Alþýðublaðið - 29.05.1968, Side 2

Alþýðublaðið - 29.05.1968, Side 2
Bltstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Simar: 14900 » 14903. — Auglýsingasími: 14906. — AÖsctur: Alþýðuhúsiö við Hverfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Simi 14905. — Áskrlftargjald kr. 120,00. — í lausasölu kr. 7,00 eintakið. _ Útgefandl: Nýja útgáfufélagið bf. LANGT AÐ BÍÐA Þjóðhátíðardagur Tékkóslóvak íu var haldinn hátíðlegur 9. maí síðastliðinn, meðal annars með samkomu Tékknesk- íslenzka fé- l'agsins. Þar flutti Björn Þorsteins son sagnfræðingur erindi, sem var fyrir margra hluta sakir at- hyglisvert. Er hann hafði rætt almennt um sögu Tékka og bræðraþjóða þeirra, vék hann máli sínu að þeim atburðum, er gerzt hafa þar síðustu mánuði. Björn sagði: „Fræðikenning kommúnista fjallar mjög um vissa tegund af samfélagsgagnrýni og það, hvern ig eigi að gera byltingu og halda völdum, en af eðlilegum ástæð- um fjallar hún síður um það, hvernig ' eigi að bregðast við margslungnum vandamálum sam félagsins, grundvalla og verja sósíalskt lýðræði. —• í kjölfar hverrar byltingar, sem hefur lýð ræði á stefnuskrá sinni, verður að sigla lýðræðisbylting. Sjálf valdataka raunverulegra byltinga manna er ólýðræðisleg fram- kvæmd, hve mikill meirihluti þjóðarinnar, sem stendur að baki þeim. — Ég skrifaði þetta í gær- kvöldi, en í morgunblöðum dags ins las ég nánari útfærslu á því, sem fyrir mér vakti — í viðtali við formann rithöfundasambands Tékkóslóvakíu, prófessor Gold- stiicker. Hann segir réttilega, að erfiðustu vandamál hverrar bylt ingar sé fólgin í því hvemig á að losna við það ejnræði, sem fram kvæmdi hinar umbyltandi athafn ir og koma á lýðræðisskipan, sem tryggi réttaröryggi og lýðfrelsi í landinu.— Engin bylting hefur mér vitanlega leyst þetta vanda mál, og þess vegna hefur bylting kallað á gagnbyltingu. Af því er skemmzt að segja, að bæði mér og fjölda annarra hefur þótt langt að bíða lýðræðisbreytinga í lönd um kommúnista". Þessi ræðukafli eftir Björn Þorsteinsson sagnfræðing er at hyglisverður, ekki sízt lokaorðin. Er gott til þess að vita, að ein- hverjir liðsmenn kommúnista á íslandi hugsa á þennan hátt, þótt sjaldan hafi þess heyrzt eða sézt merki undanfarin ár, að beir hefðu áhyggjur af lýðræðisþróun í kommúnistaríkium. Hugmyndir sósíalismans eru út breiddar um hinn frjálsa heim — eða auðvaldsheiminn, eins og kommúnistar kalla hann. Hefur áhrifa þeirra á mótun þjóðfélags ins gætt í æ ríkari mæli þjóðun- um til mikils góðs. Það má segja um allan þorra fólks á Vesturlöndum, að and- staða þess gegn kommúnismanum og kommúnistaríkjum hefur ekki byggzt á andstöðu við sósíal ismann svo mjög sem á andstöðu við einræði og ófrelsi það, sem fylgir kommúnismanum. Keyrði raunar svo um þverbak á dögum Stalíns, að ekki var að undra, þótt andstaóa magnaðist. Verði greinilegar breytingar í lýðræðisátt í ríkjum kommúnista mun það án efa skapa grundvöll fyrir vinsamlegri sambúð og miklu meiri samskiptum þeirra við lýðræðisríkin. Slík þróun mundi auka til muna friðarhorf ur í heiminum. \ HÆGRI ) UMFERÐ Frá og með 29. maí 1968 og þar til öðruvísi verður ákveðið gildir eftirfarandi hámarks- hraði, þar sem umferðarmerki gefa ekki ann- að til kynna: í þéttbýli 35 km/klst Á þjóðvegum 60 km/klst Á Reykjanesbr. 60 km/klst Reykjavík, 28. maí 1968. Framkvæmdanefnd hægri umferðar , KAUPUM HREINAR LÉREFTSTUSKUR PRENTSMIÐJA ALÞÝÐUBLÁÐSINS NÁMSKEIÐ í NOTKUN RAFREIKNA Ráðgert er að halda FORTRAN námskeið á næstunni. Miðað er við, að þátttakendur hafi stundað háskólanám í verkfræði, náttúruvísindum, hagfræði eða viðskiptafræði. Væntanlegir þátttakendur hringi í síma 21347 kl. 14 til 17 fyrir 5. júní n.k. Reiknistofnun Háskólans. 52 29. ma( 1968 - VIÐ MÓT— MÆLPM Sá íorkosiu- legi fugl MÉR ER SAGT, að illa horfi fyr ir íslenzka hananum, hann sé að víkja fyrir útlendum tegundum og deyja út í landinu. Þetta eru slæm tíðindi, sem ekki má láta liggja í þagnargildi. Hver mundi hafa trúað slíku fyrir nokkrum áratugum, þegar þessi tígulegi fugl, þótti ómjssandi á hverju byggðu bóli og glaðvært hanagal bergmálaði bæ frá bæ og sveit úr sveit um gervallt landið í morgunsárinu. Haninn er skrautlegastur allra íslenzkra fugla. Marglitur fjaðra búnaður hans er álcaflega . til komumikill og aðrar eins stél- fjaðrir þekkjast ekki meðal neinna villtra eða taminna fugla hér á norðurslóðum. Eldrauður kamburinn, sem sveiflast til við minnstu hreyfingu, gefur hon- um konunglegt yfirbragð og reisn. Enginn fugl hefur heldur jafn fyrirmannlega framkomu og haninn, þar sem hann spíg. sporar á hlaðinu, skýtur fram bringunni, reigir sig og sveigir af meðfæddum virðuleik og gal ar. □ n * Sumir fara óvirðingarorðum um hanann, vegna getuleysia hans í flugi og sundi. Þáb er satt hann er illa íþróttum búinn I þessum greinum, vatn er eitur i hans beinum, og hann hefur nokkra minnimáttarkennd gagn- vart fljúgandi fuglum, jafnvel smáfugl, sem flýgur hjá, skýtur honum skelk í bringu. Þetta er þó ekki til að býsnast yfir. Deildari meiningar kynnu að verða um fjölskyldulífið. Hanina aðhyllist t. d. fjölkvæni, svo sem lengi hefur þekkzt með mormón um, hvað Eiríkur á Brúnum og Halldór Laxness hafa eftirminnl legá kynnt fyrir íslendingum. Einn hani hefur margar liænur, komi annar hani til, byrja strax áflog, segir í Náttúrufr. Biarna Sæmundss., ef mig misminnir ekki. Nema hvað. Einhver verð- ur að vera húsbóndinn á heimil- inu. Það fer heldur ekki milll mála, að haninn er í miklum metum innan pútnahópsins enda hefur veikara kynið oft fallið fyrir minna atgervi og óglæsl- legra útliti. □ □ ' En hvað sem öllum bollalegg. ingum líður um eiginleika og ino ræti hanans, þá hljóta þó allir að vera sammála um, að mikill sjóu arsviptir væri að honum, e( hann hyrfi alveg úr sögunni. Tl| þess má ekki koma. Ef allt um Framhald á siðu 14. ALÞÝÐLBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.