Alþýðublaðið - 27.03.1968, Side 9
Miðvikudagur 27. marz 1963
BÍLABLAÐ
(3)
Framkvæmdanefnd H-umfei’3
ar hefur gengv-t fyrir fræðslu
fundum um umferðarmál úti á
landsbyggðinni. Fundirnir voru
mjög vel sóttir. Má geta þess
að á. Norðfirði sóttu um 300
manns fundinn sem þar var
lialdinn.
Fyrðin á vegum úti hefur
spillt mjög framkvæmd þess-
ara funda, og einnig má geta
þess, að stofnun umferðarör-
yggisnefndanna sem fyrirhugað
var að stofna vítt og breitt um,
landsbyggðina, dróst nokkuð á
langinn vegna ófærðaih Nú á
aðeins eftir að stofna umferðar
öryggisnefndir í V-Skaptafells-
sýslu og Dalasýslu.
Nú eru hundruð manna sem
vinna beint eða óbeint í þess
um nefndum.
Að undanförnu hafa verið
fræðslufundir um umferðarmál
með allmörgum vinnuhópum í
Reykjavík og nágrenni. Um-
ferðarnefnd Reykjavíkur hefur
lialdið fræðslufundi með öllum
atvinnubifreiðarstjórum í Rvík,
en Sigurður Ágústsson fram-
kv.jrr. „Varúðar á vegum“ hef
ur séð um að heimsækja vinnu
staðina.
Hér á síðunni birtum við
myndir af þessum fundum, en
þeir hafa það sameiginlegt a'ð
þeir voru allir mjög vel sóttir
og fólk hefur sýnt mjfig mik
inn áhuga á fræðslu um um-
ferðarmál.