Alþýðublaðið - 27.03.1968, Side 14
Leitin
Framhald a£ G. síSu.
leit. Síðan hafi Hjálparsveit
fikáta í Hafnarifirði, Björgunar
sveit Kópavogs, Fiskiklettur í
Hafnarfirði og Flugbjörgunar-
sveit íslands bætzt í hópinn.
Fulltrúar frá iþessum hópuni
hafi síðan skipulagt leitina.
Síðan gáfu sig fram fleiri
hundruð sjálfboðaliðar. Auk
(þess sem almenningur leitaði
xnjög mikið upp á eigin spýt-
ur í næsta nágrenni við heim-
ili sín; þá tóku fjölmargir þátt
í leitinni með skipulögðum
flokkum. Má segja, að aldrei
áður hafi annar eins hópur tek
ið iþiátt í leit í Reykjavík. Hin
ýmsu félagasamtök og einstak
lingar gáfu sig fram til þátt-
töku.
Um yfirstjórn leitarinnar
sagðj Jóliannes: — Stjórn leitar
innar er samvinna margra
manna. Leitin í fyrrakvöld
beindist mest að Laugarnes-
hverfinu og svæðinu umhverf-
is heimili drengsins. Annars
var leit skipulögð allt vestur
að Suðurgötu — suður að Foss
vogslæk — og inn fyrir Elliða
ár. í gær voru um 200 manns
úr áðurgreindum björgunar-
sveitum við leit og auk þess
ótaldir sjálfboðaliðar, sem leit
uðu upp á eigin spýtur.
Það eina, sem fundizt hef-
ur og bent getur á ferðir Har-
alds litla, eru stígvélin lians.
en þau fundust skammt frá
húsi Sigurjóns Ólafssonar
myndhöggvara — nálægt Laug
arnestanga. Sami maðyrinn
fann bæði stígvélin og yoru
Iþau bæði á sama stað. Hins
vegar er rangt, að þau hafi
fundizf sitt á hvorum staðnum
með eins og hálfs kílómetra
millibil — eins og dagblöð
skýrðu frá í gær. Sokkar Har-
alds litla voru í stígvélunum
— var annar þvalur en hinn
rennblautur. Ekkert benti til
Iþess, að sjór hafi flætt yfir
stígvélin — en frá staðnum,
þar sem þau fundust eru um
5—10 m niður j flæðarmál á
fjöru.
Sporhundur Hjálparsveitar
skáta í Hafnarfirði var notaður
við leitina í fyrrakvöld. Hann
tók beint strik niður í víkina,
þar sem stígvéiin fundust.
Þyrla Landhelgisgæzlunnar
og Slysavarnafélags íslands
flaug allar fjörur með Reykja-
vík í gærmorgun og flaug einn
ig yfir Eyjarnar á Sundunum.
Úr flugvélinni var leitað bæði
yfir sjó og Iandi í Laugarnes-
inu. Þegar í birtingu í gær-
morgun hóf þyrlan leit.
Fréttamaður spurði Jóhann-
es Briem, hvað hann teldi, að
hafi valdið því, að fólk brá
svo skjótt við í fyrrakvöld
og lagði út í óveður til að taka
þátt í leitinni að litla drengn
um.
— Þegar lítil börn týnast eru
alltaf atmenn samtök um leit.
Þegar slíkt ber við er kölluð
út öll hugsanleg aðstoð. Nú
kom í fyrsta skipti til kasta
sjónvarpsins að veita aðstoð í >
þessu efni. Hvatningarorð
Magnúsar Bjarnfreðssonar
fréttamanns og Ásu Finnsdótt
ur sjónvarpsþuls hafa án nokk
urs vafa haft gífurleg áhrif á
fólk. Ekki aðeins fólk í ná-
grenni við heimili litla drengs
ins, í Laugarneshverfi eða ná-
grenni, brá fljótt við — held
ur er vitað, að fólk í Kópavogi
og Árbæjarhverfi leiaði kring
um hús sín og veitti þannig
lið í leitinni.
Um klukkan þrjú í fyrrinótt
leituðu menn úr Ingólfi allar
fjörur allt frá Ingólfsgarði og
langt inn fyrir Laugarnes
Lýstu þeir fjöruna upp með
stórum flóðljósum. Þá gat að
líta fjölmargar konur, sem
gengu fjörurnar, þrátt fyrir
iðulausa stórhríð. Sýnir betla
dæmi glöggt hugarfar og vilja
almennings til að leggja fram
allf sitt lið til að finna Harald
litla. —HEH.
fþróttir
Framhald af 11. síðu.
verður um páskana og jafnframt
reynt að fá pilta utan af landi,
til að taka þátt í þeim æfingum.
í sambandi við æfingarnar yfir
helgidagana verða allir piltarn-
ir lótnir fara í þrekmælingar
hjá Jóni Ásgeirssyni, og álag
byrjunaræfinganna miðað við
árangur þeirra. Og mun nefndin
hafa náið samband við Jón Ás-
geirsson við þjáifun piltanna.
ÖRN STEINSEN UNGLINGA-
L ANDSLIÐSÞ JÁLF ARI.
í samráði við stjórn KSÍ hef-
ur nefndin ráðið Örn Steinsen
til að þjálfa Unglingalandsliðið.
Örn Steinsen þarf vart að kynna
fyrir þeim, sem fylgjast með
knattspyrnu. Hann hefur um
árabil verið einn af beztu og
þekktustu knattspyrnumönnum
landsins og varð ásamt Þórólfi
Beck fyrsti „Gulldrengur” ís-
Innilegar hjartans þakkir votta ég öllum þeim mörgu vin-
um nær og fjær, sem sýndu hluttekingu og samúð og
styrktu mig og hjálpuðu á margvíslegan hátt við andlát
og útför mannsins míns,
GRETARS FELLS,
rithöfundar.
Sérstakar þakkir flyt ég Guðspekifélagi íslands og Náttúru
lækningafélagi íslands.
Svava Fells.
lands. Örn hefur og sýnt mikinn
dugnað og frábæra hæfni við
þjálfun 2. flokks KR og einnig
þjálfað mfl. Þróttar og Víkings.
EEdfXaugar
Framhald af bls. 1.
irlitsflugi austur af landinu.
í vélinni voru 24 eldflaugar,
ætlaðar til að granda óvina-
vélum á lofti, en að sögn upn
lýsingafulltrúans eiga þær að
vera hættulausar nema þær
séu höndlaðar með ógát.
Rush kvað slys sem þessj
vera rannsökuð mjög ítarlega
og í gærmorgun hefði flokkur
manna verið sendur á slysstað
fil að gæta þess að enginn hrófI
aði við hlutum flugvélarinnar.
Eftir að flakið hefur ve,,i'i
myndað og tekinn unndrátt-
ur af staðsetningu hinna ýmsu
hluta, verður flakið flutt til
Keflavíkur þar sem bað verð
ur rannsakað unz endanleg nið
urstaða fæst um orsök hreyf
ilsbilunarinnai-.
Enflrín skvrtag
Framhald af bls. 1.
ferðamanna til landsins í sum
ar, og spurningin er því hver
hafi, eftir þennan úrskurð.
heimild eða umboð til að taka
á móti þessum ferðamönnum.
Ég mun að sjálfsögðu kanna
þetta mál í samráði við lövfræð
ing minn á morgun og næstu
daga.
Mér kom þessi ákvörðun því
meir á óvart sem ég hafði geng
ið frá samningi við alla hclztu
skuldunauta mína, og hafði
enginn þeirra gert kröfu um
veðsetningu fyrir skuldum. Þá
má benda á að þessi ákvörðun
byggist ekki á kröfu einhvers
aðila um gjaldþrotaskipti, og
virðist mér í fljótu bragði
furðulega harkalega að farið
svo ekki sé meira sagt.
Skipaútgerð
Ms. BXikur
fer austur um land til Akureyr
ar 3. apríl. Vörumóttaka mið-
vikudag fimmiudag og föstu-
dag til Breiðdalsvíkur, Stöðv-
arfjarðar, Reyðarfjarðar,
Fáskrúðsfjarðar, Seyðisfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar Seyðis
fjarðar Borgarfjarðar, Vopna-
fjarðar, Þórshafnar, Raufarhafn
ar, Kópaskers Húsavíkur og
Akureyrar.
Auglýsiong um brottför m.s.
Blikur í dagblöðunum 23. þ.m.
er ógild.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUR
SNACK BAR
Laugavegi 126,
sími 24631.
EIRRÖR
Kranar,
fittings,
einangrun o. fl. til
hita- og vatnslagna.
Burstafell
byggingavöruverzlun
Réttarholtsvegi 3,
Sími 38840.
FASTEIGNIR
FASTEIG NAVAL
Skólavörðustíg 3A. — II.
Símar 22911 og 19255.
HÖFUM ávallt til sölu árval a£
2ja-6 herb, íbúðum, einbýlishús-
um og raðhúsum, fullgerðum og
1 smíðum 1 Reykjavík, Kópa-
vogi, Seltjarnarnesi, GarðahreppS
og víðar. Vinsamlegast haflð sana
band við skrifstofu vora, ef þér
ætllð að kaupa eða selja fasfelgn
Ir
J Ó N ARASON "ídl.
Til sölu
Höium ávallt til sölu úr-
val íbúða af flestum
stærðum og gerðum^
ýmist fullbúnum eða í
smíðum.
A
FASTEIGNA _
SKRIFSTOFAN
AUSTURSTRÆTI 17. 4. HÆÐ. SlMl: 17466
Höfum jafnan til sölu
fiskiskip af flestum stærðum.
Upplýsingar í síma 18105 og á
skrifstofunni, Hafnarstræti 19.
Flutningaþjónustan tilkynnir:
Húseigendur, skrifstofur og aðrar stofnanir.
Ef þér þurfið að flytja búslóðina eða skrifstofubúnað og
fleira, þá athugið hvort við getum ekki séð um flutninginn
fyrir yður. Bæði smærri og stærri verk. Tökum einnig
flutning á píanóum, peningaskápum og fl.
Vanir menn. — Reynið viðskiptin.
FLUTNINGAÞJÓNUSTAN,
símar 81822 og 24889.
tAþltlUNAVIUJMF I I .
BJÖRGVIN JÖNSSON
Málarafélag Reykjavíkur
Aðalfundur félagsins verður haldinn að Freyju
götu 27, laugardaginn 6. apríl kl. 14.00.
F undarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
SMURT BRAUÐ
SNITTUU-ÖL - GOS
Opið frá 9 til 23.30. - Pantiffi
tímanlega í veizlur.
BRAUÐSTOFAN
Vesturgötu 25. Sími 1-60-12.
Smíðum alls konar innréttingar
gerum föst verðtilboð, góB
vinna, góðir skilmálar.
Trésmíðaverkstæði
Þorv. Björnssonar.
Símar 21018 og 35148.
14 27. marz 1968
ALÞÝÐUBLAÐID