Alþýðublaðið - 11.05.1967, Page 9
M SUMAR
ANDANN.
brögðum barnanna í skammdeg-
inu á blásnauðum kotbæjum. Jón
Trausti segir frá systkinunum í
Heiðarhvammi, sem dunda sér
ein í bóli sínu, en í rúminu á móti
liggur faðir þeirra liðið lík, en
móðir þeirra er að brjótast alein
til byggða í stórhríðinni til að
sækja hjálp. Og Halldór .Kiljan
segir frá drengnum í Sumarhús-
um og liugrenningum hans á
dimmum skammdegismorgni: —
„Hægan, hægan upplýkur vetrar-
dagurinn sínu norræna auga.”
Nei, vér, núlifandi kynslóðir
gerum oss engan veginn ljóst,
hversu vel okkur líður, miðað við
kynslóðirnar horfnu.
Ragnar Jóhannesson.
Fyrsta mánudag í sumri
talaði Ragnar Jóhannesson
cand. mag. um daginn og
veginn í Ríkisútvarpinu.
— Ýmsir hafa óskað þess
að fá að sjá erindi þetta á
prenti, og birtist þátturinn
því hér, nokkuð styttur.
★ Sumarfögnuður íslendinga.
En hið oft svo stranga sam-
býli við Vetur konung hefur vald-
ið því, að fáar þjóðir liafa fagn-
að sumri og sól með meiri inni-
leik en íslendingar. Enn í dag er
það fastur siður í byggðarlögum,
sem lengi hafa verið sólskinslaus
um miðjan veturinn, að drekka
svokallað sólarkaffi, þegar aftur
sér til sólar. Vér einir þjóða
höldum sumardaginn fyrsta há-
tíðlegan, og þó meira áður. Þenna
gamla sið eigum við að halda í
heiðri. Vel fer á því, að þessi
þjóðlegi hátiðisdagur er helgað-
ur yngstu kynslóðinni. Börnin og
vorið eiga vel saman. Áður fyrr
var það siður, að heimilisfólkið
gaf hvert öðru sumargjafir, þótt
oftast væru smávægilegar, og
væri vel þess vert, að þessi fal-
legi siður væri tekinn upp aftur,
kannski með kaffi og lummum
eins og forðum.
Það er líka gaman að athuga,
hvernig skáldin okkar bregðast
við komu árstíða. Bjarni Thorar-
ensen var t. d. skáld vetrarins,
því að honum var ætið mikið í
mun að sýnast karlmenni, þrátt
fyrir viðkvæma listamannslund
undir niðri. En við þurfum ekki
að leita iengra en til tveggja
þjóðskálda okkar, samtímamanna
okkar, til að sjá hvernig þeir
fagna komu vors og sólar eftir
dimman vetur og kaldan. Tómas
Guðmundsson hefur skálda feg-
urst lýst vorinu í sjálfri höfuð-
borginni, þar sem steinn og mal-
bik eru þó mestu ráðandi; og oft
tengir hann vorið ástinni:
,,Og vorið kom í maí, eins og
vorin komu forðum,
með vængjaþyt pg sólskin og
næturkyrrð og angan.
Og kvöld eitt niðri á bryggju hún
kyssti mig á vangann.
Það kvöld gekk lítið hjarta
í fyrsta sinni úr skorðum.”
Og Davíð frá Fagraskógi var
mikið vorskáld, hann var sann-
kallað vorsins barn, svo sem
vænta mátti af slíkum náttúru-
unnanda:
„Nú lifnar yfir lundunum,
nú leysir fönn og klaka.
Seglin blika á sundunum,
sóleyjar á grundunum,
og villtir vængir blaka.
Glampa slær á glugga og þil,
gaman er að vera til,
— vera t.il og vaka.”
Hér lýsir af hinni frjóvu lífs-
nautn — að finna unað lífsins í
einfaldri fegurð í umhverfi, sem
öðrum tilfinningasljórri finnst
aðeins hversdagslegt og jafnvel
innantómt. — Guðmundur Kamb-
an lýsir einnig þessari einföldu
innilegu lífsnautn yfir litlu:
„Dýr var sú gjöf, sem gaf mér
drottinn
að gleðjast, vorlangan dag
við litla týsfjólu, túnin sprottin
og tístað sólskríkjulag.”
★ Hinar björtu hliöar.
vetrarins.
En vetúrinn hefur líka sínar
björtu hliðar. Honurn fylgir'aukið
menningarlíf með ýmsum hætti,
menntastarfsemi, sem liggur að
mestu niðri að sumrinu.
Þegar rætt er um menningar-
líf, má greina það í tvo megin-
þætti: Hið ytra menningarlíf og
það innra, ef svo mætti að orði
komast. Ytri menningarstarfsemi
er augljós öllum almenningi, í
tónlist, leiklist, myndlist, opin-
berum fyrirlestrum og fundum,
að ógleymdum blessuðum skólun-
um, sem ég býst við að teljast
verði til menningarstofnana. Auð-
vitað er þetta allt fjölþættara og
stærra í sniðum í kaupstöðum en
í fámennum sveitum, og að sjálf-
sögðu fjölskrúðugast í höfuðborg
landsins.
Hið innra menningarlíf er
ekki eins augljóst fyrir almenn-
ings sjónum. Það lifir og þróast
innan veggja heimilisins, innan
fjölskyldunnar. Ærið mun það
bera misjafnan svip eftir eigin-
leikum, lunderni og siðferði
heimilisfólksins, en ekki fer það
á milli mála, að fagurt mannlíf á
heimilunum er ein af máttarstoð-
um hvers þjóðfélags. En heimil-
islífið hefur breytzt hér á landi,
ekki síður en annað. Nú vinna
t. d. langflestir heimilisfeður ut-
an heimilis mestan hluta dagsins
og húsfreyjan stundum líka, börn-
in eru í skólum og vinnu, þegar
þau hafa aldur og þroska til —-
eða svona er þessu háttað i bæ
og borg, þótt öðru vísi sé háttað
í sveitum. Nú er t. d. miklu
minni áherzla lögð á tónlist og
sönglist á heimilunum en áður
var. Þá var líka mjög mörg-
um fjölskyldum kappsmál að
eignast eitthvert hljóðfæri, þau.
efnaminni orgel, — þau betur
stæðu píanó. Nú er þessi áhugi
víðast horfinn, enda þótt tónlist-
aráhuginn almennt sé miklu
meiri. Útvarp, vandaðir grammó-
fónar og opinberir tónleikar full-
nægja tónlistarþörf fólksins. —
Kvöldvökurnar gömlu heyra til
löngu horfinni tíð, en útvarpið
hefur komið í þeirra stað um nær
fjörutíu ára skeið og útvarpið er
voldugt menningartæki, ef það er
ekki ofnotað og látið glymja lát-
laust allan daginn, án þess að
nokkur ljái því eyra. Enn verður
ekki séð hver áhrif sjónvarpið
hefur á heimilislífið.
En sem betur fer er lifað fögru
og menntandi lífi á fjölda mörg-
um heimilum og fer slíkt ekki
eft.ir stéttum né efnahag. Þar er
t. d. lesið mikið af góðum bókum,
en bækur eru aðall hvers heim-
j ilis, hóflegt og örvandi sam-
TYámhSld'á lCTsíðú. '
RÝMINGARSALA
á barnaúlpum í dag og á morgun.
Gerið góð kaup.
BLÁFELDUR HF.
Síðumúla 21. — Sími 30757.
NÝ SENDING
vor og sumarkápur.
KÁPU- og DÖMUBÚÐIN 1
Laugavegi 46. " úl;
HEILSUHÆLI N. L. F. í.
vantar yfirsjúkraþjálfara 1. júlí eða síðar. ^
Umsóknir sendist skrifstofu hælisins í Hvera
gerði sem veitir nánari upplýsingar. j:
SUMARDVÖL
Tekið er á móti umsóknum um sumardvöl j
fatlaðra barna á aldrinum 5-12 ára að Reykja
dal í Mosfellssveit í símum 12523 og 19904.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra,
Sjafnargötu 14.
Reykvíkingafélagið
Afmælisfundur í Tjarnarbúð í kvöld kl. 8.30. 1
Góð skemmtiatriði. j
STJÓRNIN.
AÐALFUNDUR
H.f. Eimskipafélags íslands verður haldinn í '
fundarsalnum í húsi félagsins föstudaginn 12. 1
maí kl. 1,30 eftir hádegi. f*(
Dagskrá samkvæmt saniþykktum félagsins, j
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS. 11
11. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ $