Alþýðublaðið - 16.06.1967, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 16.06.1967, Blaðsíða 16
HEIMAN ■ NÚ er vertí'ð ferðamanna hafin , rétt einu sinni enn og um borg l og byggð. Langt er síðan íslensk- ir ferðamenn, bæði einir sér og í hópum, hófu innrás sína í sólar- lönd Evrópu, að við nefnum ekki útálfur eins og Asíu og Afríku. Það þykir reyndar hálf lummó á þessum síðustu og beztu tímum að liafa ekki að öðru að státa en búðar ferð til Glasgow og London eða brúnkudvöl á Mallorca, og því- gerist nú landinn æ víðförulli. Það kom þessvegna engum á ó- vart', er upphófst eitt heljarstríð fyrir botni Miðjarðarhafs, að þar kæmu við sögu nokkrir íslending- ar, Reyndar fetuðu þeir ekki í fót , spor feðranna, sem fóru svipaðar l slóðir fyrr á öldum, bitu í skjaldar rendur og hjuggu mann og annan, en það er nú önnur saga. Tímarn- ir hafa breytzt og íslendingar með. Þar sem íslenskir kappar áður fyrri skildu eftir sig blóðugan feril og frægð, spretta nú úr fótspor- um landans peningrös, og reyndar einnig á stundum frægðarljómi, þótt af öðrum toga sé spunninn. Haft er fyrir satt, að efnaðir ís- lendingar erlendis, séu með at- hyglisver'ðari rannsóknarefnum innfæddra, enda verður að segja það íslenzkum stórborgurum til lofs, að þeir.eru engir meðalmenn heima hjá sér, en á erlndri grund Upp, upp, mín auma sál Inni í Laugardal geðjast mér gras og kál. Gleðin þar haldast skal. )» li Frýsa þar fjörug liross, frjáls eins og villistóð, hamast og hneggja að oss, hvað verður skemmtan góð. Ganga fram grís og sýr, gamail og digur þjór, alls konar ær og kýr öskra og jarma í kór. Flest mun þar fegurð sén, flíkur og meyjaval. Túnin og Bjarni Ben brosa í Laugardal. Veröld með dans og drukk dillar þér, sála mín. Kvöldið og Kúlusukk kallar oss öll til sín. fölnar allt og allir í návist þeirra af hverju sem það nú stafar. Hins vegar verður það að teljast kald- liæðni örlaganna, að ísiendingar líta með vingjarnlegri meðaumk- un niður á þá einu þjóð veraldar, sem enn dáir þá, aumingja Fær- eyingana, en í Færeyjum er það haft að máltæki að „íslendingur- inn geti allt“. En úr því að við höfum dvalið svöna lengi við afreksverk ísl. ferðamanna og víkinga á meðal framandi þjó'ðflokka, er ekki úr vegi að láta fylgja með eina stutta dæmisögu, sem þegar öllu er á botninn hvolft, brýtur til mergjar allar vangaveitur erlendra um okkur, og gefur því ekki ástæðu til frekari spekúlasjóna eins og kerlingin sagði, Þess verður þó að geta áður en lengra er haldið, að sagan gerðist á þeim örlagatímum í sögu Afríku, er hvert landiö af öðru öðlaðist sjálfstæði með þeim afleiðingum að bræður bárust á banaspjót, leiðtogar voru gerðir höfðinu styttri, og við lá að nýfengið frelsi yrði þjóðum þessum til meiri óhamingju en röggsöm harðstjórn nýlenduherranna. Það var sum sé oim þetta leyti að hópur íslendinga var að skemmta sér á opinberum stað í ónefndu landi. Þegar skemmtanin hafði lifað lengi nætur, geröust landar vorir dólgslegir mjög, svo ekki sé fastar kveðið að orði. Lét þá einn innfæddra þessa athuga- semd falla í hópinn: „Því er eins farið með ykkur og Kongóbúa, þið fenguð frelsið alltof fljótt". Það skipti ekki máli, þótt það fylgi sögunni, að sá sem oröin sagöi var Dani. Eiginlega ættu allir Banda-> ríkjamenn að sitja ínni. Fyrirsögn í VÍSI. Ja, það má um de Gaulle segja, að þótt hann sé mik- ill karl, þá er hann engiim guð, cn guð er nú heldur enginn de Gaulle. Nú er ég orðinn fullgildur meðlimur í SUSÞ, en það eru auðvitað samtök um að spæla þjóðhátíðarnefnd. Þegar ég las í blaðinn í gær að stúlka hefði komið upp um falsara og þjófa varð ég ekkert hissa. Ég vildi bara að fleiri kynsystxu- mínar væru svona slyngar að sjá í gegnum karlmenn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.