Alþýðublaðið - 15.07.1967, Side 8
ÞA£) hefur verið reiknað út, að
á einni viku árið 1965 hafi verið
eytt jafnmiklum tíma í vísinda-
rannsóknir og var eytt í þær alla
18. öldina — einmitt á þeirri
öld, sem margar helztu uppfinn-
ingar mannkynsins vom gerðar.
Þetta gefur nokkra hugmynd
um, hversu mikið er unnið á
sviði vísindanna í dag — eða
ekki í dag, heldur er réttara að
segja í gær. Á þeim tveimur ár-
um, sem liðin eru síðan 1965
hefur fjöldi ungs fólks lokið próf-
um í vísindum við háskólana og
nú snúið sér að því að leysa hin-
ar miklu ráðgátur, ríkisstjórnir
hafa ákveðið enn umfangsmeiri
vísindarannsóknir og enn fleiri
aðferðir eru notaðar í þágu vis-
indanna.
í þessari grein verður rætt um
lyfin — ný læknislyf, lyf, sem
lækna og lina sjúkdómsþjáningar
og einnig ný bóluefni, sem vernda
mennina gegn miklum þjáning-
um.
Og hvað verður á þessu sviði,
ef þróunin heldur áfram á sama
hátt og hingað til. Vísindamenn
geta oft sagt með nokkru öryggi,
að það vandamál, sem þeir eru
að glíma við leysist með tíman-
um, eftir nokkur ár verði lausn-
in fundin. Uppfinningar í lyfja-
fræði eru sjaldan gerðar skyndi-
iega, heldur verða þær til eftir
þrotlausa vinnu fjölmargra vís-
indamanna, sem starfa á rann-
sóknastofnun víða um heim. Þeir
vinna saman, skiptast á reynslu
og Iæra hver af öðrum. Einn vinn-
ur með línurit og blýant, annar
með tilraunaglas og smásjá, sá
þriðji með geislavirka ísótópa o.
s. frv. Allir hafa þeir sameigin-
legt markmið — að leysa gátur
lyfjafræðinnar.
★ A-PILLAN.
Helzta vandamál mannkynsins í
dag er offjölgunin. Jörðin rúmar
fljótlega ekki alla íbúana, ef ekki
er eitthvað gert til að stemma
stigu við offjölguninni. Jörðin
getur ekki veitt öllum íbúum sín-
um næga fæðu þegar í dag. Og
ef ekki finnast leiðir til að bæta
úr fæðuskortinum er aðeins til
einn möguleiki til að leysa vanda-
málið: takmörkun barneigna.
Vísindamenn um allan heim
vinna að því að finna bezta lyfið
til þess. í þróunarlöndunum hef-
ur ekki orðið góð reynsla af þeim
getnaðarvörnum, sem þar hafa
verið reyndar. Það sem vísinda-
menn reyna nú að finna eru pill-
ur, sem taka á í hæsta lagi einu
sinni í mánuði eða allra helzt einu
sinni á ári — og sem varna
frjóvgun.
Þegar hafa undirstöðutilraunir
yerið gerðar — og nú er reynt að
finna, hvað er einfaldast í notk-
un, áhrifamikið, en jafnframt ó-
dýrt.
í Svíþjóð hefur lyfjafyrirtækið
Ferrosan gert A-pilIu, sem á að
taka einu sinni í mánuði. Pillan
hindrar ekki að sáðfrumur manns
ins nái egginu í eggjastokknum,
en hefur áhrif á slímhimnuna í
móðurlífinu þannig, að eggið fær
ekki næringu. Um leið losnar það
af sjálfu sér og konan tekur ekkí
eftir neinu óvenjulegu. Hún veit
ekki hvort' eggið hefir frjóvgazt
v '' ..
mm. '•
mm
i.
WÉk m
__________lH Hll i
ro"í- Tvl/,.' te/'Æ
mteteW ■/'■■ 'te,-
■■■■
mwwmm
fe
eða ekki. Ef það kemur í ljós, að
pillur þessar eru óskaðlegar fyr-
ir konuna, og einnig ef hægt er
að framleiða mikið af þeim ó-
dýrt, þá hefur stórt skref verið
stigið gegn óífjölgunárvandamál-
inu.
En það. eru til aðrar slíkar pill-
ur, sem byggðar eru upp á öðr-
um grundvelíi — t. d. er hindrað
með hormónum, að eggið losni úr
eggjastokknum og þannig , er
frjóvgun ómöguleg. Þannig er. P-
pillan, en hún hefur þann ókóst,
að taka verður hana á hverjúm
degi.
Eitt enn er vert að nefna, ';en
það er möguleikinn á að bólu-
setja konur gegn því að verða
barnshafandi. Amerískur vísirida-
maður hefur valið sér það verk-
efni að finna út, hvers vegna
vændiskonur verða tiltölulega
sjaldan barnshafandi. Hann seg-
ist hafa fundið út, að líkur séu
til að þær myndi nokkurs konar
mótefni gegn sæðisfrumum karl-
mannsins.
I
★ MINNISPILLAN.
Og vísindamenn viúfia að ýmsum
gerðum áf pillum. Meðal anriars
hafa þeir fundið það efni í heila-
sellunum, sem álitið ■ ér geyma
minnið. Efnið kaliast RNÁ og
hægt ér að búa það til. Rannsókn-
ir á dýrum hafa sýnt að hægt
er að auka hæfileikann til lær-
dóms með þvLað gefa RNA. —
Amerískur vísindamaður hefur
þegar gefið fólki efnið. Það eru
sjúklingar, sem þjást af minnis-
leysi, sem ekki er vegna elli.
Prófssorinn heitir Ewen Cameron
og þó að tilraunir hans virðist
hafa gefið góða raun, eru þó um
þær blandnar meiningar meðal
annarra vísindamanna. Skylt R-
NA er annað efni, sem heitir D-
NA. Erfðir mannsins eru bundn-
ar þessu molekúli. Uppgötvun
þessa mólekúls gefur marga
möguleika. í Bandaríkjunum hafa
verið athugaðir möguleikar á því
að þróa egg utan móðurinnar og
hægt hefur yerið að þróa þau á
það stig að þau gátu frjóvgazt.
Frjóvgun hefur þó ekki átt sér
stað enn, en möguleikarnir virð-
ast'. vera fyrir hendi. Ef það
tekst verður ef til vill hægt að
mynda mannsfóstur með sérstök-
um eiginleikum, sem eru undir
því komnir, hvernig áhrifum D-
NA-mólekúlið verður fyrir. Þetta
er þó enn aðeins möguleiki. En
slíkar rannsóknir virðast hafa sitt
gildi, því að á þennan bátt má
ef til vill komast fyrir ýmsa
erfðasjúkdóma.
★ INSULINPILLAN. .
Síðustu ár hafa orðið miklar
framfarir í rannsóknum á sykur-
sýki. í fyrra skýrðu Kínverjar frá
því, að þeim hefði tekizt að fram-
leiða insulin úr efnasamböndum.
Líf sykursjúklinga er algjörlega
komið undir því, að þeir fái in-
súlín. Áður var það tekið úr bris-
S 15. júlí 1967 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ