Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Síða 20
32
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994
Iþróttir
Utah Jazz tókst
að stöðva sigur-
göngu SA Spurs
- þegar liðið vann sigur 1 tvíframlengdum leik, 10&-102
Átta leikir fóru fram í NBA-deild-
inni í körfuknattleik í nótt og urðu
úrslit þessi:
Atlanta-Seattle............99-92
Orlando-Indiana...........103-99
Philadelphia-New Jersey..102-106
Washington-Cleveland......96-106
Chicago-Golden State.....123-100
Denver-Boston.............102-94
Utah-SA Spurs............106-102
LA Clippers-Portland.....112-121
Sigurganga San Antonio Spurs var
loks rofin í nótt en liðið hafði unnið
13 leiki í röö. Það var lið Utah Jazz
sem lagði Spurs að velli í tvífram-
lengdum leik. John Stockton og Karl
Malone voru stigahæstu menn í liöi
Utah með 31 stig en David Robinson
var að vanda atkvæðamestur hjá SA
Spurs, skoraði 25 stig og tók 16 frá-
köst. Það var Dale Ellis sem kom
leiknum í framlengingu þegar hann
jafnaði með þriggja stiga körfu sex
sekúndum fyrir leikslok.
Atlanta náði að leggja topphð Seattle
að velli. Mookie Blaylock skoraði 25
stig fyrir Atlanta og Dominque Wilk-
ins 24 en hjá Seattle var Gary Payton
með 23 stig og Shawn Kemp 16. Dom-
inque Wilkins náði þeim áfanga að
skora sitt 500. stig með þriggja stiga
skotum.
Pete Myers skoraði 26 stig fyrir
Chicago þegar hðið vann öruggan
sigur á Golden State og þetta var um
leið hans mesta stigaskor 1 NBA-
deildinni. Scottie Pippen skoraði 20
stig, tók níu fráköst og átti sex stoð-
sendingar. Avery Johnson var stiga-
hæstur hjá Golden State með 17 stig
og Chis Mullin setti niður 15 stig.
28 stig hjá Shaquille
Shaquihe O’Neal skoraði 28 stig fyrir
Orlando Magic þegar hðið vann sigur
á Indiana þrátt fyrir að hafa þurft
að fara af leikvelh og jafna sig af
meiðslum í öðrum leikhluta. Nick
Anderson kom nagstur í stigaskorinu
hjá Orlando með 19 stig. Rik Smits
var stigahæstur leikmanna Indiana
og skoraði 16 stig en þetta var aðeins
annað tap hðsins í síðustu 12 leikjum.
Sorgarsaga Boston
heldur áfram
Sorgarsaga Boston heldur áfram og
í nótt tapaöi liðið sínum 11. leik í röð
þegar þaö mætti Denver. LaPhonso
Ellis skoraði 29 stig fyrir Denver en
Rick Fox var stigahæstur hjá Boson
með 20 stig.
Kenny Anderson skoraöi 29 stig og
tók 11 fráköst í hði New Jersey þegar
hðið sigraði Philadelphia 76’ers. Jeff
Homacek gerði 25 stig fyrir 76’ers
og Clarence Weatherspoon 22.
Cliff Robinson skoraði 22 stig og
Buck Wilhams þegar Portland sigr-
aði LA Chppers og var þetta íjórði
sigur hðsins í röð. Ron Harper var
stigahæstur leikmanna Chppers með
32 stig og Danny Manning var með
24 stig.
-GH
Danny Manning, sem hér er að skora fyrir LA Clippers, skoraði 24 stig
fyrir liðið í nótt en það dugði þó skammt gegn Portland.
Teitur Örlygsson og félagar í Njarðvík gerðu góða ferð i Hólminn í gærkvöldi
Njarðvík sterkara
á öllum sviðum
- lagöi Snæfell, 92-112, í Hólminum
Kristján Siguiðsson, DV, Stykkishólmi;
Njarðvíkingar byrjuðu leikinn með
miklum látum þegar þeir sigruðu
Snæfell, 92-112, í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í Stykkishólmi í gær-
kvöldi. Njarðvík var með þrjá bak-
verði inni á og pressaði um allan
vöh eins og raunar allan leikinn. Lið-
ið náði fljótlega yfirhöndinni og var
það ekki síst að þakka þremur
þriggja stiga körfum í röð frá Val
Ingimundarsyni. Dómaramir leyfðu
nokkra hörku í leiknum og það nýttu
leikmenn Njarðvíkur sér vel í vöm-
inni og höfðu yfirburði í teigunum
báðum megin þar sem Ronday Rob-
inson var gríðarlega sterkur.
Ronday er mun sneggri en mið-
herji Snæfelhnga, Eddie Colhns, og
það nýtti hann sér vel. Friðrik Ragn-
arsson, leikstjómandi Njarövíkur,
átti einnig góðan leik og ekki er ónýtt
að hafa menn á bekknum eins og
Rúnar Ámason og Teit Örlygsson
sem vom ekki í byijunarhði Njarð-
víkinga.
í byrjun síðari hálfleiks reyndu
Snæfelhngar pressuvörn sem gekk
ekki upp, þótt Njarðvíkingar misstu
boltann nokkrum sinnum vom þeir
yfirleitt snöggir í sóknina.
Bestir í hði Snæfells voru þeir
Sverrir og Hreinn og einnig vakti
ungur nýliði, Ath Sigurþórsson, at-
hygh. Sverrir var þó á köflum fuh-
eigingjam. Njarðvíkingar voru jafnir
og léku alhr vel fyrir hðið þannig að
erfitt er að taka einstaka leikmenn
út.
Snæfell (60) 92
Njarðvik (44) 112
8-13, 17-25, 21-34, 29-43, 37-51,
41-54, (44-60). 54-67, 54-78, 60-80,
69-84, 75-95, 81-101, 92-112.
Stig Snæfells: Bárður Eyþórs-
son 19, Atíi Sigurþórsson 13,
Sverrir Sverrisson 19, Eddie Coll-
ins 12, Hreiðar Hreiðarsson 11,
Hreinn Þorkelsson 8, Kristinn
Einarsson 8, Þorkeh Þorkelsson
2.
Stig Njarövíkur: Ronday Robin-
son 28, Valur Ingimundarsqn 17,
Teitur Örlygsson 17, Rúnar Áma-
son 15, Jóhannes Kristbjömsson
12, Friðrik Ragnarsson 11, Jón
Ámason 6, Eysteinn Skarphéð-
insson 4, Ástþór Ingason 2.
3ja stiga körfur: Snæfell 3,
Njarðvík 7.
Vítaskot Snæfeh 28/20, Njarð-
vík 30/21.
Dómarar: Kristinn Óskarsson
og Héðinn Gunnarsson, slakir.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Rúnar Áma-
son, Njarðvík.
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, og Jón Örn Guðbjartsson, markaðsstjóri hjá Streng h/f, skrifa undir samninginn.
DV-mynd ÞÖK
Strengur h/f tölvuvæöir í Sí:
A þriðja hundrað
aðilar tengjast nýja
kerf inu innan árs
íþróttasamband íslands hefur gert
samning við tölvufyrirtækið Streng
h/f um að fyrirtækið setji upp tölvu-
kerfi fyrir ISÍ. Það samanstendur af
félaga- og iðkendakerfi, móta- og
keppniskerfi, dagbókar- og póstkerfi
og fjárhaldsbókhaldskerfi iþrótta-
hreyfingarinnar.
Aðgang að ÍSÍ-kerfinu hafa öh
íþrótta- og ungmennafélög landsins,
héraðssambönd og íþróttabandalög
og sérsamböndin. Þá verður fjölmiðl-
um boðinn aögangur.
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, sagði
þegar samingurinn við Streng h/f var
undirritaður í gær að þetta væri
tímamótasamningur og að tölvukerf-
ið yrði mikhvægur þáttur í starfi
íþróttahreyfingarinnar. Hann sagði
að þetta yrði mikih ávinningur fyrir
öh félög í landinu. Ehert sagði að
nefnd á vegum ÍSÍ hefði unniö að
máhnu í tvö ár og hann vonaöist th
að 2-300 aöhar hefðu tengst kerfinu
eftir eitt ár.
-GH