Alþýðublaðið - 02.06.1967, Síða 3
Madame Rosta, jorstöðukona sýningardeildarinnar og Madame Sugar, aðstoðarstúlka hennar.
Vðrusýningunni
lýkur á sunnudag
Rúmlega 20 þúsund manns hafa
nú komið á vörusýningu A-Evrópu
landanna fimm í Laugardalshöll-
inni, en sýningunni lýkur n. k.
sunnudag.
Blaðamönnum var í gær tooðið
að skoða ungversku sýningardeild
ina og hitta frú Rosta, sem veitir
sýningardeildinni forstöðu. Frú
Rosta sagði, að hún væri mjög
ánægð með sýninguna, sem er
fyrsta vörusýning Ungverja á ís-
landi og hefðu mörg fyrirtæki
gert sölusamninga við Ungverj-
ana. Mesta athygli lá sýningunni
'hefði vakið ungverska vefnaðar-
varan, viðleguútbúnaður, álbúsá-
höld og veiðibyssur. Hún sagðist
einnig vonast til þess, að fleiri
ungverskar vörusýningar fylgdu í
kjölfar þessarar hér á landi, en
Ungverjar nafa árlega vörusýning
ar víðs vegar um heim. Ungverska
Framhald á 14. síðu.
Gamlar stríðs-
hetjur í'stjérn
Tel Aviv 1. €. CNTB-Reuter)
Flokksráð í flokki Levi Eskols,
forsætisráðherra ísraels, sendi í
dag út yfirlýsingu þess efnis, að
flokkurinn mælti eindregið með
því, að Moslie Dayan yrði útnefnd
ur varnarmálaráðherra. Dayan
Ieiddi ísraeismenn í bardaganum
við Egypta árið 1956, þégrar ísra-
elsmenn báru sigur úr býtum.
Dayan tilheyrir hinum fámenna
flokki Davids Ben Gurions, fyrr-
verandi forsætisráðherra. — Það
er talið trúlegt, að aðrir þekktir
byltingarforingjar verði falaðir
til að taka virkan þátt í endur-
skipulaigðri stjórn. Áreiðanlegar
heimildir herma, að opinber yfir-
lýsing um þetta muni verða birt
-innan tíðar, þegar Eskol, forsætis
ráð'herra, hefur lokið viðræðum
sínum við stjórnmálaleiðtoga. Þær
breytingar, sem gerðar verða,
miða trúlega í iþá átt, að fleiri
hernaðarsérfræðingar komist í
stjórnaraðstöðu, en stjórn Eskols
ihefur fengið miklar ákúrur heima
fyrir fyrir að auðsýna Egyptum
linkind. Talið er, að Eskoi muni*
útnefna Allon, fyrrum hersihöfð*
ingja, sem varaforsætisráðherra,
sem 'beri sérstaka ábyrgð á á-
kveðnum málum. Allon er þekkt
stríðshetja frtá Palestínustríðinu.
Þyrlum flogið
yfir höfiÖ
París 1. 6. (NTB-Reuter)
Tvær amerískar þyrlur lentu í
dag á Bourget-flugvelli við París
eftir velheppnaða fcrð yfir At-
lantsliaf án millilendinga. Þetta
er í fyrsta sinn, sem slík ferð er
farin á þyrlum, án þess að nokk-
urs staðar væri lent á leiðinni.
SANDGERÐI
AlþýSuflokksfélag SandgerSis heldur almennan félagsfund laugar-
daginn 3. júní kl. 4 síðdegis í Félagsheimilinu.
Jón Ármann Héðinsson viðskiptafræðingur og Kari Steinar Guðna
son kennari flytja ávarp.
Síðan verða frjálsar umræður og kaffiveitingar.
STJÓRHIN.
A-listinn heldur almennan kjósendafund í Félagsheimili Kópavogs, veitinga
sal, sunnudaginn 4. júní kl. 4 síðdegis.
Ræður flytja 5 efstu menn á lista Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi.
Að loknum ræðum frummælenda verða frjálsar umræður.
Jón H. Guðmundsson skólastjóri verður fundarstjóri á fundinum.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Emil Jónsson.
Ragnar Guðleifsson. Stefán Júlíusson.
Karl Steinar Guðnason.
Jón Árm. Héðinsson.
Jón H. Guðmundsson.
2. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3