Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994 Útgáfufélag:. FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 ■ Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Vegamót í Suður-Afríku Nelson Mandela tekur viö af de Klerk sem forseti Suður-Afríku eftir almennar kosningar, sem veröa í land- inu 26.-28. apríl í vor. Fylgi Afrísku þjóðarsamkomunn- ar, flokks Mandelas, nær samkvæmt skoðanakönnunum til meirihluta landsmanna, þar á meðal til Zulumanna. Mangosuthu Buthelezi og Inkatha-flokkur hans eru á undanhaldi. Samkvæmt skoðanakönnunum nær hann minna en 20% fylgi í eigin heimahéraði, Natal, þar sem Zulumenn eru fjölmennastir. Þess vegna treystir But- helezi sér ekki th að taka þátt í kosningunum. Buthelezi hefur gert bandalag við róttæka hægri flokka hvítra manna um að taka ekki þátt í kosningunum, svo- kallað Frelsisbandalag. Allir aðilar að því bandalagi eiga það sameiginlegt, að þátttaka í almennum kosningum mundi leiða í ljós rýrt fylgi að baki miklum hávaða. Fylgi flokkanna í Suður-Afríku fer ekki eingöngu efdr ættflokkum, heldur einnig eftir atvinnuháttum. Zulu-. bændur hafa til skamms tíma yfirleitt stutt Inkatha og Zulu-kónginn, en Zulu-þéttbýlismenn eru famir að styðja Afrísku þjóðarsamkomuna eins og aðrir svartir menn. Svipað er að segja um flokka hvítra manna í Suður- Afríku. Þéttbýlisbúar styðja flestir Þjóðarflokk de Klerks eða Lýðræðisflokkinn, sem einnig er sáttasinnaður, eri margir bændur styðja nokkra róttæka smáflokka, sem hafa myndað með sér svokallað Þjóðarbandalag. Á mánudaginn samþykkti þingið í Suður-Afríku nokkrar breytingar á stjómarskránni í því skyni að koma til móts við dreifbýlisöflin meðal hvítra manna og svartra. Þær fela meðal annars í sér sérstakar kosningar til hér- aðsþinga og traustari verkaskiptingu ríkis og héraða. Inkatha og Þjóðarbandalagið hafa hafnað þessari sátta- hönd og munu reyna að trufla kosningamar eftir tvo mánuði. Búast má við blóðbaði í tengslum við kosning- amar, enda hafa þegar fallið 14.000 manns í átökum milli stjómmálaflokka svartra manna á síðustu fiórum árum. Þótt Suður-Afríku takist að komast yfir þröskuldinn, em vandamál landsins engan veginn úr sögunni. Afiíska þj óðar samkoman er fremur vinstri sinnuð og miðstýring- arhneigð. Margir foringjar hennar hafa fremur lítinn skilning á markaðslögmálum og uppsprettu verðmæta. Nelson Mandela gerir sér grein fyrir, að illa hefur far- ið fyrir nærri öllum ríkjum svartra manna í Afríku. Ástandið hefur verið svo slæmt í nágrannaríkjunum, að stríður straumur flóttamanna hefur verið til aðskilnaðar- landsins Suður-Afríku, en alls ekki í hina áttina. Stjóm Mandelas mun líklega gera ráðstafanir til að reyna að sefa ótta fjármagnseigenda í landinu og soga til landsins fjármagn frá Vesturlöndum og Japan. Ef þetta tekst, em horfur í Suður-Afríku fremur bjartar, því 'að landið er nógu stórt og ríkt fyrir alla íbúa þess. Suður-Afríka er auðug að ótal góðmálmum og hefur góð skilyrði til landbúnaðar. Vestrænt fyrirmyndar- ástand er á samgöngum og síma og fjölmiðlun. Stjórn- kerfið er virkt og dómstólar em óháðir. Suður-Afríka hefur alla burði til að verða leiðandi afl í Afríku. Mandela er orðinn 75 ára og er ekki einráður í flokki sínum. í valdastöðum flokks hans em margir, sem hafa stjómmálaskoðanir, er munu fæla fjármagn frá landinu, svo og margs konar þekkingu, sem Suður-Afríka þarf á að halda til að komast hjá örlögum svörtu Afríku. Fordæmin em til viðvörunar. HLa fór fyrir Rhódesíu, þegar hún varð að Zimbabve. Með því að læra af reynslu annarra getur Suður-Afríka komizt hjá sömu örlögum. Jónas Kristjánsson Aukin áhersla er á þjónustu og aðstoð við undirmenn og minnkandi áhersla er á „stjómun" og „yfirráð", segir m.a. í greininni. í þjónustu þjóðarinnar Eitt meginatriði í viðskiptalegri velgengni nú á dögum er rík áhersla á þjónustuhlutverk fyrir- tækja og skilningur á þörfum neyt- enda. Steinrunnin fyrirtæjci þar sem óhófleg eða svifasein og óvirk skrifSnnska leggur lamandi hönd á athafnir lifa ekki lengi í harðri samkeppni. Sama á við þegar stjómendur era orðnir fjarlægir viðskiptavinum sínum og því skiln- ingsvana um grundvöll tilveru sinnar. í stað þjónustulundar kemur hroki. í stað áherslna á aðalatriði kemur ofdýrkun smámuna og forms. í stað athafna kemur doði og athafnaleysi. í stað traustrar starfsemi, sem skilar árangri, kem- ur taumlítil yfirborðsmennska. Og í stað eðlilegs aðhalds hjá háum sem lágum kemur bruöl sem oftast á upptök á æðstu stöðum. Stutt er í hnignun og dauða að svo komnu. Augljósar orsakir Orsakasamhengi og rökin í mál- inu eru auöséð hverjum manni sem hefur heilbrigöa dómgreind. Og glæfraleg og dýr mistökin blasa alls staðar við. Samt hafa fjölmörg stórfyrirtæki, sem hafa greiðan aðgang að „bestu fáanlegu sér- fræðiþekkingu", farið flatt á ná- kvæmlega þessum atriðum. Iðu- lega eftir langvarandi Ijósböö á leiksviði fjölmiðlanna og matreidd- ar lofgerðir um frækilega frammi- stöðu. Stundarvirðing, stærð, auöur og menntaðir forystinnenn hafa ekki dugað til að tryggja árangur. Þekk- ing dugar skammt ef hún er van- þróuð, brotakennd eða grundvall- arhorf hennar vitlaus og auður og völd eru einskis nýt ef krafti þeirra er beitt til aö sinna léttvægum við- fangsefmun. KjaUaiiim Jón Erlendsson yfirverkfræöingur Upplýsinga- þjónustu Háskólans aðstoða eða þjálfa sama fólk sem skipulagt er í sjálfstýrandi vinnu- hópa. Hlutverk flestra annarra yfir- manna taka einnig þeirri eðlis- breytingu að aukin áhersla er á þjónustu og aðstoð við undirmenn og minnkandi áhersla er á „stjóra- un“ og „yfirráð". Með þessum breytingum hafa fjölmörg fyrir- tæki náð bættum árangri sem mælist í mörgum tugum prósenta og hröðum uppgangi í stað hröm- unar eða dauða. Fyrirtækin eru sem óðast að átta sig á þessu og breyta um stíl. Frá hroka til þjónustulundar. Frá ár- angursrýru umstangi til þungrar áherslu á kröftuga verðmætasköp- un. Frá hugsunarlítilli sóun til gjöraýtni sem nær allt til smæstu atriða. „Kominn er tími til að leggja stóraukna áherslu á það að opinberar stofnanir og ráðamenn eiga að sýna þjónustu- lund í orði og verki.“ Hin „nýja stjórnun“ Þetta er einmitt það sem menn hafa verið að komast að á síðustu áratugum hvað viðvíkur þekkingu á stjómun. Því er í dag talað um „hina nýju stjómun". Hún byggir á langtum meiri reynslu og upplýs- ingum um það hvað skilar árangri en „gamla s1jómunin“. Og innan hennar ríkja gerólíkar áherslur og viöhorf frá því sem áður var. Þannig hefur t.d. hlutverki verk- stjóra verið breytt í stórum stíl frá því að hafa alræðisvald yfir athöfn- um undirmanna sinna til þess að Opinber rekstur Lögmál í viöskiptalífi gilda einnig þegar komiö er að opinberum rekstri. Vangeta, hroki, græðgi eða spilling opinberra aðila af öllu tagi skilar sér fýrr eða síðar í baklandi sem bregst og stuðningi sem hverfur. Komiim er tími til að leggja stór- aukna áherslu á það að opinberar stofnanir og ráðamenn eiga að sýna þjónustulund í orði og verki. Alltof rík áhersla hefur verið á „stjóra- un“ eða „stýringu" eða „forræði" gagnvart almenningi. Jón Erlendsson Skoðanir annarra Jöf nunartollar Hér og undanþágur þar? „Halda íslendingar vifkilega að þeir geti beitt jöfnunartollum og alls kyns vemdarviðurlögum á innfluttar vörur en beðið um undanþágur á eigin útflutning? Telja íslensk stjómvöld það eðlilegt að mótmæla hástöfum að íslenskur fiskur sé hafður í frystigámum á landamærum Frakklands og heil- brigöissýni tekin af vörunni meðan íslensk yfirvöld stöðva nánast allan innflutning á matvöru undir yfirskyni heilbrigðiseftirlits? íslendingar ættu ekki að fárast yfir flísinni í auga náungans meðan þeir sjá ekki bjálkann í eigin auga.“ Alþbl. 23. febrúar Margfeldisáhrif „Þegar við kaupum innflutta vöru fer vissulega meira en helmingur smásöluverösins til innlendra aðila. 40% vöruverðsins renna þó aftur í vasa erlendra framleiöenda vörunnar og valda því ekki margfoldunaráhrifum í íslenska hagkerfinu. Það eru einmitt þessi margfoldunaráhrif sem eru svo mikil- væg. Þau gera það að verkum að hver greiösla til innlendra aðila þrefaldar veltu sína, þ.e. þjóðartekjur þrefaldast um þá upphæð sem greidd er, ef miðað er við varlega áætlun um margfeldisáhrif." Ásgeir Valdimarsson hagfr. í Vísbendingu 17. febr. Framtak matreiðslumanna „Nokkrir matreiðslumenn íslenskir hafa nú tekið sig saman um að sýna hvað hægt er að gera úr inn- lendu hráefni, einkum því sem til fellur af sauökind- inni margfrægu. Þetta er mjög þarft framtak og mikl- ar átveislur hafa veriö haldnar víða um land, með fjölbreytilegum réttum úr hráefnum sem ekki eru daglega á borðum landsmanna. Þetta eykur fjöl- breytnina, en það er einmitt hún sem veitinga- mennska byggir á.“ Jón Kr. í Timanum 22. febrúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.