Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
Fréttir
Fertugur maður úr Grundarfirði dæmdur í fangelsi í Héraðsdómi:
Fékk 9 mánuði fyrir
kynlífsfjárkúganir
- lét tvo menn greiða sér 50 þúsund fyrir að þegja yfir viðkvæmum upplýsingum
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í vikunni tæplega fertugan mann frá
Grundarflrði í niu mánaða fangelsi
fyrir fjárkúgun með því að hafa hót-
að tveimur mönnum að birta samtöl
þeirra í svokölluðum stefnumóta-
síma. Fangelsisrefsingin er hegning-
arauki við dóm Hæstaréttar yfir
manninum frá síðastliðnu ári en þá
var hann dæmdur fyrir vanrækslu á
greiöslu söluskatts og staðgreiðslu á
opinberum gjöldum vegna reksturs
Byggingafélagsins Hamra hf. í Kópa-
vogi áður en fyrirtækið var úrskurð-
að gjaldþrota.
Snemma á síðastliðnu ári tók um-
ræddur maður upp á segulband
samtöl tveggja kynbræðra sinna í
svokölluðum stefnumótasíma,
99-1895. Eftir það hafði hann sam-
band við mennina og hótaði að senda
upptökumar af símtölunum m.a. til
eiginkonu annars þeirra. Á upptök-
unum komu fram óskir mannanna á
kynlífssviði, fullyrðingar um fram-
hjáhald og aörar persónulegar upp-
lýsingar sem fólki finnst allajafna
ekki þægiiegt að komist í hámæh.
Ákærði fékk mennina til að greiða
50 þúsund krónur hvom inn á
bankareikning sinn í Reykjavík. Þeg-
ar máUð var kært og fór síðan í með-
ferð hjá ríkissaksóknaraembættinu
fóra framangreind fómarlömb fjár-
kúgananna fram á skaðabætur sem
námu þeim upphæðum sem þeir
höfðu greitt inn á reikning fjárkúgar-
ans. Áður en dómur var kveðinn upp
hafði sakbomingurinn greitt upp-
settar bætur.
Við refsiákvörðun yfir manninum
tók héraðsdómur mið af bótagreiðsl-
unum til fómarlambanna. Hæstirétt-
ur dæmdi sakbominginn í 9 mánaða
fangelsi, þar af 6 mánuði skilorös-
bundið í desember síðasthðmun
vegna annarra brota. Með brotum
sínum á síðasta ári rauf hann skilorð
þess dóms, var skilorðshluti hans
dæmdur upp og manninum einnig
gert að sæta fangelsi fyrir þann hluta
dómsins. Hann fær því 9 mánaða
óskilorðsbundið fangelsi.
-Ótt
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra á tali við Matthías Bjarnason, „járnkarl" þeirra Vestfirðinga. Hann á sjálf-
sagt ýmislegt órætt við sjávarútvegsráðherra vegna vandamálanna á Vestfjörðum. DV-mynd GVA
Erfiðleikamir á Vestfiörðum:
Ég vona bara að menn
fari ekki að brjótalög
- segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
„Ég vona bara að menn fari ekki
að brjóta lög. í lýðræöisþjóöfélagi
vinna menn skoðunum sínum fram-
gang á lýðræðislegan hátt en ekki
með því að brjóta lög,“ sagði Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra. DV spuröi hann hvaö hann
vildi segja við þá Vestfirðinga sem
nú tala um að taka sér neyðarrétt
og veiöa þorsk hvað sem kvóta Uður.
Sjávarútvegsráöherra var spurður
hvað fólk á Vestfjörðum ætti að gera
nú þegar kvótinn væri búinn og ekki
blasti annað við en að leggja skipum,
stoppa atvinnutæki í landi og fara á
atvinnuleysisbætur?
„Vissulega er þama mikfil vandi á
ferð og aö sumu leyti meiri vandi en
víðast annars staðar. Yfirleitt er
meiri fjölbreytni í veiðum í öömm
landshlutum. Það er einnig nokkuð
mismunandi ástand eftir byggðarlög-
um á Vestfjörðum og þaö búa ekki
allir við sama vanda. En því miður
hefur ekkert komið fram sem bendir
til þess að hægt sé að auka aflaheim-
Udir Vestfirðinga frekar en annarra."
- Hvaða von um betri tíð getur þú
gefið Vestfiröingum?
„Það gefur augaleið að þegar afli
dregst jafn mikið saman og raun ber
vitni þá kemur það niður á sjávarút-
veginum og harðast þeim byggðum
þar sem þorskveiðamar era mestar.
Það er svo spuming hvemig menn
reyna að brúa þaö bU sem skapast
þangað til við getum farið að auka
þorskveiöamar aftur. Menn mega
ekki gleyma því að tilgangurinn með
því að minnka veiðamar er að byggja
stofninn upp aftur og auka veiðarnar
eins skjótt og kostur er. Ef við ekki
föram varlega nú þá er hætta á að
annaöhvort hrynji stofninn eða að
uppbygging hans taki mun lengri
tíma en eUa.“
- ErtumeðþessuaðsegjaVestfirð-
ingum að þeir eigi bara að þreyja
þorrann og góuna?
„Ég vU taka það fram að unnið
hefur verið að því á vegum Byggða-
stofnunar í samstarfi við ráðuneytin
að kanna með hvaða hætti mætti
sérstaklega koma til móts við Vest-
firðinga í þessum vanda sem þar er
við að glíma. Sú vinna stendur yfir,“
sagðiÞorsteinnPálsson. -S.dór
Búvörufrumvarpið:
Efnislega
alvegeins
ogeldra
frumvarpið
- segirEgiIl Jónsson
„Þaö er rétt metið hjá þér, þetta
nýja frumvarp er efnislega alveg
ehis og það frumvarp sem við
voram tilbúnir með og kratarnir
höfnuðu. Og markraiöið með því
alveg nákvæmlega það sama.
Emi munurinn er sá að lögfræð-
ingamir þrír, sem unniö hafa fyr-
ir landbúnaðamefhd við samn-
ingu frumvarpsins, hafa sett þaö
á betra lagamál og skýrari texta
en var á eldra frumvarpinu,"
sagðí EgUl Jónsson, alþingismað-
ur og formaður landbúnaðar-
nefndar Alþingis, í samtali við
DV í gær.
Það vakti mikla athygli þegar
nýja frumvarpiö til breytinga á
búvörulögunum kom í ljós í gær
að allt það sem kratamir höfnuðu
í fyrri frumvarpsdrögunum er
inni í þessu frumvarpi með
breyttu orðalagi. Það eina sem
breytist frá því er að nú skal skU-
greina hvaö er landbúnaðarafurö
og hvenær hún breytist í iðnaðar-
vöru. Þær eru tilgreindar í þvi
sem kallaö er viðaukar eitt og tvö.
„Samkvæmt svörum Jóns
Baldvins Hannibalssonar um
hvers vegna hann bannaði sér-
fræðingum sínum að ræða við
lögfræðingahóp landbúnaðar-
nefndar, þá fæ ég ekki betur séð
en aö þetta deUumál sljómar-
flokkanna um búvörufrumvarpið
sé aftur komið á byijunarreit, þar
sem slagurinn hófst f desember,“
sagði Jóhannes Geir Sigurgeirs-
son alþíngismaður en hann á
sæti í landbúnaðarnefnd Alþing-
is.
Steingrímur J. Sigfusson al-
þingismaður, sem einnig á sæti í
landbúnaöamefnd, tók í sama
streng. Hann sagði deUuna aftur
komna á byrjunarreit enda væru
þessi nýju frumvarpsdrög efnis-
lega alveg eins og þau sem
kratarnir höfnuöu í síöustu vUtu.
•S.dór
Nafn drengsins
Drengurínn, sem fannst með-
vitundarlaus á botni sundlaugar
Hótel Loftieiða á raánudagskvöld
og lést á gjörgæsludeUd Borgar-
spítala í fyrrinótt, hét Þorleifur
Ami Reynisson, til heimilis að
MÍðskógum24,ÁlftanesL -pp
ískákinni
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Miög hart er barist um efstu
sætin á alþjóölega skákmótinu á
Akureyri en 7 umferðir af 11 hafa
nú verið tefldar.
í gærkvöldi vann Margeir Pét-
ursson sigur á Klaus Berg, Jó-
hann Hjartarson vann Henrik
Danielsen, De Firmian og van
Wely gerðu jafntefli og einnig
Akureyringamir Gylfi Þórhalls-
son og Ólafur Krisijánsson, Við-
ureign Helga Ólafssonar og
Þrastar Þórhallssonar fór i bið
og sðmuleiöis skák Björgvins
Jónssonar og Sokolovs.
Staða efstu manna er þannig að
Sokolov hefur 5 vinninga og bið-
skák, Van Welu 5 vinninga, Jó-
hann 4,5 og biðskák, Helgj 3,5 og
biöskák og De Firmian 3,5 vinn-
inga.
Stuttar fréttir
Einarendurkjörinn
Einar Sveinsson hjá Sjóvá var
endurkjörinn formaður Verslun-
arráös íslands á aðalfundi þess í
gærmorgun. Hann hlaut flest at-
kvæöi í stjómarkjöri en næstir
komu Kristinn Bjömsson, for-
stjóri Skeljungs, og Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eimskips.
Kaupþing skilar hagnadi
Verðbréfafyrirtækið Kaupþing,
sem er í eigu Búnaðarbankans
og sparisjóðanna, skilaði 37 millj-
óna króna hagnaði á síðasta ári.
Heildarvelta Kaupþings á árinu
var 241 milljón sem er 21% aukn-
ing frá árinu 1992.
Fjárfestfyrir 2 miiljarða
íslendingar hafa fjárfest í er-
lendum verðbréfum fyrir allt að
2 milljarða króna ffá áramótum.
Þetta kom fram á Stöð 2.
ÞrírtilBosníu
Tveir læknar og einn hjúkrun-
arfræðingur frá Islandi fara með
norskri friðargæslusveit tíl starfa
í Tusla í Bosníu í lok apríl nk.
Ríkissjónvarpið greindi frá
þessu.
Engin niðurstaöa varð í viðræð-
um íslendinga við Norðmenn og
Grænlendinga í Ósló sl. þriðjudag
um skiptingu loðnukvóta. Næsti
ftindur verður í aprfl.
Össuráleiðút?
Stoötækjafýrirtækiö Össur hf.
íhugar að flytja hluta starfsemi
sinnar til útlanda þar sem ekkert
hefur gengið með ffiiðnaðar-
svæðið á Suöumesjum. Þetta
kom fram á Ríkissjónvarpinu.
Framkvæmdafé öl
flugvalla
Samkvæmt nýrri flugmálaá-
ætlun fara 400 milljónir króna á
ári til ffamkvæmda á flugvöllum
landsíns fram til 1997. Þar af fara
248 milljónir I lagningu bundins
slitlags, samkvæmt frétt Ríkis-
sjónvarpsins.
Búnaðarbankinn grasðir
Búnaöarbankinn skilaði 47
milljóna króna hagnaði á síðasta
ári sem er betra en árið 1992 þeg-
ar tap bankans nam um 30 milfj-
ónum króna. Ríflega milljaröur
var lagður á afskriftarreikmng
sem er 550 milljónum króna
meira en áriö 1992. Morgunblaðið
greindi ffá þessu.