Alþýðublaðið - 27.06.1967, Side 8
t
NOKKRAR frægar konur voru
spuröar hvaða fegurðarlyf þær
myndu helzt vilja hafa hjó sér
ef þær strönduðu á eyðieyju, og
hér fara á eftir svör þeirra:
Audrey Hepburn, kvikmynda-
stjarna,-
Sízt af öllu gæti ég hugsað
mér að lifa án sápu.
Catharine „Kit” Gill, módel:
Ég hef gaman af að prófa
mig áfram með fegrunarlyf. Og
þessi dýru, í fínu umbúðunum
eru ekki alltaf bezt. Til dæmis
nota ég alltaf hundasápu, þegar
ég þvæ mér um hárið. Ég hef
aldrei' fundið neinn hárþvotta-
lög jafngóðan. Þegar ég er búin
að mála mig í framan smyr ég
þunnu lagi af karlmannahár-
kremi yfir allt saman Þannig
verð ég öll gljáandi, bæðj hár
og andlit, og það líkar mér vel.
Joan Crawford, kvikmyndastjarna
og varaforseti Pepsi-Cola fyrir-
tækisins:
Þegar annað fólk borðar ábæti
og kökur, borða ég súrsað græn-
meti. Ég er vitlaus í allt súrt,
og mér finnst bezt að enda
hverja máltíð á því. Og auðvitað
er það heppilegra fyrir línurn-
ar en eitfhvað sætt. Ólívur og
súrsað grænmeti — það eru
mín fegrunarlyf.
Baby Jane Holzer, ein af stjörn-
um samkvæmislífsins:
Það er ómögulegt, að stúlka
sé sæt eða smart eða nýtízku-
leg, ef hún er ekki grindhoruð.
Ég 'drekk megrunarkóla dag og
nótt. Svo dansa ég. Það er
heimsins bezta leikfimi. Ég
dansa a.m.k. klukkutíma á dag.
Heima set ég uppáhaldspopp-
plöturnar mínar á fóninn og
dansa svo alveg villt eftir þeim.
Það er gaman og grennandi.
Mary Wilson, poppsöngkona:
Ég hef lítil augu, svo að ég
geng með stóra lafandi eyrna-
lokka, af því að mér finnst aug-
un í mér sýnast stærri við það.
Ég nota gerviaugnahár og svarta
augnlínu. Eg set kinnalit beint
á kinnbeinin Og ég nota bleik-
an og appelsínugulan varalit til
að láta tennurnar sýnast hvít-
ari. Ég blanda saman ilmvötn-
um og vil hafa þau sterk.
Pamela Mason, dálkahöfundur, út-
varps- og sjónvarpsstjarna, áður
gift leikaranum James Mason:
Ef ég á að velja eitt uppáhald,
þá er það Nivea húðolía. Ég ber
hana á allan líkamann eftir
baðið á hverjum degi. Hún
gerir hörundið eins og flauel.
Anita Louise, kvikmyndastjarna:
Ég hugsa hvorki um megr-
unarkúra né leikfimi, en ég
Stella Stevens
Greta Thyssen
Leslie Caroit
Peggy Moffitt
Elke Sommer
Yvette Mimieux,
Dina Merrill
China Machado
Catherine Spaak
Hlizabeth Taylor
Shirley Jones
Susan Van Wyck
Audrey Hepburn
Catharine "Kit" GiU
Paby Jane Holzer Lyn Revson
man ekki hvað er langt síðan . það bezta sem til er fyrir þurra
ég bragðaði seinast ábæti. Eg húð.
nota Re-Nutriv krem á kvöld-
in og undir máiningu á dag- Greta Thyssen, Broadway-stjarna:
inn.
Lyn Revson, eiginkona Charles
Revson, eiganda Revlon-fyrirtæk-
isins:
Það er ekki af tómri hollustu
við Charles — en ég verð að
segja, að ég get ekki lifað án
Blush On sem Revlon framleið-
ir Það fer með mér hvert sem
ég fer. Og ég gæti ekkj án
þess verið jafnvel á eyðiey. Það
er indælt að vera gift Charles
— ég fæ að prófa allar snyrti-
vörurnar fyrst!
Gerviaugnahár númer eitt.
Augun skipta mestu máli í
hverju andliti, og nú eru allar
konur farnar að ganga með
gerviaugnhár. Þau koma fyrst
allar snyrtivörur eru einskis
virðj á móti þeim. Mér fyndist
ég nakin án gerviaugnahár-
anna minna.
Catherina Spaak, kvikmyndastjarna,
dóttir Paul-Henri Spaak stjórn-
málaleiðtoga:
Brúnn augnskuggi handa mér,
takk fyrir. Nei, nei, ekki til að
Stella Stevens, kvikmyndastjarna:
Ástin er mitt fegrunarlyf. Ég
er vitlaus í karlmenn. Ástfangin
kona þarf ekki á fegrunarlyfj-
um að halda, hún ljómar öll
án þeirra. Ég borða hrátt kjöt,
grænmetj og ávexti, fer í nudd
og skylmingar.
China Machado, tízkusérfræðingur
við Harper’s Bazaar:
Ef ég væri á eyðiey myndi
ég ekki vilja vera án kókos-
hnetuolíu Og til altrar ham-
ingju yrði sennilega nóg af
henni þar! Kókoshnetuolía er
skyggja augnlokin. Ég er svo
hrifin af freknum, en því mið-
ur hef ég fáar frá nóttúrunnar
hendi, svo að ég bý þær til
með blautum svampi og brún-
um augnskugga.
Eliazbeth Taylor, kvikmyndastjarna
og eiginkona leikarans Richards
Burton:
Ja, það er náttúrlega hægt
að vera falskur og segja, að
maður þurfi ekki fegrunarlyf,
aðeins frið í sálu sinni eða eitt-
hvað álíka háfleygt. Kannski
ættj ég bara að segja Richard
Burton fyrir mig. Og Jergens-
krem eða olíu. Eg þvæ mér úr
sápu og vatni og ber á mig
Jergens húðolíu. Já, og ekki
vildi ég þurfa að vera lengi á
eyðiey með augnabrúnirnar
og engar tengur til að plokka
þær með!
Susan Van Wyck, módel:
Ég get ekkj verið án augna-
ibrúnalitarins sem er borinn á
með litlum bursta. Ég hef svo
að segja engar augnabrúnir
sjálf, svo að ég verð að mála
þær á mig, en augnabrúnablý-
antur er alltof harður og óeðli-
legur.
Shirley Jones, kvikmynda- og
næturklúbbastjarna:
Ég var voðalega bólótt sem
krakki, en það er nú sem betur
fer horfið. Ég nota alltaf Resul-
in, bólueyðandi húðolíu, bæðj á
daginn undir málningu og svo
á kvöldin fyrir nóttina. Maður-
inn minn notar hana líka.
Leslie Caron, kvikmyndastjarna og
ballettdansmær:
Ballettstöngin mín er hlutur
sem ég gætj aldrei verið án,
heldur ekki á eyðiey. Ballett er
mín uppáhaldsleikfimi, en hann
er auðvitað ekki fyrir. alla. Ég
myndi ekki ráðleggja óvönu
fólki að leggja stund á ballett,
því að þjálfunin þarf að hefjast
strax í barnæsku, ef vel á að
vera.
Peggy Moffitt, módel:
Ef ég værj alein á eyðiey
sápu fyrir mig. Fína, ilmandi
sápu — og nóg af henni. Ég hef
unun af að vera hrein.
Dina Merrill Broadway-stjarna:
Ég vil hafa rakakrem hjá mér
á eyðiey. Það finnst mér allra
fegrunarlyfja nauðsynlegast.
Stór krukka af rakakremi er
eins og æsku uppspretta, Ég ber
á mig rakakrem áður en ég
mála mig á morgnana, og eins
fyrir nóttina, eftir að ég er
búin að hreinsa af mér máln-
inguna.
- ~T
Elke Sommer, kvikmyndastjarna:
Sápa og vatn, leikfimi og
svefn .... þetta eru mín fegr-
unarlyf.
Yvette Mimieux, kvikmyndastjarna:
Hafið er mitt fegrunarlyf, svo
að ég væri vel stödd á eyði-
ey. Ég get ekki lifað án hafs-
ins. Eg syndi mikið og fer á sjó-
skíðum og ligg í sólbaði, en
það er eitthvað meira við hafjð
£ 27. júm 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ