Alþýðublaðið - 30.04.1968, Side 2

Alþýðublaðið - 30.04.1968, Side 2
OJKSQP Rltstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. - Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: AlþýBuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþyðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald kr. 120,00. — I lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf. VERÐLAUNAÍBÚÐIR Enda þótt mikið hafi risið af íbúðablokkum hér á landi síð- ustu áratugi, hafa íslendingar mikla tilhneigingu til að búa ein ir sér - eins og þeir hafa gert um aldir með bæjarleið milli fjöl- skyldna. Það er að vísu óhjá- kvæmilegt í nútíma borg 'að reisa mikið af sambýlishúsum, en von- andi verður þjóðin þess lengi megnug að ætla einbýlishúsum allgóðan sess og tryggja, að þau verði ekki aðeins fyrir efnamenn. Það er mikill vandi að reisa einbýlishús. Ógætinn og óvanur maður með óhagkvæma teikn- ingu getur orðið fyrir stórfelld- um byggingakostnaði umfram hinn, sem vandlega hefur kynnt sér málið og komizt yfir góða teikningu. Af þessum sökum var tímabært og vel til fundið af Framkvæmda nefnd byggingaáætlunar og Hús- næðismálastofnun ríkisins að efna til samkeppni um gerð ein- einbýlishúsa til fjöldaframleiðslu. Áhugi húsameistaranna reyndist mikilí, þar sem 55 hugmyndir bárust. Hlutu ungir arkitektar þrenn verðlaun, alls 270.000 krón ur. Einn merkasti þáttur í starfi Hús næðismálastiórnar hefur verið á sviði íbúðateikninga. Stofnunin hefur látið gera allmikið af slík- um teikningum og hafa raunar tugir þeirra verið birtar í Alþýðu bl'aðinu undanfarin ár. Húsbyggj endum hefur verið gefinn kostur á að kaupa teikingarnar fyrir mjög vægt verð. Hafa þeir spar að allmikið fé og þar að auki feng ið þrautreyndar og hagkvæmar teikningar. Hinir ungu húsameistarar, sem nú fóru með sigur af hólmi, höfðu ýmsar nýjungar fram að færa og ná miklum árangri með nútíma hagkvæmni. Ber 'að vona, að hug myndir þeirra verði reyndar í nægilega stórum stíl til að sýna árangur. Má eftir það gera ráð fyrir, að teikingarnar eða aðrar svipaðar verði notaðar áfram og samkeppnin hafi þannig varan- leg áhrif á gerð einbýlishúsa í landinu. íslenzk byggingalist hefur átt erfitt uppdráttar. í marga áratugi -framan af þessari öld voru verk -efnin takmörkuð, en þó komu fram nokkrir merkir arkitektar og gerðu athyglisverðar tilraun ir. Eftir ófriðinn mikla gerbreytt ist ástandið og var þá að heita má rokið í að byggja yfir 'alla þjóð- ina og flestar stofnanir hennar á fáum árum. Ýms verk þeirra ára bera þess merki. Nú er vonandi að komast á meira jafn-vægi Fleiri arkitektar hafa bætzt í hóp inn bg vonandi er unnt að vinna í stærri stíl með betra árangri. Húsagerðarlistin mótar það um- hverfi, sem við lifum í dag eftir dag og ár eftir ár. Skiptir miklu að hún sé á háu stigi. Umræöur um landspr ' ÞAÐ VILL OFT brenna við í um ræðum að menn einblína á einn ákveðinn punkt og sjá ekki neitt annað. Þannig hafa sumir viljað taka landsprófið ut úr umræðum um skóiamál og kenna því um allt sem miður fer í uppeldis- og skói^starfi landsins. Manni skilst næstum því.að það eití dygði til að koma skólamáium í gott horf að leggja landsprófið niður. í umræðum þeim, sem fram fara um landsprófið, er líka stöð ugt blandað saman tvennu, sem þó er í eðli sínu sitthvað. Ann- ars vegar er það landsprófið sem slíkt. landsprófsprinsípið, ef svo mætti að orði komast, og hins vegar einstök próf í einstökum gerinum á einstökum árum.Af því að einstök próf hefur stundum verið hægt að gagnrýna með nokkrum rétti hafa menn viljað draga þá ályktun, að landsprófið sem slíkt væri óhafandi. Raunar er það ofí svo að þeir sem hafa hæst um landsprófið og vankanta þess virðast ekki vita til fullnustu hvað þeir eru að fara. Þetta var t.d. talsvert áberandi í viðræðum þeirra Matthíasar Johannessen rit- stjóra og Þórarins Þórarinsson- ar skólastjóra í sjónyarpipu síð- aslliðið fösíudagskvöld. Matthí- as lét þar vaða á súðijm og sagði mikið, en fæst var það í nokk- urrj snertingu við veruleikann og veittist stjórnanda þátíarins og andmælanda hans erfitt að fá hann til að hemja sig við -neití ókveðið svið efriisins. Fyrir b'ragð ið féll öll ádeilan rnáttlaus til jarðar. Án efa gæti framkvæmd lands prófsins verið önnur og betri en hún hefir verið, en hitt er þó gjörsamlega rangí sem oft er haldið fram að prófin hafi ekkert breytzt í þá tvo áratugi sem landsprófið hefur verið við lýði. í ýmsum landsprófsgreinum hafa prófin tekið stakkaskiptum hin síðari ár og mun minni áherzla lögð á minnisatriði en gert var í byrjun, en á lrinn bóginn lagt meira upo ,úr skilningi á efninu í heild. Þessi breyting hefur t.d. verið mjög áberandi í prófgrein um, eins og sögu, svo að sú grein sé nefnd sem ég þekki helzt til. En í sambandi við allt þetta landsprófstal, hlýtur að vakna önnur spurning. Hvaða áhrif KJALLARI hafa þessar eilífu staðhæfingar um að landsprófið sé unglingum fjötur um fót á menntabraut- inni, sé svo stórkostlegur þrösk uldur að erfitt sé að yfirstíga hann, hvaða áhrif hefur þetta tal á nemendur sjálfa? Ég er ekki viss um að það séu í alla staði góð áhrif. Sé það rétt að veru legur hlúti skójaæskunnar í dág hafi andúð á landsprófinu og beri í brjósti ótta við það, þá er það afstaða sem hefur verið bú in til með þessum síöðuga áróðri gegn próíinu. Gagnrýnin á lands prófið er ncfnilega ekki fyrst og fremst frá 'skólunum komin, hvorki frá kennurum né nemend um, heldur á hún upptök sín með al áróðursmanna, sem lítið sem ekkert hafa komið nálægt raun- verulegu skólastárfi, — en á hinn bóginn stundum átt börn sem ekki hafa staðizt prófið ein- hverra hluta vegna, KB. m 2 30 aprít 1968 — ALÞÝDUBLAÐIO VIÐ MÓT— MÆLHM LÆKNIRINN OG LÖGIN ÁGÆTUR ALÞÝÐUFLOKKS- MAÐUR OG ÍSLENDINGUR, Ó- feigur J. Ófeigsson læknir, flutti í síðustu viku mjög athyglisverfc erindi um daginn og veginn í út- varpi, — eitt hið athyglisverð- asta er þar hefur verið flutt í langan tíma. Stakk læknirinn á' ýmsum kýlum — eins og góðum lækni sæmdi — og kom víða við. M. a. minntist hann á sak- hæfisaldur íslenzkra laga, 15 ár, sem hann taldi of háan. Benti hann á það. að börn langt innan fermingar vissu ósköp vel, þegar þeim yrði eítthvað á sem bryti gegn almennu siðgæði og alls- herjarreglu —- og því skyldu ekki unglingar, eldri og þrosk- aðri, eins gera sér grein fyrir slíku? Var á lækninum að heyra, a ðhann teldi fulla þörf á ungl- ingadómstól hér á landi, er dæmdi um brot eldri barna og unglinga, svo og unglingafang- elsi — eða a.m.k. öílugri hælum fyrir vandræðaunglinga. Má' telja þetta orð í tíma töluð! Þá gat hann einnig hins alkunna fang- elsishneykslis hér á landi, þar sem væri aðeins eitt ríkisfang- elsi fyrir alla jafnt — óharðn- aða æskumenn og harðsvíraða morðingja. Voru það einnig orð í tíma töluð — þó að reyndar sé það margjótruð tugga! SÍÐARI HLUTA VETRAR hefur ekki verið )im annáð frekar rætfc en hið blöskranlega ástand £ fangelsismálum landsmanna. En það er ekki að sökum að spyrja, þegar um þau mál er rætt, dóms málaráðherra þegir þunnu hljóði — en ráðunevtisstjóri dómsmála ráðuneytis gaf í hans stað loðin og lítilsverð svör í sjónvarps- þætti blaðnmnnna! Það er löngu orðin krafa alls nlroennings að eitthvað verði aðhafzt í þessum efnum — þá hafa og engir minni menn en dóm -.-ar og kurihir Iaga menn — þ. á. m. rektor Háskóla íslands, próf. Árm«nn Snævarr, marglýst því ' f>. að ástandið í fangelsismálum þjóðarinnar sé reginhneyksli og stórlega víta- vert. En stjórnmálamennirnir —. sem fólkið kýs á þing ár eftir ár í þeirri von að þeir komj nit einhverju gagnlegu í kring — virðast telja allt annað og veiga meira en að vernda líf manna og eignir fvrir hættulegum lög- brjófúm. Væri ekk{ ónýtt að fá opinbera greinargerð um það, hvað fangelsismálunum líður og og. hvað ætlazt er fyrir í þeim efnum á næstunni! Virðist það Framhald á 14. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.