Alþýðublaðið - 16.06.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.06.1967, Blaðsíða 3
 tolla — Og í hverju féltkstu verð- laun? — Ég fékk fþau fyrir latínu, þýzku, frönsku, íslenzku, nátt- úrufræði, sögu og svo fyrir prófið í iheild. — Og hvaða nám ætlarðu í næsta haust? — Ég held ihelzt að ég fari í íslenzkunám hér í Háskóla íslands. Það er þó ekki alveg ákveðið. ★ Tvo stúdenta hittum við næst, sem báðir héldu á ein- um bókaverðlaunum. Við tök- um fyrst tali Bergþór HalldórsFélagarnir Berþór Halldórsson og Helgi Magnússon. son. — Varst þú í máladeild eða _ Ertu ekki ánægður með stærðfræðideild? prófið? — Jú, eftir atvikum. — Ég var í stærðfræðideild, í 6. bekk U. — Og þú hefur fengið verð- laun. Fyrir hvað fékkstu þau? — Ég fékk verðlaun fyrir stærðfræði frá íslenzka stærð fræðingafélaginu. — Ert þú Reykvíkingur? — Nei, ég er Árnesingur, frá Heiðarbæ í Flóa. — Og hvað ætlast þú fyrir með framhaldsnám? — Ég reikna með að fara í verkfræðid. Háskóla íslands næsta vetur. Helgi Magnússon var líka í 6. bekk U í Stærðfræðideild. — Hvað ætlar þú að læra næsta vetur, Helgi? — Það er allt óákveðið, ég fer sennilega í nám hér heima til að ibyrja með. — Og þú hefur fengið eina verðlaunabók? — Já, ég fékk verðlaun fyr ir dönsku frá Dansk-íslenzka félaginu. Síðast spjöllum við við Ast- ríði Guðmundsdóttur, en hún var í Máladeild. — Ert þú ekki ánægð með prófið? — Jú, ég er það. — Hvaða nám ætlar þú í næsta vetur? — Ég er alveg óákveðin, en ég býst við að ég fari í Háskóla íslands. Kolbrún Haraldsdóttir Astríð'ur Guömundsdóttir. Regnið streymdi úr loftinu eins og allar flóðgáttir himins hefðu opnazt, þegar nýstúdentarnir frá MR gengu út úr Há- skólabíói I gær. Nýstúdentar frá Menntaskólanum í Reykja- vik eru að þessu sinni 239 og hæstur á stúdentsprófi varð Þórarinn Hjaltason úr Stærðfræðideild, en hann hlaut í eink- unn 9,48. i f Við náðum aðeins tali af Þór arni og nokkrum fleiri nýstú- dentum í gær í anddyri Há- skóiabíós, en hann var þar um kringdur af viðtalendum og sjónvarpsmönnum. — Ert þú ekki ánægður með prófið, Þórarinn? — Að sjálfsögðu er ég á- nægður með þennan árangur. Ég hef jafnvel fengið hærra en ég átti skilið í sumum grein- um, sérstaklega í munnlegum greinum, þar sem þetta er nú allt happdrætti upp í. hverju er komið. — Þú ert með mörg verð- laun, sé ég er. — Já, ég fékk einar 5 bæk ur og þrenn peningaverðlaun. — Ert þú Reykvíkingur? — Jú, ég er sonur lækna- hjónanna Önnu Thorarensen og Hjalta Þórarinssonar og uppalinn í Reykjavík. — Hvað hyggst þú fyrir um framhaldsnám? — Ég ætla að læra bygginga verkfræði. Það er ekki eins út séð um, hvar ég læri hana, ég á nokkuð góða von um að hljóta styrk í Cambridge í eitt eða tvö ár, en ef það verður ekki, býst ég við að komast í Glasgow-háskóla. Ég er sér- staklega ánægður með að kom ast til Bretlands, þar sem nám ið þar tekur 4 ár í stað 5Vz ef ég byrja hér. Þórariim Hjaltason, dúx Menntaskólans 1967. Næst efst á stúdentsprófi og efst í Máladeild varð Kolbrún Haraldsdóttir og féklc hún í að aleinkunn 9,43. Kolbrún er dóttir hjónanna Þóru Finn- bogadóttur og Haralds Ólafs- sonar. Kolbrún var í VI. bekk A. — Þú ert auðvitað ánægð með prófið, Kolbrún? — Já, já, ég er mjög lánægð. — Fékkstu ekki mörg verð- laun? — Ég hef fengið 8 verðlaun, segir Kolbrún, eftir að liún hef ur talið bækurnar og umslög- in, sem hún heldur á. 35 stúdentar frá V.í. í vor Verzlunarskóla íslands var sagt [ upp í gær og brautskráðir 35 stú- dentar. Dr. Jón Gíslason, skólastj. bauð gesti velkomna, en viðstadd ir voru auk nemenda og kennara fulltrúar ýmissa árg. stúdenta, Verzlunarráð og skólanefnd. — Þetta er 23. stúdentaárgangurinn, sem útskrifast úr skólanum, en alls hafa 455 nemendur 'tekið stú- dentspróf við skólann, fyrst 7 pilt ar 1945. Að þessu sinni hófust próf 2. maí og lauk 13. júní, 34 nemendur 6. bekkjar og 1 nem- andi utanskóla gengu undir próf og stóðust allir. Prófdómendur eru stjói-nskipaðir. 26 stúdentar hlutu 1. einkunn, en 9 2. einkunn. Hæstu einkunnir fengu: Erla Sveinbjörnsdóttir, 7,29; Ólafur Gústafsson, 714; Hafþór I. Jóns- son, 6,93 og Guðrún Bjarnadóttir, 6,84 (dæmt eftir Örstedskerfi) Er skólastjóri hafði lýst úrslit- um prófa og afhent hinum fríða hópi skírteini sín, sungu nýstú- dentar ísland ögrum skorið og settu að því búnu upp hvítu húf- urnar. Þá tók til máls formaður Verzl- unarráðs, Kristj’án G. Gíslason og árnaði hinum nýbökuðu stúdent- um heilla, niinntist þeirra manna, sem börðust fyrir stofnun skólans sáu fyrir nauðsyn menntaðrar verzlunarstéttar í landinu. í til- efni afmælis Verzlunarráðs í haust gefur það gjöf þeim nem- anda, sem hæstu einkunnir hlýt- ur í viðskiptagreinum, bókfærslu, endurskoðun og hagfræði. Þessi verðlaun, Orðabók Sigfúsar Blön Framhald á 15. síðu. Stúdentar frá Verzlunarskóla íslands 1()67. 16. júní 1967 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.