Alþýðublaðið - 01.03.1968, Page 9
skemmdum, og varð eigandinn
að borga tjónið.
„Hefur komið til umtals að
breyta aldurstakmarki varðandi
réttindi til aksturg vélhjólum?“
„Nei, en hins vegar er mikið
rætt u/n orku hjólanna. En hún
var kominn út í öfgar. Piltar hér
áttu hjól allt að 4,5 hestöflum,
en lögin kváðu á um 1,5 hestafl.
Þá var farinn millivegurinn, því
miður vil ég segja, og var orka
hjólanna takmörkuð við 2,5 hest-
öfl. Ég álít að hjól með 2,5 hest
afla vél þoli ekki þau erfiðu akst-
ursskilyrði sem hér eru, og
skemmast hjólin því mjög fljótt,
þannig að gjaldeyrislega séð
borgar þetta sig ekki. Einnig ar
alltaf fyrir hendi sú hætta, að
piltarnir fari út í að breyta vél
um hjóla sinna og geri þær
sterkari. Ef að eftirlit lögreglunn
ar er ekki nægjanlega mikið, þá
er alls ekki gott að gefa þannig
tilefni til lögbrota, að ástæðu-
lausu. Hins vegar að takmarka
aldurinn við 15 ár og hraðann
við 45-50 km. tel ég mjög já-
kvætt, rniðað við það, að þetta
eru atvinnutæki fyrir fjölda
marga unglinga í löngu skóla.
leyfi.
„Nú gera unglingar mikið að
því að tvímenna á vélhjólum.
Hvað viltu segja ura það?“
„Ég álít að skylda beri innflytj
endur til að hafa sæti á vélhjól
um þannig, að ekki sé hægt að
tvímenna á þeim, því það er mik
il freisting fyrir unglinga að tví
menna á hjólunum."
Að lokum sagði Jón Pálsson
að hann væri mjög ánægður með
árangurinn af starfsemi klúbbs-
ins og væri hann áreiðanlega til
eflingar umferðarmenningunni.
Svipmynd frá góðaksturskeppni.
„Prýöilegur félagsskapur"
Elding liélt góð'aksturskeppni
fyrir ökuþóra vélhjóla í haust.
Þátttakendur í keppninni voru
marg’ir og sigurvegari varð Árni
Möller, ungur Reykvíkingur.
Blaðamaður ræddi stutta stund
við Árna:
,,Ert þú búinn að aka vélhjóli
lengi?“
„Nei, það er nú stutt síðan
ég byrjaði, tók prófið í júní í
sumar.“
„Byrjaðir þú þá strax að
starfa í Eldingu?“
,,Ja, ja .
„Hvernig er að þinum dómi
aðstaðan sem þið hafið þar?
,,Hún er að mínum dómi ágæt.
Þetta er prýðilegur félagsskap-
ur“.
„Telur þú að klúbburinn hafi
jákvæð áhrif varðandi akstur
pilta á bifhjólum?“
,,Já, tvímælalaust".
„Hvað kom til að þú vannst
þessa keppni, hafðirðu æft þig
mikið í slíkum akstri?
,,Nei, ekki vitund. Ég veit eigin
lega ekki hvernig þetta varð.
Mér datt þetta ekki í hug fyrr
en mér var sagt þetta“.
„Hvernig hjól átt þú Árni?“
,,Ég á Hondu“.
„Notar þú hjálm, þegar þú ert
á hjólinu?"
„Já, alltaf“.
„Hefur þig hent óhapp í
akstri?“
„Nei, ja maður dettur svona
við og við, en ég hef aldrei lent
í neinu alvarlegu."
Árni Möller meö verðlauna
gripinn.
Fallegir fermingarskór
Gull og silfurlitaðir, skór frá Víva.
Ömmuskórnir eru komnir.
SKÓSEL
Laugavegi 30.
HANDUNNIÐ
silfur og guH,
til fermingargjafa
Jens Guðjónsson,
Suðurveri — Sími 38835.
STENTOFON
STENTOFON kallkerfin fyr'ir sfrifstofur og verksmiðjur
Látið STENTOFON kallkerfin létta yður störfin.
Með STENTOFON kallkerfinu getur einn talað
við alla og allir við einn.
Sparið tíma—Sparið sporin—Sparið peningana
STENTOFON gerir allt fyrir yður.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar
hjá STENTOFON umboðinu.
Georg Ámundason & Co.
Suðurlandsbrauí 10. — Sími 81180 — 35277.
Box 698, Reykjí vík.
SKIP TIL SÖLU
Varðskipið Ægir TFEA er til sölu í því ástandi, sem það
er hér í Reykjavíkurhöfn, en þó án radio- og siglingatækja,
svo og annars útbúnaðar sem er sérstakur fyrir Land-
helgisgæzluna.
Upplýsingar varðandi skipið og ástand þess eru veittar á
skrifstofu Landhelgisgæzlunnar, Seljavegi 32, Reykjavík.
Kauptilboð skulu berast fyrir kl. 11 f. h. miðvikudaginn
20. marz 1968, en þá verða þau opnuð í skrifstofu vorri að
viðstöddum bjóðendum.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI7 slMI 10140 •
1. marz ■ 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Q