Alþýðublaðið - 15.07.1967, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 15.07.1967, Blaðsíða 16
rAT mm® A Framfaraveginum ÞEGAR tal manna kemur að Vegagerðinni, eins og það óhjá- k'væmilega gerir íyrr eða síðar, \erða sumir menn rauðir í fram- an, en aðrir blárauðir, nema mennirnir hjá Vegagerðinni, þeir verða fölir. Nú er ég alls ekki að íja að því, að Vegagerðin sé vond og ó- vinsæl stofnun. Öðru nær. Heldur er ég þvert á móti að sýna fram á, að hún sé umtöluð stofnun og áhugaverð. Vegagerðin hefur lagt' margar Ótroðnar brautir og farið í mörgu íiýjar leiðir og ekki verður ann- að sagt, en að mennirnir hjá Vegagerðinni séu sannir braut- t-’.vðjendur og sýni hárrétt hugár- þel í baráttu sinni við gamlar hé- giljur og fyrir bættúm vegum og vegamenningu yfirleitt og gangi þar sjálfir á undan með góðu for- ó.æmi, eins og starfsmönnum hins Opinbera ber óneitanlega að gera. s í útiöndum hefur löngum þótt góð latína að setja upp svoköll- Við- aðvörunarskilti á varliugaverð- um vegaköflum og fyrst framan af iíéldu menn því fram, að svo bæri ■éinnig að gera hér. Vegagerðin liefur háð áratuga langa baráttu við þessa útlendu meinloku og virðist nú loks á góðum vegi með öð bera sigur af hólmi. Þannig er t. d. stuttur kafli á Þingvallaveg- inum á Mosfellsheiði. Einhvern- t'íma í vor hefur verið þar hvarf, eíðan hefur Vegagerðin kastað í það sandi og sandurinn hlaupið gaman í hóla og hryggi, en úl, af veginum er kanturinn á þriðja aietra ofan í skurð og svo út í móa. Kaflinn er í blindri brekku, þannig að þeir ökuþórar og freyjur, sem ikoma ofan brekkuna, verða hans ekki varir fyrr en allt leikur á l’eiðiskjálfi og stýrið hamast við að rífa sig laust úr höndum þeirra. !Þarna fór á dögunum einn bíll sannkallað flik—flak út' af og lenti á toppnum í mónum með þrjár eða fjórar konur innanborðs og eitt l)arn. Nokkrum dögum síðar bar í>ar að leigubílstjóra, hvers öku- tæki lagðist þunglega á kviðinn ut- an í vegarbrúnina og sjálfsagt' jnætti lengi telja þá, sem hafa beðið Guð að blessa Vegagerðina, þar sem þeir liéngu í stýrinu eins Og hundar í roði. Þarna er seinsé ekkert viðvörunarmerki. Eins og Drottinn reynir menn- Mér finnst þetta ekkert svæfandi. ina í blíðu og stríðu, þannig reyn- ir Vegagerðin bílstjórana. Svodd- an nokkuð mun eiga að kenna þeim að aka ekki um í sælurúsi, dreym- andi um huggulegan sumarbústað í þjóðgarðinum. Einnig skulu menn læra að treysta ekki á góða vegi til eilífðarnóns og umfram allt skal kenna mönnum æðruleysi frammi fyrir örlögunum og að bregða sér hvergi við voveiflega hluti, sár eða bana. Þannig mætti hæglega ætla að kennimenn gætu sótt í smiðju Vegagerðarinnar margan hagnýt- an lærdóm í boðun kenningarhm- ar. Þá ætlar Vegagerðin að brydda upp á því nýmæli í sumar að haia umferðarmerki beggja vegna þjóðvega. Þetta hefur hvergi ver- ið reynt áður að þvi er oss er kunnugt og mun reynslan í sumar kveða á um hvort að regla þessi verður staðfest í vegagerð liér eftirleiðis og þá verður væntan- lega einnig leitað fyrir sér um út- flutningsmöguleika. Þannig mætti lengi telja Vega- gerðinni hrós og gefa henni byr undir vængi á framfaraveginum. En þó verður hér að láta staðar numið að sinni rúmsins vegna, þó er ekki útilokað að hægt verði að taka þráðinn upp að nýju og vegsama þessa þjóðnytjastofnun enn frekar en hafa verður í liuga þau orð Snorra, að oflof sé last. Og að síðustu: Áfram eftir fram faraveginum Vegagerð undir gjallandi hornum og kjörorði vöru- bílstjóra: „Aldrei að víkja.” Claudia Cardinale, hin 29 ára gamla kvikmyndastjarna, er leynilega gift framleiðanda sínum, Franco Cristaldi, sem er 42 ára gamall. Vikan 13. júli. Lögfræðingurinn vill hlut- lausa rannsókn, segir Vísir í gær. Er það kannski eitthvað sjaldgæft að réttarrannsókn sé hlutlaus? Þessi brennuvargur er sko enginn töffari, mar. — Lét löggublækurnar taka sig áður en hann gat kynnt upp í kof- unum. Ekkert skil ég klæðaburðl ungu stúlknanna þessa dagana. Það er eins og þær skammist sín ekki neitt fyrir karlmenn- ina sem eru alltaf að glápa á þæa’.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.