Alþýðublaðið - 11.05.1967, Síða 3
TOLLSVI
OG SKJALAFALSANI
Yfirsakadómarinn í Reykjavík,
Þórður Bjömsson) kallaði í prær á
fréttamenn á sinn fund til aff
skýra frá rannsókn hins svo-
nefnda faktúrumáls. Máliff er um
viðskipti íslenzkra aðila viff dansk
an kaupmann Elmo Nielsen að
nafni. Er nú lokiff fyrsta stigi
ITÖLSK TIZKUSYNING
Tízkusýningar verffa haldnar í Súlnasal Hótel Sögu í kvöld
og annaff kvöld á vegum ítölsku sýningarinnar og munu sýna
þar ítalskar sýningarstúlkur og sex íslenzkar. Sýnd verða föt
frá 7 ítölskum fyrirtækjum, og verða meðal annars sýnd ým-
iss konar sundföt og strandfatnaður. Hér á myndinn sjáum
við kjól meff sérkennilegu mynstri, en á sýningunni verffa
bæði sýndir silkikjólar og baðmullarkjólar í skærum litum og
áberandi mynstrum, en þaff er mjög í tízku nú. Kjóllinn er
frá Faraoni og er í gulum, bláum og hvítum lit.
1111111 ■ ■ 11 ■ ■ 1111
FRAMBOÐSFRESTUR ÚTRUNNINN
Sex framboðslistar
í kjöri í Reykjavík
Á miffnætti í nótt var framboðsfrestur útrunninn.. í Reykjavík
komu fram samtals sex framboffslistár, í Reykjaneskjördæmi fimm,
en fjórir í öllum öffrum kjrdæmum. Aff þessum listum standa fimm
stjórnmálaflokkar, gömlu flokkarnir f jórir og nýr flokkur Áka Jakobs-
sonar, sem býffur fram í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi. Sjötta
framboðiff í Reykjavík er framboff Hannibals Valdimarssonar og
fylgismanna hans og er enn ekki vitaff hvort þaff verður taliff Alþýðu
bandalaginu eöa úrskurðaff utan flokka. Mun Landkjörstjórn væntan
lega úrskurða um þaff innan tíffar.
Lesendum til glöggvunar birt
um við hér skrá yfir öll framboð
in á einum stað, og verða nefnd
ir þrír efstu menn hvers fram-
boðslista.
- •
Reykjavíjc:
A(-listi Alþýðuflokks): Gylfi
Þ. Gíslason, Eggert G. Þorsteins
son og Sigurður Ingimundarson.
B(-listi Framsóknarflokks): Þór
arinn Þórarinsson, Eipar Ágústs
son .Kristján Thorlacíus.
D: (listi Sjálfstæðisflokks):
Bjarni Benediktsson, Auður Auð-
uns,' Jóhánn Hafstein.
G (-listi Alþýðubandalags):
Mágnús Kjartansson, Eðvarð Sig-
urðsson, Jón Snorri Þarleifsson.
GG: (-listi Hannibals): 'Hannibal
Valdimarsson, Vésteinn Ólason,
Haraldur Henryson.
Ií (-Áka listi); Áki Jakobsson,
Benedikt' Sigurbjörnsson, Guð-
varður Vilmundarson.
Reykianeskjördæmi:
A: Emil Jónsson, Jón Ármann
Héðinsson, Ragnar Guðleifsson.
B: Jón Skaftason, Valtýr Guð-
jónsson, Björn Sveinbjörnsson.
D: Matthías Á Matthíasen, Pét-
ur Benediktsson, Sverrir Júlíus-
son.
G: Gils Guðmundsson, Geir
Gunnarsson, Karl Sigurbergsson.
H: Ólafur Thordarsen, Guðj(
mundur Erlendsson, Gunnar Stein
grímsson.
I
Vesturlandskjördæini:
A: Bjrgir Finnsson, Hjörtur
Hjálmarsson, Ágúst H. Pétursson.
B: Sigurvin Einarsson, Bjarni
Guðbjörnsson, Steingrímur Her-
mannsson.
D: Sigurður Bjarnason, Matt-
hías Bjarnason, Ásberg Sigurðs
son.
G: Steingrímur Pálsson, Teitur
Þorleifsson, Ólafur Hannibalsson.
Norðurlandskjördæmi vestra:
A: Jón Þorsteinsson, Steingrím
ur Kristjánsson, Björgvin Brynj-
ólfsson.
B: Gísli Guðmundsson, Ingvar
Gíslason, Stefán Valgeirsson.
D: Jónas Rafnar, Magnús Jóns
son ,Bjartmar Guðmundsson.
G: Björn Jónsson, Hjalti Har
aldsson, Benóní Árnason.
Austurlandskjördæmi:
A: Hilmar Hálfdánarson, Sigurð
ur Ó. Pálsson, Ari Si-gurjónsson.
B: Eysteinn Jónsson, Páll Þor
steinsson, Vilhjálmur Hjálmarsson
D: Jónas Pétursson, Sverrir Her
mannsson, Pétur Blöndal.
Frh. á bls. 15.
rannsóknarinnar, sem er afar um
fangsmildi. Dómsskjöl, sem eru
orffin 550 aff tölu, og skýrsla um
rannsókn málsins verffa send til
Saksóknara ríkisins til frekari at
hugunar.
Aðdragandi þessa máls er sá,
að 17. apríl 1966 kviknaði í verk-
smiðju Hovedstadens Möbelfabrik
A/S í Kvistgaar á Norður-Sjá-
landi í Danmörku. Allmikið tjón
varð af eldinum, en ýmsu tókst að
bjarga og þar á meðal bókhaldi
fyrirtækisins. Réttum mánuði
síðar, 17. maí 1966, var forstjóri
fyrirtækisins, Elmo Nielsen hag-
fræðingur úrskurðaður í gæzlu-
varðhald grunaður um að hafa
kveikt í verksmiðjunni.
Við athugun á bóklialdi hans
kom í ljós, að fyrirtæki hans, hef
ur haf-t þó nokkuð mikil viðskipti
við íslenzka aðila, einkum þó Pál
Jónasson, Lambastöðum á Sel-
tjarnarnesi.
Rannsókn dönsku lögreglunnar
beindist bæði að því að rannsaka
meinta íkveikju og sömuleiðis að
kanna, hvort Elmo Nielse hefði
gerzt sekur um ýmis konar svik-
samlega starfsemi í rekstri sínum.
Ýmislegt er kom fram við rann-
sókn á rekstri fyrirtækisins,
beindi rannsókninni til íslands.
í nóvember síðastliðnum komu
liingað til lands tveir danskir lög
reglumenn ásamt endurskoðanda
til að kanna viðskipti þessa
danska fyrirtækis við íslenzka að
ila og var þeim veitt aðstoð ís-
lenzkra yfirvalda og dómstóls
Sakadóms Reykjavíkur. Þegar
varð ljóst, að mál þetta skipti ís-
lenzka aðila og yfirvöld, vegna
möguleika á því, að íslenzkir að-
ilar hafi ‘gerzt sekir um refsivert
athæfi í viðskiptum sínum við
Elmo Nielsen.
Bókhald Páls Jónassonar var
fengið til athugunar og skjöl eg
gögn fleiri aðila eftir því sem á-
stæður þóttu til. Gögn þessi voru
síðan afhent Ragnari Ólafssyni,
hæstarréttarlögmanni og löggilt- '
um endurskoðanda í Reykjavík
til rannsóknar og endurskoðunar.
Jafnframt var aflað gagna hjá
tollyfirvöldum og bönkum. En fyr
ir lágu gögn frá Danmörku. .
Ragnar Ólafsson hæstaréttar-
lögmaður sendi Sakadómi Reykja
víkur endurskoðunarskýrslur sín-
ar á tímabilinu 12. til 22. apríl.
Þær voru aðallega tvær, en sam-
tals voru þær fimm að tölu.
Að fengnum þessum endursltoð-
unarskýrslum var málið þegar tek
ið fyrir hjá Sakadómi Reykjavík-,
ur. Páll Jónasson var yfirheyrður ‘
þegar 14. apríl, tveimur dögum
síðar en endurskoðunarskýrslurh
ar komu fram. Þann 14. aprfl var
Páll úrskurðaður í gæzluvarðhald
og sat í því til 3. maí síðastliðinn. -
Fyrrverandi starfsmaður Páls,
Þorbjörn Pétursson, Kópavogi,
var sömuleiðis úrslcurðaður í
gæzluvarðhald 21. apríl og var í
því til 3. maí síðastliðinn.
Við rannsókn málsins hefur
komið fram, að á mörgum undan
förnum árum, hefur Elmo Niel-
sen eða fyrirtæki hans selt Páli
Jónassyni mikið af vörum, eink-
um húsgögn, harðvið og húsgagna
áklæði. í þessum viðskiptum hef
ur stundum borið við, að tvenns
konar reikningar yfir seldar vör-
ur liafa verið gerðir, en þeir ver-
ið misháir og i sumum tilvikum
hefur ekki sama vörutegund
verið tilgreind á báðum reikning-
um. Páll hefur framvísað lægri
reikningum vjð tollaígreiðsluna
hér og greitt aðflutningsgjöld sam
kvæmt lægri reikningi, en síðan
hefur hann greitt Elmo Nielsen
Framhald á 13. síðu.
EMIL
JON
RAGNAR
STEFAN
KARL
FUNDUR í KÓPAVOGI
Alþýffuflokksfélag Kópavogs heldur almennan stjórnmálafund í kvöld 11. maí í félagsheim
ilinu AUÐBREKKU 50 Kópavogi og hefst funiurinn kl. 8,30. — Frummælendur verffa 5
efstu menn Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi. > Allir velkomnir. - Kaffiveitingar.
STJÓRNIN.
11. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3