Alþýðublaðið - 01.03.1968, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 01.03.1968, Blaðsíða 7
* NÝJAR Concorde OOl fransk'-enska far þega þotan sem flýgur hraðar en hljóSið fór sína fyrstu ferð 28. febrúar. Sú ferð var mik- ill persónusigur fyrir De Gauile. Útlitið er samt ekki glæsilegt. Ekki ein einasta vél er seid, og heildar kostnaðurinn við bygg- ingu fyrstu vélarinnar hefur far ið næstum fjórum sinnum fram _ úr áætlun og er nú uppi í 1,4 billjón dollara. Það er nauösyn legt að selja minnst 200 vélar til að fá til baka einn þriðja af undirbúnings kostnaðinum. Þeir ÞOTUR De Gaulle og Wilson eiga sér því eitt sameiginlegt vandamál. Ekki bætir úr skák að Boeing verksmiðjurnar í USA eru með annan risa í smíöum Boeing 2707, sem verður eflaust skæður keppinautur. Stærð þessarar nýju véla er gífurleg. Boeing vél Flugfélags íslands tekur ca. 110 farþega. Boeing 2707 mun taka 350 far- þega og fljúga milli London — New York á tveim tímum. Við þennan mikla hraða verður hit inn utan á vélinni 340 gráður á Celcius. Hitinn veldur því að vél in lengist um ca. 13 cm. Það verður gaman að sjá hvern ig flúgvellir framtíðarinnar munu líta út. 10-20 vélar að koma og fara hver með 350 far þega. Þar verður þröng á þingi. Vandamálið með hiióðmúrinn er líka óleyst. Hvar eiga vélnrnar að rjúfa hljóðmúrinn án þess að valda þeim sem eru á jörðu niðri óþægindum? ÓHREINT LOFT Óhreint loft er orðið rnikið vandamál í öllum stórborgum. Bílaframleiðendur leggja því mik ið fé í að gera bíla sem ganga fyrir rafmagni og ekki óhreinka loftið. Flestir þessara bíla eru tiltölulega kraftlitlir og kom- ast stutt án þess að rafhlöourn ar séu hlaðnar. General Motors hefur nýlega sent frá sér einn slíkan. Farartækið er 3ja manna og hámarks hraði ca. 70 km. Laser geis'linn. Þetta fyrir- bæri sem iðnfyrirtæki og ríkis- stjórnir eyða miiljörðum til rannsókna á. Hvað er Laser? í loftinu í kringum okkur eru alls staðar langar og stuttar rafseg- ulbylgjur. Lengstu bylgjurnar eru útvarpsbylgjurnar og þær stytztu eru gamma- og röntgen- geislar. Þar á milli eru svo hita geislar og geislar sem lifandi verur skynja sem ljós. Það er einmitt Ijósið sem mað ur notar í laser <1 stendur fyr- ir light-ljós). Ilvað er þá svona merkilegt við lasergeislana. Jú manni hefur tekizt að samræma tíðni og byigjulengd Ijóssins og auka kraft þess. Tekizt hefur að 'senda geisla til tunglsins, sem er sterkari en sólarijósið. Ef geislinn er gerður nægi- lega sterkur eyðir hann hverju sem á vegi hans verður. Það er því hægt að nota laser til að . bora eftir olíu og málmuro. Skurðlæknar nota laser við upp skurði, meðal annars á viðkvæm ustu og fínustu hlutum augans. Maður skilur því hvers vegna svona miklum peningum o*- eytt í rannsóknir og þróun geislanna. Undir niðri speglast hið hern- aðarlega mikilvægi. Við slaúum því vona að vísindunum íakist ekki að þróa geislana svo hægt sé að nota þá í ófriði fyrr en orðið er svolítið friðsælla á henni móður jörð. Það fer ekki hjá því að manni dettj í hug að einn góðan veður dag höfum við einskonar iíffæra banka þar sem maður gefur Eeng ið ný líffæri fyrir þau -em eru gömul og lagt inn þau slitnu til viðgerðar, þegar svo er komið er bugmyndin um eilíft líf ekki langt undan. Á þessu er aðeins einn gallii vissar stöðvarí aeitan um eldast og hrörna. Þessar st<)ðv ar stjórna meðal annars öndun og kirtlastarfsemi og þegar þær liætta að starfa bjálpa engin ný hjörtu eða önnur líffæri. t : Blómaskreytingar GRÓÐRARSTÖÐIN VIÐ MIKLATORG. Sími 22822 og 19775. Sólþurrkaður saltfiskur Bæjarútgerð Reykjavíkur við Grandaveg. Sími 24345. & Meir a en fjór ði ÍÍ • hyer miði yinnuríi Dregið 5. / Endurnýjui Umboðsmenn geyn dráttardag. vorz i lýkur á hádegi dráttardags ía ekki miða viðskiptavina fram yfir Vöruhappdrætti SÍBS 1. marz 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.