Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1994, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994
Fréttir
orðum
Magnúsar
Greenpeace-samtökin hafa látiö
frá sér fara fréttatilkynningu þar
sem þau visa því á bug aö þau
hafi hrundiö af stað ófrægingar-
herferð gegn Magnúsi Guö-
mundssyni kvikmyndageröar-
manni. Segir í fréttatilkynning-
unni að þau hafi einungis bent á
tengsl hans við hagsmunaaðila.
í DV á Iaugardag sagðist Magn-
ús hafa undir höndum skeyti og
gögn úr skjalasafni Greenpeace
þar sem fram kemur að hafm sé
alþjóöleg herferð gegn honum og
ætlunin sé að grafa undan stuðn-
ingi almennings við hann hér á
landi. EnnfremursagðistMagnús
hafa komist yfir kiukkutimaefni
af upprunalegum upptökum af
áróöri Grænfriðunga gegn sjó-
mönnum í Venesúela. Þar hafi
þeir verið sakaðir um að stunda
pyndingar á höfrungum sér til
gamans.
Saka Magnús
um róg
í fréttatilkynningunni vísa Gre-
enpeace-samtökin því einnig á
bug að þau hafi staðið að gerð
myndar um smáhvaladráp í Ve-
nesúela. Segir í fréttatilkynning-
unni að Magnús beiti rógtækni
sem felist i þvi að koma úmhverf-
issamtökum í varnarstöðu og
neyöi þau til að afneita fölskum
og tilbúnum ásökunum.
„í Ijósi skammtíma hagsmuna
hefúr áróðri Magnúsar veriö
hampaö. Starf Greenpeace er
snýr að vemdun sjávar gegn
mengun, afvopnun á höfum úti,
tllraunum með kjarnavopn,
banni gegn notkun ósoneyðandi
efna, banxú gegn losun geisla-
virks úrgangs í hafið, gróðurhús-
áhrifúm og ábyrgri stjórnun fisk-
veiða - svo dæmi séu nefhd -
hefur ekki fengið þá umfjöllun
sem nauösyn ber til. Þetta er ekki
slst ömurlegt í ljósi þess að frain-
tíöaröryggi islendinga er alvar-
lega ógnað ef málstaöur um-
hverfisvemdar lýtur í lægra
haldi.“
Aukin samkeppni olíufélaga 1 kjölfar nýrra laga:
Væntum þess að olíu-
verðið lækki núna
- segir Kristján Ragnarsson
„Við væntum þess að fá oliu til
fiskiskipa ódýrari núna. Nú er kvöð,
sem lögð var á olíufélögin um að selja
olíu til allra á sama verði, afnumin.
Nú kemur það 1 ljós hvort útgerð,
sem er að kaupa tugi þúsunda lítra
af olíu í hvert skipti, þarf að greiða
jafnhátt verð og einn húseigandi er
að greiða fyrir olíu heim á bæ til
sín,“ sagði Kristján Ragnarson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, í samtali við
DV.
Ákvæði í lögum um flutningsjöfn-
unargjöld um að olíufélög skuli selja
öllum viðskiptavinum olíu á sama
verði hefur verið afnumið með breyt-
ingartillögu sem samþykkt var á Al-
þingi. Jafnframt tekur gildi ákvæði
sem kveður á um að erlendum skipa-
félögum þurfi ekki að selja olíu á
sama verði og innlendum viðskipta-
vinum.
Vilhjálmur Egilsson, formaður
Verslunarráðs íslands, sem sat í
efnahags- og viðskiptanefnd Alþing-
is, sagði við DV í gær að með þessu
væri búið að stíga skref til að leysa
upp það verðjöfnunarkerfi sem í gildi
hefur verið. Þó hefði ekki náðst sam-
komulag um nema lágmarksbreyt-
ingar á því flutningsjöfnunarkerfi
sem hefur verið í gildi. Margir hefðu
viljað afnema flutningsjöfnunarkerf-
ið og koma á frjálsri samkeppni. Slíkt
myndi væntanlega leiða til lægra ol-
íuverðs.
Kristján Ragnarson kvað LÍÚ
mimu koma því á framfæri við full-
trúa útgerðanna að samkeppni sé
fram undan:
„Við munum að sjálfsögðu gera það
til að mönnum skfijist að nú getur
orðið samkeppni á milli olíufélag-
anna þrátt fýrir að þessi verðjöfnun
haldi áfrarn," sagði Kristján. „En svo
einkennilegt sem það er þá var það
þingflokkur Sjálfstæðisflokksins,
hins frjálsa framtaks, sem felldi til-
lögu um að þetta verðjöfnunarkerfi
yrði lagt af - þannig hefði full sam-
keppni ríkt eins og við teljum að eigi
að gera,“ sagði hann.
Þeir voru ekki háir í loftinu, krakkarnir sem höfðu raðað sér upp við skiöalyftuna í Böggvistaðafjalli við Dalvík í
siðustu viku enda var þar að hefjast námskeið fyrir krakka á aldrinum 4-6 ára. Eftirvæntingin skein úr hverju
andliti en það var samt timi til að lita aðeins í átt að myndavélinni. DV-mynd gk
Sjálfstæðis-
flokkur fengi 5
bæjarfulltrúa
Félagsvísindastofnun gerði könn-
un meðal kjósenda í Kópavogi 11.-12.
maí sl. Stuðst var við 600 manna
slembiúrtak. Alls fengust svör frá 418
en það er 69,7% svarhlutfall.
Svarendur voru spurðir um hvað
þeir myndu kjósa ef bæjarstjórnar-
kosningar færu fram á morgun. Þeir
sem sögðu „veit ekki“ voru spurðir
áfram: En hvaða flokk eða lista held-
urðu aö líklegast sé að þú myndir
kjósa?
Ef miðað er viö niðurstöður beggja
spuminganna samanlagt fengi Al-
þýðuflokkur tæp 20% atkvæða,
Framsóknarfiokkur fengi tæp 15%,
Sjálfstæöisflokkur um 42%, Alþýðu-
bandalag fengi rúm 17% og Kvenna-
hsti tæp 7% atkvæða ef aðeins er
tekið mið af þeim sem tóku afstöðu.
Sjálfstæðisflokkur væri þannig
áfram með 5 bæjarfulltrúa. Alþýðu-
flokkur myndi tapa einum bæjarfull-
trúa, Framsókn myndi bæta við sig
einum, Alþýöubandalag stæði í stað
með tvo bæjarfulltrúa en Kvennalisti
fengi engan.
Á bak við grímurnar
Auglýsing Sjálfstæðisflokksins í
Mogganum á sunnudaginn, þar
sem birt var mynd af grímuklædd-
um frambjóðendum R-hstans, hef-
ur svo sannarlega vakið athygli.
Og slegið í gegn.
Galdurinn við þessa auglýsingu
er sá að hér er farið inn á nýja
braut, áður óþekkta. Hér er hafist
handa um að auglýsa eftir fram-
bjóðendum andstæðinganna í stað
þess að auglýsa upp sitt eigið fólk.
Sem er auðvitað miklu árangurs-
ríkara. Sjálfstæðisflokkurinn við-
hafði prófkjör þegar hann valdi
fólk á hsta sinn og bæði fyrir og
eftir prófkjörið var ljóst að reyk-
vískir kjósendur voru htt hrifnir
af þeim frambjóðendum sem völd-
ust í prófkosningunum. Það var
jafnvel gripið til þess ráðs að breyta
um borgarstjóraefni og Markús
Örn taldi það skynsamlegast í stöð-
unni að hætta eftir að hann var
kosinn til að draga úr þeirri nei-
kvæðu athygh og andstöðu sem
frambjóðendur D-hstans höfðu
meðal kjósenda.
En aht kom fyrir ekki og fylgið
hefur mælst svona og svona og
þegar fyrir hggur að frambjóðend-
ur D-hstans hafa ekki burði th að
laða fylgi að flokknum þá er miklu
betra að vekja athygli á frambjóð-
endum andstæðinganna og auglýsa
eftir þeim. Kenningin er sem sagt
þessi: ef okkar frambjóðendur eru
ekki nógu góðir þá eru frambjóð-
endur R-hstans hálfu verri.
Þessi hræðslupóhtík hefur oft
gefist vel og því ekki að reyna hana
þegar fokið er í öh önnur skjól.
Næst er auðvitað að grafast fyrir
um fortíð þessa fólks og auglýsa
það í Mogganum. Segja frá því
hvemig sakaskrá þeirra htur út,
hvaða sifjaspell mótframbjóðend-
umir hafa unniö, hvaða fjármála-
vafstri þeir em tengdir, hvers kon-
ar skítakarakterar þetta era. Nú
er um að gera að hossa sér á þessu
og koma því rækhega th skha með-
al kjósenda hversu hroðalegt og
andstygghegt fólk það er sem er að
reyna að ná borginni af íhaldinu.
Grafa undan þeim með öllum
ráðum, benda fólki á aö þetta eru
dulbúnir frambjóðendur sem fela
sig á bak við grímur af sjálfum sér
og viha þannig á sér heimhdir.
Hugsunin á bak við þessa taktík
er sú að hræða kjósendur, hræða
lífið úr lúkunum á þeim og skapa
ofsahræðslu í borginni með því að
vara við andstæðingunum. Ef þiö
kjósið ekki D-hstann þá erað þið
að kjósa yfir ykkur borgarfuhtrúa
sem borgarbúum stafar hætta af.
Það má ekki gerast. Það má ekki
undir nokkrum kringumstæðum
tapa borginni í hendur shkum
óþjóðalýð sem leyfir sér að bjóða
fram gegn D-hstanum. Sérstaklega
af því andstæðingamir hafa sam-
einast og era þess vegna vondir við
Sjálfstæðisflokkinn sem ahs ekki
átti von á sameiginlegum hsta.
Andstæöingamir beita rangindum
með því að sameinast og þegar þeir
segjast vera á einum hsta þá era
þeir í rauninni á mörgum hstum
og frá mörgum flokkum sem aht
kemur í Ijós þegar grímumar faha
að kosningum loknum.
Já, taktíkin er að hræða og beina
kastljósinu að vonda fólkinu á R-
hstanum og sjá th þess að hinn
raunverulegi Alfreð og hin raun-
verulega Ingibjörg Sólrún komi
fram í dagsljósið. Þá mun fylgið
sópast aftur að D-hstanum því eng-
inn vhl að sjálfsögðu að R-hstinn
nái völdum meö framboði á fólki
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ímugust á.
Sjálfstæöisflokkurinn er nefni-
lega eini flokkurinn í borginni sem
veit best hvaða fólk er í lagi og
ekki er í lagi. Fólkið sem kaus í
prófkosningunum veit það ekki
einu sinni. Hvað þá kjósendur sjálf-
ir. Þess vegna hætti Markús og
Ámi tók við og þess vegna er nú
verið að vekja athygli á skítapakk-
inu á R-hstanum. Ef við erum
vondir þá era þeir verri. Það er
mottóið. Það er kenningin.
Á bak við framboðsgrímumar
leynist hættulegt fólk, vont fólk.
Kosningabaráttan verður að ganga
út á það að draga þetta vonda fólk
fram í dagsljósið. Skítt veri með
málefni. Skítt veri með eigin fram-
bjóðendur. Aðalatriðið er að hitta
á veiku punktana hjá R-hstanum
og rakka þá niður sem liggja best
við höggi. Þannig mun D-listinn
vinna glæshegan sigur í vor. Lyk-
illinn að sigrinum er fólginn í veik-
leikum andstæðinganna. Þaö er
stærsti lykillinn sem Sjálfstæðis-
flokkurinn býöur upp á ef þið kjós-
ið rétt.
Dagfari