Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1994, Qupperneq 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
: .. ■ ■' ■ ■ -: :■'..■ ■-.:.■.. ...
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1994.
Frakkland:
Erumvirki-
lega í vond-
um málum
- segir Birgir Jóhannsson
„Þaö eru gefnar út vinnureglur
nánast daglega sem beinast að því
að loka landamærum Frakklands
fyrir innfluttum flski frá þessum svo-
kölluðu þriðju ríkjum. Þar erum við
settir á sama stall og t.d. Perú og
Senegal. Ég skil þetta ekki og við ís-
lendingar erum í virkilega vondum
málum héma. Aðalmálið er að okkur
hefur ekki tekist að afhenda fisk upp
í samninga. Það gæti tekið langan
tíma að vinna aftur þau viðskipta-
sambönd sem við höfum misst,“
sagði Birgir Jóhannsson, hjá Nord
Morue í Frakkiandi, við DV í morg-
un. Nord Morue er dótturfyrirtæki
SÍF og að sögn Birgis hafa tapast
tugir milljóna króna á aðgerðum
Frakka.
Nord Morue tókst að koma 22 tonn-
um af norskum saltfiski í gegn í gær-
kvöld sem var heilbrigðisskoðaður í
Danmörku en tollafgreiddur rétt hjá
París. Síðan er von á tveimur vöru-
bílum í dag og á morgun með íslensk-
an og norskan saltfisk.
„Við ætlum ekki að gefast upp og
verðum bara að láta berja á okkur.
Einhvem tímann fáum við samúð
fyrir okkar málstað því að það er
fáránlegt hvernig Frakkar hafa slitiö
sig úr evrópsku samstarfi,“ sagði
mr&r- -bjb
Plastbátur
hætt kominn
Um 30 feta plastbátur var hætt
kominn í innsiglingu Grindavíkur-
hafnar þegar stýri hans festist í
borði.
Að sögn Gunnars Jóhannessonar,
hjá björgunarsveitinni Þorbimi í
Grindavík, var sjólag slæmt þegar
óhappið varð. „Það komu þama ólög
öðru hveiju og haxm færðist ailtaf
nær þar sem öldurnar braut. Ef við
hefðum veriö 10 mínútum seinna á
feröinni hefði farið illa. Hann átti
ekki eftir nema tæplega 100 metra í
land,“ segir Gunnar. Hann og félagar
hans vora kaliaðir út og fóra þeir á
björgunarbát nokkrum mínútum
seinnatiiaðstoðar. -pp
Margirstoppaðir
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
fimmtíu og sjö ökumenn fyrir um-
ferðarlagabrot frá því klukkan átta í
gærkvöldi til klukkan eitt í nótt.
Fimmtíu reyndust hafa ekið of hratt.
-PP
Jón Sigurðsson seðlabankastjóri hefur afhent Vigdísi Finnbogadóttur, for-
seta íslands, þrjá minnispeninga sem Seðlabankinn hefur gefið út í tilefni
af 50 ára lýðveldisafmælinu. Peningarnir bera myndir af fyrrverandi forset-
um lýðveldisins á annarri hlið en skjaldarmerki íslands á hinni. Sala for-
setamyntarinnar hefst á þriðjudaginn og fer hún fram á erlendum og innlend-
um markaði. Ágóði af sölunni rennur í Þjóðhátiðarsjóð en sjóðurinn veitir
árlega styrki til að varðveita og vernda þjóðlegar menningarminjar.
-GHS/DV-mynd BG
Akureyri:
Samningar að takast um
sölu á Slippstöðinni?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
„Ég hef heyrt að ef þessir aðilar
kaupi stöðina komi ekki til uppsagna
starfsmanna svo að vissulega gæti
eitthvað stórt verið þarna að ger-
ast,“ sagði háttsettur aðiii í bæjar-
kerfinu á Akureyri í gær um þann
möguleika að samningaviðræður
væru að fara í gang um kaup ís-
lenskra og erlendra aðila á Slippstöð-
inni Odda á Akureyri.
Annar aðili, sem fylgst hefur með
þessu máh undanfarið, segir að hugs-
anlegir kaupendur hafi sýnt því
áhuga síðan í haust að kaupa fyrir-
tækið og menn sem hafi þekkingu á
þessum iðnaði hafi unnið með þeim.
Hann sagði einnig að það gæti jafn-
vel skýrst í dag eða á morgun hvort
menn settust að samningaborði.
Enginn viðmælenda DV um þetta
mál í gær vildi tjá sig um það undir
nafni og mönnum bar saman um að
málið væri á mjög viðkævmu stigi.
Menn voru hins vegar sammála um
að eigandi fyrirtækisins, sem er
Landsbanki Islands, myndi varla
setja upp mjög hátt verð fyrir fyrir-
tækið. „Bankinn myndi sennilega
telja sínum hagsmunum borgið fengi
hann eitthvað á annað hundrað
milljónir fyrir fyrirtækið. Það má
hins vegar segjaað hlutafé fyrirtæk-
isins í dag sé ekki nema 11 milljónir
króna og bókhaldslega er það ekki
meira virði,“ sagði einn viðmælandi
DV.
Nýherji sækir um sjónvarpsleyf i
Tölvufyrirtækið Nýherji hefur sótt
um leyfi til sjónvarpsútsendinga til
úvarpsréttamefndar. Gunnar Hans-
son, framkvæmdastjóri Nýheija,
sagði við DV í morgun að málið
heyrði alfarið undir forsvarsmenn
Radíóstofunnar í Skipholti en hún
er dótturfyrirtæki Nýherja. Gunnar
sagði að stjóm fyrirtæidsins hefði
hins vegar fjallað um málið. Um-
sóknin er nýtilkomin og er eftir að
afgreiða hana í útvarpsréttarnefnd.
-Ótt
LOKI
Egill sterki er endurborinn!
Veðriðámorgun:
Víðast bjart
veður
Á morgun verður fremur hæg
breytileg eða austlæg átt. Stöku
él við suður- og norðaustur-
ströndina en þurrt og víðast bjart
veður annars staðar. Frost 0-8
stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
NSK
KÚLULEGUR
VíÞuisen
Suðurlandsbraut 10. S. 686499.