Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Blaðsíða 28
44 MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994 Metur ekki líf ríkisstjórna Ekki mitt að meta „Ég starfa ekki á grundvelli þess aö meta líf ríkisstjórna. Ég met málefnin," segir Egill Jóns- son, alþingismaður og formaður landbúnaðamefndar, í DV á föstudag. Aðhika er sama og tapa „Ég tel einnig að hver sá lands- byggðarþingmaður sem ætlar að Ummæli dagsins bakka í þessu máli fyrir krötun- um þurfi ekki að hugsa til þess að ná kjöri við næstu alþingis- kosningar," sagði Egill ennfrem- ur um þetta mál. Hélt við myndum deyja „Ég var í sjokki og hélt fyrst að við myndum deyja og Inga væri dáin. Biðin, meðan krakkarnir sóttu hjálp, var löng og það var hræðilegt þegar flutningabíll ók fram hjá án þess að bílstjórinn tæki eftir okkur. Ég reyndi þó að veifa og veifa,“ sagði Guðrún Ingimundardóttir en bíllinn sem hún ók með þijá farþega fór tíu metra niður bratta hlíð. Hef ekki tíma til að fara í varðhald „Ég get ekki myndað það sem ég má ekki mynda - þeir em bún- ir að senda skeyti og það er bara handtaka og varðhald og ég veit ekki hvað og hvað. Ég bara má ekki vera að því að fara í varð- hald á meðan það kostar milljón á dag að halda þessu kvikmynda- tökuhði úti,“ segir Friðrik Þór Friðriksson sem bíður með her manns eftir að Náttúruverndar- ráð gefi grænt ljós á tökur í Skaftafelli. Trúarleg umhyggja og hjálp Þurfa kristnir einstaklingar trúarlega umhyggju og hjálp? Það er yfirskrift fundar hjá Kristilegu félagi heilbrigðisstrétta í kvöld kl. 20.00 i Saftiaðarheimili Laug- arneskirkju. Gestur fundarins er séra Ólafur Felixson, prestur í Hirsthals í Danmörku. Þýðendakvöld Á vegum Listaklúbbs Þjóðleik- Fundir húskjallarans munu þýðendur lesa úr þýðingum sínur. Þeir þýð- endur sem lesa eru Atli Magnús- son, Álfheiður Kjartansdóttir, Friðrik Rafnsson, Sigurður Páls- son og lesið verður úr þýðingu Franzisku Gunnarsdóttur. ITC-deildin Ýr heldur fund í Síöumúla 17, sal Frímerkjasafnara, kl. 20.30. Fundarefni: Ræöukeppni. Fund- urinn er öllum opinn, gesiir vel- komnir. Upplýsingar gefa: Jóna, s. 672434, og Unnur, s. 72745. Safnaðarfélag Hjallakirkju verður með fræðslufund i kvöld kl. 21.00. Séra Birgir Ásgeirsson sjúkrahúsprestur flytur erindi sem hann nefnir „Snerting“. Kaffiveitingar. Stinningskaldi syðst Það verður fremur hæg suðaustan- eða breytileg átt um allt land í fyrstu en þegar kemur fram á daginn verð- Veðriðídag ur austankaldi eða stinningskaldi syðst á landinu og við sunnanverðan Faxaflóa. Áfram verða skúraleiðing- ar með suður- og austurströndinni en víðast bjartviðri norðan- og vest- anlands. Hiti verður víðast 1 til 4 stig yfir daginn en víða næturfrost norð- anlands og vestan. Sólarlag í Reykjavík: 18.21 Sólarupprás á morgun: 9.00 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.08 Árdegisflóð á morgun: 03.42 Véðrið kl. 6 i morgun Veðrið kl. 6 I morgun: Akureyri léttskýjað 1 Egilsstaðir rigning 3 Galtarviti alskýjað 3 KeflavíkurílugvöUw hálfskýjaö 3 Kirkjubæjarklaustw léttskýjað 4 Raufarhöfn léttskýjaö 1 Reykjavík skúr 3 Vestmannaeyjar skúr 4 Bergen léttskýjað -4 Helsinki snjókoma -11 Ósló skýjað -6 Stokkhólmw komsnjór -7 Þórshöfn alskýjað 4 Amsterdam þokumóða -8 Berlín þokumóða -3 Chicago alskýjað 1 Feneyjar þokumóða 1 Frankfurt þokumóða -6 Glasgow léttskýjað -3 Hamborg snjókoma -4 London skýjað -1 LosAngeles léttskýjað 12 Lúxemborg heiðskirt -9 Madríd hálfskýjað 1 Malaga léttskýjað 7 Mallorca léttskýjað 7 Montreal alskýjað 7 New York alskýjað 11 Nuuk snjókoma -8 Orlando þoka 18 París þokumóða -8 Vín skýjað r-5 Washington skýjað 10 Winnipeg heiðskírt -24 SteinunnV. Óskarsdóttir, starfskona Kvenfélagasambands íslands: „Þegar ég byijaði í sagnfræðinni ákvað ég að eínbeita mér í sögu kvenna og barna. Þeita eru þættir í sögunni sem ekki hafa verið skoð- aöir fyrr cn síðustu ár. Konur sem kalla sig ' kvennasagnfræðinga horfa á söguna með „kvennagler- augunum" sínum,“ segir Steinunn Maðux dagsjns V. Óskarsdóttir, BA i sagnfræði, sem skipar 7. sætið á R-listanum í Reykjavík. Steinunn var fulltrúi Kvennalistans í undirbúningsvið- ræðum fyrir sameiginlega fram- boðið. Steinunn er starfskona Kvenfé- lagasambands íslands. Áður var hún formaöur Stúdentaráðs HÍ og framkvæmdastjóri árið ’91-92. Að loknu námi hellti hún sér í starf Steinunn V. Oskarsdóttir. með Kvennalistanum. Steinunn er gift Ólafi Haralds- syni leikhús- og bókmenntagagn- rýnanda. Hún er 28 ára gömul og yngst afþeim efstu á listanum. Hún segist hafa gaman af að fara í leik- hús en vegna anna hafi hún ekki gert eins mikið að því í vetur og áður. „Ég hof sjálf aldrei stigið á leik- svið, iæt aðra um það,“ segir hún aðspurö. „Eg hefaliatíð verið mikill frétta- fikill og hef gaman af að stúdera fjölmiðlana. Fjölmiðlar hér á landi eru mjög einslitir og margir hverjir standast ekki þær kröfur sem mað- ur gerir til góðrar fréttamennsku. Þar á ég sérstaklega viö umíjöllun um konur, ekki síst konur í stjórn- málum.“ -JJ Myndgátan Umrenningur Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. vægur leikur í körfu Einn leikur verður í 1. deild : karla i körfu. Leikurinn cr á milli ÍS og Leiknis og er í íþróttahúsi fþróttiríkvöld Kennaraháskólans kl. 20.00. Hvort lið er í þríðja sæti í sínum riðli. Leiknismenn eiga mciri möguleika í sínum riðli þar sem færri stig skiija þá og næsta lið Skák Augljós þreytumerki eru á tafl- mennsku keppenda í fyrstu umferðum íslandsbankamótsins á Akureyri eflir strangt Reykjavíkurskákmótið. í 2. um- ferð kom þessi staða upp í skák stórmeist- aranna Jóhanns Hjartarsonar, sem hafði svart og átti leik, og Margeirs Pétursson- ar. Siðasti leikur Margeirs, 21. Rf3-el? var afar slæmur: 21. - b3! Nú kemst hvítur ekki hjá því að tapa liði því að hrókurinn á engan góðan reit. Ef 22. Hd2 Bb4 ogógnar hrók og riddara; eða 22. Hcl e5 23. Dd2 (ef 23. Dh4 Bxf2+ 24. Hxf2 Hxcl) Bb4 og aftur fellur maður. Eftir 22. Hc3 Bxg2 23. Kxg2 Rd5 24. De4 Rxc3 25. bxc3 b2 vann Jó- hann auðveldlega. jón L. Árnason Bridge Hvert spil getur átt margar sögur. Þetta spil birtist 1 dálkinum síðasfliðinn mið- vikudag og sagði þar frá því hvemig Ás- grímur og Jón Sigurbjömssynir lentu í fimm hjörtum dobluðum á a-v hendumar og stóöu sex. Sigurður Vilhjálmsson og Guðmundur Sveinsson fengu mjög góða skor í n-s í þessu spili en sagnir gengu þannig hjá þeim, austur gjafari og enginn á hættu: . _ ♦ D8 V 6 ♦ KD106 + ÁK10863 * G9752 V Á953 ♦ 8 + D75 * 43 V K * ÁG9732 * G942 Austur Suður Vestur Norður pass 2+ 3? dobl pass 3 g pass 4+ pass 4* pass 4 g pass 5♦ p/h V DG108742 ♦ 54 Tveggja laufa opnun Guðmundar Sveins- sonar í suður var svokölluð fjöldjöfuls- opnun sem gat lýst veikri hendi með tig- ul, veikri hendi með háhti eða sterkri jafnskiptri hendi. Eölilegt hefði verið fyr- ir vestur að stökkva beint í fjögur hjörtu, en vestur ákvað hins vegar aö fara rólega í sakimar og lét sér nægja að stökkva í þrjú. Dobl norðurs var úttekt (nema opn- un suðurs lofaði hálitum en þá átti að breyta doblinu í refsingu) og Guðmundur valdi þá að segja 3 grönd sem undir venjulegum kringumstæðum hefði lofaö sterkri jafnskiptri hendi. Sigurði kom til hugar að stökkva beint í 7 lauf en ákvað að fara hægt í sakimar og segja fyrst fjög- ur lauf. Eftir fjóra tígla suðurs spurði Sigurður um ása með fjórum gröndum og eftir fimm tígla svar Guðmundar (einn ás) var ljóst að opnun Guðmundar var veik með tígullit. Það varö lokasamning- urinn og fór tvo niður, 110 til a-v. Þar sem allt aö sex hjörtu standa á hendur a-v, reyndist það nánast toppur til Sigurðar og Guðmundar. jsak öm Sigur*ðss0n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.