Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994
??= Útboð
F.h. Malbikunarstöðvar Reykjavíkurborgar er óskað eftir
tilboöum í 13.300-17.600 tonn af asfalti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 14. apríl
1994, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800
||| Útboð
F.h. garðyrkjustjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum
í gerð malargötu og að leggja jarðvatnslagnir I 4. áfanga
kirkjugarðsins í Gufunesi.
Um er að ræða 427 m malargötu og u.þ.b. 2.080 m af
lögnum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8. mars
1994, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Útboð
F.h. Byggingadeiidar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í lóðarframkvæmdir við leikskólann Funafold 42.
Helstu magntölur:
Malbik:
Hellulagnir:
Grassvæði:
Gróðurbeð:
Malarsvæði:
800 m2
700 m2
1.750 m2
600 m2
550 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 3. mars
1994, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simj 25800
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavik, 2. hæð, sem hér seg-
ir, á eftirfarandi eignum:
Suðurhlíð 35, 0001, þingl. eig. db.
Magnúsar Sigurjónssonar, gerðar-
beiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík,
25. febrúar 1994, kl. 10.00.
Suðurhlíð 35, 0002, þingl. eig. db.
Magnúsar Sigurjónssonar, gerðar-
beiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík,
25. febrúar 1994, kl. 10.00.
Suðurhbð 35, 0101, þingl. eig. db.
Magnúsar Sigurjónssonar, gerðar-
beiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík,
25. febrúar 1994, kl. 10.00.
Suðurhlíð 35, 0102, þingl. eig. db.
Magnúsar Sigurjónssonar, gerðar-
beiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík
og Húsasmiðjan hf., 25. febrúar 1994,
kl. 10.00._________________________
Suðurhlíð 35, 024)203, þingl. eig. db.
Magnúsar Sigurjónssonar, gerðar-
beiðendur Húsasmiðjan hf. og Sölufé-
lag garðyrkjumanna, 25. febrúar 1994,
kl. 10.00._________________________
Suðurhlíð 35, 0202, þingl. eig. db.
Magnúsar Sigurjónssonar, gerðar-
beiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík
og Húsasmiðjan hf., 25. febrúar 1994,
kl. 10.00._________________________
Þykkvibær 13, þingl. eig. Freydís
Bjömsdóttir, gerðarbeiðandi Vélar
hf., 25. febrúar 1994, kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Dalsel 3, þingl. eig. Eyvindur Sigur-
finnsson og Arma Garðarsdóttir, gerð-
arbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins,
húsbréfadeild, Búnaðarbanki Islands,
Krani sf. og Sameinaði lífeyrissjóður-
inn, 25. febrúar 1994, kl. 15.00.
Fífusel 37, ris t.h., þingl. eig. Gísh
Pálsson, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins, húsbréfadeild, og
Gjaldheimtan í Reykjavík, 25. febrúar
1994, kl. 15.30._________________
Flúðasel 88, 3. hæð t.h. m.m., þingl.
eig. Hólmbjörg Vilhjálmsdóttir, gerð-
arbeiðendur Byggingarsjóður ríkisms
og Ásgeir Magnússon, 25. febrúar
1994, kl. 14.00._________________
Háaleitisbraut 18, 034)1, þingl. eig.
Svafar Vilhjálmur Helgason, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins
og Gjaldheimtan í Reykjavík, 25. fe-
brúar 1994, kl. 11.00.
Jöklasel 7, þingl. eig. Eiður Helgi Sig-
urjónsson, gerðarbeiðendur Bygging-
arsjóður rflcisins, Búnaðarbanld Is-
lands,^ Lífeyríssjóður Verkfræðingafé-
lags íslands, Unger Fabrikker A/S,
íslandsbanki hf. og íslandsbanki hf.
Hafiiarfirði, 25. febrúar 1994, kl. 14.30.
Tungusel 1, 014)2, þingl. eig. Halldór
Guðnason, g:erðarbeiðendur Bygging-
arsjóður ríkisins og íslandsbanki hf.,
25. febrúar 1994, kl. 16.00.
SÝSLUMAÐURINNIREYKJAVÍK
Utlönd
- segir kvikmyndaleikkonan Sophia Loren
ítalska kvikmyndaleikkonan Sophia
Loren sagði á kvikmyndahátíð í Berl-
ín nýlega, þar sem hún var heiðruð
fyrir störf sín í kvikmyndum, að allt
of mikiö af óþarfa kynlífi og ofbeldi
væri í myndum í dag.
Loren, sem fékk gullna bjöminn á
hátíðinni, sagði að kvikmyndafram-
Italska kvikmyndaleikkona Sophia Loren, sem nýlega fékk gullna björninn
í Berlín, óttast áhrifin sem óþarfa ofbeldi og kynlíf í kvikmyndum hefur á
börn. Símamynd Reuter
Óveöur í Suöur-Kaliforníu:
Þrír fórust og
tugir manna yf
irgáf u hús sín
Þrír létust í bílslysi í Los Angeles
í Kalifomíu í gær þegar kröftugur
stormur reið yfir og olli gífurlegum
flóðum og aur. Rafmagn fór af og
neyðarástand skapaöist þegar götur
lokuðust og íbúar komust ekki úr
húsum sínum í langan tíma.
Stormurinn, sem reið yfir rétt fyrir
kvöldið, kom algerlega á óvart og það
gerði hjálparmönnum enn erfiðara
fyrir. Ástandið varð verst á Malibu-
strönd þar sem ríka fólkið býr en þar
urðu mikil flóð og aur mjög mikill
og tugir manna neyddust til að yfir-
gefa hús sín.
Alls urðu 75 árekstrar á stærstu
hraðbrautunum og þrír menn létust.
Einn maður lést er hann missti stjóm
á bíl sínum og kastaðist út úr honum.
Tveir aðrir létust þegar stór stjóm-
laus trukkur rakst harkalega á bíl
þeirra og gjöreyðilagði.
Hraðbrautimar voru enn slæmar
eftir jaröskjálftann sem var í Los
Angeles þann 17. janúar sl. sem
mældist 6,8 á Richter. 60 manns fór-
ust í þeim skjálfta og flestar hrað-
brautir og vegir eyðilögðust.
Los Angeles búar hafa þurft að
þola miklar náttúruhamfarir und-
anfarið en stutt er síðan miklir skóg-
areldar geisuðu og eyðilögðu þús-
undir heimila.
Upp á síðkastið hafa íbúar síðan
verið að berjast við mikinn aur og
leðju sem verið hefur á svæðinu.
Stormurinn sem reið yfir í gær varð
ekki til þess að bæta ástandið.
Margir íbúar Los Angeles hafa
fengið sig fullsadda af öllum náttúm-
hamfómnum og vilja nú ólmir flytja
burt ftá Kaliforníu. Reuter
lyfjasmyglarar
Tuttugu eiturlyfjasmyglarar
voru drepnir í áhlaupi írönsku
leyniþjónustunnar í Sistan-
Baluchestan, nálægt landamær-
um Pakistan, á laugardag. í þess-
um aögeröum særðust ellefu en
á annað hundrað manns voru
handteknir. Að sögn yfirmanns
lögregiunnar náðust 3.287 kfló af
ópíum í þessu áhlaupien sérstak-
ar aðgerðir hafa verið skipulagð-
ar til að stemmu stigu viö eitur-
lyfjasmygli á þessu svæöi. Á und-
anfórnum mánuðum hafa yfir 80
tonn af eiturlyfjum verið gerð
upptæk í íran og nálægt sextiu
þúsund manns veriö handteknir
vegna þeirra mála.
Páfinn andsnú-
inn hommum
og lesbíum
„Samband
tveggja karl-
manna eða
tveggja kven-
manna er aldr-
ei hægt að
leggja að jöfnu
við venjulega
fjölskyldu og
það sem meira er, slíkum sam-
böndum má aldrei leyfa að ætt-
leiða börn,“ sagði Jóhannes Páll
páfi m.a. í ræðu sinni á Péturs-
torginu í Róm í gær. Páfinn þótti
nokkuð hvassyrtur í ávarpi sínu
og lét ýmis þung orð falla.
Hann lagðist alfarið gegn gift-
ingu homma og lesbía og skamm-
aöi eyrópska þingmenn sem
hyggjast leggja þessu málefni liö
og var sömu skoðunar þegar
hugsanleg ættleiöingarmál þess-
ara hópa bar á góma eins og fyrr
Segir. Reuter
leiðendur kepptust við að hafa sem
mest af kynlífi og ofbeldi í myndum
sínum til þess eins að græða pen-
inga. „Mér er illa við framleiðendur
sem framleiða þannig myndir. Þaö
er ekkert að því að hafa eitthvað af
kynlífi og ofbeldi í myndum ef mynd-
in krefst þess og það hefur eitthvað
að segja fyrir söguna sem verið er
að segja. Hins vegar er það alveg út
í hött og þjónar engum tilgangi að
hafa kynlíf og ofbeldi sem uppistöðu
í mynd,“ sagði Loren.
Leikkonan sagði einnig að of mikið
ofbeldi sæist í fréttum á hverjum
degi og hún vorkenndi börnum sem
ælust upp við sjónvarpið eins og það
er í dag. „Ég er viss um að þetta hef-
ur mikil áhrif á krakka og ég óttast
afleiðingamar."
Loren sagði á hátíðinni að uppá-
haldsleikari hennar í gamla daga
hefði alltaf verið Gary Grant en í dag
væru það þau Robert De Niro og
Julie Roberts.
Loren, sem nú er orðin 59 ára göm-
ul, hefur unnið tvo óskara og leikið
í yfir 50 kvikmyndum.
Leikkonan hefur ekki sagt alveg
skilið við kvikmyndir í bráð því hún
ætlar að leika í nýrri mynd sem tek-
in verður upp í París á næstunni og
fjallar um tísku. Bandaríski kvik-
myndaleikstjórinn Robert Altman
leikstýrir myndinni sem hefur hlotið
nafniðReadyToWear. Reuter
Off mikið kynlíf og
ofbeldi í myndum