Alþýðublaðið - 11.05.1967, Side 13
flSMyi&CiSBÍÖ
Síin -m«'
Djöfláveiran
ÍSLENZKUR TEXTI.
(The Satan Bug)
Hörkuspennandi og mjög vel
gerð amex-ísk mynd í litum. og
Panavision.
Ricliard Basehart.
Endursýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum.
Þögnin
Ignmar Bergmans, sýnd vegna
fjölda áskorana kl. 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
HAFNAR-
FJÖRÐUR,
NÁGRENNI
Höfum opnað aftur eftir
gagngerðar breytingar.
★
Höfum meðal anriars
Grillsteikta kjúklinga
Grísakótilettur
Hamborgara
Samlokur
heitar og kaldar
Smurt brauð.
★
Komið og reynið viðskiptin.
★
Takið með heim.
★
MATSTOFAN
Reykjavíkurvegi 16.
Hafnarfirði
Sími 51810.
Tökum að okkur alls kon-
ar matarveizlur. Pantið í
síma 51810 og 52173.
BÍLAMALUM -
RÉTTINGAR
BREMSUVEDGERÐIR O. FL.
BIFREIÐAVERKSTÆÐEÐ
VESTURÁS HF.
Súðavogi 30 — Sími 35740.
/1 /inn inqpLrónjölc/
‘ s. Ms.
Framhaldssaga eftir Nicholas Johns
FANGI ÓTTANS
Vitanlega var það rétt að erf-
iðleikar gætu orðið. Jafnvel
Chris hafði viður.kennt að hann
óttast nýtt kast. Ef til vili hefði
hún átt að krefjast þe'ss að þær
mæðgurnar byggju í borginni.
Hún hefði átt að reyna meira
til að telja móður sína á sitt
mál.
Svo minntist hún þess hvern-
ig Chris hafði litið út um morg-
uninn, þegar hann fór út á ak-
urinn til að vinna með verka-
mönnunum.
Hann hafði verið svo áhuga-
samur, svo einmana, þráð svo
mjög að hefja nýtt líf. Hún fékk
tárin í augun af meðaumkun,
þegar henni kom það til hugar.
Hervey hugsaði svo mikið um
hann allan morguninn, að það
kom henni á óvart að sjá hann
bíða i jeppanum fyrir utan
dyrnar, þegar hún kom út til að
fara í hádegismat.
Hann brosti til hennar.
— Ég þurfti að sækja útsæði
til borgarinnar, sagði hann. —
Komdu heim með mér. Þú þarft
ekki að hjóla alla lefðina.
Af því að frú Galton þurfti
hvort eð er að elda mat á þess-
um tíma dags fyrir Chris og
verkamennina haíði Hervey
lagt það í vana sinn að fara
heim í mat.
Það var mikil umferð um há-
degið því þá voru verksmiðjurn-
ar lokaðar í klukkutíma og á
götunum voru bæði bílar og
hjól.
Chris rétti fram höndina og
aðstoðaði Hervey við að setjast
inn í jeppann. Sér til mikillar
gremju fór heitur straumúr
um hana, þegar hann snart
handlegg hennar. Svo var tekið
um hina hönd hennar. Red Stok-
es stóð við jeppann.
— Bíddu, sagði hann reiði-
lega.
— Ég hef ekki tíma til að
tala við þig núna, Ned.
— Ég ráðlegg þér að gefa þér
tíma til þess samt.
Hervey settist í jeppann. Hún
sá að mennirnir tveir störðu
hvor á annan. Annars augu voru
þrungin hatri, hins fyrirlitningu.
— Engin læti hér, Stokesi
sagði Chris aðvarandi.
Hervey fer ekki í bíl með
yður.
— Því ræður hún sjálf.
Ned Stokes leit á stúlkuna.
— Mér er sagt, að þú búir á
búgarðinum. Þú lilýtur að vera
vitskert Hvernig fékk hann
þig til þess? Bauð hann mömmu
þinni rosakaup? — Hann hækk-
aði röddina. — Hlustaðu á mig,
Hervey. Geturðu ekki séð;
hvernig þetta fer? Hann myrðir
þig, eins og hann myrti hina
stúlkuna.
Chris gerði sig líklegan til
þess að stökkva út úr jeppan-
um — en hún kom í veg fyrir
það.
— Við skulum fara, Chris,
sagði hún biðjandi. Vertu ekki
að leggja þig niður við að slást
við hann.
— Hann neyðist til þess ein-
hvern veginn — og það fljót-
lega, urraði Ned. — Heyrið þér
það, Manning? Ef þér svo mikið
sem snertið Hervey, skuluð þér
fá að eiga við mig Munið þér
is fór hún út að hliðinu til að
leita að honum. Loks varð móð-
ir hennar óþolinmóð. — Vertu
ekki að æsa þig upp út af engu.
telpa. Hann hefur lykla. Komdu
að hátta.
En Hervey lá og bylti sér i
rúminu meðan hún beið eftir
fótataki hans. Hún leit út um
gluggann. Það var dimmt, ekk
9
það! Hervey er stúlkan mín —
það væri heimskulegt af yður að
gleyma því!
Chris sett'i vélina í gang og
jeppinn ók af stað. Hvorki Chris
né Hervey sögðu orð fyrr en
þau komu út á þjóðbrautina. Þá
leit Chris út undari sér á hana.
— Svo þú ert stúlkan hans
Ned Stoker?
Hervey roðnaði.
— Það er ekki satt'! Ég hef
aldrei verið stúlkan hans! Hún
undraðist heift sína og hve það
var mikilvægt fyrir hana, að
Chris tryði því ekki að neitt væri
milli þeirra Neds. — Mér hefur
alltaf fundizt hann afar leiðin-
legur og erfiður, sagði hún lág-
værari.
Chris brosti.
— Ég hugsa að hann verði
meira .en rétt erfiður. Það þarf
mikla áreynslu til að gera honum
skiljanlegt að þú ert ekki einka-
eign hans. Hann yppti öxlum.
Ef til vill sláumst við fyrr eða
síðar.
Hún velti því fyrir sér hvort
hann ætti við, að hann ætti eftir
að berjast við Ned um hana eða
hvort hann ætlaði sér að berjast
við Ned vegna þess að hann fékk
alla til að vera á móti honum.
Hún leit út undan sér á mann-
inn við hlið sér, en úr svip hans
varð ekkert lesið.
SJÖUNDI KAFLI.
Hervey var vakandi, því hún
gat ekki sofið. Hún var áhyggju-
fulL. Chris hafði ekki farið að
hátta strax eftir matinn um
kvöldið. Hann hafði farið út um
dyrnar án þess að segja hvert
ferðinni væri heitið.
Hann var þréytulegri og
spenntari en nokkru sinni fyrr.
Kvöldið leið hægt og stöðugt
óx skelfing Herveyjar. Margsinn-
Svik
Framhald af bls. 3.
hið rétta verð vörunnar sam-
kvæmt hærri reikningnum.
Athugaðar hafa verið 79 vöru-
sendingar frá Elmo Nielsen.
Starfsmenn tollstj óraskrifstofunn-
ar og ríkisendurskoðunarinnar
telja, að af þessum 79 vörusend-
ingum hafi reikningar verið rang
ir í 33 tilvikum. Innkaupsverð
samkvæmt reikningum, sem vísað
var fram við tollafgreiðslu þess-
ara 33 vörusendinga er talið
nema rúmlega 254 þúsundum
danskra króna og greiddur tollur
af þeim numið rúmlega 743 þús-
undum íslenzkra króna. En sam-
kvæmt hærri reikningum telja
þessir aðilar, að innkaupsverðið
hafi verið rúmlega 588 þúsund
danskra króna og hefðu því toll-
gjöld átt að nema rúmlega 1.788,
000,00 íslenzkra króna. Vangreidd
ir tollar af þessum 33 vörusend-
ingum næmu því rúmlega 1,037
000,00 íslenzkra króna. Jafnframt
telur endurskoðandi, Ragnar
Ólafsson, hrl., að gjaldeyrisyfir-
færslur Páls samkvæmt hinum
lægri reikningum hafi numið 237.
000,00 dönskum krónum, en að
auki virðist endurskoðanda, að
Páll hafi ennfremur fengið gjald-
eyrisyfirfærslur í bönkum með
því að framvísa hærri reikningum
og nemi sú yfirfærsla 269 þúsund
íslenzkra króna. Þá telja endur-
Skoðendur, að Þorbjöm Péturs-
son, starfsmaður Páls, sé í 16
vörusendingum skráður innflytj-
andi og varan þá flutt inn í hans
nafni. í bókhaldi Elmo Nielsep
er Páll hins vegar skráður kaup-
andi vörunnar.
Vöruverð þessara 16 vörusend-
inga er talið samkvæmt' tollaf-
greiðslureikningum nema 26 þús-
und dönskum 'krónum og 17 þús-
und íslenzkra króna. Talið er, að
við framvísun þeirra hjá tollyfir-
völdum hafi aðflutningsgjöld ver-
ið greidd með 169 þúsundum ís-
lenzkra króna, en innkaupsverðið
samkvæmt hærri reikningum hafi
verið 339 þúsund danskar krónur.
Samkvæmt því hefði átt að greiða
aðflutningsgjöld, sem nema 1.521.
000,00 íslenzkra króna. Vangreidd
aðflutnings- og tollgjöld af þess-
um 16 vörusendingum nema því
1.352,000,00 íslenzkra ’króna.
Páll Jónasson hefur ekki að
svo komnu máli véfengt framan-
greindar niðurstöður endurskoð-
enda og tollyfirvalda, en hins
vegar hefur hann áskilið sér rétt
til að gera athugasemdir við þær
síðar.
Varðandi sendingar þær, sem
Þorbjörn er talinn ihafa flutt inn,
segir Þorbjörn, að hann hafi
ekki verið kaupandi heldur Páll.
Þó ber þeim báðum saman uiq
það, að Þorbjörn hafi verið eina
innflytjandi fjögurra vöruseridi
inga, en vangreidd aðflutningsx
gjöld af þeim sendingum nemn
275 þúsund íslenzkra króna.
Falsanirnar, sem Páll hefur
gert sig sekan um, eru að því er
virðist fólgnar í því, að hann hef-
ur notað tvenns konar reikninga!
yfir sömu vöru. Stundum hefur
komið fyrir, að þrenns konar
reikningar hafi verið notaðir
varðandi sömu vöruna. Sömulei8
is er ekki alltaf samræmi með
texta reikninganna. í einu tilviki
var til dæmis texti hærri reikn-<
ings plastvörur, en inn voru flútt
ir nylonsokkar. Þá er þess að geta,
að þau tilvik komu fyrir, að þtír
vörureikningar voru á ferðinhi,
þ.e.a.s. þrenns konar verð á sömu
vöru. Lægsti reikningurinn var
fyrir toll og aðflutningsgjöld,
hæsti reikningurinn er talinn
sýna rétta verðið, en miðreikning
urinn var til þess að fá gjaldeyfis
leyfi í bönkum samkvæmt honum
og svo lægsta reikningnum. Sem
dæmi um þetta má nefna, að í
einu tilviki var lægsti reikningur
8.000,00 kr. miðreikningurinn
13.000,00 kr., en rétta verðið 49.
000,00 krónur.
'Rannsókn faktúrumálsins er
ekki lokið. Rannsókn hefur að«
eins farið fram á grundvelli
þeirra endurskoðunarskýrslna
sem liggja fyrir.
Ekki er upplýst, livort aðrir
menn hafi í sambandi við við-
skipti við Elmo Nielsen gerzt sek
ir um refsivert athæfi. Rannsókn
hefur náð til annarra manna efr-
ir því sem endurskoðunarskýrslaJ*
hefur gefið tilefni til.
Þessi rannsókn verður send
Saksóknara ríkisins svo og 550
dómsskjöl málsins til frekari
meðferðar.
Þess skal getið, að viðskipti
Páls Jónassonar og Elmo Nielsen
munu hafa hafizt um árið 1959.
Rannsókn málsins nær þó ekki
lengra aftur en til nóvenmber-
mánaðar. 1961.
Páll Jónasson og Þorbjörn Pét-
ursson voru lausir úr gæzluvarð-
haldi þann 3. maí, en þeim var
þá tilkynnt, að þeim væri óheim-
ilt að fara af landi brott, fyrr en
dómari ákveður annað.
AUTTILSAUMA
ASJ6LYSIÐ
í Alþýðnblaðinu
11. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐK) 13