsdóttir j voru í Naustkjallaranum á laugar- j dag þegar leikhópurinn Þormaguð j frumsýndi einþáttungana Besta j volga bjórinn í bænum og Nætur í I Stefania Sörheller færði vinkonu sinni, Sólveigu Aðal- Hafnarfirði. Þeim stöllum fannst I steinsdóttur, blóm í tilefni af opnun sýningar hennar það góð tilbreyting að sjá leiksýn- á Kjarvalsstöðum á laugardag. Auk sýningar Sólveigar ingu á bar og í raun miklu voru opnaðar sýningar á verkum Ragnheiðar Jóns- skemmtilegra en að fara í leikhús. dóttur og Kjarvals. í diskóbúrinu í Tónabæ á föstudag réðu ríkjum þeir Magni og Steindór en Magni átti 18 ára afmæh þann dag og sungu allir áhorfendur á freestyle-keppninni afmælissönginn fyrir hann undir styrkri stjóm Páls Óskars Hjálmtýssonar sem var kynnir kvöldsins. Undanfama mánuði hefur verið lífleg dagskrá fyrir böm á hverjum sunnudegi í Norræna húsinu. Um þessa helgi var Inger Christiansen, alþýðutónlistarmaður frá Danmörku, með bömunum þar sem hún fór með þeim í leiki, dansaði og spilaði tónlist og eftir það var boðið upp á kvikmyndasýningu. Vinimir Sigurvin Bjarnason, Reynir Georgsson og Hallgrímur Vignir Jónsson létu sig ekki vanta í Ing- ólfscafé um helgina en þá var bryddað upp á þeirri nýbreytni að hafa söng og píanómúsík á efri hæðinni en á þeirri neðri var það danstónlistin sem réð ríkjum. Olga Lilja 'var meö föðursystur sinni, Bergþóru Guðrúnu, að skoða verk frænku sinnar, Erlu Þórarins- dóttur, í-Nýlistasafninu á laugar- dag. Þegar DV bar að garði vom þær að skoða módel sem vom í öll- um regnbogans litum og freistandi að koma við. Áhorfendur leyndu ekki gleði sinni er Páll Óskar Hjálmtýsson tii- kynnti hver hreppt hafði íslands- meistaratitil unglinga í einstakl- ingskeppni freestyle. Það var Margrét Takyar frá Reykjavík sem kom, sá og sigraði með tilþrifamikl- um dansi við lagið Play Dead með Björk. Þær Aðaíbjörg Hjartardóttir og Hafdís Engilbertsdóttir voru á árs- hátíð Flugleiða á föstudag en þær em í einu af eftirsóttustu störfum þjóðarinnar - flugfreyjur. Páll Sigurðsson hefur verið ráðu- neytisstjóri í heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytinu í langan tíma og þó ráðherrar komi og fari þá er hann á sínum stað. Páll og kcna hans, Guðrún Jónsdóttir geðlækn- ir, voru á árshátíð ráðuneytisins sem haldin var í Hraunholti á föstudagskvöld. Jóhanna Sigrún tekur hér við rós frá Sævari sem var herramaður kvöldsins í Casablanca á föstudags- kvöld þegar hann færði hverri konu rós og tók þannig forskot á konudaginn sem var á sunnudag. Guðmundur Árni Stefánsson, heil- brigðis- og tryggingaráöherra, og eiginkona hans, Jóna Dóra Karls- dóttir, gerðu sér glaöan dag ásamt öðmm starfsmönnum ráðuneytis- ins í Hraunholti á föstudagskvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.